Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= 2 lykkjur slétt saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Springtide Dance |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með einföldu gatamynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS 198-10 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-9-9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-9-9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 72-72-80 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Nord. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2½-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 60-60-66 lykkjur. Prjónið A.1A hringinn (= 10-10-11 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! A.1A er prjónað alls 5 sinnum á hæðina, en í síðustu umferð í síðustu endurtekningu með A.1A á hæðina er prjónað þannig: Prjónið 17-16-15 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 3-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 14-15-13 lykkjur slétt), prjónið 28-30-32 lykkjur, prjónið 15-14-19 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 3-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 12-13-17 lykkjur slétt) = 54-58-62 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 15 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum. Haldið eftir fyrstu 14-15-13 lykkjum á prjóni, setjið næstu 28-30-32 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir 12-13-17 lykkjum sem eftir eru á prjóni = 26-28-30 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – prjónamerkið er notað síðar þegar mæla á frá lengd á fæti. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 14-14-16 hællykkjur, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, setjið 1 prjónamerki, prjónið 1-2-3 lykkjur slétt, prjónið A.1A yfir næstu 24 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 3 lykkjur), prjónið 0-1-2 lykkjur, setjið 1 prjónamerki og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram annarri hlið á hæl = 68-72-80 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur með sléttprjóni og A.1 yfir 27 lykkjur mitt á fæti. JAFNFRAMT er nú lykkjum fækkað hvoru megin við 28-30-32 lykkjur á milli prjónamerkja á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru ca 4-5-6 cm til loka, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Takið frá öll fyrri prjónamerki og setjið 2 ný prjónamerki í stykkið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti (það á að vera 1 prjónamerki í hvorri hlið á sokk og prjónamerkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir tá). Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 5-7-11 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-4-0 sinnum = 12-12-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-6-8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (14)
Charlotte Kristensen wrote:
Jeg forstår ikke dette “Fortsæt mønsteret således i glatstrik og A.1 over de 27 masker midt ovenpå foden.” Hvad med de sidste 3masler der over foden (der er jo 30masker og ikke kun 27)? Og jeg forstår ikke hvornår model A.1B skal bruges, for den nævnes kun en enkelt omgang og så bruges den ellers ikke😅 Hjælp 😅
29.12.2020 - 19:32Ambro wrote:
Bonjour, pourriez-vous m’éclairer sur la répartition des mailles pour le talon s’il vous plaît ? Je tricote avec des aiguilles circulaires pour la taille 41/43, et je ne comprends pas l’explication. Si je la suis, je me retrouve avec le fils de la pelote au milieu du rang du talon. Est-ce que je dois tricoter le talon en 2 parties (13 + 17m) ou d’un seul bloc (30m) ? Est-ce que je ne pourrais pas glisser les 32m en attente et tricoter le talon directement ? Merci beaucoup !
21.12.2020 - 00:10DROPS Design answered:
Bonjour Mme Ambro, le début des tours se trouve au milieu dos de la chaussette, le talon va donc se tricoter sur les 17 dernières mailles du tour + les 13 premières mailles du début du tour. Quand vous arrivez au début du talon, tricotez les 13 premières mailles, glissez les 32 mailles suivantes en attente, tournez et tricotez sur l'envers ces 13 m + les 17 dernières m = 30 m pour le talon. Bon tricot!
21.12.2020 - 08:38Rebecka wrote:
Hej! Jag ska nu sticka A1 5ggr på höjden. I diagrammet står det att jag ska sticka "2 maskor räta tillsammans" vid två tillfällen - vilket innebär att jag sammanlagt på 5ggr kommer minska 10 maskor. Dock ska jag vid slutet av det här momentet (när arbetet mäter 15cm) ha 58 maskor kvar. Jag förstår inte hur detta går ihop, har jag missförstått något?
19.12.2020 - 16:09DROPS Design answered:
Hej Rebecka. Om du ser i diagrammet så har du även omslag i samband med att du stickar 2 maskor räta tillsammans vilket innebär att antalet maskor i diagrammet förblir detsamma. Mvh DROPS Design
21.12.2020 - 10:39Brugere wrote:
Merci ,merci de votre patience j ai enfin compris le sens des explications. Cordialement
27.03.2020 - 09:51Brugere wrote:
Re, Je vois pas les 27 mls car elles étaient de 30 au début à mettre en attente moi j ai 30 dessus de pied et 14 sur les 2 côtés et 14 dessous de pied. Je ne comprends pas .. merci pour vos précisions
26.03.2020 - 17:53DROPS Design answered:
Bonjour Mme Brugere, ces 27 mailles correspondent à celles que vous devez tricoter en suivant A.1A et A.1B dans cette partie: Tricoter à l’endroit les 14 mailles du talon, relever 14 mailles le long du côté du talon, placer 1 marqueur, tricoter 2 mailles endroit, A.1A au-dessus des 24 mailles suivantes (= 4 motifs de 6 mailles), A.1B (= 3 mailles) = 27 mailles du dessus du pied, 1 mailles endroit, placer 1 marqueur et relever 14 mailles le long de l’autre côté du talon = 72 mailles. Bon tricot!
27.03.2020 - 09:44Brugere wrote:
Bonjour, Apres les diminution du talons vous dites continuer en jersey avec A1 , cela veut dire quoi ? Les 27 mls du dessus pied vous les avez comment car j ai 30 mls pour la taille 38/40. Merci pour vos explications
26.03.2020 - 17:09DROPS Design answered:
Bonjour Mme Brugere, vous tricotez maintenant les 27 m du dessus du pied (celles qui étaient en attente) en suivant A.1 (reprenez le diagramme au 1er rang) et tricotez celles du dessous du pied (= les mailles relevées + celles du talon en jersey = 30 m en 38/40). Vous allez maintenant diminuer avant les 27 m et après les 27 m jusqu'à ce qu'il reste 56 m soit 27 pour le dessus du pied comme avant et 29 m jersey pour le dessous du pied. Bon tricot!
26.03.2020 - 17:24Brugere wrote:
Bonjour, Je reviens sur les diminutions du haut vraiment vraiment je ne comprends pas . Pouvez vous svp me decomposer exactement se rang ou c est rangs!!je n arrives pas du tout à comprendre comment on peut arriver à 58 mls ( je fais la taille 38/40) merci de votre compréhension cordialement
25.03.2020 - 16:55DROPS Design answered:
Bonjour Mme Brugere, en taille 38/40 vous montez 72 m, tricotez 2,5-3 cm de côtes 2/2 et tricotez ensuite 1 tour endroit en dimimnuant 14 m = il reste 60 mailles. Vous tricotez maintenant A.1A (= soit 10 fois 6 motifs en largeur) jusqu'à ce que vous ayez tricoté 5 fois le diagramme A.1a en hauteur (= 5 fois les 8 rangs de A.1A = 40 rangs), au 40ème rang, vous diminuez comme expliqué le 23/3 = il reste 58 mailles et vous tricotez le talon sur les 15 premières m + les 13 dernières m du tour (= 28 m pour le talon). Bon tricot!
25.03.2020 - 17:23Brugere wrote:
SVP ,quand vous parlez du dernier tour du dernier motif cela veut dire que les diminutions se font sur le (3ème tour de jersey ). Merci pour votre aide cordialement . ( diminutions avant talons )
24.03.2020 - 09:07DROPS Design answered:
Bonjour Mme Brugere, vous répétez 5 fois le diagramme A.1A en hauteur au total, et, vous diminuez au dernier rang du 5ème motif en hauteur = le 8ème rang des diagrammes (de la 5ème fois que vous les tricotez, autrement dit, 5 fois 8 rangs = au 40ème rang tricoté en A.1). Bon tricot!
24.03.2020 - 10:23HUBAC wrote:
Bonjour, Je vous en remercie pour votre réponse. Bien cordialement.
23.03.2020 - 21:02Brugere wrote:
Bonjour, Je tricote pour un 38/40, mais je ne comprends pas les diminutions apres le dernier motif pour obtenir les 58 mailles pouvez svp me venir en aide merci cordialement
23.03.2020 - 15:51DROPS Design answered:
Bonjour Mme Brugere, vous trouverez ici comment répartir des diminutions - en taille 38/40, il vous suffit simplement de tricoter les 16 premières mailles (au début du tour) en diminuant 1 maille (= 2 m ens à l'end), puis de tricoter 14 m end en diminuant 1 m et ainsi de suite, il doit vous rester 58 m à la fin de ce tour en diminuant bien aux endroits indiqués. Bon tricot!
23.03.2020 - 16:53