Tracy the Triceratops |
|
|
|
Hekluð risaeðla triceratops úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er heklað frá nefi að hala án sauma. Þema: Leikföng.
DROPS Children 37-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur): 1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju á breidd. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkju dragist aðeins upp á heklunálina svo að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast, kemur mynstrið til með að dragast saman í þeim einingum þar sem margar loftlykkjur eru. HEKLAÐ SAMAN: Heklið 2 fastalykkjur saman að 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). LYKKJUSPOR: Saumið með einföldum svörtum þræði. Augun eru saumuð út yfir 12. og 13. umferð á nefi og það eru 4 lykkjur á milli augna. Sjá mynsturteikningu sem sýnir hvernig lykkjusporið er gert. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá nefi að hala án sauma. Fyrstu eru heklaðir 4 fætur og 3 horn sem er langt til hliðar um stund. Risaeðlan byrjar við nef, síðan er kraginn heklaður áfram frá nefi. Búkurinn er heklaður frá bakhlið á kraga, fæturnir eru heklaðir við stykkið og búkurinn endar með halanum. Að lokum eru gaddarnir heklaðir meðfram kanti á kraga. FRAMFÓTUR OG AFTURFÓTUR: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífa – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur með lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja lykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, það eru 10 lykkjur í umferð. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum, 2 fastsalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 3 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). UMFERÐ 4-10: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju í umferð. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). Heklið 4 fætur svona og fyllið þá með vatti. HORN: VIÐ ENNI: Heklið 11 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum turkos. Byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni og heklið 1 keðjulykkju í hverja af næstu 10 loftlykkjum, að auki eru heklaðar 2 fastalykkjur í síðustu loftlykkjuna (þessar 2 fastalykkjur eru notaðar til að hekla síðar stykkið saman). Snúið stykkinu og heklið 1 keðjulykkju í neðri hlið á 10 loftlykkjum sem heklað var í. Klippið frá og festið enda. Heklið 2 horn. VIÐ NEF: Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífugrænn. Byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni og heklið 1 keðjulykkju í hverja af næstu 5 loftlykkjum, að auki eru heklaðar 2 fastalykkjur í síðustu loftlykkjuna (þessar 2 fastalykkjur eru notaðar síðar til að hekla stykkið saman). Klippið frá og festið enda. Heklið 1 horn. NEF: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífugrænn, í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur af lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 2 fastalykkjur í hverja lykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, það eru 10 lykkjur í umferð. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í hverja lykkju. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 10 lykkjur). UMFERÐ 5: Í þessari umferð er hornið heklað fast við nefið þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 lykkjum, leggið hornið á nefið þannig að næstu 2 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 2 lög í hvora lykkju, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 10 lykkjur). UMFERÐ 6: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 lykkjum, 2 fastalykkjur í hvora af 2 næstu lykkjum, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 2 lykkjur fleiri, það eru 12 lykkjur í umferð). UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 5 lykkjum, 2 fastalykkjur í hvora af 2 næstu lykkjum, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 5 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 14 lykkjur). UMFERÐ 8-15: Heklið eins og umferð 6 með útaukningu með 2 fastalykkjum í hvora af 2 miðju lykkjum á nefi í hverri umferð. Eftir UMFERÐ 15 eru 30 lykkjur í umferð. UMFERÐ 16: Í þessari umferð eru hornin hekluð föst við enni þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, leggið hornið á nefið þannig að næstu 2 fastalykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 2 lög í hvora lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju (= miðja á nefi), 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið hitt hornið fast yfir næstu 2 fastalykkjur alveg eins og það fyrra. Heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju og 1 fastalykkja í síðustu lykkju. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 36 lykkjur). KRAGI: Allar fastalykkjur í næstu umferð eru heklaðar í fremri lykkjubogann á lykkju. Með þessu þá verður smá lykkjukantur á bakhlið á stykki, það á að hekla í þennan lykkjukant þegar búkurinn er gerður. UMFERÐ 17: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju (= miðja á nefi), 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 42 lykkjur). UMFERÐ 18: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 10 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 10 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 48 lykkjur). UMFERÐ 19: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 12 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 12 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 54 lykkjur). UMFERÐ 20: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 13 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 13 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 60 lykkjur). UMFERÐ 21: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Þegar nefið og kraginn er tilbúið. Saumið augun með svartur, sjá LYKKJUSPOR í útskýringu að ofan. BÚKUR: Notið heklunál 3,5 og litinn ólífa. Byrjið neðst á höfði og heklið í lausu lykkjubogana frá 16. umferð (bakhlið á umferð 17) þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvern lykkjuboga, en hoppið yfir 1 lykkju í umferð (= 35 lykkjur). Ekki á að enda þessa umferð með 1 keðjulykkju eins og áður. Þegar byrja á næstu umferð er 1. lykkjan í þessari umferð hekluð í fyrstu lykkjuna frá fyrri umferð – þannig að stykkið getur haldið áfram hringinn án þess að umferðin endi. Setjið 1 prjónamerki mitt ofan á baki og 1 prjónamerki mitt undir maga. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt undir maga (= 2 lykkjur fleiri, það eru 37 fastalykkjur í umferð). UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt undir maga og heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 4 lykkjur fleiri, það eru 41 fastalykkjur í umferð). UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Fyllið risaeðluna með vatti. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt undir maga og heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 4 lykkjur fleiri, það eru 45 fastalykkjur í umferð). UMFERÐ 6: Nú eru framfæturnir heklaðir á búkinn. Byrjið mitt undir maga, brjótið saman annan framfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 lykkjum. Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð. Brjótið hinn framfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af 6 lykkjum. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 47 lykkjur í umferð). UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 49 lykkjur í umferð). UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 51 lykkjur í umferð). UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 53 lykkjur í umferð). UMFERÐ 14-21: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 22: Nú eru afturfæturnir heklaðir á búkinn. Byrjið mitt undir maga, brjótið saman annan afturfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 lykkjum. Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð. Brjótið hinn afturfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af 6 lykkjum. Fyllið risaeðluna með vatti. HALI: UMFERÐ 23: Heklið 2 fyrstu fastalykkjurnar saman – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn (= 52 lykkjur). Passið uppá að prjónamerkin sitji áfram mitt ofan á baki og mitt undir maga/hala! Fækkið nú lykkjum fyrir hala: UMFERÐ 24: Heklið 2 fastalykkjur saman, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram að 6 lykkjum á undan prjónamerki ofan á baki, heklið 2 fastalykkjur saman alls 6 sinnum, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki mitt undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 8 lykkjur færri, það eru 44 fastalykkjur í umferð). UMFERÐ 25: Heklið 2 fastalykkjur saman, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 lykkjur færri, það eru 42 fastalykkjur í umferð). Fyllið risaeðluna með vatti. UMFERÐ 26: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkju í hverja lykkju fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki ofan á baki, heklið 2 fastalykkjur saman alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í hverja lykkju fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki mitt undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 6 lykkjur færri, það eru 36 lykkjur í umferð). UMFERÐ 27-36: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki ofan á baki, heklið 2 fastalykkjur saman, heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja lykkju fram að prjónamerki mitt undir maga/hala (= 2 lykkjur færri í hverri umferð og á eftir UMFERÐ 36 eru 16 lykkjur í umferð). Fyllið risaeðluna með vatti, jafnóðum og heklað er. UMFERÐ 37-42: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja lykkju fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 lykkjur færri í umferð). Eftir UMFERÐ 42 eru 6 lykkjur í umferð. Fyllið afgang af risaeðlunni með vatti. Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Notið endann á þræðinum til að sauma saman síðustu 6 lykkjurnar. Festið þráðinn vel. GADDAR: Það eru 60 lykkjur í kringum kragann. Notið heklunál 3,5 og litinn turkos. Byrjið frá réttu neðst á kraga, það eiga að vera 19 lykkjur mitt undir nefi sem gaddar eru ekki heklaðir í. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið 1 fastalykkju í sömu lykkju, * hoppið yfir 1 lykkju og í næstu lykkju er heklað þannig: 2 stuðlar, 1 tvíbrugðinn stuðull, 3 loftlykkjur og heklið 1 keðjulykkju sem er hekluð föst við fyrri tvíbrugðna stuðul þannig: Stingið heklunálinni efst í tvíbrugðna stuðulinn og síðan niður í gegnum efsta liðinn af sama tvíbrugðna stuðul (í gegnum 2 lykkjur), sækið þráðinn og dragið í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni), 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 stuðlar, hoppið yfir 1 lykkju og heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 10 sinnum. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Festið þráðinn. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Suzan Kornelisse wrote:
In toer 3 voor de poten komt het steken aantal niet uit. Met 3 steken tussen elke meerdering kom ik niet uit. Moet het niet zijn: 1 vaste, 1 meerdering , 1 vaste, 1 meerdering enz net als in patroon ee-147-bn, dino cuddles? Die komt wél uit. Alvast bedankt.
28.12.2023 - 09:43Suzan Kornelisse wrote:
In toer 3 voor de poten komt het steken aantal niet uit. Met 3 steken tussen elke meerdering kom ik niet uit. Moet het niet zijn: 1 vaste, 1 meerdering, 1 vaste, 1 meerdering enzo... net als in patroon ee-147-bn, dino cuddles? Die komt wél uit. Alvast bedankt.
16.08.2023 - 23:08GIROD Jeannine wrote:
Bonjour, Merci pour les explications précédentes mais je ne comprends pas la suite du rang 24 comment peut il rester 6 mailles avant et 2 mailles avant le marqueur et comment confectionner la queue. Avec tous mes remerciements anticipés.
01.06.2023 - 23:14DROPS Design answered:
Bonjour Mme Girod, vous continuez toujours comme au tour 24: crochetez jusqu'à ce qu'il reste 2 ms avant le marqueur et crochetez ces 2 m ensemble (tour 25), crochetez jusqu'à ce qu'il reste 2 m avant le marqueur du dos, crochetez 2 m ens avant le marqueur + 2 m end après le marqueur (tour 26), crochetez jusqu'à ce qu'il reste 2 m avant le marqueur, crochetez 2 m ens avant le marqueur, 2 m ens après le marqueur (tours 27 à 36) et ainsi de suite. Bon crochet!
02.06.2023 - 08:25GIROD Jeannine wrote:
Je ne comprends pas le rang 24 comment écouler 6 fois 2 mailles serrées alors qu’il faut laisser 6 mailles avant le marqueur dos . Merci
01.06.2023 - 12:52DROPS Design answered:
Bonjour Mme Girod, crochetez jusqu'à ce qu'il reste 6 mailles serrées avant le marqueur du dos, puis crochetez 6 fois 2 mailles serrées écoulées ensemble (soit 3 fois avant le marqueur et 3 fois après le marqueur). Bon crochet!
01.06.2023 - 16:59CJ AmburDuck wrote:
❤️ these patterns!
01.05.2023 - 14:55Catharina Almén wrote:
Hej, jag upptäckte att det är fel i mönstret på benens varv 3. Fick inte ihop ökningen, så jag virkade 1 FM, 2 FM i mästa varvet ut för att få 15 FM totalt.
10.11.2022 - 16:44Guenda wrote:
Salve, lo schema della coda passa dal giro 24 al 27. In totale lavoro 42 o 44 giri? I due giri che mancano come li lavoro? Grazie.
18.12.2020 - 00:43DROPS Design answered:
Buongiorno Guenda, abbiamo corretto la numerazione dei giri nella coda, le spiegazioni erano corrette. I giri totali sono 42. Grazie per la segnalazione. Buon lavoro!
18.12.2020 - 08:56