Scent of Pine Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri á berustykki og neðst á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-7 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 111 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 37) = 3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef það eru kantlykkjur eða kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki, eru þær dregnar frá heildarfjölda lykkja áður en lykkjufjöldinn er deildur með fjölda útaukninga sem á að gera. Ekki er aukið út yfir kantlykkjur eð kantlykkjur að framan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldur mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Slepptu þessum kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Byrjið frá réttu með litnum sjávarþoka og prjónið 14-15-16-16-17-18 sléttar lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 70-75-80-80-85-90 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 84-90-96-96-102-108 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu lykkju með prjónamerki slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-7½-7½-8 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hluti af kanti að framan er prjónaður sér og er saumaður við framstykki í lokin. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 121-125-131-135-139-145 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með sjávarþoka. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm, en munið eftir HNAPPAGAT á hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Endið stroff eftir umferð frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður og setjið þær síðan á þráð eða lykkjuhaldara, fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun á umferð (= kantlykkja fyrir saum), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 111-115-121-125-129-135 lykkjur og aukið jafnframt út 37-38-40-42-43-45 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn (= kantlykkja fyrir saum) og setjið þær 5 kantlykkjur að framan sem eftir eru á þráð eða lykkjuhaldara = 150-155-163-169-174-182 lykkjur í umferð. (Kantar að framan eru prjónaðir til loka síðar og eru síðan saumaðir niður að framstykki innan við 1 kantlykkju). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). Setjið 1 prjónamerki á eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI: BERUSTYKKI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Prjónið sléttprjón fram og til baka með sjávarþoka og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 1½-2-2-3-3-3 cm frá prjónamerki við hálsmál, aukið út 49-52-54-56-57-59 lykkjur jafnt yfir = 199-207-217-225-231-241 lykkjur. Þegar stykkið mælist 2-3-3-4-4-5 cm frá prjónamerki við hálsmál byrjar mynstrið, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (lykkjufjöldinn gengur ekki jafnt upp með 14 lykkjum fyrir aukningu við ör-1 (S, M, og L) og ör-2 (XL, XXL og XXXL), prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Sjá LEIÐBEININGAR og haldið svona áfram með mynstur (þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 og A.2 eru prjónaðar lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1! S, M og L: Ör-1: Aukið út 42-48-52 lykkjur jafnt yfir = 241-255-269 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-18-19 mynstureiningar A.1 með 14 lykkjum). Ör-2: Aukið út 50-48-58 lykkjur jafnt yfir = 291-303-327 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-25-27 mynstureiningar A.1 með 12 lykkjum). Ör-3: Aukið út 36-40-48 lykkjur jafnt yfir = 327-343-375 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-42-46 mynstureiningar A.2 með 8 lykkjum, prjónið síðan 5 fyrstu lykkjurnar í A.2 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan). Ör-4: Aukið út 12-20-24 lykkjur jafnt yfir = 339-363-399 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-30-33 mynstureiningar A.2 með 12 lykkjum). Prjónið til og með umferð á undan ör-5 í A.2. XL, XXL og XXXL: Ör-1: Aukið út 30-40-50 lykkjur jafnt yfir = 255-271-291 lykkjur. Ör-2: Aukið út 28-40-48 lykkjur jafnt yfir = 283-311-339 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-22-24 mynstureiningar A.1 með 14 lykkjum). Ör-3: Aukið út 28-32-36 lykkjur jafnt yfir = 311-343-375 lykkjur. Ör-4: Aukið út 28-32-36 lykkjur jafnt yfir = 339-375-411 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-31-34 mynstureiningar A.2 með 12 lykkjum). Ör-5: Aukið út 52-56-60 lykkjur jafnt yfir = 391-431-471 lykkjur (nú er pláss fyrir 48-53-58 mynstureiningar A.2 með 8 lykkjum, prjónið síðan 5 fyrstu lykkjurnar í A.2 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan). Ör-6: Aukið út 44-40-36 lykkjur jafnt yfir = 435-471-507 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-39-42 mynstureiningar A.2 með 12 lykkjum). Prjónið til og með umferð á undan ör-7 í A.2. ALLAR STÆRÐIR: Geymið berustykkið á prjóninum og prjónið kanta að framan eins og útskýrt er að neðan. Setjið 5 kantlykkjur að framan af þræði í vinstra framstykki á prjón 3 og prjónið garðaprjón fram og til baka með litnum sjávarþoka í ca 17-18-18-22-22-23 cm – geymið síðan kanta að framan meðfram miðju að framan og athugið mál, það þarf að strekkja aðeins á kanti að framan. Setjið lykkjurnar á 1 þráð eða lykkjuhaldara. Prjónið hægri kant að framan á sama hátt, en munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan. Prjónið síðan umferð merktri með ör-5 í A.2 (S, M og L) og ör-7 í A.2 (XL, XXL og XXXL) þannig: Setjið til baka 5 kantlykkjur að framan frá vinstra framstykki á prjóninn og prjónið þessar 5 lykkjur í garðaprjóni eins og áður, fellið af 1 kantlykkju, prjónið sléttar lykkjur frá réttu með sjávarþoka yfir næstu 337-361-397-433-469-505 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 3-11-3-7-7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, fellið af 1 kantlykkju og prjónið garðaprjón yfir 5 kantlykkjur að framan á hægra framstykki = 350-382-410-450-486-522 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 til loka. Stykkið mælist nú ca 19-20-20-24-24-25 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með litnum sjávarþoka og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan (í S er prjónað áfram einungis ef stykkið mælist minna en 19 cm þegar A.2 hefur verið prjónað til loka). Þegar stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 55-60-63-69-76-83 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 70-76-84-92-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-110-116-128-142-156 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 70-76-84-92-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 55-60-63-69-76-83 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 222-242-258-282-314-342 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 58-63-67-73-81-88 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðum á fram- og bakstykki). Það eru 106-116-124-136-152-166 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Haldið áfram fram og til baka með sjávarþoka, sléttprjón og 5 kantlykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm alls 4 sinnum í hvorri hlið = 238-258-274-298-330-358 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 59-65-69-75-83-89 lykkjur jafnt yfir = 297-323-343-373-413-447 lykkjur (lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman). Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 6 lykkjur í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI. Setjið 70-76-84-92-96-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Byrjið mitt undir ermi á milli de 6-6-8-8-10-10 lykkja, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 37-40-45-49-52-54 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 37-40-45-49-52-54 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónamerkið mitt undir ermi er notað síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónamerkið mitt á ermi er notað þegar telja á hvar mynstrið á að byrja frá. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð mitt undir ermi með lykkju með prjónamerki í og prjónið sléttprjón hringinn með sjávarþoka. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá AFFELLING. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 12-14-17-20-22-23 sinnum = 52-54-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 36-35-33-31-29-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 9 cm að loka máli í öllum stærðum, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, takið vel eftir að úrtaka undir ermum heldur áfram í hluta af stærðunum. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykki. Nú er A.3 prjónað hringinn (teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið eigi að byrja – lykkjan með prjónamerki mitt á ermi a að passa við lykkju merktri með stjörnu í A.3). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, mælist ermin ca 41-40-38-36-34-33 cm frá skiptingu. Afgangur af ermi er prjónaður með litnum sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 64-66-72-74-78-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-44-42-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið kanta að framan fallega innan við 1 kantlykkju á berustykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (19)
Ruth wrote:
I have started the yoke pattern A-1 for size L. the first row should end with 2 stitches left over. I have counted and recounted and I still have 5 stitches left over. I do no know what I should do for the pattern.
28.05.2024 - 18:38DROPS Design answered:
Dear Ruth, until you have increased the first time on first arrow, the number of stitches doesn't match but you can repeat pattern to the end of the row as the 2nd row is worked over 2 sts, you then just work: 1 edge stitch, work 1 st alternately with each color to the end of the row, work 1 stitch as first stitch - with sea fog and finish with 1 edge stitch. Happy knitting!
29.05.2024 - 08:11Marie wrote:
Bonjours pourquoi quand je suis arrivé à la flèche 2 en taille XXL j'ai 311 mailles je ne peux donc pas faire 22 motifs de 14 mailles !!!!! cordialement
19.03.2024 - 09:06DROPS Design answered:
Bonjour Marie, vous avez 311 mailles et tricotez ainsi: 1 m lis, répétez 22 fois les 14 mailles de A.1, tricotez la 1ère maille de A.1 (pour que le motif soit symétrique) et terminez par 1 m lisière = 1+ (22x14)+1+1=311 mailles. Bon tricot!
19.03.2024 - 11:26Mieke wrote:
Welke kleur wordt gebruikt voor de ribbrlsteek tijdens het breien van het patroon? Na meerderen bij pijl 1 blijven er 3 steken over na 18 herhalingen, waarvan 2 ribbelsteken ( begin en eind). Wat is de 3e steek? Dank voor uw antwoord.
15.03.2024 - 15:54DROPS Design answered:
Dag Mieke,
De ribbelsteken voor de voorbies worden in de hoofdkleur zeemist gebreid. Helaas begrijp ik je vraag niet goed. Pijl 3 zit op een naald waar je allen met zeemist breit en op deze naald meerder je steken. Hetzelfde geldt voor pijl 1. Op deze naalden meerder je steken verdeeld over de hele naald en hoef je geen rekening te houden met het patroon. Na een meerdernaald maak je meer patroonherhalingen in totaal op de naald.
17.03.2024 - 19:10Helena wrote:
Hej! Jag undrar om det går att sticka denna som en tröja istället för en kofta och i så fall hur?
16.02.2024 - 08:30DROPS Design answered:
Hej Helena, ja det är DROPS 215-8 :)
23.02.2024 - 10:46Annsofi WILES wrote:
Kan jag sticka koftan 215-7 med Nepal istället för med Alpaca? Hur många nystan behöver jag då av varje färg?
24.12.2023 - 16:11Irene wrote:
Hei hva betyr åpne felt i Diagramm
01.10.2023 - 16:57DROPS Design answered:
Hej Irene, du gentager rapporten som går over 8 masker omgangen rundt, øvrige rapport går over 12 masker, som alle er tegnet ind i diagrammet :)
04.10.2023 - 07:24Jette Junge wrote:
Hej. Er begyndt på denne, men undrer mig over, hvordan man skal strikke én pind i en farve og så den næste i den anden farve, når man strikker frem og tilbage? Den anden garnfarve følger jo ikke med over…
29.08.2023 - 13:29DROPS Design answered:
Hej Jette, du kan strikke med flere nøgler, eller så kan du strikke fra den side hvor garnet er :)
08.09.2023 - 15:18Anna Marie Fedel wrote:
Why , the further I go into the sweater , the more it curls. Am I doing something wrong?
16.03.2022 - 20:56DROPS Design answered:
Dear Mrs Fedel, not sure what you mean here, do you have correct tension in width? Even working with the stranded pattern? Make sure you stil have 24 sts = 10 cm in width. If you are still unsure, you can show your work to your store (even sending them a picture per mail), so that they can check with you. Happy knitting!
17.03.2022 - 09:44Anxu wrote:
The question didn't seem to get there so i'll put it again. I have a problem with A. 3. The pattern fails with the (52) number of loops. Could i have a help video from A.3?
23.09.2021 - 12:31DROPS Design answered:
Dear Anxu, you can find all the available videos related to this pattern linked just below the pattern and the diagrams. I hope you will find what you are looking for. Happy Stitching!
23.09.2021 - 21:14Anxu wrote:
Hello, lovely knit
23.09.2021 - 11:19