Purple Dawn Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Hekluð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er heklað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-14 |
|||||||||||||
-------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðull. RENDUR: Allar rendur eru heklaðar með 2 þráðum! RÖND 1: 25-27-27-29-29-31 cm með 2 þráðum ljós perlugrár. RÖND 2: 8-8-8½-8½-9-9 cm með 1 þræði ljós perlugrár + 1 þræði gráfjólublár. RÖND 3: 8-8-8½-8½-9-9 cm með 2 þráðum gráfjólublár. RÖND 4: 8-8-8½-8½-9-9 cm með 1 þræði gráfjólublár + 1 þræði svartur. RÖND 5: Heklið síðan með 2 þráðum svartur til loka (= 8-8-8½-8½-9-9 cm). HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar 4 loftlykkjur (koma ekki í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) mínus 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki (= 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 16,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur til skiptis í 16. og 17. hverja lykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. A.4 og A.5 á ekki við um stærð M. ATH: Allar umferðir með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar frá réttu og allar umferðir með fastalykkjum eru heklaðar frá röngu. RENDUR ERMI: Allar rendur eru heklaðar með 2 þráðum! Haldið áfram með RÖND 1 þar til heklaðir hafa verið 25-27-27-29-29-31 cm með rönd 1. RÖND 2: 10 cm með 1 þræði ljós perlugrár + 1 þráður gráfjólublár. RÖND 3: 10 cm með 2 þráðum gráfjólublár. RÖND 4: 10 cm með 1 þræði gráfjólublár + 1 þráður svartur. RÖND 5: Heklið síðan með 2 þráðum svartur til loka (= 15-13-14-12-12-11 cm). HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkju í byrjun á umferð (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót við fyrstu lykkju), endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð áður en snúið er við og heklað áfram. Í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 4 loftlykkjur í byrjun á umferð (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur eru heklaðar sem viðbót við fyrstu lykkju), endið umferð með 1 keðjulykkju í 4. fastalykkju í umferð áður en snúið er við og heklað áfram. ÚRTAKA-1 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju með því að hekla 2 tvíbrugðna stuðla saman þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og frá röngu) og heklaðar saman í lok hverrar umferðar, ofan frá og niður. ATH: Allar umferðir með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar frá réttu og allar umferðir með fastalykkjum eru heklaðar frá röngu þegar mynstrið er heklað. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 76-80-84-92-92-96 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 4,5 með 2 þráðum ljós perlugrár. Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og heklið þannig: Snúið með 1 loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 76-80-84-92-92-96 loftlykkjum = 76-80-84-92-92-96 fastalykkjur. Heklið 1 umferð til viðbótar með fastalykkjum og aukið jafnframt út 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 80-84-88-96-96-100 fastalykkjur. BERUSTYKKI: Heklið nú þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 15-16-17-19-19-20 lykkjurnar, heklið A.2 yfir næstu 2 lykkjurnar, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstra framstykki og ermi), A.3 yfir næstu 2 lykkjur, A.1 yfir næstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), A.3 yfir næstu 2 lykkjur, A.1 yfir næstu 20-22-24-28-28-30 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), A.3 yfir næstu 2 lykkjur, A.1 yfir næstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), A.3 yfir næstu 2 lykkjur og heklið A.1 yfir 15-16-17-19-19-20 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! STÆRÐ S-M: Haldið svona áfram fram og til baka. Aukið út um 1 lykkju í hverja og eina af fyrstu 3 umferðum í A.2 og A.3 (þ.e.a.s. aukið út alls 8 lykkjur í hverri umferð), en í síðustu umferð er aukið út um 2 lykkjur (þ.e.a.s. aukið út alls 16 lykkjur í síðustu umferð). STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL: Haldið svona áfram fram og til baka. Aukið út um 1 lykkju í hverri stuðlaumferð (þ.e.a.s. aukið út alls 8 lykkjur í hverri umferð með stuðlum) í A.2 og A.3, en aukið út um 2 lykkjur í hverri fastalykkju umferð (þ.e.a.s. aukið út alls 16 lykkjur í hverri umferð með fastalykkjum). ALLAR STÆRÐIR: Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, eru 120-124-136-144-144-148 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 og endurtakið umferð 1 til 4 í A.2 og A.3 hvoru megin við prjónamerki þar til A.1 til A.3 hefur verið heklað alls 4-5-4-4-5-5 sinnum á hæðina (í hvert skipti sem A.2/A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið útauknar lykkjur í A.1) = 240-284-280-288-336-340 lykkjur. Heklið nú A.4 í stað A.2 og heklið A.5 í stað A.3 (á ekki við um stærð M, þar er útaukningum lokið) hvoru megin við prjónamerkin, þær lykkjur sem eftir eru, eru heklaðar í A.1 eins og áður. Þegar A.4 og A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 256-284-304-328-344-372 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 (án útaukninga) þar til stykkið mælist 25-27-28-30-32-34 cm frá byrjun á kanti í hálsi og niður meðfram kanti að framan – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig (skipting á milli fram- og bakstykki og ermar er ekki endilega við prjónamerkin): Heklið A.1 yfir fyrstu 45-48-50-54-58-63 lykkjur (= hægra framstykki), heklið 8-8-10-10-12-12 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 43-51-57-61-61-65 lykkjur (= ermi), heklið A.1 yfir næstu 80-86-90-98-106-116 lykkjur (= framstykki), heklið 8-8-10-10-12-12 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 43-51-57-61-61-65 lykkjur (= ermi), heklið A.1 yfir 45-48-50-54-58-63 lykkjur sem eftir eru í umferð (= vinstra framstykki). Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 186-198-210-226-246-266 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram með mynstur A.1 og rendur eins og áður. Þegar allar rendur hafa verið gerðar til loka á hæðina – stillið af að endað sé eftir umferð með fastalykkjum, mælist stykkið ca 32-32-33-33-33-33 cm. Öll peysan mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. ERMI: Byrjið í 4. loftlykkju sem var hekluð undir ermi með 1 keðjulykkju, haldið áfram fram og til baka með A.1 og 1 lykkju í hverja lykkju í kringum ermi – sjá RENDUR ERMI og munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR = 51-59-67-71-73-77 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Þegar ermin mælist ca 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (á ekki við um stærð S) – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með ca 2 cm millibili alls 0-2-5-5-4-5 sinnum = 51-55-57-61-65-67 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-41-41-39-37-36 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum, heklið 1 umferð með fastalykkjum þar sem fækkað er um 2-3-5-7-8-7 fastalykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 = 49-52-52-54-57-60 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 1-0-0-2-1-0 lykkjum, * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 lykkjum, heklið næstu 2 fastalykkjur saman (= 1 fastalykkja færri) *, heklið frá *-* umferðina út = 37-39-39-41-43-45 fastalykkjur. Heklið 2 umferðir með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). Saumið tölur niður í 3. lykkju frá kanti. Fyrsta talan er saumuð í ca 1½-2 cm frá kanti í hálsmáli, síðan 5-5-5-5-6-6 næstu með ca 7½-8-8½-8½-7½-8 cm millibili. Tölum er hneppt í gegnum tvíbrugðnu stuðlana í hægri kanti að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Liv Emdal wrote:
XXL What does the size mean in cm?
23.05.2024 - 12:33DROPS Design answered:
Hej Liv, her ser du hvordan du læser måleskitsen nederst i opskriften: Hvordan læser man måleskitsen
23.05.2024 - 13:47Liv Emdal wrote:
Hvordan finder jeg størrelser?\ nXXL hvad svarer det til i mål
22.05.2024 - 15:18DROPS Design answered:
Hej Liv, du finder målene til de forskellige størrelser i måleskitsen nederst i opskriften :)
23.05.2024 - 11:01Lucienne wrote:
Als A.1 tot A.3 1 keer in de hoogte zijn gehaakt, zijn er 120-124-136-144-144-148 steken. Ga verder met A.1 en herhaal toeren 1 tot 4 in A.2 en A.3 aan elke kant van de markeerdraden tot A.1 tot A.3 in totaal 4-5-4-4-5-5 keer in de hoogte zijn gehaakt (elke keer dat A.2/A.3 1 keer in de hoogte worden gehaakt, worden de gemeerderde steken in A.1 gehaakt) = 240-284-280-288-336-340 steken. Moet ik steken meerderen in A1 en zo ja hoeveel?
28.04.2024 - 20:23Maria Alice Cardoso wrote:
Na explicação TODOS OS TAMANHOS, : diz " Continuar A.1 e repetir as carreiras 1 a 4 de A.2 e A.3 de cada lado do fio marcadores" Pergunto: A.2 ficado de um lado do marcador e A.3 do outro lado do marcador?
20.04.2022 - 16:14DROPS Design answered:
Bom dia, Sim, A.2 fica de um lado e A.3 do outro lado do marcador. Bom Croché!
22.04.2022 - 08:41Argentina Tomarchio wrote:
Buongiorno non capisco il passaggio da 136 maglie a 280 maglie taglia M. A me viene 328 maglie se faccio 4 volte i diagrammi A2 ed A3. Mi verrebbe corretto ovvero 280 maglie se ripetessi 3 volte i due diagrammi. Non riesco davvero a capire dove sbaglio. Grazie mille!!
24.11.2020 - 08:58DROPS Design answered:
Buongiorno Argentina, deve contare anche la prima ripetizione dei diagrammi. Buon lavoro!
24.11.2020 - 16:23Jenny De Jong wrote:
Weer een voorbeeld van magere meisjes in Plus-size kleding. Zo jamme! Waarom gebruikt u geen mollige dames? Zij zijn ook mooi.
02.07.2020 - 14:29Maartje wrote:
Hallo, ik wil dit patroon meteen enkele draad haken, welk wol kan ik daarvoor gebruiken en hoeveel voor een xl?
25.05.2020 - 00:10DROPS Design answered:
Dag Maartje,
Hiervoor heb je wol nodig uit garencategorie C. Je kan ook 2 garens uit categorie A samenbreien zoals in het patroon gedaan wordt. Hier vind je een overzicht van de garengroepen. Om de hoeveelheid wol te berekenen is de totale looplengte die gebruikt wordt in dit voor jouw maat een goed uitgangspunt.
01.06.2020 - 10:51Elisa Bondente wrote:
Dove sono le istruzioni per realizzarlo?
21.02.2020 - 17:10DROPS Design answered:
Buongiorno Elisa. A questo link trova le spiegazioni in italiano. Buon lavoro!
24.02.2020 - 14:44Jane wrote:
I Hækleinformationen står der " afslut rækken med 1 kædemaske i første fastmaske på rækken før det vendes og hækles videre." Jeg forstår ikke hvor den kædemaske skal hækles og hvorfor hvis det er en åben trøje med knapper. Der er også 2 gange hækleinformationer i opskriften.
20.11.2019 - 20:27DROPS Design answered:
Hei Jane! På rader med fastmasker skal kjedemasken hekles i den siste masken på raden. Husk at alle rader skal hekles frem og tilbake! Denne oppskriften har blitt oppdatert, vi har nå merket HÆKLEINFORMATION med 1 og 2. HEKLEINFORMATION 1 brukes på halskanten, mens HÆKLEINFORMATION 2 brukes på ermene. Lykke til!
21.11.2019 - 10:55Karin Hauswirth wrote:
Ich habe Konfektionsgrösse 42/44. Welche Grösse muss ich nehmen?
25.10.2019 - 14:40DROPS Design answered:
Liebe Frau Hauswirth, hier lesen Sie wie man die Größe wählt. Viel Spaß beim häkeln!
25.10.2019 - 16:33