Sleepy Santa Sweater |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa fyrir börn með jólasveini úr DROPS Air eða DROPS Nepal. Stærð 2-12 ára. Þema: Jól.
DROPS Children 32-20 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 5,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.2 á einungis við stærð 7/8 – 9/10 – 11/12 ára). Til að sleppa við löng hopp með þráðinn á bakhlið á stykki þegar litamynstrið er prjónað, er prjónað með 3 dokkur. Þ.e.a.s. prjónið með 1 dokku grár (litur a) hvoru megin við jólasvein og 1 dokku mynsturlit mitt í peysu (þ.e.a.s. A.1/A.3).Til að koma í veg fyrir göt í litaskiptum verður að vefja þræðina utan um hvorn annan þegar skipt er um lit. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram með grár (litur a) yfir allar lykkjur til loka. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir þá sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt saman og 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Byrjið 1 lykkju á eftir prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Stykkið eru prjónuð neðan frá og upp, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp. Fyrst er prjónað í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er prjónað fram og til baka. Fyrst er prjónað laust stykki sem verður húfa sem er mitt framan á framstykki/bakstykki. Þetta stykkið er prjónað saman við framstykki/bakstykki í síðustu umferð í mynstri, þannig að það hangi utan á flíkinni. Peysan er prjónuð úr DROPS Air eða DROPS Nepal. HÚFA (laust stykki): Fitjið upp 3 lykkjur á prjón 5,5 með litnum hindber Air eða litnum djúp rauður Nepal. 1.UMFERÐ (= ranga): Prjónið slétt. 2.UMFERÐ (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt í hvora af síðustu 2 lykkjunum (= 2 lykkjur fleiri). 3.UMFERÐ (= ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt í fyrstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). 4.UMFERÐ (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt í hvora af þessum 2 lykkjum (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið 3. og 4. umferð 6 sinnum til viðbótar, eftir það endurtakið 3. umferð 1 sinni = 12 lykkjur á prjóni. Prjónið 2 umferðir slétt, síðasta umferð = ranga (þegar þetta lausa stykki er prjónað saman við framstykkið, prjónið saman frá réttu). Leggið stykkið til hliðar og prjónið framstykkið. Ef þú vilt hafa húfu á bakstykki, þá þarf að prjóna 2 húfur. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 70-74-78-82-86-90 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða litnum grár Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið * prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 4 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 58-62-66-68-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón (kantlykkja í hvorri hlið er alltaf prjónuð í garðaprjóni) í 1-1-4-4-6-8 cm (stykkið mælist ca 5-5-8-8-10-12 cm frá kanti). Prjónið nú sléttprjón (kantlykkjur í garðaprjóni) og mynstur í mismunandi stærðum frá réttu þannig MUNIÐ EFTIR PRJÓNFESTUNNI!: STÆRÐ 2 – 3/4 – 5/6 ára: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 6-8-10 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 44 lykkjur) – sjá MYNSTUR, prjónið 6-8-10 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. STÆRÐ 7/8 – 9/10 – 11/12 ára: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni,11-13-15 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 44 lykkjur) – sjá MYNSTUR, prjónið 11-13-15 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 11-16-20 cm, prjónið mynstur A.1 yfir mynstur A.2. ALLAR STÆRÐIR: Þegar stykkið mælist 20-23-26-29-32-35 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, fellið af 2-2-2-3-3-3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 54-58-62-62-66-70 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón, A.1 (einungis í minnstu stærðum) og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 13-14-15-16-17-18 sinnum – JAFNFRAMT þegar 2 úrtökur eru eftir fyrir laskalínu (stykkið mælist núna ca 31-35-39-42 cm mitt að framan), eru miðju 22-24-26-24-26-28 lykkjurnar settar á 1 þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Vinstri öxl – byrjið frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, fækkið lykkjum fyrir laskalínu eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt saman, snúið stykkinu. Prjónið brugðið frá röngu, 1 kantlykkja í garðaprjóni, snúið stykkinu. 1 kantlykkja í garðaprjóni, fækkið lykkjum fyrir laskalínu, snúið og fellið af lykkjur með brugðið. Prjónið hægri öxl frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, fækkið lykkjum fyrir laskalínu, 1 kantlykkja í garðaprjóni, snúið stykkinu og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, brugðið frá röngu, snúið stykkinu. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu, 1 kantlykkja í garðaprjóni, snúið stykkinu og fellið af lykkjur með brugðið. BAKSTYKKI (með jólasveini): Fitjið upp 70-74-78-82-86-90 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða litnum grár Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið * prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 4 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 58-62-66-68-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón (kantlykkja í hvorri hlið er alltaf prjónuð í garðaprjóni) í 1-1-4-4-6-8 cm (stykkið mælist ca 5-5-8-8-10-12 cm frá kanti). Prjónið nú sléttprjón (kantlykkjur í garðaprjóni) og mynstur í mismunandi stærðum frá réttu þannig: STÆRÐ 2 – 3/4 – 5/6 ára: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 6-8-10 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (= 44 lykkjur), prjónið 6-8-10 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur svona. STÆRÐ 7/8 – 9/10 – 11/12 ára: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 11-13-15 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 44 lykkjur), prjónið 11-13-15 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 11-16-20 cm, prjónið mynstur A.3 yfir mynstur A.2. Haldið áfram með mynstur svona. ALLAR STÆRÐIR: Þegar stykkið mælist 20-23-26-29-32-35 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, fellið af 2-2-2-3-3-3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 54-58-62-62-66-70 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón, A.3 (aðeins í minnstu stærðum) og 1 kantlykkju í hvorri hlið – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 13-14-15-16-17-18 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir laskalínu eru 28-30-32-30-32-34 lykkjur á prjóni, fellið af. BAKSTYKKI (án jólasveins): Fitjið upp 70-74-78-82-86-90 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða litnum grár Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið * prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 4 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 58-62-66-68-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20-23-26-29-32-35 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, fellið af 2-2-2-3-3-3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 54-58-62-62-66-70 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eru lykkjum fækkað fyrir laskalínu. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 13-14-15-16-17-18 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir laskalínu eru 28-30-32-30-32-34 lykkjur á prjóni, fellið af. ERMI: Fitjið upp 30-32-32-34-34-36 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða litnum grár Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – munið eftir ÚRTAKA = 26-28-28-30-30-32 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-3½-3½-4-5-5½ cm millibili alls 6-6-7-7-7-7 sinnum = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-26-30-34-38-42 cm, fellið af 2-2-2-4-4-4 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 1-1-1-2-2-2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 36-38-40-40-40-42 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 13-14-15-16-17-18 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu hefur verið gerð eru 10-10-10-8-6-6 lykkjur í umferð, fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið laskasauma ofan frá og niður mitt undir ermi – saumið innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 67-71-75-68-68-72 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða litnum grár Nepal. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er jafnt yfir til 60-60-64-64-68-68 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir í litinn hindber Air eða litinn djúp rauður Nepal, prjónið stroff hringinn í 1 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. DÚSKUR (fyrir húfu): Gerið einn dúsk með litnum natur ca 5-6 cm að þvermáli, munið eftir að skilja eftir 2 þræði til að festa dúskinn með. Festið dúskinn í endann á lausu húfunni á framstykki. SKEGG: 1 kögur = 1 þráður ca 45 cm með litnum natur. Klippið 18 kögur. Hvert kögur á að festast á efri hlið á brugðinni lykkju í hálsi á jólasveini. Leggið þræðina saman tvöfalda, þræðið lykkjunni utan um lykkjuna, þræðið eftir það endunum í gegnum lykkjuna og herðið að. Festið kögur í hverja og eina af 17 lykkjum sem eftir eru yfir brugðnum lykkjum. Gerið síðan lausan hnút á alla endana, svona ca mitt á þráðum. Klippið skeggið til í óskaða lengd. YFIRVARASKEGG: 1 kögur = 1 þráður ca 7 cm með litnum natur. Klippið 8 kögur. Leggið þræðina saman tvöfalda, þræðið lykkjuna utan um lykkju á neðri hlið á brugðinni lykkju í andliti á jólasveini, þræðið eftir það endunum í gegnum lykkjuna og herðið að. Festið kögur í hverja af hinum 7 lykkjunum á neðri hlið á brugðnu lykkjunum. Klippið skeggið til í óskaða lengd. AUGU: Notið afgang af litnum svartur. Saumið lykkjuspor yfir 3 lykkjur og saumið eitt spor þvert yfir næstu lykkju að miðju. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Carolynn wrote:
Hi there! I’m starting the front piece and the pattern calls for 1 edge stitch in garter stitch for the 1st and last stitch. What is an edge stitch? Slip stitch purl wise the first stitch and then Knit the last stitch of every row ? Please advise Thank you!
02.12.2022 - 13:58DROPS Design answered:
Dear Carolyn, we work here in stocking stitch with 1 stitch in garter stitch on each side, this means the first and last stitch will be knitted on every row, while the stitches in between will be knitted from right side and purled from wrong side (see video) - This jumper was a knitalong for some years, you can find more pictures here. Happy knitting!
02.12.2022 - 15:14Linda wrote:
Hei. Kan man gjøre denne til rundfelling? Hvordan gjør jeg det eventuelt?
29.11.2022 - 00:34DROPS Design answered:
Hej Linda, den er med raglan og der er taget 2 masker ind ved hver overgang, ialt 8 masker for hver 2.omgang. Det kan du altid følge... Eller så finder du en bluse i Snow med rundfelling og strikker nissen på maven :)
30.11.2022 - 15:27Sigrid Agathos wrote:
Guten Tag, können Sie mir bitte sagen in welchem Material der Pullover auf den Fotos gestrickt ist - Drops Air oder Nepal? Vielen Dank!
17.10.2022 - 11:50DROPS Design answered:
Liebe Frau Agathos, der Pullover auf dem Foto wurde mit Air gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
18.10.2022 - 09:00Nati wrote:
Hola, me encanta hacer Jerseys de Navidad para mis nietos, el año pasado no hubo uno nuevo y ya he hecho.todos. este año habra?
24.07.2021 - 17:07Maligno wrote:
Bonjour Je fais la taille 3’4 ans j ai presque terminé les diminutions du raglan.le chapeau du père Noël n est pas encore terminé , je suis perturbé car on me demande de mettre en attente les mailles pour l encolure .je suis un peu perdue.pourriez vous svp me renseigner.merci je vous souhaite bonne réception. Josee
17.12.2020 - 13:53DROPS Design answered:
Bonjour Mme Maligno, ce modèle avait fait l'objet d'un DROPS-Along, vous pourez trouver les photos de la réalisation du devant ici, en espérant que ceci puisse vous aider - pensez aussi bien vérifier votre tension en largeur autant qu'en hauteur. Bon tricot!
17.12.2020 - 17:02Nati Retana wrote:
Buenos días, yo todos los años le hago un jersey de Navidad a mi nieto y nieta. Este año no hay patrón nuevo de jersey de Navidad? Gracias.
25.11.2020 - 11:55DROPS Design answered:
Hola Nati, este año no hay patrón nuevo de jersey de Navidad. Puedes hacer otros que estan en nuestra pagina AQUI. Buen trabajo!
25.11.2020 - 16:13Marimar wrote:
Bonjour, J'adore vos modèles. . ! Je suis toujours impatiente pour le kal de noël ..y en aura t il un cette année ? Merci
16.11.2020 - 16:22DROPS Design answered:
Bonjour et merci beaucoup pour votre message, cette année, nous n'aurons pas de kal de Noël, peut-être l'an prochain? Bon tricot!
17.11.2020 - 11:08Tikva wrote:
Ich möchte den Pullover in einer Männergröße stricken. Kann man auch dafür bitte eine Anleitung schreiben, in welcher auch die Größe des Santa an die Breite und Höhe des männlichen Pulli angepasst ist? Denn wenn ich jetzt die Größe des Santa von dem Kinderpulli übernehme, verliert sich dieser auf dem Männerpulli..
03.11.2020 - 08:01DROPS Design answered:
Liebe Tikva, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Gerne können Sie sich von ähnlichen Modelle in die richtige Grösse inspirieren lassen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an dem Laden wo Sie die Wolle gekauft haben, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!
03.11.2020 - 09:09Tina Gade Hansen wrote:
Kan det virkelig passe med maskeantal? Til str 3-4 år 62 m. Det giver næsten 40 cm i bredden, når strikkefasthed overholdes. Jeg kender ingen så store børn
29.09.2020 - 17:05DROPS Design answered:
Hej Tina. Ja det stämmer, du ser alla mått längst ner på måttskissen i de olika storlekarna. Mvh DROPS Design
30.09.2020 - 07:43Jessica Rangel wrote:
Is there a way we can purchase sweaters?
14.09.2020 - 08:19DROPS Design answered:
Dear Mrs Rangel, we only provide the free patterns for the sweaters, you can ask our DROPS stores or ask a knitter in our DROPS Worskhop. Happy knitting!
14.09.2020 - 09:46