Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= rauðbrúnn | |
= ljós eik | |
= útauknings umferð |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Outdoor Christmas |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-11 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.3. Veldur mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum. Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Slepptu þessum kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Byrjið frá réttu með litnum rauðbrúnn og prjónið 15-15-16-16-17-17 sléttar lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-32-32-34-34 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 45-45-48-48-51-51 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-68-68 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-75-80-80-85-85 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 90-90-96-96-102-102 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum rauðbrúnn. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 30-32-34-34-36-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 122-128-134-138-144-150 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður slétt). Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan), berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið núna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki á að prjóna upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Prjónið 0-4-4-6-6-6 umferðir sléttprjón með litnum rauðbrúnn. Prjónið síðan mynstur JAFNFRAMT er aukið út um lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 hringinn alveg eins). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 og A2, aukið út lykkjur jafnt yfir þannig – munið eftir ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 24-28-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 146-156-166-174-184-194 lykkjur. Ör-2: Aukið út 22-26-30-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 168-182-196-210-224-238 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-13-14-15-16-17 mynstureiningar með A.1 með 14 lykkjum). Ör-3: Aukið út 24-30-28-34-38-44 lykkjur jafnt yfir = 192-212-224-244-262-282 lykkjur. Ör-4: Aukið út 24-28-28-32-38-42 lykkjur jafnt yfir = 216-240-252-276-300-324 lykkjur (nú er pláss fyrir 18-20-21-23-25-27 mynstureiningar með A.2 með 12 lykkjum). Ör-5: Aukið út 48-48-52-52-52-60 lykkjur jafnt yfir = 264-288-304-328-352-384 lykkjur (nú er pláss fyrir 33-36-38-41-44-48 mynstureiningar með A.2 með 8 lykkjum). Ör-6: Aukið út 24-24-32-44-44-48 lykkjur jafnt yfir = 288-312-336-372-396-432 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-28-31-33-36 mynstureiningar með A.2 með 12 lykkjum). Ör-7: Aukið út 8-8-8-8-8-4 lykkjur jafnt yfir = 296-320-344-380-404-436 lykkjur. Prjónið A.2 til loka. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 21-22-22-27-27-27 cm frá prjónamerkið við háls. Prjónið síðan sléttprjón með litnum rauðbrúnn (í S og XL er prjónað áfram einungis ef stykkið mælist minna en cm-mál að ofan þegar A.2 hefur verið prjónað til loka). Þegar stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 45-49-52-57-62-68 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-110-116-128-142-156 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 45-49-52-57-62-68 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-208-224-244-268-292 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum rauðbrúnn þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-22-24-26-30 lykkjur jafnt yfir = 212-228-246-268-294-322 lykkjur (lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI. Setjið 58-62-68-76-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum undir ermi = 64-68-76-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferðina við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum rauðbrúnn. Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá AFFELLING. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 9-10-13-16-17-18 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 38-36-35-33-32-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykki. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 44-42-41-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (19)
Wiktoria wrote:
Hej! Jag är nybörjare inom stickning och det här är mitt första projekt. Det verkar som att jag gör ett fel och förstår inte vad det är. Jag har följt instruktionerna väldigt exakt men oket på tröjan hamnar väldigt långt upp. Istället för att lägga sig runt halsen som en normal tröja gör, täcker den hela min hals och når min käke. Det ser riktigt konstigt ut. Jag förstår verkligen inte vad jag gör för fel och uppskattar om någon hjälper mig.
05.04.2024 - 11:10DROPS Design answered:
Hej Wiktoria, Stickar du i DROPS Karisma? Har du 20 m på 10 cm i bredden och 26 varv på 10 cm i höjden? Det är viktigt för att få rätt storlek. Titta på den här, det är en komplett beskrivning i samma garn och samma typ av modell (ja annat mönster och storlek): Christmas KAL I DROPS Karisma
09.04.2024 - 10:01Pauline Kern wrote:
I love your patterns and yarns....I just finished knitting this is brown mix and light oak....your patterns are explained thoroughly and very easy to understand!! THANK YOU
30.03.2024 - 14:02Franziska wrote:
Hallo! Könnte man diesen Pullover auch in Double-Face stricken? Wahrscheinlich würde sich der Garnverbrauch erhöhen, aber würden die Maße noch passen? Ich hab etwas Probleme, das Muster glatt zu halten und wollte es gern mal so ausprobieren :)
19.02.2024 - 10:39DROPS Design answered:
Liebe Franziska, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann könnten Sie wahrscheinlich auch in Double-Face stricken, aber, wie Sie es schreiben, brauchen Sie mehr Wolle; beachten Sie, daß die Textur aber etwas dicker sein wird. Viel Spaß beim stricken!
19.02.2024 - 15:19Cathi Jennings wrote:
Do the yoke stitch counts in this pattern include the extra stitches added with the back of neck elevation?
10.12.2023 - 19:06DROPS Design answered:
Dear Cathi, when you do the neck elevation you are not adding stitches, to what is already on the needles. You are turning mid row, and knit, but not adding stitches here. Happy Knitting!
10.12.2023 - 21:34Anja Gutgesell wrote:
Hallo, liebes Drops-Team, kann ich den Pullover nachträglich verlängern (Ärmel und Saum), und wieviel Wolle bräuchte ich bei Grösse M? Danke im Voraus!
31.05.2023 - 12:42DROPS Design answered:
Liebe Frau Gutgesell, ja sicher können Sie den Pullover verlängern, aber die Garnmenge hängt von der Verlängerungen ab - lassen Sie sich bei einem Modell mit der gewünschten Länge inspirieren, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Händler (auch per Telefon oder per E-Mail) weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
31.05.2023 - 16:32Dessiaume wrote:
Bonjour, est-il possible d\'avoir un tableau des tailles femme, s\'il vous plaît ?
14.04.2023 - 16:27DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dessiaume, nous n'avons pas de tel tableau car nos modèles remontent aux années 80 et les normes ont changé. Pour trouver votre taille, mesurez un vêtement que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
17.04.2023 - 08:39Gitte Marvig wrote:
Når jeg laver mønsteret på bærestykket buler/bølger det. Især der hvor udtagningerne er. Er det rigtigt
10.11.2022 - 09:51DROPS Design answered:
Hej Gitte, Strikker du i DROPS Karisma? Sørg for at du ikke strikker mønsteret for stramt, hvis mønstertråden strammer bagpå vil det bule...
11.11.2022 - 13:46Catherine Hellin wrote:
Je tricote en rond et jacquard le pull drops outdoor chrismas 217/11 malheureusement il y a toujours un décalage au niveau du dessin à chaque tour pas moyen de le faire aligner pouvez vous m'aider ?
16.12.2021 - 17:53DROPS Design answered:
Bonjour Mme Hellin, nous n'avons pas d'autres astuces particulières que la technique des rayures (pas toujours applicable), peut-être que votre magasin aura une astuce à vous partager, n'hésitez pas à le contacter, même par mail ou téléphone, ou bien demandez conseil à d'autres tricoteuses du monde entier via notre DROPS Workshop. Bon tricot!
17.12.2021 - 08:42Petra wrote:
Ik had voor maat XL niet genoeg aan 100 gram om in te breien.
13.11.2021 - 14:55Tiina wrote:
Puseron yläosan levennysten ja kuvioneuleen onnistuessa, tuleeko hartioiden seudulla neuleesta piirroskuvan mallinen? Omassani olat luisuvat suht voimakkaasti alaviistoon (kuitenkin päällä ihan ok). Tarkoittaako se että kuvioneuleeni on liian tiukkaa ja vetää neuletta kasaan?
28.09.2021 - 21:40DROPS Design answered:
Hei, kuvion tulisi näyttää tasaiselta työn oikealta puolelta katsottuna. Työn takaosan lankajuoksujen tulee joustaa hieman. Mikäli kuviosta tulee liian tiukka, voit vaihtaa paksumpiin puikkoihin kuvioneuleen kohdalla.
21.10.2021 - 17:42