Flocking Gulls Jacket |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-16 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 13) = 7,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út innan við prjónamerki og 2 lykkjur slétt á ermum og aukið út innan við prjónamerki og 1 lykkju slétt á framstykki og bakstykki. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur/sléttprjón. KANTUR AÐ FRAMAN: Til að kanturinn að framan verði jafn og fallegur og teygist ekki meira í lengdina en allt stykkið er mikilvægt að herða aðeins á þræði þegar prjónað er yfir kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Ef kantur að framan verðu enn aðeins lengri en afgangur af stykkinu, er hægt að prjóna snúninga með byrjun frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður fram að kanti að framan í lok umferðar, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu fram að kanti að framan í lok umferðar, snúið, herðið á þræði. Prjónið síðan mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur í umferð. Endurtakið snúninga með ca 6 cm millibili. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðan þær lykkjur sem eftir eru í kant að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 6½-6½-6-6½-6½-7 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-115-120-125-130-135 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið (ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 6 lykkjur), * prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt og endið með A.2 (= 6 lykkjur). Haldið svona áfram með stroff í 1½-2 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður) þar sem auknar eru út 13-8-11-6-17-20 lykkjur jafnt yfir - sjá ÚTAUKNING-1 = 123-123-131-131-147-155 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki á eftir kanti að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki 24-24-25-25-27-28 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í skiptingunni á milli framstykkis og erma), setjið næstu 2 prjónamerki 19-19-21-21-25-27 nýjar lykkjur inn frá prjónamerki í hvorri hlið (= í skiptinguna á milli erma og bakstykkis). Nú eru 37-37-39-39-43-45 lykkjur fyrir bakstykki á milli 2 síðustu prjónamerkjanna sem voru sett í stykkið. Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan og mynstrið er jafnframt prjónað þannig: Prjónið vinstra framstykki þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur – sjá KANTUR AÐ FRAMAN, 2 lykkjur slétt, byrjið á 1. lykkju í A.3 og prjónið eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir yfir næstu 15 lykkjur, 1-1-2-2-4-5 lykkjur slétt, prjónamerki situr hér. Prjónið vinstri ermi þannig: Prjónið 2-2-3-3-5-6 lykkjur slétt, byrjið á 1. lykkju í A.3 og prjónið eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir yfir næstu 15 lykkjur, 2-2-3-3-5-6 lykkjur slétt, prjónamerki situr hér. Prjónið bakstykki þannig: Prjónið 1-1-2-2-4-5 lykkjur slétt, byrjið á 1. lykkju í A.3 og prjónið eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir yfir næstu 35 lykkjur, 1-1-2-2-4-5 lykkjur slétt, prjónamerki situr hér. Prjónið hægri ermi þannig: Prjónið 2-2-3-3-5-6 lykkjur slétt, byrjið á 1. lykkju í A.3 og prjónið eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir yfir næstu 15 lykkjur, 2-2-3-3-5-6 lykkjur slétt, prjónamerki situr hér. Prjónið hægra framstykki þannig: Prjónið 1-1-2-2-4-5 lykkjur slétt, byrjið við 6. prjónamerki í A.3 og prjónið eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir yfir næstu 15 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.2 yfir síðustu 6 lykkjur – munið eftir KANTUR AÐ FRAMAN. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM- aukið er út fyrir laskalínu og mynstur er prjónað þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-24-27-30-32-35 sinnum, síðan er aukið út 1 sinni til viðbótar á framstykki og bakstykki (ekki er aukið út á ermum) = 287-319-351-375-407-439 lykkjur. JAFNFRAMT því sem lykkjur eru auknar út, verður meira pláss fyrir fleiri mynstureiningar með gatamynstri að hverri laskalínu. Það eiga alltaf að vera 2-2-3-3-5-6 lykkjur slétt á milli útaukninga fyrir laskalínu og ysta uppsláttar við laskalínu í 5. og 15. umferð í A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina, endurtakið mynsturteikningu 1 sinni til viðbótar á hæðina. Prjónið síðan A.4 (= 10 lykkjur) yfir A.3 og prjónuð eru eins mörg gatamynstur og pláss er fyrir við hverja laskalínu allt eftir því sem lykkjum er aukið út. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni (og kantlykkjur að framan eins og áður) til loka. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 15-18-20-22-24-26 cm. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Í stærð S, M og L skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki við prjónamerki og í stærð XL, XXL og XXXL eru prjónaðar 1-3-4 lykkjur frá hvorri hlið á ermum inn í framstykki og bakstykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 45-49-53-57-63-68 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 59-67-75-79-83-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 79-87-95-103-115-125 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 59-67-75-79-83-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 45-49-53-57-63-68 lykkjur (= vinstra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 189-205-221-241-265-289 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 50-54-58-63-69-75 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 89-97-105-115-127-139 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út og fækka lykkjum í hliðum. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og kantlykkjum að framan. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½ cm millibili alls 4 sinnum = 173-189-205-225-249-273 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 cm = 181-197-213-233-257-281 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21 cm frá skiptingu, aukið út 14-18-22-22-28-34 lykkjur jafnt yfir = 195-215-235-255-285-315 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff þannig: A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur, prjónið * 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, A.2 yfir síðustu 6 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 59-67-75-79-83-89 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 10-10-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 69-77-85-91-95-103 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 5-6-7-7-7-5 sinnum = 59-65-71-77-81-93 lykkjur. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka, prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 16-14-13-11-10-8 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) – eða að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-0-4-3-4-2 lykkjur jafnt yfir = 60-65-75-80-85-95 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Christine wrote:
Merci pour vos réponses et votre rapidité, j'ai compris.
16.02.2022 - 12:49Christine wrote:
Suite : 2. RAGLAN : le 1er paragraphe dit "1 maille de part et d'autre des 3 mailles" et le 2nd dit "+ 2 mailles" et "+ 1 maille". Comment l'intégrer dans MANCHE GAUCHE et la suite ?
16.02.2022 - 10:59DROPS Design answered:
Bonjour Christine, les augmentations se font différemment sur le dos/devants et les manches; pour les manches vous tricotez ainsi au début de la manche (après le fil marqueur: 2 mailles endroit, 1 jeté (= augmentation); tricotez jusqu'à ce qu'il reste 2 mailles avant le fil marqueur et faites 1 jeté (= augmentation). Vous avez ainsi augmenté 2 mailles pour la manche. Bon tricot!
16.02.2022 - 11:36Christine wrote:
EMPIECEMENT: je commence à augmenter pour le raglan ET je tricote en même temps le point fantaisie. Je suis sur le premier rang et ça bloque : 1. DEVANT GAUCHE : diagramme sur 10 mailles, plus la moitié du diagramme pour arriver à 15 (m end sur 4 rgs) ? "2 m end en commençant par 1e m de A3" ? comprends pas
16.02.2022 - 10:58DROPS Design answered:
Réponses dans le désordre =) Tricotez le devant gauche ainsi: 6 mailles de A.1, 2 m endroit, A.3 (= commencez par la 2ème maille = tricotez les 9 dernières mailles + les 6 premières mailles = 15 mailles), 1 à 5 mailles endroit (augmentez pour le raglan lorsqu'il reste 1 maille avant le fil marqueur). Pour les manches, tricotez A.3 sur 15 mailles ainsi: les 10 mailles du diagramme + les 5 premières. Bon tricot!
16.02.2022 - 11:40Christine wrote:
Ma question fait moins de 500 caractères mais il la refuse et me dit que c'est trop long ?
16.02.2022 - 10:57Loulou wrote:
Pourquoi changer la description de A.1 au tout début du col (grandeur Large). Vous indiquez 3 m., endr. et 2 m. envers., ce qui fait un motif de 5 mais le diagramme montre des côtés 2 - 4 = 6m. Pourquoi ? et terminer avec À.2 on fait le motif indiqué 4-2 ou un 2 env. 3 endroits. Je suis un peu perplexe ? Pouvez-vous m'éclairer SVP
07.09.2020 - 21:51DROPS Design answered:
Bonjour Loulou, en L vous allez tricoter ainsi les 120 mailles: A.1 (= 6 mailles = 4 mailles endroit, 2 mailles envers), tricotez ensuite en côtes 3 mailles endroit/2 mailles envers jusqu'à ce qu'il reste 9 mailles, terminez par 3 mailles endroit et par A.2 (= 2 mailles envers, 3 mailles endroit). J'espère que cette description vous permettra de mieux comprendre comment tricoter le col. Bon tricot!
08.09.2020 - 10:21Louise Regal wrote:
Jeg er ved at sætte mærke tråde i str. S jeg 123 masker og sætter mærke tråde efter forkanten . Først 24 ind hver side så 19 ind hver side . Så står der at der skal være 37 masker . Jeg har 25 . Kan ikke lade sig gøre med 123 masker . Hvad er der galt .
15.06.2020 - 09:53DROPS Design answered:
Hei Louise. Du har 123 masker. 1. og 3. merke settes på den ene side, mens 2. og 4. maske settes på den andre siden. Sett 1. merke 24 masker til høyre og 2. merke 24 masker til venstre (det er da 48 masker mellom merkene. Så setter du 3. merke 19 masker fra 1. merke og 4. merke setter du 19 masker fra 2. merke. Det er da 37 masker mellom 3. og 4. merke. mvh DROPS design
15.06.2020 - 12:06Sybille wrote:
Liebes Drops-Team, eine Frage zu den Knopflöchern. Sie beschreiben, dass die Hinreihe bis auf 5 Maschen zu Ende gestrickt werden soll und das Knopfloch eingearbeitet wird. Dann ist das Knopfloch aber an der linken Blende und nicht an der rechten Blende. Oder verstehe ich etwas nicht? Liebe Grüße und vielen Dank für die Anwort Sybille
11.05.2020 - 14:49DROPS Design answered:
Liebe Sybille, die Jacke wird von oben nach unten gestrickt, dh die Hinreihen beginnen mit dem linken Vorderteil und enden mit dem rechten Vorderteil, so daß die knopflöcher auf das rechte Vorderteil am Ende der Hinreihe gestrickt sind. Viel Spaß beim stricken!
11.05.2020 - 16:45Vicki Melanson wrote:
Under the section "read the Whole Next Section Before Working" it states increase for raglan every other row 27 times in total (large size), Is this every knit row, or every OTHER knit row, as I've finished the increases and I'm not at 20 cm like it says I should be.
09.05.2020 - 17:03DROPS Design answered:
Dear Mrs Melanson, you increase on every other row worked, ie on every row worked from the right side of piece (then increase one more time on body only, again from the right side). Rember to check the tension, you will have worked a total of 58 rows; with 28rows = 10 cm, the 58 rows should measure approx. 20 cm. Happy knitting!
11.05.2020 - 09:32Frossard Marie Agnès wrote:
Trop beau modèle ...j 'aime tricoter avec vos explications ...pourtant je ne suis pas une pro ...je commence à tricoter depuis peu ...merci
03.04.2020 - 11:30Jolina Christina Kjeldsen wrote:
Kommer opskriften snart?
19.03.2020 - 18:28