Winter Delight |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað með köðlum og tvöföldu perluprjóni. Stærð S – XXXL.
DROPS 208-8 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldur mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.3 og A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Á þessu eintaki þá eru lykkjurnar prjónaðar upp meðfram handveg og ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Þetta er gert til að fá betri yfirsýn yfir lengd á ermum. Ef óskað er eftir að prjóna ermarnar stakar og sauma þær síðan á, þá er einfalt að gera það með því að fitja upp jafnmargar lykkjur og lykkjur sem prjóna á upp meðfram handveg og fylgja síðan útskýringu fyrir ermar. Saumið ermarnar í (ermin er sett undir kant með garðaprjóni meðfram handveg, þannig að kanturinn í garðaprjóni sést – saumið í ystu lykkjuna meðfram kanti með garðaprjóni). ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 4,4. Úrtakan er gerð frá réttu! Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman ef þessi lykkja á að vera slétt, eða prjónið 2 lykkjur brugðið saman ef þessi lykkja á að vera brugðin. Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman ef þessi lykkja á að vera slétt, eða prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman ef þessi lykkja á að vera brugðin. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Axlasaumar eru saumaðir. Prjónið síðan upp lykkjur meðfram handveg fyrir ermar – sjá LEIÐBEININGAR! Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón þar til ermakúpan er tilbúin, prjónið síðan afgang af ermi í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður til loka. Að lokum er botninn á handveg saumaður og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 108-116-124-132-140-156 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine eða Soft Tweed. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2 cm, en stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú byrjar mynstrið. Þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjurnar (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.3 (= 28-28-28-30-30-30 lykkjur), prjónið A.4 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.5 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjur (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur svona. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 1-3-5-7-9-13 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 106-110-114-118-122-130 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir miðju 44-44-44-48-48-48 lykkjurnar í umferð – sjá ÚRTAKA-1 = 96-100-104-108-112-120 lykkjur eftir. Í næstu umferð (ranga) eru felldar af miðju 36-36-38-38-40-40 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 29-31-32-34-35-39 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 108-116-124-132-140-156 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine eða Soft Tweed. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2 cm, en stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú byrjar mynstrið. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjur (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.3 (= 28-28-28-30-30-30 lykkjur), prjónið A.4 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.5 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjur (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 1-3-5-7-9-13 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 106-110-114-118-122-130 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. Þegar stykkið mælist 57-59-61-62-64-66 cm, fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir miðju 44-44-44-48-48-48 lykkjur í umferð = 96-100-104-108-112-120 lykkjur eftir. Í næstu umferð (ranga) eru miðju 20-20-22-22-22-22 lykkjur settar á 1 þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og síðan 1 lykkju 3-3-3-3-4-4 sinnum = 29-31-32-34-35-39 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. ERMI: Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið í horni í handvegi í annarri hlið á stykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 76-80-84-88-92-96 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 4,5 með Merino Extra Fine (þ.e.a.s. það á ekki að prjóna upp lykkjur meðfram botni á handvegi) – sjá LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 1-2-3-4-5-7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónamerkið merkir hvar á að sauma ermina síðar við botn á handvegi og ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki! Prjónið síðan ermina í hring. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur (= 19-20-21-22-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar ermin mælist 3-2-3-2-3-2 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 54-53-52-51-50-48 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 57-57-57-57-57-57 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Saumið ermar í við botn á handveg frá prjónamerki og inn að horni í hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu (á stuttan hringprjón 3,5) ca 80 til 94 lykkjur í kringum hálsmál – meðtaldar lykkjur af þræði að framan. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út jafnt yfir til 90-92-94-96-100-102 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
Nicole BUISSON wrote:
Bonjour Le diagramme A2 ne correspond pas à l'explication de la torsade Celle-ci est expliqué sur 6 mailles alors que sur le diagramme il y a 9 maillesf Pourriez vous m'aider En vous remerciant Cordialement
11.02.2023 - 16:21DROPS Design answered:
Bonjour Mme Buisson, cette torsade se tricote effectivement sur 6 mailles, mais vous tricoterez la torsade soit sur les 6 premières des 9 mailles jersey, soit sur les 6 dernières de ces mêmes 9 mailles jersey; autrement dit , tricotez le 3ème rang de A.2 ainsi: torsade sur 6 m, 3 m end; puis celle du 9ème rang ainsi: 3 m end, torsade sur 6 m (attention à bien suivre le symbole correspondant à chaque fois). Bon tricot!
13.02.2023 - 09:05Cornelia wrote:
The pattern for A2 S-M-L is suddenly dissapeared from the site! Can you please restore that?
17.11.2022 - 12:53DROPS Design answered:
Dear Cornelia, it looks like diagrams are back - if you can't see them, try to refresh the page, clean the cache/cookies and try again, it should work. Happy knitting!
17.11.2022 - 16:08Cornelia wrote:
Opeens zijn een paar onderdelen van het patroon verdwenen? A2 voor s-M en L wordt niet meer weergegeven? En ik ben net met het voorpand begonnen, dus dit is wel een probleem!!!
17.11.2022 - 12:35DROPS Design answered:
Dag Cornelia,
Het kan zijn dat de pagina tijdelijk niet goed wou laden. Heb je inmiddels het patroon in beeld kunnen krijgen. Anders eventueel even proberen met Shift + F5 of een andere browser.
20.11.2022 - 17:50Simona wrote:
DROPS Design, thank you for your reply, I could write a question at the beginning in English :) No worry, I already figured out the pattern and finished the front/back of the sweater already :) Thank you again
16.11.2022 - 14:46Simona wrote:
Dobry den, nerozumiem ako mam zacat uberat ocka na priekrcnik. V navode sa uvadza, ze nad prostrednymi 44 ockami mam ubrat 10 ok - prostrednych 44 ociek mi zasiahne aj do schemy A4, A2 a teda ju narusim. Ked si ale porovnam sveter z ilustracneho obrazka, schema A4 a A2 pokracuje az na ramena. Nie je v navode chyba? Dakujem
13.09.2022 - 14:54DROPS Design answered:
Hi, if you can write your question in English, we can try to help you :)
16.11.2022 - 13:46Dolores wrote:
Buenos dias, me gustaria saber si me pueden ayudar a realizar este modelo en agujas numero 7, o sea el doble de la que aparecen aqui, desde ya muchas gracias.
04.07.2022 - 16:01DROPS Design answered:
Hola Dolores, nosotros no hacemos patrones personalizados. El dibujo de trenza queda mejor con agujas más finas, por lo que la mayoría de nuestros modelos van a usar agujas de menos de 7. Puedes intentar hacer una muestra con aguja de 7mm, comparar con la tensión del patrón y ajustar las cuentas como se explica a continuación:https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=23.
04.07.2022 - 19:04Annamaria wrote:
Salve vorrei creare questo modello, consigliate di usare i ferri circolari ma io preferisco i ferri diritti, ma seguendo i diagrammi non capisco come lavorare i ferri a rovescio? Grazie per la vostra risposta
07.01.2022 - 03:23DROPS Design answered:
Buonasera Annamaria, questo modello è lavorato in piano con i ferri circolari, quindi può seguire le stesse spiegazioni anche utilizzando i ferri dritti. Buon lavoro!
07.01.2022 - 16:47Marianne wrote:
In het patroon staat:" 1 recht onder de volgende steek". Ik snap niet wat ik moet doen. Kunt u dat uitleggen
21.11.2021 - 13:46DROPS Design answered:
Dag Marianne,
Je steekt dan de naald niet in de volgende steek op de linker naald, maar in de steek die 1 rij daaronder zit. In onderstaande video kun je zien hoe dat precies in zijn werk gaat.
23.11.2021 - 10:59Daniela wrote:
Buongiorno per lavorare questo modello in circolare e non avanti e indietro. cosa bisogna fare per adattare lo schema? Grazie
19.09.2021 - 16:12DROPS Design answered:
Buongiorno Daniela, questo modello è stato progettato per la lavorazione in piano anche per dare una struttura maggiore al capo: se volesse lavorarlo in tondo, deve togliere le maglie di vivagno e riadattare la lavorazione dei motivi alla lavorazione in tondo. Buon lavoro!
20.09.2021 - 09:26MARTIN Véronique wrote:
Bonjour, La stature de mon cousin est de 157 cm. Pensez-vous que la taille S correspondrait pour lui ? D'avance merci.
23.03.2021 - 07:48DROPS Design answered:
Bonjour Mme Martin, l'idéal est de mesurer un pull qu'il a et dont il aime la forme et de comparer ces mesures avec celles du schéma; vous trouverez ainsi plus facilement la bonne taille. Retrouvez plus d'infos sur les tailles et les schémas ici. Bon tricot!
23.03.2021 - 08:26