Mermaid Magic |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með A-formi, sólfjaðramynstri og vængjaermum. Stærð XS/S - XXXL.
DROPS 210-7 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR (þegar heklað er í hring): Til að áferðin verði eins þegar heklað er fram og til baka, snúið stykkinu í hverri umferð sem er hekluð. Þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu og röngu þannig: Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu á stykkinu. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju/4. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju/4. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki. Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptis með umferð frá réttu og umferð frá röngu. HEKLLEIÐBEININAR UM LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli/tvöföldum stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 4 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Bakstykkið og framstykkin eru fram og til baka niður að handveg, síðan eru stykkin hekluð saman og fram- og bakstykki er síðan heklað í hring, jafnframt því sem stykkinu er snúið í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR. Ermar eru heklaðar ofan frá og niður, fyrst fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið gerð til loka, síðan er heklað áfram hringinn, jafnframt þar sem stykkinu er snúið við í hverri umferð eins og á fram- og bakstykki. BAKSTYKKI: Vinstri öxl: Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, A.1b yfir næstu 6-12-12-12-12-18 loftlykkjur (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar), A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjur. Klippið þráðinn frá og geymið stykkið. Hægri öxl: Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, A.1b yfir næstu 6-12-12-12-12-18 loftlykkjur (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar), A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Heklið næstu umferð í mynsturteikningu yfir hægri öxl. Í lok umferðar eru heklaðar 29-29-35-35-35-35 lausar loftlykkjur (= hálsmál), haldið síðan áfram yfir vinstri öxl frá röngu í mynstri eins og áður. Hægri og vinstri öxl hafa nú verið heklaðar saman og það eru 29-29-35-35-35-35 loftlykkjur fyrir hálsmáli mitt á stykki. Snúið og heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið mynstur eins og áður fram að loftlykkjum fyrir hálsmáli, síðan er heklað frá umferð með ör í A.1b alls 5-5-6-6-6-6 sinnum yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli, haldið síðan áfram með mynstur eins og áður út umferðina. Nú eru 11-13-14-14-14-16 mynstureiningar með sólfjöðrum í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka með mynstur þar til heklaðar hafa verið alls 10-10-12-12-10-10 umferðir með sólfjöðrum. Stykkið mælist ca 13-13-15-15-13-13 cm. Nú er heklað mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð XS/S, M, L og XL: Nú er aukið út fyrir handveg í hvorri hlið á stykki með því að hekla A.2a yfir A.1a og A.2c yfir A.1c. Þegar heklað hefur verið til og með næst síðustu umferð í A.2a og A.2c (umferðin endar með síðustu 2 loftlykkjum í næst síðustu umferð í A.2a) hafa verið auknar út nægilega margar lykkjur fyrir 1 nýrri sólfjöður í hvorri hlið á stykki. Klippið frá. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 18-18-20-20 cm frá öxl (nú er eftir 1 cm þar til handvegur hefur verð gerður til loka á hæðina). Stærð XXL og XXXL: Nú er aukið út fyrir handveg í hvorri hlið á stykki með því að hekla A.2a yfir A.1a og A.2c yfir A.1c. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð eftir ör þar sem heklað er upp að næst síðustu umferð í mynsturteikningu (umferðin endar með síðustu 2 loftlykkjur í næst síðustu umferð í A.2a). Nú hafa verið auknar út nægilega margar lykkjur fyrir 2 nýjum sólfjöðrum í hvorri hlið á stykki. Klippið frá. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 23-23 cm (nú eru eftir ca 1 cm þar til handvegur hefur verið heklaður til loka á hæðina). FRAMSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, A.1b yfir næstu 6-12-12-12-12-18 loftlykkjur (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar), A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjurnar. UMFERÐ 2-5: Heklið eins og síðustu 2 umferðir í A.1a til A.1c. Klippið frá og geymið stykkið. Vinstri öxl: Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, A.1b yfir næstu 6-12-12-12-12-18 loftlykkjur (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar), A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjurnar. UMFERÐ 2-5: Heklið eins og síðustu 2 umferðir í A.1a til A.1c. UMFERÐ 6 (ranga): Heklið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur á vinstri öxl. Í lok umferðar eru heklaðar 29-29-35-35-35-35 lausar loftlykkjur (= hálsmál), heklið síðan yfir hægri öxl frá röngu í mynstri eins og áður. Hægri og vinstri öxl hafa nú verið heklaðar saman og það eru 29-29-35-35-35-35 loftlykkjur fyrir hálsmáli mitt í stykki. Heklið áfram með mynstur og útaukningu fyrir handveg í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki, en klippið ekki frá þegar handvegur hefur verið heklaður til loka. FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI HEKLUÐ SAMAN: Nú eru hekluð saman framstykki og bakstykki þannig: Heklið síðustu umferð í A.2a, haldið síðan áfram með sólfjaðramynstur eins og áður yfir framstykki þar til 2 sólfjaðrir eru eftir, heklið eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.2c, heklið 5-5-5-17-17-17 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 1 stuðul í ystu af 2 lausu loftlykkjum sem heklaðar voru í lok síðustu umferðar á bakstykki og haldið síðan áfram með síðustu umferð í A.2a (fyrsta tákn, þ.e.a.s. 3 loftlykkjur, er skipt út fyrir 1 stuðul), heklið sólfjaðramynstur eins og áður yfir framstykki þar til eftir eru 2 sólfjaðrir, heklið eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.2c, heklið 5-5-5-17-17-17 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi) og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Heklið síðan stykkið hringinn, en stykkinu er snúið við í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR og HEKLLEIÐBEININGAR. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram hringinn með sólfjaðramynstri og heklið 1-1-1-3-3-3 sólfjaðrir eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.1b yfir loftlykkjur í hlið undir ermi = 28-32-34-38-42-46 mynstureiningar hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist ca 12 cm, heklið eins og útskýrt er í umferð með ör í A.3. Endurtakið þessa umferð þar til stykkið mælist 32-35-35-37-36-36 cm. Heklið síðan eins og útskýrt er í síðustu umferð þar til stykkið mælist 36-39-39-41-40-42 cm. Stykkið mælist alls 55-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. ERMAR: Heklið 55-43-49-37-37-37 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur frá umferð með ör í mynsturteikningu þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, A.1b yfir næstu 42-30-36-24-24-24 loftlykkjur (= 7-5-6-4-4-4 mynstureiningar á breidd), A.1b yfir síðustu 7 loftlykkjur, heklið 2 loftlykkjur í lok umferðar (= útaukning í hlið eins og útskýrt er í lok A.2c). Snúið og heklið sólfjaðrir fram og til baka, jafnframt er aukið út með sólfjöðrum í hvorri hlið á stykki eins og útskýrt er í A.2c og A.2a. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið jafnvel mynstur frá umferð eftir þeirri með ör. Þegar aukið hefur verið út um 1-2-2-2-3-3 sólfjaðrir í hvorri hlið eru 11-11-12-10-12-12 sólfjaðrir í umferð og stykkið mælist ca 6-11-11-11-16-16 cm – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og síðasta umferð í A.2a og A.2c. Í stærð XS/S er heklað áfram með sólfjöðrum án útaukninga í hliðum þar til stykkið mælist 9 cm (= ca 2 umferðir án útaukninga). Heklið síðan í öllum stærðum þannig: Í lok síðustu umferðar eru heklaðar 5-5-5-17-17-17 loftlykkjur (= mitt undir ermi), heklið síðan 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð (= fyrsta tákn í A.2a). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið síðan hringinn – sjá LEIÐBEININGAR og HEKLLEIÐBEININGAR og sólfjaðramynstur er heklað eins og áður. Yfir nýjar loftlykkjur undir ermi eru heklaðar 1-1-1-3-3-3 nýjar sólfjaðrir alveg eins og í hlið undir ermi á fram- og bakstykki = 12-12-13-13-15-15 sólfjaðrir í umferð. Þegar stykkið mælist ca 3 cm, fækkið lykkjum hvoru megin við miðju sólfjöður undir ermi þannig: Heklið eins og útskýrt er í A.4a á eftir miðju sólfjöður (séð frá réttu) og eins og útskýrt er í A.4b á undan miðju sólfjöður (séð frá réttu). Endurtakið A.4a og A.4b þar til fækkað hefur verið um 2 sólfjaðrir hvoru megin við miðju sólfjöður undir ermi = 8-8-9-9-11-11 sólfjaðrir í umferð. Heklið áfram þar til ermin mælist 28-24-24-25-21-19 cm frá nýjum loftlykkjum undir ermi – styttri ermar í stærri stærðum vegna breiðari axla. Nú eru eftir ca 17 cm að loka máli. Nú er hekluð umferð með ör í A.5 í 4 cm, heklið síðan næstu umferð í mynsturteikningu í 5 cm, heklið síðan síðustu umferð í mynsturteikningu þar til ermin mælist 45-41-41-42-38-36 cm frá nýjum loftlykkjum undir ermi. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Heklið axlasauma saman í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Leggið axlirnar saman þannig að réttan liggi að réttu og festið enda með 1 fastalykkju í gegnum bæði lögin yst við öxl. Heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ½ -1 cm, 1 fastalykkja í gegnum bæði lögin *, heklið frá *-* meðfram öxl. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins. Heklið ermar fyrir fram- og bakstykki í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Leggið stykkin saman þannig að réttan liggi að réttu og festið þráðinn með 1 fastalykkju ca mitt undir ermi, heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ½ -1 cm, 1 fastalykkja um bæði lögin *, heklið frá *-* í kringum alla ermina. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina við fram- og bakstykki á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið með Sky og heklunál 4,5 þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju mitt ofan á öxl og heklið frá réttu þannig: * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ½ -1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* í kringum hálsinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (30)
Annie wrote:
After row 2 on the back piece, it says "continue back and forth with pattern until 10 rows with fans have been worked in total." do these 10 rows include the rows before the chain, as in the ones that are pieced before? or only the rows after the chain's addition? thanks :)
08.01.2024 - 01:22DROPS Design answered:
Dear Annie, measure from top on shoulder, ie including the first row worked separately in each shoulder (piece should measure approx. 13 cm with 8 rows = 10 cm). Happy crocheting!
08.01.2024 - 11:03Dagna wrote:
Dziękuję za odpowiedz. Pierwszy raz robię sweter i zupełnie nie mam wiedzy na ten temat, jak widac myślałam dokładnie odwrotnie. Serdecznie pozdrawiam.
13.01.2023 - 11:42Dagna wrote:
Dziękuję za odpowiedz. Pierwszy raz robię sweter i zupełnie nie mam wiedzy na ten temat, jak widac myślałam dokładnie odwrotnie. Serdecznie pozdrawiam.
13.01.2023 - 11:42Dagna wrote:
Nie rozumiem dlaczego w rękawach jest taki opis 55-43-49-37-37-37, wynikalo by z tego, ze dla rozmiaru xs/s trzeba nabrac 55 oczek, a dla rozmiaru xxl tylko 37. To jest nielogiczne. Czy ten zapis, zgodnie ze stylem stosowanym w opisie przodu i tylu nie powinien byc 37-37-37-43-49-55? Czy wielkosc rekawa nie zalezy od rozmiaru?
12.01.2023 - 20:37DROPS Design answered:
Witaj Dagno, we wzorze nie ma błędu. To o czym piszesz wynika z konstrukcji rękawa. Główka rękawa w mniejszych rozmiarach (gdzie podkrój rękawa jest krótszy a ramiona węższe) jest krótsza i szersza na górze (spłaszczona). W większych rozmiarach główka rękawa jest dłuższa i węższa na górze. Pozdrawiamy!
13.01.2023 - 08:52Ulla Poulsen wrote:
Hej. I diagramforklaringen står der ved tegn fire: “1 standmaske”. Er det korrekt eller skulle der stå “stangmaske”? Hvis det er korrekt med standmaske, hvad er det i så fald?
24.09.2022 - 17:34DROPS Design answered:
Hei Ulla. Her var det bare en tastefeil på den danske siden. Det skal være stangmaske. Dette er nå ordnet, takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design
26.09.2022 - 10:37Johanna S Houman wrote:
I don't understand when to increase for the armholes. It says that the piece should measure 5 1/8" (for XXL) when increases start? How many times do I repeat the A2a and A2c? Very confusing. Thanks!
03.06.2022 - 22:54DROPS Design answered:
Dear Johanna, since the number of repeats may vary due to your personal gauge, it's more exact to indicate the amount of cm/ inches where you should start increasing for the armholes. For the armhole increases you work A.2a and A.2c, which include the increases and are worked once vertically in full and a second time from the row with the arrow to the next to last row. Happy crocheting!
04.06.2022 - 18:44William wrote:
When working the front piece, after connecting the left and right shoulder with a chain, how many rows should there be before increasing for the armhole? Is it 10, like with the back piece, or should I be increasing in the 7th row immediately after finishing the 6th?
01.05.2022 - 01:40DROPS Design answered:
Dear William, You work pattern and increase for armhole on front piece as you worked on back piece. You should have the same number of rows from the top of shoulder (foundation chain) on back and front piece before connecting them. Happy crocheting!
02.05.2022 - 08:49Janneke wrote:
Bij het achterpand moeten er 10 toeren met waaiers gehaakt worden voor het meerderen. Tellen dan de toeren van de schouders al mee, of moet ik vanaf de halslijn tellen? En die 13cm, zelfde vraag is dat vanaf de schouder of de halslijn?
23.02.2022 - 22:25DROPS Design answered:
Dag Janneke,
Dit is vanaf de schouder geteld en gemeten.
26.02.2022 - 14:17Lorraine Roberts wrote:
On the body, A3, where the final rows have clusters of double treble stitches, the pattern shows a single treble stitch in between: should that be a single double treble stitch, as for the sleeve A5? I’ve done a couple of rows as per the pattern but I’m not convinced it isn’t curling up a little at the edge. Thanks for your help.
20.01.2022 - 10:15DROPS Design answered:
Dear Lorraine, yes, the idea is that the pattern becomes slightly curly or wavy at the end, both in the sleeve and on the body. But if you want it to be straight, you may work a double treble crochet. Happy crocheting!
05.02.2022 - 19:52Nelly wrote:
I don't see any info to determine the size I need to make. How do I know? All I see on the pattern is sizes SX-XXL but usually patterns have a chart like using bust size to determine size to use.
31.10.2021 - 05:07DROPS Design answered:
Dear Nelly, the measurements of the finished piece are given on the shcematic drawing at the bottom of the pattern. We suggest that you take a garment that fits the intended user and compare those measurements. Happy Stitching!
31.10.2021 - 07:55