Flocking Gulls |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum og laskalínu úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-15 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur/sléttprjón. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-105-110-115-120-125 lykkjur á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-7-10-5-16-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 112-112-120-120-136-144 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki eftir stroff í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið og prjónið mynstur þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 0-0-1-1-3-4 lykkjur slétt, A.1 (= 10 lykkjur) yfir næstu 30 lykkjurnar, prjónið fyrstu 5 lykkjur í A.1, 0-0-1-1-3-4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 0-0-1-1-3-4 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið fyrstu 5 lykkjur í A.1, 0-0-1-1-3-4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð, en í lok umferðar er ekki sett prjónamerki. Nú eru 4 prjónamerki í stykkinu (þ.e.a.s. 1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma) og það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM- aukið er út fyrir laskalínu og mynstur er prjónað þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-24-27-30-32-35 sinnum = 272-304-336-360-392-424 lykkjur. Aukið síðan út 1 sinni til viðbótar í hvorri hlið á framstykki og bakstykki (en ekki er aukið út í hvorri hlið á ermum) = 276-308-340-364-396-428 lykkjur. JAFNFRAMT allt því sem lykkjur eru auknar út, er pláss fyrir fleiri mynstureiningar með gatamynstri að hverri laskalínu. Það eiga alltaf að vera 2-2-3-3-5-6 lykkjur slétt á milli útaukninga fyrir laskalínu og ysta uppsláttar við laskalínu í 5. og 15. umferð í A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina, endurtakið mynsturteikningu 1 sinni til viðbótar á hæðina. Prjónið síðan A.2 (= 10 lykkjur) yfir A.1 og prjónið eins mikið af gatamynstri og pláss er fyrir við hverja laskalínu allt eftir því sem lykkjur eru auknar út. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram í sléttprjón til loka. Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 15-18-20-22-24-26 cm. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Í stærð S, M og L skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki við prjónamerki og í stærð XL, XXL og XXXL eru prjónaðar 1-3-4 lykkjur frá hvorri hlið á ermum inn í framstykki og bakstykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 79-87-95-102-112-121 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 59-67-75-79-83-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 79-87-95-103-115-125 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 59-67-75-79-83-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 0-0-0-1-3-4 lykkjur (= 79-87-95-103-115-125 lykkjur á bakstykki). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-194-210-230-254-278 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 89-97-105-115-127-139 lykkjur á milli prjónamerkja). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út og fækka lykkjum í hliðum. Byrjið umferð við prjónamerki í annarri hliðinni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½ cm millibili alls 4 sinnum = 162-178-194-214-238-262 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 cm = 170-186-202-222-246-270 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21 cm frá skiptingu, aukið út 15-19-23-23-29-35 lykkjur jafnt yfir = 185-205-225-245-275-305 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 59-67-75-79-83-89 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 10-10-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 69-77-85-91-95-103 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 5-6-7-7-7-6 sinnum = 59-65-71-77-81-91 lykkjur. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka, prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 16-14-13-11-9-8 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-0-4-3-4-4 lykkjur jafnt yfir = 60-65-75-80-85-95 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (46)
Rosa wrote:
Ik ben altijd erg blij met de patroonuitleg van Drops. Echter, bij dit patroon wordt mij niet duidelijk hoeveel steken er (na de hals) op de mouw/voorkant/mouw/achterkant komen, bij het plasten van de markers. Kunt u aangeven om hoeveel steken het gaat?
01.04.2024 - 18:35DROPS Design answered:
Dag Rosa,
De markeerdraden geven de overgang tussen het lijf en de mouwen aan. Vlak na de hals zijn de steken die ertussen zitten hetzelfde op het voorpand en het achterpand. Het hangt af van je maat hoeveel dit zijn, maar je kunt daarbij gewoon de beschrijving volgen.
03.04.2024 - 20:51Valerie wrote:
For this pattern the instructions are to cast 12 stitches on the body under the arm before knitting the body. However, there is no equivalent instruction when taking up the stitches set aside for joining to knit the sleeve in the round, which leaves 12 less 2 stitches under arm at the top of the body. Could you please explain what I should do to join the sleeve to the body.
18.11.2022 - 06:15DROPS Design answered:
Dear Valerie, this lesson might help you understanding how to work a jumper top down and shows from picture 9) how to divide piece and work afterwards; you can also watch this video where you can see from time code approx. 07.:00 how piece will be divided. Hope it can help. Happy knitting!
18.11.2022 - 08:51Diana wrote:
Muchas gracias por las respuestas, voy a probar.
31.08.2022 - 21:25Diana wrote:
"Aumentar 1 punto a cada lado de 3 puntos derechos en cada transición entre la pieza del frente/pieza de la espalda y las mangas". pero en la respuesta anterior me decís "tiene que haber 2-2-3-3-5-6 puntos entre los aumentos del raglán y la lazada en la vuelta 5/ 15 ". En el resto de las vueltas no? Eso me confunde.
30.08.2022 - 03:14DROPS Design answered:
Hola Diana, en todas las vueltas tiene que estar separado el dibujo de la línea del raglán. Decimos que la lazada se trabaja en las vueltas 5/15 y se tiene que notar bien que esté separada de la línea del raglán, por eso remarcamos que haya separación entre los aumentos y la lazada. En el resto de vueltas también tiene que estar separado el patrón, para que se mantenga alineado, pero no se nota o distingue tanto el resto de puntos de los puntos aumentados para el raglán.
30.08.2022 - 23:15Diana wrote:
Hola buenos días! A que se refieren cuando dicen "AL MISMO TIEMPO cuando se aumentan puntos, hay espacio para más repeticiones con patrón de calados en dirección de cada raglán. Siempre debe haber 2-2-3-3-5-6 puntos derechos entre los aumentos para el raglán y la lazada más externa en dirección del raglán en la 5ª y 15ª vuelta de A.1."? A partir de la vuelta 5 hay que ir agregando motivo independientemente de no tener 10 ó 5 puntos?
29.08.2022 - 16:14DROPS Design answered:
Hola Diana, solo trabajas el motivo cuando puedas trabajarlo completo, es decir, cuando tengas 5 puntos puedes trabajar 1 repetición del diagrama (ten en cuenta que A.1 está representado como 2 repeticiones de 5 puntos). Recuerda que tiene que haber 2-2-3-3-5-6 puntos entre los aumentos del raglán y la lazada en la vuelta 5/ 15 de A.1. El dibujo no puede quedar pegado al raglán.
30.08.2022 - 00:54Rosario Elias Liñero wrote:
Hola Mira estoy muy confundida Para la talla mediana me pusiste así 1 der hebra, A 1 hebra mira aquí tengo dos hebras seguidas, 1 der MP 2 der hebra hebra 2 derechos aquí pasa lo mismo dos hebras seguidas que tengo que hacer? Muchas gracias por todo
26.04.2022 - 04:13DROPS Design answered:
Hola Rosario, en la Fila 1, trabajas 1d, 1 heb, A.1 ( todos los puntos de derecho, no hay hebras). El resto de la fila trabajas según te indica el patrón. En la Fila 2, trabajas según el patrón y las hebras de la fila anterior se trabajan de derecho retorcido. En la Fila 3, trabajar 1 d, 1 hebra, 1d (el punto aumentado en la fila 1), A.1. Trabajas la fila 4 como en la fila 2. En la Fila 5, A.1 empieza con una hebra. Entonces, comienzas trabajando 1 derecho, 1 hebra, 2 derechos (puntos aumentados en la fila 1 y 3) y A.1 (comienza con una hebra, pero no hay hebras seguidas).
27.04.2022 - 21:26Rosario Elias Liñero wrote:
Hola Perdón otra vez por molestarte es que se me juntan las hebras y me salen 8 pts sin contar las hebras Discúlpame por favor por escribirte tanto y te doy las gracias Saludos
25.04.2022 - 05:23DROPS Design answered:
Hola Rosario, puedes ver la respuesta debajo.
25.04.2022 - 21:31Rosario Elias Liñero wrote:
Hola Muchas gracias por tu explicación Te pido disculpas por volver a escribir, pero es que no entiendo Me pones que para la talla M teja así 1 der hebra y empezar con A1 lo que no entiendo es que se empieza con hebra esto es que son dos hebras seguidas? Aquí es donde me confundo Muchas gracias Saludos
25.04.2022 - 04:48DROPS Design answered:
Hola Rosario, en la primera fila de A.1 se trabaja todo de derecho (recuerda que el diagrama se lee de abajo arriba y derecha a izquierda), por lo que no deberían coincidir las hebras. Hasta la fila 5 no hay lazadas de calados. Para que no coincidan las hebras, es recomendable que, como se aumenta en vueltas alternas, intentar no aumentar para el raglán en las filas impares, sino que en las pares, ya que en estas últimas no se está trabajando el dibujo de calados.
25.04.2022 - 21:31Rosario Elias Liñero wrote:
Hola\r\nTengo un problema con el canesú ya hice los 8 aumentos para la talla mediana tengo 112 puntos, perla talla dice 0 para hacer el diagrama A1 yo lo estoy tejiendo con las indicaciones de la talla L pero al final me sobran 2 puntos\r\nEsta bien o como teji lis pts sobre los 10 en talla mediana\r\nMuchas gracias\r\nUn saludo
24.04.2022 - 06:19DROPS Design answered:
Hola Rosario, cuando pone que se teje 0 veces sobre 10 puntos, pasas a las siguientes instrucciones del patrón, es decir, en vez de trabajar A.1 completo, trabajas los primeros 5 puntos en A.1, y continúas. Para la talla M, la primera fila del canesú: *1 derecho, 1 hebra, A.1 (= 10 puntos) 3 veces, 5 puntos de A.1, 1 hebra, 1 derecho, MP, 2 derechos, 1 hebra, 5 puntos de A.1, 1 hebra, 2 derechos, MP, *, repetir de * a * 1 vez más. En total, trabajas 112 puntos + 8 aumentos.
24.04.2022 - 22:19Unni Mossestad wrote:
Hei, jeg lurte på diagrammet på bærestykket på denne toppen. Det står at at jeg skal strikke de 5 første maskene i diagram A.1 når diagrammet viser at begynner med 4 masker? håper dere forstår spørsmålet mitt og at dere kan forklare det nærmere for meg. Vennlig hilsen Unni G. Mossestad.
12.05.2021 - 21:26DROPS Design answered:
Hej Unni, jeg kan ikke finde det du beskriver i opskriften. Hvis du strikker den største størrelse strikker du således: 1r, 1oms, 4 ret, A.1 (10m)x3, 5 masker fra A.1, så 4 ret, 1 omslag, 1 ret, mærketråd osv....
14.05.2021 - 09:34