Love Links |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 217-17 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum. Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.24) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.3 og A.4). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-120-124-132 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum ceder. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-28-32-32-36-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 128-136-144-152-160-176 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt með litnum ceder (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að framan). Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Lesið allt berustykki áður en prjónað er og lesið LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 hringinn (= 32-34-36-38-40-44 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 og A.2, eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 32-32-32-32-40-40 lykkjur jafnt yfir = 160-168-176-184-200-216 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-21-22-23-25-27 mynstureiningar með A.1 með 8 lykkjum). Ör-2: Aukið út 32-40-40-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 192-208-216-224-240-264 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-27-28-30-33 mynstureiningar með A.1 með 8 lykkjum). Ör-3: Aukið út 32-32-40-48-48-40 lykkjur jafnt yfir = 224-240-256-272-288-304 lykkjur (nú er pláss fyrir 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með A.1 með 16 lykkjum). Ör-4: Aukið út 32-32-32-32-40-48 lykkjur jafnt yfir = 256-272-288-304-328-352 lykkjur (nú er pláss fyrir 32-34-36-38-41-44 mynstureiningar með A.2 með 8 lykkjum). Ör-5: Aukið út 32-32-32-24-32-32 lykkjur jafnt yfir = 288-304-320-328-360-384 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-38-40-41-45-48 mynstureiningar með A.2 með 8 lykkjum). Útaukningum er nú lokið í stærð XS, S og M. Ör-6: Aukið út 24-24-32 lykkjur jafnt yfir (á einungis við um stærð L, XL og XXL) = 288-304-320-352-384-416 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26 mynstureiningar með A.2 með 16 lykkjum í 3 stærstu stærðunum). Útaukningu er nú lokið í stærð L, XL og XXL. Prjónið áfram þar til síðasta umferð í A.2 er eftir í þinni stærð. Stykkið mælist ca 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 40-44-46-50-56-64 lykkjur í sléttprjóni eins og síðasta umferð í A.2 sýnir (= ½ bakstykki), setjið næstu 64-64-68-76-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-92-100-112-128 lykkjur í sléttprjóni eins og síðasta umferð í A.2 sýnir (= framstykki), setjið næstu 64-64-68-76-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-44-46-50-56-64 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni eins og síðasta umferð í A.2 sýnir (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-208-224-256-288 lykkjur. Byrjið umferð í annarri hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið þannig: XS, S, L og XL: Prjónið A.3 hringinn þannig að mynstureining frá berustykki er prjónuð til loka (= 22-24-14-16 mynstureiningar með 8-8-16-16 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.4 hringinn (= 11-12-14-16 mynstureiningar með 16 lykkjum). Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. M og XXL: Prjónið A.4 hringinn (= 13-18 mynstureiningar með 16 lykkjum). Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram með A.4 hringinn. A.4 er endurtekið á hæðina eins langt og hægt er áður en stroffið byrjar neðst á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.4, aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 192-208-224-240-272-304 lykkjur (þessi útaukning er gerð einungis í fyrsta skipti sem A.4 er prjónað á hæðina og nú er pláss fyrir 12-13-14-15-17-19 mynstureiningar með 16 lykkjum). Prjónið þar til stykkið mælist ca 31 cm frá skiptingu í öllum stærðum – endið mynstrið fallega eftir heilan mynsturbekk. Það eru ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt með litnum ceder þar sem aukið er út um 56-64-68-72-80-92 lykkjur jafnt yfir = 248-272-292-312-352-396 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 64-64-68-76-80-80 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-72-80-88-96-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi, þ.e.a.s. setjið prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 35-35-39-43-47-47 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= miðjulykkja). Það eru 35-35-39-43-47-47 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið mitt undir ermi er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi og prjónamerkið mitt á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja. Prjónið síðustu umferð í A.2 þannig að A.2 endar á sama stað og á fram- og bakstykki – passið uppá að mynstrið passi yfir lykkjurnar frá berustykki. Lestu allan kaflann um ermi áður en þú prjónaðar áfram! XS, S, L og XL: Prjónið A.3 hringinn þannig að mynstureining frá berustykki er prjónuð til loka á hæðina, en passið uppá að mynstrið haldi fallega áfram yfir lykkjur frá berustykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 hringinn alveg eins – teljið frá miðju þannig að miðjulykkjan í A.4 passi við lykkju með prjónamerki í mitt á ermi. A.4 er endurtekið á hæðina. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan undir ALLAR STÆRÐIR. M og XXL: Þegar síðasta umferðin í A.2 hefur verið prjónuð til loka, prjónið A.4 hringinn – teljið frá miðju þannig að miðjulykkjan í A.4 passið við lykkju með prjónamerki í mitt á ermi. A.4 er endurtekið á hæðina. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 14-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-56-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 41-40-38-36-35-33 cm frá skiptingu – endið mynstrið fallega eftir heilan mynsturbekk. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt með ceder þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 48-52-52-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-44-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið inn stroffið efst í hálsmáli tvöfalt að röngu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði of stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Lise wrote:
Hva/hvor er mønsteret til A3 i str medium?
09.04.2024 - 14:41Miriam wrote:
Ich hab den Pulli gestrickt. Wunderschön und passt von den Maßen auch mit Cotton Merino, perfekt. Nun hab ich schon einige Norweger-Pullies von euch gestrickt. Der Saum klappt aber immer nach oben, wenn ich mich an die Anleitung halte. Was mach ich falsch?
18.12.2023 - 08:37DROPS Design answered:
Liebe Miriam, ie können den Pullover mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen.
18.12.2023 - 09:35Annemiek Van Rijn wrote:
Hallo, ik wil graag een enkele smalle hals ipv een dubbele. Hoeveel steken moet ik dan opzetten en hoeveel meerderen??
27.07.2023 - 13:26DROPS Design answered:
Dag Annemiek,
In plaats van 9 cm, brei je dan 4,5 cm boordsteek. Verder hoef je niks te veranderen.
01.08.2023 - 20:55Katrin wrote:
Hallo, wie kann ich die Ärmel richtig stricken in Größe L? Man benötigt 88 Maschen. Ein Mustersatz hat 16 Maschen. Das geht irgendwie nicht auf. Oder muss Ich da was ändern? Vielen Dank für Ihre Antwort.
08.03.2023 - 13:24DROPS Design answered:
Liebe Katrin, bei den Ärmeln soll die Masche mit der markierte Mittelmasche im Diagramme diejenige mit der Markierung bei der oberen Ärmelmitte - diese Lektion wird Ihnen damit helfen. Viel Spaß beim stricken!
08.03.2023 - 13:39Ingela Kalin wrote:
När man har bara ett varv av en färg och ska byta till en annan färg. Hur undviker man hacket. ? \r\n\r\nÄr fram och bakstycket exakt lika? Dvs ska ärmarn stickas lika? \r\n\r\nVar börjar man varvat när ärmarna stickas. R det i början av de 16 upplockade maskorna? \r\n//Ingela
31.07.2022 - 16:32Ingela wrote:
Vid rundstickning av ett varv med en färg och ska övergå till nästa varv med en annan färg blir det skevt i övergången. Det är inte snyggt. Vad gör jag.
21.02.2022 - 22:57DROPS Design answered:
Hej Ingela. I denna video kan du se hur du kan göra för att undvika detta. Mvh DROPS Design
23.02.2022 - 10:32Joke wrote:
Hallo, Bij pijl 5 ontstaan 320 steken bij maat M.. Als ik dat omreken met de stekenverhouding, 21st= 10cm, dan kom ik op 152cm (grootste omtrek), terwijl het op ongeveer 100cm zou moeten uitkomen volgens de tekening (2x50cm.). Maak ik een denkfout, of klopt er iets niet in het patroon m.b.t de meerderingen.? Ik hoor het graag, Met vriendelijke groet, Joke
13.02.2022 - 17:48DROPS Design answered:
Dag Joke,
Dit komt omdat je de pas helemaal in de rondte breit. Als je op basis van het aantal steken het aantal cm uitrekent, reken je dus de omtrek van de betreffende cirkel uit, in plaats van de diameter.
17.02.2022 - 11:42Soile wrote:
En ymmärrä seuraavaa, hihan kuvio, koko S. HIHA: "Keskellä hihan päällä olevasta merkistä lasketaan mallineuleen kuvion alku". Jne. Myöhemmin "Kun olet neulonut piirroksen A.3 loppuun.....Piirrokseen A.4 on merkitty hihan keskisilmukka, laske siitä kuvion alku". Aloitetaanko kuvion teko merkistä kuten piirroksessa A4 vai tuleeko kuvion keskikohta siihen aloituskohtaan. Toisin sanoen, en käsitä kuviossa olevan merkin roolia.
16.11.2021 - 11:55DROPS Design answered:
Hei, tuo kuviossa oleva merkki tulee keskellä hihan päällä olevan merkin kohdalle, eli tästä kohtaa lasketaan mallineuleen alku.
08.12.2021 - 17:09Jorunn Rusten wrote:
Hei,er der en feil i A1,omgang nr.27? Får ikke mønsteret til å stemme.
18.08.2021 - 21:21Jacqueline wrote:
Waar staat A.3 voor maat M ?
11.02.2021 - 16:28DROPS Design answered:
Dag Jacqueline,
In maat M heb je A.3 niet nodig, je begint dan gelijk met A.4.
16.02.2021 - 15:41