Boston Vest |
||||
|
|
|||
Prjónað vesti fyrir herra úr DROPS Karisma eða DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með V-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 219-3 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um V-hálsmál): Sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hlið á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan. Neðsta hnappagatið á að sitja ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið 1 cm frá þar sem v-hálsmálið byrjar (þ.e.a.s. ca 32-33-34-35-36-37 cm mælt frá affellingarkanti á fram- og bakstykki). Prjónið alls 6 hnappagöt með ca 6-6-6½-6½-7-7 cm millibili. Stillið staðsetninguna af þannig að fellt er af í brugðnum einingum (séð frá réttu). 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka. Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, aukið er út/fitjaðar eru upp lykkjur fyrir v-hálsmáli og undir ermi áður en stykkið er sett saman í eitt stykki. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka. Lykkjur eru teknar upp fyrir kant í hálsmáli, kant á ermum og kanti að framan og prjónað er stroff fram og til baka yfir þessar lykkjur í lokin. FRAMSTYKKI: Hægra framstykki: Fitjið upp 20-21-21-22-22-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Karisma eða Soft Tweed. Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4-5-5-6-6-7 cm, byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli og þegar stykkið mælist 18-18-18-17-17-16 cm, aukið út lykkjur fyrir handveg, sjá útskýringu að neðan: V-hálsmál: Aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annað hvert skipti í annarri hverri og 4. hverri umferð alls 19-19-20-20-21-21 sinnum (útaukning fyrir v-hálsmáli er ekki lokið þegar handvegur hefur verið gerður til loka, en heldur áfram á fram- og bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Handvegur: Aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu 2-1-1-3-4-4 sinnum, síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 0-2-2-3-3-4 sinnum og 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum (= alls 2-5-8-12-16-21 lykkjur fleiri fyrir handveg). Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki. Vinstra framstykki: Fitjið upp 20-21-21-22-22-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Karisma eða Soft Tweed. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4-5-5-6-6-7 cm, byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli og þegar stykkið mælist 18-18-18-17-17-16 cm, aukið út lykkjur fyrir handveg, sjá útskýringu að neðan: V-hálsmál: Aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í byrjun næstu umferðar frá réttu – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annað hvert skipti í annarri hverri og 4. hverri umferð alls 19-19-20-20-21-21 sinnum. Handvegur: Aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu 2-1-1-3-4-4 sinnum, síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 0-2-2-3-3-4 sinnum og 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum (= alls 2-5-8-12-16-21 lykkjur fleiri fyrir handveg). Geymið stykkið og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: Hvor öxl er prjónuð fyrir sig áður en stykkin eru sett saman: Hægri öxl: Fitjið upp 20-21-21-22-22-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Karisma eða Soft Tweed. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út 1 lykkju innan við 2 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu = 21-22-22-23-23-24 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl. Vinstri öxl: Fitjið upp 20-21-21-22-22-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Karisma eða Soft Tweed. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út 1 lykkju innan við 2 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 21-22-22-23-23-24 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið nú bæði stykkin saman þannig: Prjónið 21-22-22-23-23-24 lykkjur á vinstri öxl eins og áður, fitjið upp 36-36-38-38-40-40 lykkjur á prjóni (= hálsmál) prjónið 21-22-22-23-23-24 lykkjur á hægri öxl eins og áður = 78-80-82-84-86-88 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 18-18-18-17-17-16 cm, aukið út/fitjið upp nýjar lykkjur í hvorri hlið á stykki fyrir handveg alveg eins og á framstykki (= alls 2-5-8-12-16-21 lykkjur fleiri fyrir handveg í hvorri hlið) = 82-90-98-108-118-130 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, prjónið fram- og bakstykki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Hversu margar lykkjur eru í umferð fer eftir því hversu margar útaukninar fyrir V-hálsmáli eru eftir. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 11-11-13-13-15-15 nýjum lykkjum undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, síðar á að fækka lykkjum hvoru megin við prjónamerkin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið nú framstykki og bakstykki saman frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, sléttprjón yfir lykkjur fyrir vinstra framstykki, fitjið upp 11-11-13-13-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 82-90-98-108-118-130 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 11-11-13-13-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á hægra framstykki, 1 kantlykkja garðaprjón. Hversu margar lykkjur eru í umferð fer eftir því hversu margar útaukningar fyrir V-hálsmáli eru eftir. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju af 11-11-13-13-15-15 nýju lykkjum í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar lykkjum er fækkað hvoru megin við prjónamerkin. Þegar allar útaukningar fyrir V-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 186-202-222-242-266-290 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 5 cm, fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 9-9-10-10-10-11 cm alls 4 sinnum = 170-186-206-226-250-274 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, aukið út um 26-26-30-34-38-42 lykkjur jafnt yfir = 196-212-236-260-288-316 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið á stykki þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Vestið mælist ca 57-59-61-63-65-67 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. KANTUR Á ERMUM: Prjónið upp 88-132 lykkjur innan við 1 lykkju frá réttu á stuttan hringprjón 3 með Karisma eða Soft Tweed. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Prjónið hinn kantinn á ermi alveg eins. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN OG KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp 144-172 lykkjur á hringprjón 3 með Karisma eða Soft Tweed innan við 1 kantlykkju garðaprjón og upp mitt að aftan í hálsmáli aftan í hnakka. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4 Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem v-hálsmálið endar (þ.e.a.s. í horni ca 33-34-35-36-37-38 cm mælt frá affellingarkanti og upp), prjónið * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið *-* alls 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 2 kantlykkjur garðaprjón síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) út umferðina (uppslátturinn er prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat). Passið uppá að kantur að framan hvorki herðist né sé of laus miðað við lengd á framstykki, prjónið e.t.v. upp fleiri/færri lykkjur. Þegar kantur að framan mælist 1 cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar kantur að framan/kantur í hálsi mælist 2½ cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN OG KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt aftan í hálsmáli í hnakka með hringprjón 3 með Karisma eða Soft Tweed og prjónið upp jafnmargar lykkjur og á hægri kanti að framan og kanti í hálsmáli innan við 1 kantlykkju mitt að framan frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem v-hálsmálið endar (þ.e.a.s. í horni ca 33-34-35-36-37-38 cm mælt frá affellingarkanti og upp), prjónið * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið *-* alls 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur garðaprjón (= uppslátturinn er prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat). Þegar kantur að framan/kantur í hálsmáli mælist 2½ cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (60)
Mathilde wrote:
Kan jeg strikke denne vest i Alpaca Bouclé? Og i så fald, hvordan omregner jeg garnforbrug?
24.03.2024 - 15:10DROPS Design answered:
Hej Mathilde, den vil blive lidt kompakt hvis du strikker den i Alpaca Boucle, men det gør måske ikke noget. Prøv at strikke en strikkeprøve og se om du synes om det :)
03.04.2024 - 13:55Linda Nardin wrote:
Buonasera. Sto facendo questo bel gilet. Lo trovo molto interessante. Ho fatto davanti sinistro e destro e li ho messi da parte, spalla destra e sinistra e li devo unire ...trovo difficoltà nel mettere tutti in un unico ferro per lavorare il corpo.. aiuto😊 Grazie mille
06.02.2024 - 17:59Dorothy wrote:
What size, in inches, is this pattern, please? Thank you.
03.01.2024 - 02:28DROPS Design answered:
Hi Dorothy, pattern for this vest is in sizes: S - M - L - XL - XXL – XXXL, which corresponds to finished measurements: Chest measurements: 88-96-106-116-126-138 cm = 34 5/8”-37 3/4”-41 3/4”-45 3/4”-49 1/2”-54 1/4” Full length: 57-59-61-63-65-67 cm = 22 1/2”-23 1/4”-24”-24 3/4”-25 1/2”-26 3/8” Happy knitting!
03.01.2024 - 05:46Birgit Werge wrote:
Der står at man skal strikke ret på alle pinde, men billedet af vesten er i glat strik. Hvad er rigtigt
28.12.2023 - 16:27Laurence Garibian wrote:
Bonsoir, j'adore ce gilet, est-il possible d'obtenir la marche à suivre en français ? merci !
03.12.2023 - 17:50DROPS Design answered:
Bonjour Mme Garibian, tout à fait, cliquez simplement sur le menu déroulant sous les photos pour changer de langue et sélectionner "français". Bon tricot!
04.12.2023 - 08:24Andreea wrote:
How wide should the ribbed finishes in the finished garment be?
12.11.2023 - 00:22DROPS Design answered:
Dear Andreea, all the finished measurements are indicated in the pattern. The bands should have a width of 2½ cm each. The armhole edges should be approx. 2cm and the rib at the end of the body measures 4cm approx. Happy knitting!
12.11.2023 - 20:48Rita wrote:
Essendo un gilet da uomo, perché date le indicazioni di fare le asole sul bordo destro? Non dovrebbero stare sul bordo sinistro?
02.11.2023 - 22:16DROPS Design answered:
Buonasera Rita, in questo modello i bottoni sono sul lato sinistro. Buon lavoro!
02.11.2023 - 22:55Alejandra Hernández wrote:
Ths gauge is made with 4mm needles?
08.07.2023 - 19:27DROPS Design answered:
Hi Alejandra, Yes, the guage is with 4 mm needles. Happy knitting!
10.07.2023 - 07:54Anna Birkemose wrote:
Spørgsmål til højre og Venstre forstykke: Der står at man skal tage ud på h.h.v. Hver 2. Og 4. Pind. Udtagningen skal ske fra retsiden ved at man slår en maske op. Det er forståeligt. Men jeg kan komme frem til mindst to måder at tage ud på h.h.v. Hver 2. Og hver 4. Pind så hvad er rigtigt ? Den ene måde hiver 7 pinde den anden giver 9 pinde. Hvad er korrekt? Tusind tak. Bh Anna
10.06.2023 - 22:36DROPS Design answered:
Hej Anna, når du tager ud fra retsiden på skiftevis hver 2. og hver 4 pind, så er det på pind 2-6-8-12-14-18 osv :)
13.06.2023 - 13:42Faes wrote:
Bij de top voor het minderen staat niet wat je met de gemarkeerde steek moet doen? Is het : breien tot 3 steken voor de gemarkeerde steek, 2rs, 1r; dan de gemarkeerde steek r; dan 1r, 1recht afhalen, 1r en dan de afgehaalde steek overhalen? Zo zit de mindering telkens op 1 steek van de gemarkeerde steek?
30.11.2022 - 09:50DROPS Design answered:
Dag Feas,
Het lijkt inderdaad niet helemaal te kloppen. Waarschijnlijk is het als volgt: Brei tot er 2 steken over zijn voor de steek met de markeerdraad, 2 recht samen, 1 recht, 1 steek recht afhalen, 1 recht en haal de afgehaalde steek over de gebreide steek.
04.12.2022 - 16:51