Mistletoe Muse |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-1 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allar lykkjur í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur stykkið til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum. Ef prjónað er of laust, þá verður stykkið of langt og handvegur of stuttur, þá er hægt að prjóna 1 umferð færri með jöfnu millibili í einlitu einingunum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 3,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá skiptingunni á milli vinstri ermi og bakstykkis og prjónað er ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-88-94-96-102 lykkjur á hringprjóna 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Þegar stroffið hefur verið gert til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-24-26-26-30-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 102-108-114-120-126-138 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur A.1 (= 6 lykkjur) alls 17-18-19-20-21-23 sinnum hringinn í umferð – sjá LEIÐBEININGAR. Í umferð með ör er aukið út jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING, þannig: Ör-1: Aukið út 24-24-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 126-132-144-150-156-168 lykkjur. Nú er pláss fyrir 21-22-24-25-26-28 mynstureiningar A.1 í umferð. Ör-2: Aukið út 14-22-24-18-19-21 lykkjur jafnt yfir = 140-154-168-168-175-189 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú áfram mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S og M: Prjónið nú A.2 (= 7 lykkjur) alls 20-22 sinnum hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist 22-24 cm, er stærð S-M lokið. Ef prjónfestan passar á hæðina eru eftir 4-0 umferðir í A.2 og það eru 240-264 lykkjur í umferð. Ef stykkið mælist styttra en 22-24 cm, prjónið áfram með umferðum sem eftir eru í A.2 og síðan A.3 yfir A.2 (það er pláss fyrir 2 mynstureiningar A.3 yfir 12 lykkjur í A.2) að réttu máli. Stærð L og XL: Prjónið nú A.2 (= 7 lykkjur) alls 24-24 sinnum hringinn í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 288-288 lykkjur í umferð. Ef prjónfestan passar á hæðina á stykkið að mælast 24-24 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan með A.3 yfir A.2 (það er pláss fyrir 2 mynstureiningar A.3 yfir 12 lykkjur í A.2) þar til stykkið mælist 25-26 cm frá prjónamerki. Stærð XXL og XXXL: Prjónið nú A.2 (= 7 lykkjur) alls 25-27 sinnum hringinn í umferð. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 300-324 lykkjur í umferð. Ef prjónfestan passar á hæðina á stykkið nú að mælast 24-24 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan A.3 yfir A.2 (nú er pláss fyrir 2 mynstureiningar A.3 yfir 12 lykkjur í A.2) þar til stykkið mælist 28-30 cm frá prjónamerki, jafnframt í 8. umferð í A.3 er aukið út um 12-12 lykkjur jafnt yfir = 312-336 lykkjur. Allar stærðir: Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Til að mynstrið verði staðsett samhverft á framstykki og bakstykki færist byrjun á umferð 3 lykkjur til baka í umferð í stærð M og XXXL (þ.e.a.s. klippið ekki þráðinn frá og færið til baka 3 ystu lykkjurnar á hægri prjóni á vinstri prjón áður en prjónað er áfram). Í stærð S, L, XL og XXL heldur byrjun á umferð áfram eins og áður. Prjónið næstu umferð í mynstri eins og áður þannig: Prjónið fyrstu 72-78-84-84-96-102 lykkjurnar (= bakstykki), setjið næstu 48-54-60-60-60-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-78-84-84-96-102 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-54-60-60-60-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-168-180-192-216-228 lykkjur. Prjónið síðan mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S: Setjið eitt prjónamerki mitt í 6 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið (= 3 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið síðan áfram með mynstur A.2 eins og áður þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina – ATH: Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum mitt undir ermum, prjónið eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir undir ermi. Síðan er prjónað A.3 (= 6 lykkjur) alls 26 sinnum hringinn í umferð. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið eins og útskýrt er að neðan: Stærð M, L, XL, XXL og XXXL: Haldið síðan áfram hringinn með A.3 (= 6 lykkjur) alls 28-30-32-36-38 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið áfram eins og útskýrt er að neðan. ALLAR STÆRÐIR: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið með litnum hveiti til loka. Þegar stykkið mælist 26-26-27-28-28-28 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-30-32-32-36-38 lykkjur jafnt yfir = 184-198-212-224-252-266 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-54-60-60-60-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-12-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-60-66-72-72-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, mitt í 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 3-3-3-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn með mynstri alveg eins og á fram- og bakstykki – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 5-3-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 9-11-13-15-14-17 sinnum = 36-38-40-42-44-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-35-34-33-31 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Nú er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (30)
Wendy wrote:
Hello I'm confused by A. 2. In the written pattern it says it's 7 stitches, but on the diagram I see only 6 stitches?
26.05.2024 - 14:45DROPS Design answered:
Dear Wendy, are you sure yo are looking at the right diagram? A.2 is the middle one of the three diagrams, and it starts off with seven stitches. Happy Knitting!
26.05.2024 - 19:51Gerry wrote:
. How do I do the twisted rib for 217-1 ?
23.03.2024 - 14:41DROPS Design answered:
Dear Gerry, you can find the description of the twisted rib at the beginning of the neck: "rib (= knit 1 twisted / purl 1) in the round" . Happy Knitting!
23.03.2024 - 22:44Yvonne wrote:
Prachtig patroon! Staat op mijn wensenlijstje van toekomstige projecten :) Alleen... er is al een kleur uit het assortiment, nr. 28 steenrood. Ik dacht eerst nog dat nr. 25, framboos, misschien gebruikt zou kunnen worden ter vervanging, maar ook deze is inmiddels uit het assortiment. Hebben jullie een suggestie voor een alternatief? Alvast bedankt!
29.01.2024 - 20:12DROPS Design answered:
Dag Yvonne,
We hebben niet echt een vergelijkbaar garen in dezelfde dikte wat je kunt gebruiken. Je zou even kunnen vragen bij een of meerdere verkooppunten of ze deze kleur nog hebben liggen. Via deze link vind je een lijst met verkooppunten.
31.01.2024 - 20:10Katarzyna Rutkowska wrote:
Hallo. Is het ook mogelijk om een V hals te breien in een rond gebreide trui?
22.03.2023 - 00:20Aina Lindhe wrote:
Hej. Jag skulle vilja köpa mönsterkatalog 217, men kan inte hitta det någonstans. Jag är lite äldre och kan inte detta med mönster online så bra så jag vill hellre ha hela katalogen som för i tiden. Kan ni hjälpa mig med det? Mvh Aina Lindhe
16.03.2023 - 16:18DROPS Design answered:
Hej Aina, vi har ikke mønsterkataloger mere. Men du kan altid få hjælp med at skrive opskriften ud hos din DROPS forhandler når du køber garnet der :)
17.03.2023 - 08:53Elisabeth Degore wrote:
C'est quoi les flèches dans les explications
22.12.2022 - 10:44DROPS Design answered:
Bonjour Mme Degore, les flèches -1 et -2 dans le diagramme A.1 correspondent aux augmentations à intervalles réguliers expliquées sous le paragraphe EMPIÈCEMENT. Bon tricot!
22.12.2022 - 11:07I Metternich wrote:
Ik wil u hartelijk danken.
18.10.2022 - 22:47Jean wrote:
Forsto det nå, økte 12 masker skal økes på forstykket og bakstykket i L.
22.08.2022 - 01:55Jean wrote:
Strikker L, det står at bolen i L skal være 180 masker, men hvis man legger sammen forstykket og bakstykket i teksten ved deling blir det bare 168 masker som er M. Det må være feil? Hva skal jeg gjøre?
22.08.2022 - 01:43DROPS Design answered:
Hei Jean, Du strikker 84 masker (bakstykket), setter av masker til ermet og deretter legger opp 6 masker under ermet, strikker 84 masker til forstykket og igjen legger opp 6 masker under ermet. 84 + 6 + 84 + 6 = 180 masker. God fornøyelse!
22.08.2022 - 10:34Julie Picard wrote:
Bonjour, est-ce que je peux faire le même modèle avec une seule couleur? Merci de me répondre. Julie
04.06.2022 - 23:03DROPS Design answered:
Bonjour Mme Picard, tout à fait, mais pensez à bien tricoter le diagramme A.2 avec les jetés = augmentations comme indiqué, sans vous préoccuper des couleurs si vous le voulez uni. Bon tricot!
07.06.2022 - 08:19