Hvernig á að gera andlit á jólasvein í jólapeysu í DROPS Children 32-20
Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við festum skeggið, yfirvaraskeggið og hvernig við saumum út augun á jólasvein í jólapeysunni DROPS Children 32-20.
SKEGG: 1 kögur = 1 þráður ca 45 cm með natur. Klippið 18 kögur. Hvert kögur á að festast á efri hlið á brugðinni lykkju í hálsi á jólasveini. Leggið þræðina saman tvöfalda, þræðið lykkjunni utan um lykkjuna, þræðið eftir það endunum í gegnum lykkjuna og herðið að. Festið kögur í hverja og eina af 17 lykkjum sem eftir eru yfir brugðnum lykkjum. Gerið síðan lausan hnút á alla endana, svona ca mitt á þráðum. Klippið skeggið til í óskaða lengd.
YFIRVARASKEGG: 1 kögur = 1 þráður ca 7 cm með natur. Klippið 8 kögur. Leggið þræðina saman tvöfalda, þræðið lykkjuna utan um lykkju á neðri hlið á brugðinni lykkju í andliti á jólasveini, þræðið eftir það endunum í gegnum lykkjuna og herðið að. Festið kögur í hverja af hinum 7 lykkjunum á neðri hlið á brugðnu lykkjunum. Klippið skeggið til í óskaða lengd.
AUGU:
Notið afgang af svartur. Saumið lykkjuspor yfir 3 lykkjur og saumið eitt spor þvert yfir næstu lykkju að miðju.
Við notum garnið DROPS Snow í myndbandinu.
Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.
Myndbandið að ofan er hægt að nota í eftirfarandi mynstrum
Athugasemdir (1)
Betty McNally wrote:
What does the notation 32-20 refer to?
10.03.2021 - 16:30DROPS Design answered:
Dear Mrs Mc Nally, it's the pattern number: Catalogue DROPS Children 32, pattern number 20 - see also here. Happy knitting! 11.03.2021 - 08:34