Inner City |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð síð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 (A.5 á við um stærð S, L, XL og XXXL). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) mínus 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 5,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) mínus 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 18,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 18. og 19. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í hlutum á hringprjóna og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 108-112-128-132-140-156 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu, þar sem fækkað er um 18-18-22-22-22-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 90-94-106-110-118-130 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Endurtakið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 17 cm. Prjónið nú A.1 yfir A.2. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3 yfir A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 32-34-36-34-36-34 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá réttu (þ.e.a.s. 1.,3.,5. eða 7. umferð í mynsturteikningu). Klippið frá og prjónið síðan frá réttu (þannig að það verða 2 umferðir frá réttu á eftir hvorri annarri) þannig: Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næst síðustu umferð í A.1 er aukið út 0-5-2-0-1-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 90-99-108-110-119-130 lykkjur. Prjónið nú mynstur í mismunandi stærðum þannig: Stærð S, L, XL, XXXL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-3-4-5 lykkjur slétt, A.4 (= 18 lykkjur) alls 4-5-5-6 sinnum á breidd, A.5 (= 10 lykkjur), 3-3-4-5 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Stærð M og XXL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-4 lykkjur slétt, A.4 (= 18 lykkjur) alls 5-6 sinnum á breidd, 4-5 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Allar stærðir. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 84-93-102-102-111-120 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af miðju 24-25-26-26-27-28 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 29-33-37-37-41-45 lykkjur. Haldið síðan áfram með eins margar lykkjur í mynstur og pláss er fyrir, þar til handvegurinn mælist ca 18-19-20-21-22-23 cm (stykkið mælist alls 63-65-67-69-71-73 cm) – stillið af að endað sé eftir 4.,8.,14. eða 18. umferð í A.4/A.5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 108-112-128-132-140-156 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu, þar sem fækkað er um 18-18-22-22-22-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 90-94-106-110-118-130 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Endurtakið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. Stykkið mælist ca 17 cm. Prjónið nú A.1 yfir A.2. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3 yfir A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 32-34-36-34-36-34 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá réttu (þ.e.a.s. 1.,3.,5. eða 7. umferð í mynsturteikningu). Klippið frá og prjónið síðan frá réttu (þannig að það verða 2 umferðir frá réttu á eftir hvorri annarri) þannig: Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næst síðustu umferð í A.1 er aukið út 0-5-2-0-1-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 90-99-108-110-119-130 lykkjur. Prjónið nú mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, L, XL, XXXL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-3-4-5 lykkjur slétt, A.4 (= 18 lykkjur) alls 4-5-5-6 sinnum á breidd, A.5 (= 10 lykkjur), 3-3-4-5 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Stærð M og XXL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-4 lykkjur slétt, A.4 (= 18 lykkjur) alls 5-6 sinnum á breidd, 4-5 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Allar stærðir. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 84-93-102-102-111-120 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 59-61-62-64-65-67 cm eru miðju 16-17-18-18-19-20 lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni = 29-33-37-37-41-45 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur þar til handvegur mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm (stykkið mælist alls 63-65-67-69-71-73 cm) – stillið af að endað sé eftir 4.,8.,14. eða 18. umferð í A.4/A.5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stuttan hringprjón. Fitjið upp 76-76-88-88-96-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 64-64-72-72-80-80 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan mynstur A.1 umferðina hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið mynstur A.2. Endurtakið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. Stykkið mælist nú ca 17 cm. Prjónið nú A.1, jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 4-0-4-2-6-4 lykkjur jafnt yfir = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 42-40-38-38-37-35 cm. Haldið nú áfram með A.3 en prjónið fram og til baka þannig að það myndist smá klauf mitt undir ermi (þetta er gert til að auðveldara sé að setja ermina við fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg á fram- og bakstykki). Þegar ermin mælist alls 44-42-40-41-40-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Síðasta hluta á ermi sem prjónaður er fram og til baka er saumaður við þar sem 3-3-3-4-4-5 lykkjur voru felldar af fyrir handveg á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið á hinni hliðinni. Klippið frá og festið enda. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með Air og stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp alls 88-92-100-100-104-108 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 18 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkju. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Marie-Thérèse O'Carroll wrote:
Is this a typo? For size XXL: Back piece: "until the armhole measures 18-19-20-21-22-23 cm (the piece measures a total of 63-65-67-69-71-73 cm)"; Front piece: "until the armholes measure approx. 19-20-21-22-23-24 cm (the piece measures a total of 63-65-67-69-71-73 cm)"; There is 1cm of a difference between the back and front sides of the armholes, but without a difference in total length, so back and front side seams will also differ by 1cm.
28.12.2022 - 01:45DROPS Design answered:
Dear Marie-Thérèse, we will check with the design department if there are any mistakes in the pattern. Happy knitting!
07.01.2023 - 19:25Marie-Thérèse O'Carroll wrote:
Am I correct in reading no A.5 for sizes M and XXL? ONLY A.4?
01.12.2022 - 19:31DROPS Design answered:
Dear Mrs O'Carroll, yes that's correct, this depends on the number of stitches on needle, in these size you just repeat A.4 in width, with some stitches in stocking stitch on each side. Happy knitting!
02.12.2022 - 07:58Marie-Thérèse O'Carroll wrote:
Working Back and Front, at A.4 for XXL, after working 1 edge stitch in garter stitch, are you sure it is knit 4, then work repeats of A.4, knit 5, 1 edge stitch in garter stitch CONTINUE LIKE THIS BACK AND FORTH? This means each row starts and ends with 5 and 4 garter stitches - each row knitted. Yes? Or are they purled to match horizontal section of A.4?
01.12.2022 - 19:25DROPS Design answered:
Dear Mrs O'Carroll, not exactly, you work only the edge stitches in stocking stitch, then work 4 stitches in stocking stitch (knit from RS but purl from WS), repeat A.4 and end with 5 stitches in stocking stitch and 1 edge stitch in garter stitch. Happy knitting!
02.12.2022 - 07:57Montserrat wrote:
Est ce que on lie le diagramme de haut bas en vertical ou en horizontal
11.04.2021 - 14:19DROPS Design answered:
Bonjour Mme Montserrat, cette leçon vous aidera à comprendre comment lire les diagrammes. Bon tricot!
12.04.2021 - 08:12Montserrat wrote:
Merci mais juste encore une question est ce que je doit tricoter le A4 tout le diagramme et après le À 5 desçu le A 4 et ainsi de suite ou faire le À 4 et le À 5 l un à coter de l autre sur la même ligne
10.04.2021 - 17:00DROPS Design answered:
Bonjour Mme Montserrat, vous tricotez les 2 diagrammes au même rythme: répétez le 1er rang de A.4 et terminez le rang par le 1er rang de A.5; sur l'envers, tricotez le 2ème rang de A.5 (en lisant de gauche à droite) et répétez le 2ème rang de A.4 - voir aussi ici plus en détails. Bon tricot!
12.04.2021 - 08:10Montserrat wrote:
Bonjour je ne comprend pas vos explication pour les motif A4 et A5 car si on commence avec 11 mailles endroit et 2 mailles envers et 2 mailles endroit 2 mailles envers et ensuite 11 mailles endroit et ainsi de suite jusqu’à la fin du rang pour le rangs suivant si on suit les indications sa ne joue pas les points ne corresponde pas
09.04.2021 - 02:22DROPS Design answered:
Bonjour Mme Montserrat, vous devez répéter (4 à 6 fois selon la taille) les 18 m de A.4, et vous terminez ensuite par tricoter les 10 m de A.5, vous aurez bien 2 m endroit entre la section côtes à la fin du dernier A.4 et les 8 m envers de A.5. Cette leçon pourra vous aider à comprendre comment tricoter ces diagrammes . Bon tricot!
09.04.2021 - 07:58Christine Cossette wrote:
Pour le modèle de pull 207-9, est-ce que le rang 1 de A4 est sur l'endroit ou l'envers de l'ouvrage?
09.02.2021 - 16:46DROPS Design answered:
Bonjour Christine, le rang 1 de A4 se trouve sur l'endroit. Bon tricot!
09.02.2021 - 17:33Joan Tunge wrote:
Hej. Jeg er super glad for både jeres garn og opskrifter... Jeg har dog samme spørgsmål som Andriana længere oppe...det med at man skal klippe tråden, og strikke fra retten igen. Jeg forstår desværre ikke svaret helt - kan jeg få den på dansk?😳
20.11.2020 - 17:39DROPS Design answered:
Hej Joan, det er fordi du strikker sidste pind fra retsiden og næste pind skal også strikkes fra retsiden ifølge diagrammet. Hvis du selv kan justere det så du ikke behøver klippe tråden, så gør du bare det :)
24.11.2020 - 15:19Andrea Bray-Sharman wrote:
Can you please send me actual garment size for S/M/L sizes on oversize air drop jumper pattern Thank you
26.04.2020 - 20:42DROPS Design answered:
Dear Andrea, you can find the measurements of each piece on the schematic drawings. If you are unsure which size to chose, we suggest that take a similar garment that fits you, and compare the measurements. Happy Knitting!
26.04.2020 - 20:54Marie wrote:
Ich habe den Pullover gestrickt in Rot.Er sieht super aus.Ich habe das Nepal Rot genommen.
13.01.2020 - 17:40