Chocolate Waterfall |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð síð ferningspeysa úr DROPS Air. Stykkið er heklað með gatamynstri og sólfjöðrum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-46 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Í hverri umfeðr með tvíbrugðnum stuðlum, skiptið út fyrsta tvíbrugðna stuðli með 5 loftlykkjum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman mitt aftan á baki. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan að miðju að framan. Ermar eru heklaðar fram og til baka frá handveg og niður og saumaðar saman í lokin. VINSTRA STYKKI: Heklið 116-123-131 loftlykkjur með heklunál 6 með Air. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4-5-1 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 18-19-21 sinnum = 96-102-108 stuðlar – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið síðan þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 6 stuðla, A.2a yfir næstu 84-90-96 stuðla (14-15-16 einingar) og endið með A.3a yfir síðustu 6 stuðla. Heklið síðan A.1b yfir A.1a, A.2b yfir A.2a og A.3b yfir A.3a. Endurtakið síðan A.1b, A.2b og A.3b á hæðina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-20-22 cm (stillið af eftir umferð heklaðri frá röngu) heklið handveg þannig – frá réttu: Til að það verði meiri stöðuleiki í peysunni yfir handveg, er hekluð ein auka umferð með stuðlum einungis yfir fyrstu lykkjur á peysunni (= á sjálfum kraganum). Heklið 6-6-6 stuðla yfir fyrstu einingu af A.1b og 18-18-18 stuðla yfir fyrstu 3-3-3 einingar af A.2b = 24-24-24 stuðlar. Klippið frá og byrjið aftur frá byrjun á umferð með mynstri – frá réttu þannig: Heklið A.1b, A.2b alls 3-3-3 sinnum (sjá A.1a/A.2a til að sjá hvernig mynstrið er heklað yfir stuðla), heklið 24-30-30 loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir 4-5-5 einingar af A.2b, heklið A.2b alls 7-7-8 sinnum og endið með A.3b. Í næstu umferð er heklað mynstur eins og áður yfir loftlykkjur, þ.e.a.s. heklið A.2b alls 4-5-5 sinnum yfir handveg. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 59-64-69 cm – stillið af eftir umferð með stuðlum, klippið frá og festið enda. HÆGRA STYKKI: Heklið 116-123-131 loftlykkjur með heklunál 6 með Air. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4-5-1 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 18-19-21 sinnum = 96-102-108 stuðlar – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið síðan þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 6 stuðla, A.2a yfir næstu 84-90-96 stuðla (14-15-16 einingar) og endið með A.3a yfir síðustu 6 stuðla. Heklið síðan A.1b yfir A.1a, A.2b yfir A.2a og A.3b yfir A.3a. Endurtakið síðan A.1b, A.2b og A.3b á hæðina. Þegar stykkið mælist 18-20-22 cm (stillið af eftir sömu umferð og vinstra stykki á peysunni) heklið handveg þannig – frá réttu: Til að það verði meiri stöðuleiki í peysunni yfir handveg, er hekluð ein auka umferð með stuðlum einungis yfir síðustu lykkjur á peysunni (= á sjálfum kraganum – þetta verður efst á peysunni þegar stykkin eru saumuð saman). Klippið frá. Hoppið yfir A.1b, hoppið yfir fyrstu 11-12-13 einingar af A.2b, heklið 18-18-18 stuðla yfir síðustu 3-3-3 einingar af A.2b og endið með 6-6-6 stuðla yfir A.3b = 24-24-24 stuðlar. Klippið frá og byrjið aftur frá byrjun á umferð með mynstri – frá réttu þannig: Heklið A.1b, A.2b alls 7-7-8 sinnum, heklið 24-30-30 loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir 4-5-5 einingar af A.2b, heklið A.2b alls 3-3-3 sinnum og endið með A.3b (sjá A.2a/A.3a til að sjá hvernig mynstur er heklað yfir stuðla). Í næstu umferð er heklað mynstur eins og áður yfir loftlykkjur, þ.e.a.s. heklið A.2b alls 4-5-5 sinnum yfir handveg. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 59-64-69 cm – stillið af eftir vinstra stykki á peysu, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Snúið stykkinu þannig að rangan snúi upp (tvíbrugðnir stuðlahópar eiga að vera á réttu á stykki). Saumið peysuna saman mitt að aftan, saumið í ystu lykkjubogana. ERMI: Heklið fram og til baka meðfram handveg – byrjið mitt undir ermi og heklið 50-62-62 stuðla jafnt yfir í/um loftlykkjuboga/um stuðlaumferð efst við hnakka. Heklið síðan fram og til baka þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.4a yfir fyrsta stuðul, A.5a yfir næstu 48-60-60 stuðla (= 8-10-10 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.4a yfir síðasta stuðul. Heklið síðan A.4b yfir A.4a og A.5b yfir A.5a. Haldið svona áfram með mynstur á hæðina – jafnframt er fækkað um 1 stuðlahóp í hvorri hlið á ermi í síðustu umferð í mynsturteikningu, fækkið lykkjum með því að hekla eins og útskýrt er í umferð 2 í A.6 í byrjun á umferð og umferð 2 í A.7 í lok umferðar (= 3 lykkjur færri í hvorri hlið). Fækkið lykkjum svona með 12 cm millibili alls 4-4-4 sinnum = 26-38-38 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 53-53-53 cm – stillið af eftir umferð með stuðlum. Heklið A.4c yfir A.4b og A.5c yfir A.4b. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkju svo að saumurinn verði ekki of þykkur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (25)
Margaretmhf wrote:
Novost
26.06.2023 - 21:50Robhxr wrote:
Novost
23.06.2023 - 17:14Robnnq wrote:
Novost
18.06.2023 - 07:30Viktorisvb wrote:
Cinema
17.06.2023 - 19:47Davidozo wrote:
Coin
09.06.2023 - 22:07Evaafs wrote:
Med
17.05.2023 - 17:23Evaqhs wrote:
Med
16.05.2023 - 11:40Evamsf wrote:
Med
14.05.2023 - 02:13Evakdh wrote:
Med
12.05.2023 - 22:13Igorulx wrote:
Ukraine
29.04.2023 - 03:31