Love Links Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 217-18 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum. Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Öll útaukning er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 102 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 27) = 3,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.3 og A.4). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan. Neðsta hnappagatið á að staðsetja ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að staðsetja í skiptingunni á milli kants í hálsi og berustykki. Stillið staðsetninguna af þannig að fellt er af í brugðnu einingunum (séð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka, fellið af kantlykkjur að framan og prjónið síðan með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Kantar að framan eru prjónaðar í lokin. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-120-124-132-136-144 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3 með litnum ceder. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur (= kantur að framan), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 104-108-112-120-124-132 lykkjur og aukið jafnframt út 27-31-35-35-39-47 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING, prjónið síðan stroff eins og áður yfir þær 6 lykkjur sem eftir eru. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjur (= kantur að framan) og prjónið brugðið út umferðina (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið) = 131-139-147-155-163-179 lykkjur í umferð meðtalin 1 kantlykkja í hvorir hlið. Setjið 1 prjónamerki innan við kantlykkju mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Lesið allt berustykki áður en prjónað er og lesið LEIÐBEININGAR! Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 32-34-36-38-40-44 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið við miðju að framan og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan (kantlykkjur eru prjónaðar með litnum ceder). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 og A.2, eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 32-32-32-32-40-40 lykkjur jafnt yfir = 163-171-179-187-203-219 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-21-22-23-25-27 mynstureiningar með A.1 með 8 lykkjum). Ör-2: Aukið út 32-40-40-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 195-211-219-227-243-267 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-27-28-30-33 mynstureiningar með A.1 með 8 lykkjum). Ör-3: Aukið út 32-32-40-48-48-40 lykkjur jafnt yfir = 227-243-259-275-291-307 lykkjur (nú er pláss fyrir 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með A.1 með 16 lykkjum). Ör-4: Aukið út 32-32-32-32-40-48 lykkjur jafnt yfir = 259-275-291-307-331-355 lykkjur (nú er pláss fyrir 32-34-36-38-41-44 mynstureiningar með A.2 með 8 lykkjum). Ör-5: Aukið út 32-32-32-24-32-32 lykkjur jafnt yfir = 291-307-323-331-363-387 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-38-40-41-45-48 mynstureiningar með A.2 með 8 lykkjum). Útaukningum er nú lokið í stærð XS, S og M. Ör-6: Aukið út 24-24-32 lykkjur jafnt yfir (á einungis við um stærð L, XL og XXL) = 291-307-323-355-387-419 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26 mynstureiningar með A.2 með 16 lykkjum í 3 stærstu stærðunum). Útaukningu er nú lokið í stærð L, XL og XXL. Prjónið áfram þar til síðasta umferð í A.2 er eftir í þinni stærð. Stykkið mælist ca 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 40-44-46-50-56-64 lykkjur í sléttprjóni eins og síðasta umferð í A.2 sýnir (= framstykki), setjið næstu 64-64-68-76-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 81-89-93-101-113-129 lykkjur í sléttprjóni eins og síðasta umferð í A.2 sýnir (= bakstykki), setjið næstu 64-64-68-76-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-44-46-50-56-64 lykkjur í sléttprjóni eins og síðasta umferð í A.2 sýnir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 179-195-211-227-259-291 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: XS, S, L og XL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (séð frá réttu), prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 22-24-14-16 mynstureiningar með 8-8-16-16 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATH: Mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Haldið áfram með mynstrið fram og til baka svo að mynsturbekkurinn frá berustykki er prjónaður til loka Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkjuna í A.4 (séð frá réttu), prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 11-12-14-16 mynstureiningar með 16 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. M og XXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.4 (séð frá réttu), prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 13-18 mynstureiningar með 16 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATH: Mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram með A.4 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. A.4 er endurtekið svona á hæðina eins langt og hægt er áður en stroffið byrjar neðst á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.4 er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 195-211-227-243-275-307 lykkjur (þessi útaukning er einungis gerð í fyrsta skipti sem A.4 er prjónað á hæðina og það er nú pláss fyrir 12-13-14-15-17-19 mynstureiningar A.4 með 16 lykkjum). Prjónið þar til stykkið mælist ca 31 cm frá skiptingu í öllum stærðum – endið mynstrið fallega eftir heilan mynsturbekk. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með litnum ceder þar sem aukið er út um 57-61-65-73-81-93 lykkjur jafnt yfir = 252-272-292-316-356-400 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 64-64-68-76-80-80 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-72-80-88-96-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi, þ.e.a.s. setjið prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 35-35-39-43-47-47 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= miðjulykkja). Það eru 35-35-39-43-47-47 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið mitt undir ermi er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi og prjónamerkið mitt á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja. Prjónið síðustu umferð í A.2 þannig að A.2 endar á sama stað og á fram- og bakstykki – passið uppá að mynstrið passi yfir lykkjurnar frá berustykki. Lestu allan kaflann um ermi áður en þú prjónaðar áfram! XS, S, L og XL: Prjónið A.3 hringinn þannig að mynstureining frá berustykki er prjónuð til loka á hæðina, en passið uppá að mynstrið haldi fallega áfram yfir lykkjur frá berustykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 hringinn alveg eins – teljið frá miðju þannig að miðjulykkja í A.4 passi við lykkju með prjónamerki í mitt á ermi. A.4 er endurtekið á hæðina. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan undir ALLAR STÆRÐIR. M og XXL: Þegar síðasta umferðin í A.2 hefur verið prjónuð til loka, prjónið A.4 hringinn – teljið frá miðju þannig að miðjulykkja í A.4 passið við lykkju með prjónamerki í mitt á ermi. A.4 er endurtekið á hæðina. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 14-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-56-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 41-40-38-36-35-33 cm frá skiptingu – endið mynstrið fallega eftir heilan mynsturbekk. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt með litnum ceder þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 48-52-52-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-44-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 3 með litnum ceder, þ.e.a.s. byrjið beint fyrir neðan kant í hálsmáli og prjóniði upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið upp ca 120-124-128-136-140-144 lykkjur (þetta jafngildir ca 25 lykkjum per 10 cm meðfram kanti – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2½ til 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið kant að framan alveg eins meðfram hægra framstykki, en byrjið neðst á framstykki og haldið áfram upp yfir kant í hálsmáli. Þegar kantur að framan mælist ca 1 til 1½ cm, fellið af fyrir 8-8-8-9-9-9 HNAPPAGÖTUM jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan. Haldið síðan áfram með kant að framan þar til hann mælist með sama máli og vinstri kantur að framan. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið kant að framan við kant í hálsmáli innan við 1 kantlykkju með sauminn inn að röngu á stykki. Brjótið inn stroffið efst í hálsmáli tvöfalt að röngu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði of stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Trude Dahle wrote:
Strikker jakka,men skjønner ikke når jeg begynner på mønstre.A1 1.omgang hvit ,så brun,så hvit.Må jeg ha 4 nøster i bruk,da det strikkes frem og tilbake?
03.05.2023 - 16:15DROPS Design answered:
Hei Trude, Det er bare de 3 første radene i A.1 som ikke bruker begge fargene. Du kan begynne med natur, strikke tilbake med rust, begynne igjen fra vrangen og strikke tilbake med natur. Da har du begge garn klare til å begynne mønsteret på rad 4. God fornøyelse!
04.05.2023 - 06:42Anita Strandberg wrote:
Jag stickar st M och har gjort halskanten. Men mönstret med 179m stämmer inte! 22 rapporter x 8m plus 2 kantmaskor blir 178. Hur ska jag göra för att mönstret ska stämma mitt fram?
03.01.2023 - 16:26DROPS Design answered:
Hej Anita, Når du har 2 masker tilbage: sticka första maskan i A.1 så att mönstret börjar och slutar likadant i varje sida mot mitt fram, och avsluta med 1 kantmaska i rätstickning :)
05.01.2023 - 10:34Amanda Karlsson wrote:
Could you do a video on blocking? both wet and dry, people mention it everywhere in other forums but i cant find a good video on it. And i think this cardigan needs it for the white pattern to look right
06.09.2022 - 12:44DROPS Design answered:
Dear Mrs Karlsson, you can simply wash the garment following care instructions on the label/shadecard + extra tips and let dry flat to the finished measurements on a flat surface. Your DROPS Store might have even more tips for you and will share them with you even per mail or telephone. Happy knitting!
07.09.2022 - 08:03Georgina wrote:
Gracias por la respuesta. Pero en la chaqueta al seguir las instrucciones de ida y vuelta no sale el dibujo al menos en A1, que es el que he probado. En el jersey sí sale en circular. ¿Puede haber alguna errata en el patrón de la chaqueta y sus diagramas? UN SALUDO
17.11.2021 - 11:11DROPS Design answered:
Hola Georgina, tienes que tener en cuenta que el diagrama muestra todas las filas del patrón. Por lo tanto, el dibujo se trabaja por el lado derecho y por el lado revés (por el que tienes que trabajar los puntos al contrario de como se presentan (derecho en vez de revés...)). El jersey se trabaja siempre por el lado derecho y por eso el dibujo solo se trabaja por el lado derecho.
21.11.2021 - 19:03Georgina wrote:
Sigo en este otro mensaje con mi otra duda 3. Es viable tejer siempre del lado en que tocaría el punto derecho, posible con agujas circulares? Mejoran los problemas anteriores. Saludo
16.11.2021 - 12:39DROPS Design answered:
Hola Georgina, no entiendo tu pregunta, puedes explicar mas?
17.11.2021 - 08:29Georgina wrote:
Hola, precioso patrón 1. En la chaqueta abierta se lee cada línea del patrón siempre desde la derecha?, no como creo suele hacerse en ida y vuelta de forma alternada 2. ¿Hay alguna solución para no generar tantos cabos sueltos al cambiar los hilos de color, en especial en aquellas hileras en que solo se da una vuelta y queda el hilo en el lado contrario.
16.11.2021 - 12:38DROPS Design answered:
Hola Georgina, 1. Cuando se teje de ida y vuelta, se teje una hilera por el lado derecho de la labor y una hilera por el lado revés de la labor. Como los diagramas muestran todos los puntos vistos por el lado derecho, tendrás que tejer en el sentido contrario cuando se teje por el lado revés: lees la hilera de izquierda a derecha, los puntos derechos se tejen de revés, y los puntos reveses se tejen de derecho, etc (esto frecuentemente va a estar especificado en la definición de los símbolos: “derecho por el lado derecho, revés por el lado revés”). Mira la leccion drops AQUI. 2. no se puede. Saludos!
17.11.2021 - 08:26Alexandra wrote:
Hi, can I just check that the neckband in rib should be 9cm? this seems a really large band (larger than the model in the picture- and the diagram appears to show that the neckband would be 4cm. thanks!
18.10.2021 - 18:59DROPS Design answered:
Dear Alexandra, neckband should be 9 cm, you will fold it double afterwards to get a folded edge (= approx. 4 cm) - see under ASSEMBLY and last picture. Happy knitting!
19.10.2021 - 08:19Evelin Goldmann wrote:
Habe dieses Muster gestrickt. Es sieht einfach traumhaft aus. Bei einer Jacke haut es leider nicht immer mit den Reihen in einer Farbe hin, dass diese Farbe wieder aufgenommen werden kann. Man müsste hier abschneiden und den Faden wieder neu beginnen. Aber man kann ja improvisieren.
08.02.2021 - 15:13Cindy wrote:
Kann man diese Jacke auch in Runden mit einem steek stricken? Wenn ja was muss ich beachten? Vielen Dank!
12.01.2021 - 14:28DROPS Design answered:
Liebe Cindy, ja wahrscheinlich können Sie nach dem Bündchen/Hals mit Steek stricken - dieses Video kann Ihnen sicher mithelfen. Viel Spaß beim stricken!
12.01.2021 - 16:06Maria Estrella wrote:
Spain Preciosa! Me encanta!
17.06.2020 - 19:33