-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= Byrjið hér – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift. Haldið áfram frá tákni yfir punkti á hring og heklið til vinstri | |
= fastalykkja um hringinn | |
= keðjulykkja í lykkju/um loftlykkjuboga | |
= stuðull í lykkju | |
= í byrjun á umferð er hekluð 1 loftlykkja (þessi loftlykkja jafngildir 1 fastalykkju á hæðina) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju | |
= í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur (þessar 3 loftlykkjur jafngilda 1 stuðli á hæðina) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð | |
= 2 loftlykkjur | |
= 3 loftlykkjur | |
= 4 loftlykkjur | |
= 5 loftlykkjur | |
= ekki á að hekla þessa umferð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig hekla á í lykkjurnar í næstu umferð |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Sunset Shopper |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska / net úr DROPS Big Delight. Stykkið er heklað neðan frá og upp með stjörnumynstri í botni.
DROPS 211-27 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur): 1 loftlykkja jafngildir 1 fastalykkju á breiddina. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkjuna dragist aðeins upp á heklunálinni svo að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast, þá kemur mynstri til með að dragast saman í þeim einingum þar sem eru margar loftlykkjur. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. stuðul frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur í stað fyrstu fastalykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA / NET - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp. TASKA / NET: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Big Delight og tengið saman loftlykkjur í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 3 loftlykkjur og 18 stuðlar í umferð. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.2 einu sinni (= fyrsta einingin sem einnig sýnir byrjun og lok á umferð), heklið síðan A.3 alls 5 sinnum = 6 blöð í umferð. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka eru 42 loftlykkjubogar í umferð. Setji 1 prjónamerki í síðustu umferð. Það á að mæla stykkið síðar frá þessu prjónamerki. Heklið síðan loftlykkjuboga hringinn án þess að auka út, þ.e.a.s. heklið þannig: Heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, * heklið 5 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* hringinn án þess að enda umferð. Heklið þar til taskan/netið mælist ca 38 cm frá prjónamerki sem sett var í og endið næstum því í sömu línu og byrjun á botni á töskunni/netinu. Heklið keðjulykkjur að byrjun á næsta loftlykkjuboga. Heklið síðan kant með axlaról eins og útskýrt er að neðan. KANTUR MEÐ AXLARÓL: UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (jafngildir 1 stuðli), heklið 3 stuðla um sama loftlykkjuboga, heklið síðan 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 168 stuðlar í umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 28 stuðlum, heklið 75 lausar loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, hoppið yfir næstu 28 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 56 stuðlum, heklið 75 lausar loftlykkjur, hoppið yfir næstu 28 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af þeim 28 stuðlum sem eftir eru. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern af fyrstu 28 stuðlum, heklið 1 fastalykkjur í hvern af næstu 75 loftlykkjum, 1 fastalykkju í hvern af næstu 56 stuðlum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 75 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hvern af síðustu 28 stuðlum. UMFERÐ 5-8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið eftir síðustu umferð með fastalykkjum. Heklið að lokum 1 loka umferð innan á báðum axlarólum með því að byrja mitt í 28 lykkjur neðst á ól, heklið 1 fastalykkju í hverja af 14 fastalykkjum, heklið 1 fastalykkju í hverja af 75 lykkjum á axlaról og heklið 1 fastalykkju í hverja af 14 lykkjum að miðju, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Endurtakið á hinni axlarólinni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (16)
Renate Natalie wrote:
Jeg fatter ikke i det hele tatt hvordan jeg skal gjøre det i aller siste runde. På innsiden? Hvem hva hvor??? Hvordan?
18.09.2023 - 17:04DROPS Design answered:
Hei Renate. Jo, tenk deg at 1 hank ser ut som en oppned U og du har 28 masker i bunnen av U`en (som er oppned). Det er 168 masker rundt toppen av vesken og disse 28 maskene er en del av toppen. Nå skal du starte midt i U`en og hekle 1 fastmaske i hver av de 14 fastmaskene, hekle 1 fastmaske i hver av de 75 maskene på hanken (altså på innsiden av U`en) og hekle 1 fastmaske i hver av de 14 maskene til midten, avslutt med 1 kjedemaske i første fastmaske. Klipp og fest trådene. Gjenta på den andre hanken. mvh DROPS Design
26.09.2023 - 13:24Mirte Van Geenen wrote:
Bedankt voor dit mooie patroon. Wat ik niet goed snap: eerst staat er dat de eerste drie lossen (begin van patroon) het eerste some vervangen, maar in A2 is dat niet zo, waardoor er in het eerste "setje" (van de zes) steeds een extra stokje zit, als het ware. Het lijkt me beter om dat eerste stokje dus te vervangen. Bedankt!
17.10.2022 - 20:41DROPS Design answered:
Dag Mirte,
Volgens mij kan je inderdaad het eerste stokje vervangen door 3 lossen. Eerlijk gezegd begrijp ik even niet de reden van dat extrastokje.
26.10.2022 - 09:28Patricia wrote:
Quand vous dîtes : 'Crocheter des mailles coulées jusqu'au milieu du premier arceau', s'agit-il de crocheter une maille coulée dans chacune des mailles en l'air jusqu'au milieu du premier arceau? puis quand vous dîtes : '*5 mailles en l'air, 1 maille serrée autour de l'arceau suivant *, répéter de *-* tout le tour, et sans terminer chaque tour', on ne fait pas de maille coulée à la fin de chaque tour et on travaille donc en spirale, c'est bien ça? Merci de votre aide.
21.09.2022 - 12:31DROPS Design answered:
Bonjour Patricia, tout à fait, il faudra effectivement plusieurs mailles coulées pour arriver au milieu du 1er arceau. Effectivement, vous allez crocheter en spirale, autrement dit, mettez un marqueur/repère dans le 1er arceau si vous le souhaitez, sinon continuez simplement en rond à raison de 5 mailles en l'air + 1 maille serrée dans chaque arceau jusqu'à la hauteur indiquée. Bon crochet!
21.09.2022 - 17:11Thilde wrote:
Hei ihr Lieben, Ich bin etwas ratlos bei der Anleitungsbeschreibung. Ich habe A1 sowieso A2 gehäkelt aber wie und wo fängt A3 an? Denn wenn ich es einfach an das Ende von A2 anschließe habe ich ca 20 Blätter statt 6…
10.02.2022 - 20:01DROPS Design answered:
Liebe Thilde, am Anfang beginnen Sie mit A.1 = nach A.1 sind es 18 Stäbchen. Jetzt häkeln Sie A.2 und A.3 in der Runde wie folgt: A.2 am Anfang der Runde (= nur 1 Mal) über die ersten 3 Stäbchen, dann wiederholen Sie A.3 5 Mal (= 5 Mal über je 3 Stäbchen = 15 Stäbchen). So haben Sie die 18 Stäbchen gehäkelt und 6 Blätter insgesamt in der Runde. Viel Spaß beim häkeln!
11.02.2022 - 09:14Monique wrote:
Goedendag, wat een leuk patroon. Ik vroeg mij af hoeveel rondes van lossenboogjes je haakt vanaf de markeerdraad tot je ongeveer 38 cm. hebt. Op de foto van de sunset shopper nr 26 tel ik er 22 of 23. Klopt dat? Ik vind het een beetje moeilijk meten want het zakt uit neem ik aan. Ik haak ook met naald 3,5. Alvast dank voor het antwoord.
08.07.2021 - 21:27DROPS Design answered:
Dag Monique,
Om te meten kun je het werk het beste plat neerleggen en zorgen dat de diameter van de onderkant klopt. De tas zal inderdaad uitzakken door het gebruik en het hangt natuurlijk ook af van het gewicht aan spullen wat je erin stopt.
20.07.2021 - 15:14Jutta wrote:
Hallo, ich verstehe die letzte Reihe : abschließende Reihe an der Innenseite der Träger nicht. Wie soll ich denn da eine Reihe häkeln ? Gibt es dazu ein Video?
23.06.2021 - 11:27DROPS Design answered:
Liebe Jutta, diese Lektion zeigt, wie man eine andere Tasche häkelt, aber ab Bild 32 bis 35 (= letztes Bild) zeigt man, wie man diese Reihe an der Innenseite der Träger häkelt. Hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim häkeln!
23.06.2021 - 14:03Jenny D wrote:
Bonjour, j'ai du mal à comprendre le diagramme A2. Il est precisé dans "info crochet" que le rang débute par 3 mailles en l'air qui remplacent la première bride, mais A2 commence par 3 mailles en l'air puis on a 3 fois le symbole d'une bride (avant celui des 2 mailles en l'air), ce qui donne visuellement 4 brides pour le pétale formé par A2. Le pétale A2 doit être différente des 5 pétales A3? En vous remerciant par avance pour votre aide
02.06.2021 - 15:55DROPS Design answered:
Bonjour Jenny, cette "info crochet" ne s'applique qu'à la bordure, pas au diagramme, autrement dit lorsque l'on fait référence à cette astuce. Dans A.2, vous crochetez les 3 mailles en l'air du début du tour comme dans le diagramme, ces mailles en l'air ne vont pas remplacer la 1ère bride dans la 1ère moitié, puis, à partir du 7ème rang, elles remplaceront la 1ère bride (et on saute la bride du tour précédent, comme le montre le diagramme). A.2 se fait au début du tour, vous répétez ensuite A.3 et terminez le tour par 1 mc dans la 1ère m de A.2. Bon crochet!
02.06.2021 - 16:16Alison wrote:
What a lovely pattern! This is the first time I have crocheted a bag and I am so pleased with the results. I did 35 rounds from the marker to the band at the top. I made the straps wider by going round 4 times rather than once in the final step. Thank you for the great pattern and UK crochet terms!
07.08.2020 - 08:06Ettie wrote:
I completed diagram A1 but in A2 can you tell me where I place the starting 3 chains and 2 trebles? Thanks.
21.07.2020 - 14:12DROPS Design answered:
Dear Ettie, work A.2 over A.1, ie the 3 chains are for the beg of the round (= 1st dc), and work then 1 dc (US-English) in each of the next 2 stitches (= 3 dc in A.2), 2 chain stitches, then work A.3 (= 1 dc in each of the next 3 dc, 2 ch) around. Happy crocheting!
29.07.2020 - 08:33Christine Gundlach wrote:
Hallo, ich habe eine Frage zum Arbeiten von D 211-27. Die A1 ok, aber A2 bis Zeile 8 ok und dann verstehe ich es nicht mehr. Wann und wie wird A3 gearbeitet? Vielleicht können Sie mir es einfacher erläutern!!??? Viele Grüße von Christine
09.07.2020 - 16:20DROPS Design answered:
Liebe Christine, A.2 und A.3 werden gleichzeitig bei den selben Runden gehäkelt, dh A.2 beginngt die Runde, und dann häkeln Sie A.3 insgesamt 5 Mal bis zur Ende der Runde = so haben Sie insgesamt 6 Blätter (das erste Blatt = A.2, die 5 nächsten = die 5 Rapporte A.3). Viel Spaß beim häkeln!
09.07.2020 - 16:55