Akranes |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með laskalínu úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 208-4 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynstur A.1 og A.6 er prjónað í stroffprjóni. Mynstur A.2 til A.5 er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 6,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka): Hoppaðu yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun. Byrjið frá röngu með litnum dökk grár og prjónið brugðið þar til prjónaðar hafa verið 8-8-8-9-9-9 lykkjur fram hjá prjónamerki í byrjun á umferð, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-16-18-18-18 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-27-27-27 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-32-36-36-36 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 40-40-40-45-45-45 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-48-54-54-54 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið til baka þar til prjónaðar hafa verið 15-15-15-18-18-18 lykkjur fram hjá prjónamerki í byrjun á umferð. Færið prjónamerkið hingað. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum dökk grár (prjónamerki situr hér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt með litnum dökk grár, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli með uppábroti, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir kant í hálsmáli er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-80-88-88-92 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum natur. Skiptið yfir í litinn dökk grár og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm, prjónið síðan A.1 í stroffprjóni – ATHUGIÐ VEL útskýringu á táknum. Prjónið 1 umferð slétt með litnum dökk grár þar sem aukið er út um 12-8-8-12-12-12-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 88-88-88-100-100-100 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan, eða fara beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.2a (= 8 lykkjur), A.2b yfir næstu 12-12-12-18-18-18 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 6 lykkjum) og A.2c (= 9 lykkjur) (= bakstykki), prjónið A.3 (= 2 lykkjur, laskalína), prjónið A.4 (= 11 lykkjur, ermi), prjónið A.3 (= 2 lykkjur, laskalína), prjónið A.2a (= 8 lykkjur), A.2b yfir næstu 12-12-12-18-18-18 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 6 lykkjum) og A.2c (= 9 lykkjur) (= framstykki), prjónið A.3 (= 2 lykkjur, laskalína), prjónið A.4 (= 11 lykkjur, ermi), prjónið A.3 (= 2 lykkjur, laskalína). Nú eru 96-96-96-108-108-108 lykkjur í umferð (= fyrsta laskalínu útaukning er nú lokið). Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 og A.4 eins og útskýrt er í mynsturteikningu (= alls 8 lykkjur fleiri í annarri hverri umferð). Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 192-192-192-204-204-204 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur á sama hátt, þ.e.a.s. mynstrið endurtekið sig eins og útskýrt er í A.2/A.4. Mynsturteikning A.2b er prjónuð 4 sinnum oftar á breiddina í hvert skipti sem 24 umferðirnar eru endurteknar á hæðina. Haldið svona áfram með útaukningu þar til aukið hefur verið út alls 19-22-25-25-28-31 sinnum hvoru megin við A.2/A.4. Þegar síðasta útaukningin hefur verið gerð eru 240-264-288-300-324-348 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-22-25-25-28-31 cm frá kanti í hálsmáli. Haldið áfram með mynstur eins og áður, nema án útaukninga. Þegar stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá kanti í hálsmáli – stillið af að næsta umferð sé prjónuð án mynsturs, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 70-76-82-88-94-103 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-54-60-60-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 72-78-84-90-96-108 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-54-60-60-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 2-2-2-2-2-5 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-168-180-192-216-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hliðina mitt í 6-6-6-6-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið merkir byrjun á umferð. Prjónið A.5 hringinn (= 26-28-30-32-36-40 mynstureiningar með 6 lykkjum) – byrjið á sléttri lykkju og réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið endurtaki sig eins og áður á breiddina og á hæðina. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu – stillið af eftir 2. eða 7. umferð í A.5. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt með dökk grár þar sem aukið er út um 28-32-36-36-40-48 lykkjur jafnt yfir = 184-200-216-228-256-288 lykkjur. Prjónið A.6 í stroffprjóni (= 2 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með litnum dökk grár – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 48-54-60-60-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-66-66-78-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota prjónamerkið aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki. Prjónið A.5 hringinn (= 9-10-11-11-13-13 mynstureiningar með 6 lykkjum) – byrjið á sléttri lykkju og í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið endurtakið sig eins og áður á breiddina og á hæðina, en fyrsta og síðasta lykkjan í umferð er alltaf prjónuð með litnum dökk grár (þetta er gert til að fá fallega úrtöku undir ermi). Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 1-2-1-2-3-2 sinnum = 52-56-64-66-72-74 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum með 4-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 8-9-12-12-14-15 sinnum = 36-38-40-40-44-44 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 41-40-39-37-36-35 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir 2. eða 7. umferð í A.5. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt með dökk grár þar sem aukið er út um 8-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Prjónið A.6 í stroffprjóni (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með litnum dökk grár – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá hálsmálið inn að röngu. Saumið við uppfitjunarkantinn með litnum natur – saumið með smáu, fallegu spori innan á peysunni (passið uppá að saumurinn sjáist ekki á framhlið og að saumurinn verði ekki of stífur) |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
Margaret wrote:
Hi I had posted already about knitting the neck elevation in the wrong place , if I cut the elevation and rip back to the neck and body could I just Kitchener stitch the two parts together ? Thanks
03.05.2024 - 01:47DROPS Design answered:
Dear Margaret, the suggestion made last time sounds the best, but feel free to ask your yarn store, they might have any other idea. Happy knitting!
03.05.2024 - 08:27Margaret Lacey wrote:
Hi , I’m knitting 208-4, I’ve put the neck elevation in, but somehow got my markers mixed up and rather than this being in the centre back it’s over one sleeve … is there anything I can do to fix this? I’m almost finished knitting the second sleeve when I realised . Is it possible to cut into the elevation and rip back to the neck and body and then stich it back together ? Other than that the jumper looks amazing 🤣
25.04.2024 - 16:43DROPS Design answered:
Dear Margaret, I am afraid, there is no other way, but to frog it, unless, you are willing to cut into the piece under the elevation, carefully pick out the stitches in one round, pick up the stitches and knit the yoke again, to the opposite way (from the bottom up). We hope you can solve this. Happy Knitting!
25.04.2024 - 23:07Helle Espersen wrote:
Jeg forsøger at starte på at strikke drops 208-4. Jeg skal starte oppefra med 80 masker. 2 ret og 2 vrang. Jeg forstår ikke at jeg skal starte med 2 ret og slutte med 2 ret. Det vil sige at jeg får 4 ret samme sted i ribben. Kan det være rigtigt? Vh Helle Espersen
08.02.2024 - 12:21Maggie Lacey wrote:
Hi when working the yarn over increases on the raglan sleeve do I use the main colour or the colour of next fair isle stitch? So is the yarn over always in dark grey or sometimes in beige and white ? Hope this makes sense. Thank you
19.01.2024 - 15:52DROPS Design answered:
Dear Mrs Lacey, always work the yarn over for the raglan increases with the back ground colour, on next round, work the yarn over with the colour shown in the diagram. Happy knitting!
19.01.2024 - 16:06Liv Aurora wrote:
Hej. 1)Hvis jeg skal starte med at strikke bærestykket først og dernæst strikke forhøjningen, passer det ikke overens med ærmerne. Forhøjningen kommer til at gå hen over et af ærmerne. 2) - eller skal jeg strikke forhøjningen først og dernæst sætte mærker til raglan udtagning? 3) Skal der ikke tages ud til raglan på retsiden mens man strikke forhøjningen? På forhånd tak.
11.12.2023 - 21:56Louise wrote:
Hej Drops Jeg har valgt at strikke Akranes i Nepal i stedet for Alaska. Samme garngruppe C. Jeg har lavet strikkeprøve i Nepal efter bandarolen, som siger pind 5. Men opskriften siger pind 5,5. Hvilken pind skal jeg vælge? Mvh Louise
14.11.2023 - 18:52DROPS Design answered:
Hej Louise, du skal vælge den pind som giver dig 16 masker på 10 cm ifølge opskriften (da vil størrelsen stemme med de mål du finder i måleskitsen nederst i opskriften) :)
16.11.2023 - 14:20Karin wrote:
Kan se flere skriver at garnmængden ikke passer, er det rettet eller er det stadig et problem jeg skal tage højde for ?
19.09.2023 - 22:37DROPS Design answered:
Hei Karin. 23.11.2021 la vi til en rettelse i oppskriften + en rød link (se nederst på oppskriften). Dersom de kommentarene du har lest før den datoen, er oppskriften rettet. mbh DROPS Design
26.09.2023 - 14:36Lea wrote:
Jeg har et spørgsmål: jeg har strikket alle 24 pinde første gang, der er 192 masker på pinden, som der skal. Men nu skal jeg til at gentage diagrammet i samme fremgangsmåde. Det passer med maskerne først, da A2b skal gentages yderligere 4 gange, men jeg kan ikke forstå A4, der er 13 masker i den første omgange, som ville gøre at omslaget lå midt i ærmet? Jeg er ny i at strikke efter diagram- er det mig der har misforstået noget? 😅 Håber i kan hjælpe ✨ Mvh Lea
22.07.2023 - 16:26DROPS Design answered:
Hei Lea Du skal ikke starte på 1. omgang av diagrammet igjen, men du skal fortsette mønstert på samme måte. Slik at når du skal fortsette med A.4 i høyden starter du med kast, så strikker du 37 rettmasker før du gjør et nytt kast. På neste omgang er det 39 rettmasker (A.4) mellom raglansøkningene (på ermet). På neste omgang økes det igjen og du strikker da A.4 slik: 1 kast, mønstret over 39 masker og avslutt med 1 kast. Når du øker på begynnelsen og slutten av A.4 vil det bli flere og flere masker mellom økningene, der mønstret strikker. mvh DROPS Design
27.07.2023 - 10:06Kärt Merilain wrote:
Eesti keelses tõlkes on jäänud välja see, et kaelust tehes tuleb kõigepealt kududa halli lõngaga soonikut 4cm. Ja alles siis hakata kuduma skeemi A1. Leidsin neef 4cm teistest keeltest pärast seda, kui olin juba kaeluse valesti kudunud. Vast saab mustris selle vea ära parandada?
24.03.2023 - 16:17Linda wrote:
Det står i str m at eg skal strikke 25 cm frahalskanten. Skal det vere fra halskantens start, brett, eller det halskanten slutter mot bærestykkw. Vart veldig usikker på kor eg skulle male frå…
06.01.2022 - 21:15DROPS Design answered:
Hei Linda, Du måler bærestykke fra merket du satte inn etter halsen. God fornøyelse!
07.01.2022 - 07:00