Indiekimono |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónað poncho úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað með köðlum og perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-40 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið síðan umferð 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5 og A.6). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PICOTKANTUR (prjónaður fram og til baka): Picotkanturinn er talinn sem 4 lykkjur í samanlögðum lykkjufjölda. Þegar aukið er út og lykkjum fækkað í picotkanti, eru auka lykkjur ekki taldar með í samanlögðum lykkjufjölda. UMFERÐ 1: Prjónið perluprjón yfir 4 síðustu lykkjur, UMFERÐ 2: Prjónið perluprjón yfir 4 fyrstu lykkjur, UMFERÐ 3: Prjónið perluprjón yfir 4 síðustu lykkjur, UMFERÐ 4: Prjónið perluprjón yfir 4 fyrstu lykkjur, UMFERÐ 5: Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið þessar 4 lykkjur þannig: 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, í hvora og eina af 2 síðustu lykkjum eru prjónaðar 2 lykkjur i hvora lykkju með því að prjóna framan í og aftan í sömu lykkjuna = 2 nýjar lykkjur á prjóni. UMFERÐ 6: Lyftið fyrstu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið síðan öftustu lykkjunni á hægri prjóni yfir fremstu lykkjuna. Nú hefur fækkað um 2 lykkjur – prjónið síðan umferðina út eins og áður. Endurtakið umferð 1 til 6. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í 5 stykkjum. Fyrst eru prjónuð 2 framstykki og eitt bakstykki að berustykki, neðan frá og upp. Þessi stykki eru saumuð saman á öxlum. Síðan er prjónað framstykki og bakstykki frá hlið að hlið sem verður neðsti hlutinn á poncho. Þessi stykki eru saumuð á í lokin. Síðan er saumurinn saumaður undir ermum. Stykkið er opið í hvorri hlið. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 86-92-100-106 lykkjur á hringprjón 6 með Nepal. Prjónið 2 umferðir PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki eftir 4 fyrstu lykkjur í umferð (séð frá réttu). Prjónamerkið merkir hvar picotkantur er prjónaður síðar. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): Prjónið 16-16-20-20 lykkjur perluprjón, prjónið A.1 (= 24 lykkjur sem auknar eru út ti 33 lykkjur), prjónið 30-34-36-40 lykkjur sléttprjón og endið með 16-18-20-22 lykkjur perluprjón við ermi. Nú eru 95-101-109-115 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu – jafnframt er prjónaður PICOTKANTUR yfir 4 síðustu lykkjur í umferð – sjá útskýringu að ofan (1. umferð með picotkanti er prjónuð frá röngu). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með perluprjóni og picotkanti yfir fyrstu 16-16-20-20 lykkjurnar, prjónið A.2 (= 33 lykkjur), prjónið 30-34-36-40 lykkjur sléttprjón og endið með 16-18-20-22 lykkjur perluprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-31-33-37 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið perluprjón og picotkant yfir fyrstu 16-16-20-20 lykkjurnar og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru – JAFNFRAMT er fækkað um 9 lykkjur með því að prjóna lykkjur í hverjum og einum af 3 köðlum slétt saman 2 og 2 = 86-92-100-106 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu (þær 16-16-20-20 lykkjur við miðju að framan eru prjónaðar eins og áður). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Fellið af 70-76-80-86 lykkjur – sjá AFFELLING og prjónið perluprjón og picotkant yfir þær 16-16-20-20 lykkjur sem eftir eru. Framstykkið mælist ca 30-32-34-38 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan háan kraga eins og útskýrt er að neðan. HÁR KRAGI. = 16-16-20-20 lykkjur. Byrjið frá réttu og prjónið stuttar umferðir fram og til baka frá miðju að framan þannig: * Prjónið 2 umferðir fram og til baka eins og áður yfir fyrstu 10-10-14-14 lykkjur, prjónið 2 umferð fram og til baka eins og áður yfir allar 16-16-20-20 lykkjur *, prjónið *-* þar til kraginn mælist ca 8-8-9-9 cm innst þar sem stykkið er minnst. ATH: Til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni þar sem snúið er við, verður að herða á þræðinum þegar snúið er við. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 86-92-100-106 lykkjur á hringprjón 6 með Nepal. Prjónið 2 umferðir perluprjón. Setjið 1 prjónamerki eftir 4 fyrstu lykkjur í umferð við miðju að framan (séð frá réttu). Prjónamerkið merkir hvar picotkantur er prjónaður síðar. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): Prjónið 16-18-20-22 lykkjur perluprjón, prjónið 30-34-36-40 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (= 24 lykkjur sem auknar er út til 33 lykkjur), prjónið 12-12-16-16 lykkjur perluprjón og picotkant yfir þær 4 lykkjur sem eftir eru (1. umferð með picotkanti er prjónuð frá réttu). Nú eru 95-101-109-115 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 16-18-20-22 lykkjur perluprjón, 30-34-36-40 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 (= 33 lykkjur) og endið með perluprjón og picotkant yfir þær 16-16-20-20 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 29-31-33-37 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón þar til 16-16-20-20 lykkjur eru eftir í umferð og fækkið JAFNFRAMT um 9 lykkjur með því að prjóna lykkjur í hvern af 3 köðlum slétt saman 2 og 2, prjónið síðan perluprjón og picotkant yfir þær 16-16-20-20 lykkjur sem eftir eru eins og áður = 86-92-100-106 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (þær 16-16-20-20 lykkjur við miðju að framan eru prjónaðar eins og áður). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 70-76-80-86 lykkjur – munið eftir affelling og prjónið perluprjón og picotkant yfir þær 16-16-20-20 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan vinstri kraga eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI KRAGI: = 16-16-20-20 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið stuttar umferðir fram og til baka frá miðju að framan þannig: * Prjónið 2 umferðir fram og til baka eins og áður yfir fyrstu 10-10-14-14 lykkjur, prjónið 2 umferð fram of til baka eins og áður yfir allar 16-16-20-20 lykkjur *, prjónið *-* þar til kraginn mælist ca 8-8-9-9 cm innst þar sem stykkið er minnst. Fellið af. BAKSTYKKI: Fitjið upp 157-169-181-193 lykkjur á hringprjón 6 með Nepal. Prjónið 2 umferðir perluprjón. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 16-18-20-22 lykkjur perluprjón, 30-34-36-40 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (= 24 lykkjur sem auknar eru til 33 lykkjur), prjónið A.5 (= 17-17-21-21 lykkjur sem auknar eru til 23-23-27-27 lykkjur), prjónið A.1 (= 24 lykkjur sem auknar eru til 33 lykkjur), prjónið 30-34-36-40 lykkjur sléttprjón og endið með 16-18-20-22 lykkjur perluprjón. Nú eru 181-193-205-217 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 16-18-20-22 lykkjur perluprjón, 30-34-36-40 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 (= 33 lykkjur), prjónið A.6 (= 23-23-27-27 lykkjur), prjónið A.2 (= 33 lykkjur), prjónið 30-34-36-40 lykkjur sléttprjón og endið með 16-18-20-22 lykkjur perluprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 28-30-32-36 cm, fækkið um 6 lykkjur yfir 2 miðju kaðlana mitt að aftan með því að prjóna lykkjur í hvorum kaðli slétt saman 2 og 2 = 175-187-199-211 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 15-15-19-19 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 79-85-89-95 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 29-31-33-37 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9 lykkjur með því að prjóna lykkjurnar í þeim 3 köðlum sem eftir eru slétt saman 2 og 2 = 70-76-80-86 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Bakstykkið mælist ca 30-32-34-38 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið kragann saman við miðju að aftan, en passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka. Brjótið kragann saman tvöfaldan að réttu – sjá strikaða línu í teikningu. Saumið niður hornin á kraganum (neðst við miðju að framan) með nokkrum sporum – sjá mynd. FRAMSTYKKI FRÁ HLIÐ AÐ HLIÐ: Fitjið uppp 53 lykkjur í öllum stærðum á hringprjón 6 með Nepal. Prjónið 6 umferðir perluprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir 4 fyrstu lykkjur í umferð (séð frá réttu). Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 16 lykkjur perluprjón, prjónið A.7 (= 31 lykkjur sem auknar eru til 43 lykkjur) og endið með 6 lykkjur perluprjón. Nú eru 65 lykkjur í umferð í öllum stærðum. Haldið áfram með mynstur fram og til baka frá röngu – prjónið jafnframt PICOTKANTUR yfir síðustu 4 lykkjur í umferð (1. umferð með picotkanti= frá röngu). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið picotkant og perluprjón yfir fyrstu 16 lykkjur, prjónið A.8 (= 43 lykkjur) og endið með 6 lykkjur perluprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 68-74-80-88 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið 1 umferð frá réttu þar sem lykkjur í A.8 eru prjónaðar slétt (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður) – JAFNFRAMT er fækkað um 12 lykkjur með því að prjóna lykkjurnar í hverjum og einum af 4 köðlum slétt saman 2 og 2 = 53 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 6 umferðir perluprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Fellið af með brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur og sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir affelling! BAKSTYKKI FRÁ HLIÐ AÐ HLIÐ: Prjónið á sama hátt og framstykki frá hlið að hlið. FRÁGANGUR: Saumið bakstykki við bakstykki – byrjið frá miðju að aftan og saumið út að hvorri hlið í ystu lykkjubogana. Saumið framstykki við framstykki – byrjið frá miðju að framan og saumið út að hvorri hlið, sjá mynd. Saumið saum undir ermum og haldið áfram með sauminn niður meðfram 6 lykkjum í perluprjóni í hvorri hlið á poncho. Látið afganginn af hliðinni vera opinn fyrir háa klauf. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Anna wrote:
Hej! Går det att sticka denna i Drops air? Och hur mkt garn hår det för en M/L? Med vänlig hälsning, Anna
28.02.2024 - 17:40DROPS Design answered:
Hej Anna. Ja det kan du göra, det går då åt 500 g Air till Storlek M/L. Mvh DROPS Design
01.03.2024 - 11:43Anna wrote:
Hej! Är denna stor i modellen eller tight? Är själv medium och vill ha den i den passformen enligt bilden. Ska jag då göra M/L? Med vänlig hälsning, Anna
28.02.2024 - 17:26DROPS Design answered:
Hej Anna. Längst ner på mönstret hittar du en måttskiss men mått i cm för alla storlekar. Det bästa är att du mäter ett plagg du redan har och jämför med måtten i måttskissen för att se vilken storlek som skulle passa bäst. Mvh DROPS Design
01.03.2024 - 11:39Maite wrote:
Me encanta el diseño. ¿Podría hacerse este patrón en ganchillo ? Aunque los puntos no fueran idénticos, respetar la forma del poncho y sustituir los puntos por otros a croché. Cuales serían, sería el mismo número...No se trabajar con dos agujas. Gracias
30.10.2023 - 12:52DROPS Design answered:
Hola Maite, no hacemos patrones personalizados. Puedes ver nuestra selección de ponchos a ganchillo aquí: https://www.garnstudio.com/search.php?action=search&c=women-ponchos&mt=2&lang=es.
05.11.2023 - 20:03Staephanie wrote:
Hallo, er staat een foutje in naald 5 van de picorant uitleg (‘maak 1 omslag in elk…’ moet zijn ‘maak 1 omslag’)
15.10.2023 - 07:31Patricia wrote:
Can I leave out the picot edge on all the pieces?
26.08.2023 - 22:25DROPS Design answered:
Dear Patricia, yes, you can skip these edges by working rows 1 to 4 of the edge but not rows 5 and 6. This way, the edge won't look the same but it will still be cast -off. Happy knitting!
28.08.2023 - 00:49Sofi wrote:
Hej Jag undrar om man kan sticka det nedre stycket utan öppning, alltså runt och sy i hop i ena sidan? Utan slitsar så det blir som en stor tröja Hälsningar Sofi
13.12.2022 - 06:42DROPS Design answered:
Hej Sofi, ja det går helt fint :)
15.12.2022 - 09:10Pat wrote:
It looks like the wool in the photos is the Light Blue colour, not Greyish Green as listed in the pattern?
14.11.2022 - 15:33DROPS Design answered:
Dear Pat, the colour is matching the number and the real colour, the one on the picture might look different because of many reason (light on the day the picture was taken, etc.) - please feel free to ask your DROPS store for any help choosing the colour, they will assist you even per mail or telephone. Happy knitting!
16.11.2022 - 11:57Ingrid wrote:
In der Anleitung für das Vorderteil steht:.....9 M abnehmen.. 100 M übrig pa pinnen. Pa pinnen ist wohl dänisch. Was bedeutet das auf deutsch?
06.09.2022 - 20:46DROPS Design answered:
Liebe Ingrid, sorry, es sollte "auf Nadel" sein, danke für den Hinweis, die deutsche Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
07.09.2022 - 08:14Elaine Forster wrote:
What are the finished measurements for each of the sizes?
15.10.2021 - 13:22DROPS Design answered:
Dear Mrs Forster, you will find all finished measurements for each size in the measurement chart - read more here. Happy knitting!
15.10.2021 - 13:30Sophie LACAILLE wrote:
Bonjour, Je ne comprend pas comment on fait le col, sachant que l'on fait déjà des picots en bordure devant droit sur les 16 mailles du bord. Pouvez-vous m'éclaircir ?
20.03.2021 - 18:02DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lacaille, la bordure picot ne concerne que les 4 premières des 16 mailles de la bordure d'encolure/du col. Lorsque vous tricotez le col seul, vous tricotez des rangs raccourcis en commençant sur l'endroit (col droit)/sur l'envers (col gauche): 2 rangs en laissant 6 mailles non tricotées (= on ne tricote que 10 ou 14 m); 2 rangs en tricotant toutes les 16 ou 20 mailles. Ainsi, le côté épaule (les 6 m non tricotées) montera moins vite; c'est cette partie qui sera assemblée le long de l'encolure dos. Bon tricot!
22.03.2021 - 07:51