Candy Cane Lane Jacket |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa með norrænu Fana mynstri úr DROPS Karisma eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-21 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 121 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 44) = 2,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja lykkju og 3. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar. Byrjið frá réttu með litnum vínrauður og prjónið 12-13-14-15-15-16 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 25-27-29-31-31-33 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 37-40-43-46-46-49 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 49-53-57-61-61-65 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-76-76-81 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-90-96 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan þegar flíkin er mátuð): Fellið af fyrir 6-6-6-7-7-7 hnappagötum í hægri kanti að framan (fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í kanti í hálsmáli). 1 hnappagat = Prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn: ATH: Fallegast er að fella af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einingu með 2 lykkjum brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Neðsta hnappagatið á að vera ca 4 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera ca 7½-8½ cm frá hnappagati í kanti í hálsmáli. Þau 4-4-4-5-5-5 hnappagöt sem eftir eru, eru staðsett með jöfnu millibili með ca 7½-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Í lokin eru prjónaðir kantar að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-128 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður/rauður. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 1 hnappagati í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af fyrir hnappagati með því að prjóna eins og áður frá réttu þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff. Þegar kantur í hálsmáli mælist 3 cm í öllum stærðum, skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: Fellið af 6 lykkjur í byrjun á umferð (hér á að sauma niður kantinn í lokin), prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út um 25-29-33-37-37-37 lykkjur jafnt yfir þessar 96-100-104-108-112-116 lykkjur – sjá ÚTAUKNING, haldið síðan áfram með stroff yfir 6 lykkjur sem eftir eru. Snúið stykkinu og fellið af fyrstu 6 lykkjur í byrjun á umferð = 121-129-137-145-149-153 lykkjur í umferð. Prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, berustykki er mælt frá prjónamerki! Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka - sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni (=29-31-33-35-36-37 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 3 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Ör-1: Aukið út um 44-44-44-52-52-56 lykkjur jafnt yfir = 165-173-181-197-201-209 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-42-44-48-49-51 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum). Ör-2: Aukið út um 40-40-44-48-52-52 lykkjur jafnt yfir = 205-213-225-245-253-261 lykkjur (nú er pláss fyrir 50-52-55-60-62-64 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum). Ör-3: Aukið út um 35-39-43-47-51-51 lykkjur jafnt yfir = 240-252-268-292-304-312 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-62-66-72-75-77 mynstureiningar à A.1A með 4 lykkjum og A.1B nær nú yfir 2 lykkjur). Ör-4: Aukið út um 3-7-7-15-19-27 lykkjur jafnt yfir = 243-259-275-307-323-339 lykkjur (nú er pláss fyrir 15-16-17-19-20-21 mynstureiningar A.1A með 16 lykkjum og A.1B nær nú yfir 1 lykkju). Ör-5: Aukið út um 25-29-29-25-29-33 lykkjur jafnt yfir, en passið uppá að lykkjur séu auknar út með natur svo að stjarnan skemmist ekki = 268-288-304-332-352-372 lykkjur (nú er pláss fyrir 66-71-75-82-87-92 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum og A.1B nær nú yfir 2 lykkjur). Ör-6: Aukið út um 13-13-17-17-17-21 lykkjur jafnt yfir = 281-301-321-349-369-393 lykkjur (nú er pláss fyrir 69-74-79-86-91-97 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum og A.1B nær nú yfir 3 lykkjur). Ör-7: Aukið út um 12-12-12-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 293-313-333-365-385-413 lykkjur (nú er pláss fyrir 72-77-82-90-95-102 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum). Ör-8: Aukið út um 8-12-8-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 301-325-341-377-397-429 lykkjur (nú er pláss fyrir 74-80-84-93-98-106 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum). Haldið áfram með A.X og A.Y án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-52-57-62-68 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 89-97-101-111-121-133 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 46-50-52-57-62-68 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 197-213-229-249-277-301 lykkjur. Haldið áfram með A.X og A.Y fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (passið uppá að byrja í réttri umferð miðað við hvar berustykkið endaði). Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu. Aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir (aukið út lykkjur í umferð með einum lit, vínrauður/rauður). Aukið svona út með ca 6 cm millibili alls 5 sinnum = 217-233-249-269-297-321 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 28 cm frá skiptingu, en passið uppá að endað sé eftir heila rönd með litnum natur (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum vínrauður/rauður þar sem aukið er út um 51-55-59-63-71-75 lykkjur jafnt yfir = 268-288-308-332-368-396 lykkjur (lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffi sem á að prjóna dragist saman). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-64-68-76-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.X hringinn (passið uppá að byrja í réttri umferð miðað við hvar berustykkið endaði). Þegar ermin mælist ca 4-4-4-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 12-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 41-40-38-37-35-34 cm, en passið uppá að endað sé eftir heila rönd með litnum natur (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og litinn vínrauður. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-60-60-64 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-44-42-41-39-38 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Prjónið upp frá réttu á hringprjón 3 með litinn vínrauður/rauður þannig: Prjónið upp ca 124-128-132-140-144-148 lykkjur lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram miðju að framan (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff þannig (1. umferð = ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 3 cm – stillið af að það sé jafn breitt og breiddin á 6 lykkjum sem felldar voru af í kanti í hálsmáli. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan, en eftir 1-1½ cm er fellt af fyrir 6-6-6-7-7-7 HNAPPAGAT jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið kant í hálsmáli fallega við kant að framan með saum inn að röngu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Anna Von Waldenfels wrote:
Kann man diese Wolle auch steeken? Ich stricke mit Merino extra fine!
06.09.2022 - 08:20DROPS Design answered:
Liebe Frau Von Waldenfels, Merino Extra Fine ist vielleicht nicht die beste Wolle um mit Steek Maschen zu stricken. Viel Spaß beim stricken!
06.09.2022 - 09:41Vanja Holm wrote:
Hejsan! Detta mönster är helt omöjligt att sticka fram o tillbaka när man gör koftan i och med att oftast så när det är färgbyte så har man inte det andra garnändan åt det håll man ska sticka ifrån = den är på andra sidan då. Vill gärna ha förklaringar hur man ska ändra när man stickar vit o ska gå över till röd t.ex. Annars så tycker jag mönstret är jättefint!
04.05.2022 - 17:54Sima wrote:
Bonsoir; en faisons mon échantillon j’ai trouvé que pour 10x10 cm il me faudrait 22 m et 28 rg une maille de plus que l’échantillon du modèle et je voudrais faire une maille M est ce que pour une maille de plus je garde le même nombre de mailles que celui du modèle à savoir 112 m pour M où je monte 114 m merci beaucoup😊
23.01.2022 - 13:39DROPS Design answered:
cf réponse ci-dessous :) Bon tricot!
24.01.2022 - 09:41Sima wrote:
Bonsoir; en faisons mon échantillon j’ai trouvé que pour 10x10 cm il me faudrait 22 m et 28 rg une maille de plus que l’échantillon du modèle et je voudrais faire une maille M est ce que pour une maille de plus je garde le même nombre de mailles que celui du modèle à savoir 112 m pour M où je monte 114 m merci beaucoup
22.01.2022 - 20:30DROPS Design answered:
Bonjour Sima, essayez de laver/bloquer votre échantillon pour vérifier si vous "récupérez" cette maille; sinon, essayez une aiguille d'une taille au-dessus, sinon votre gilet sera trop court. Retrouvez plus d'infos sur l'échantillon dans la FAQ. Bon tricot!
24.01.2022 - 09:17Anita wrote:
Vielen Dank. Liebe Grüsse, Anita
30.09.2021 - 15:36Anita wrote:
Hallo liebes DropsTeam, Ich wollte diese Jacke mit Drops Nepal stricken, da mir Karisma zu kratzig ist. Könnt ihr mir bei der Menge der Wolle helfen? Karisma hat 100 lm und Nadel 4 und Nepal hat nur 75lm umd Nadel 5. Jetzt weiss ich nicht genau wie ich da den Wollverbrauch ausrechnen kann. Vielen Dank. Liebe Grüsse, Anita
28.09.2021 - 16:00DROPS Design answered:
Liebe Anita, Nepal gehört zur Garngruppe C und ist hier für Karisma keine Alternative, benutzen Sie unseren Garnumrechner um die unterschiedlichen Alternative zu sehen (z.B. DROPS Lima, mit gleichen Zusammensetzung wie DROPS Nepal). Viel Spaß beim stricken!
28.09.2021 - 16:11Michelle wrote:
Bonjour, pour ce modèle je suppose qu'il faut changer d'aiguille circulaire et passer à la 4 ??? juste à cette endroit là au col : ou dois je continuer avec l aiguille 3 ? Quand le col mesure 3 cm dans toutes les tailles continuer avec l'aiguille circulaire et tricoter le rang suivant sur l'endroit ainsi: ............ merci
28.09.2020 - 16:28DROPS Design answered:
Bonjour Michelle, effectivement, on continue avec l'aiguille circulaire 4 quand le col mesure 3 cm - la taille de l'aiguille est bien là maintenant, merci. Bon tricot!
28.09.2020 - 16:40Julie wrote:
I'm happy to see Scandinavian patterns modernized for sleeker fits.
20.08.2019 - 19:28Andrea wrote:
Traumhaft schön!
12.08.2019 - 08:55Kelly wrote:
Love to make this for winter.
09.08.2019 - 23:15