DROPS Melody uni colour 71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide |
945.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Melody uni colour 71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide 945.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Sunny Swing |
|
|
|
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 200-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 8,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = það eiga að myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur (í sléttprjóni á ermi, í sléttprjóni á bakstykki og í mynstri/sléttprjóni á framstykki). ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman = 1 lykkja (færið prjónamerkið til fyrir þessa lykkju á eftir hverja úrtöku). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 50-50-52-56-58-60 lykkjur á hringprjón 7. Prjónið 2 cm sléttprjón, síðan er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-4-6-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-ÚRTAKA = 56-56-60-60-64-60 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið ÁN þess að prjóna þær – setjið prjónamerkin þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 9-9-11-11-13-11 nýjar lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-11-11-13-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi). Næsta umferð er prjónuð þannig: Umferðin byrjar við fyrsta prjónamerki á bakstykki. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17 lykkjur sléttprjón (= framstykki)), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Þetta var fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-20-22 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 176-192-204-212-224-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður en án útaukningar þar til stykkið mælist 21-24-26-27-29-31 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Eftir berustykki er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið 50-54-57-60-63-68 lykkjur sléttprjón (= á bakstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 51-55-57-60-63-68 lykkjur sléttprjón (= á bakstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 51-55-59-63-67-73 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 1-1-2-3-4-5 lykkjur (= á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-126-138-150-166 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Prjónið áfram í sléttprjóni. Byrjið umferð við prjónamerki og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Jafnframt er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4-4-4-6-8-10 lykkjur mitt undir ermi í hvorri hlið (= 4 nýjar lykkjur í umferð). Endurtakið þessa útaukningu alls 5 sinnum með 4 cm millibili = 130-138-146-158-170-186 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-24-24-25-25-25 cm frá skiptingu (ca 49-51-53-55-57-59 cm frá öxl) prjónið nú 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 146-156-164-178-192-210 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er fellt af með prjónum nr 8. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 37-41-43-43-45-45 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 41-45-47-49-53-55 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 lykkjur og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-2½.-2-2 cm millibili alls 7-8-9-9-11-11 sinnum = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-33-32-31-30-28 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5 lykkjur jafnt yfir = 32-34-34-36-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Ermin mælist ca 41-39-39-37-37-35 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón nr 8. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (43)
Ingrid Warrer Hyldahl wrote:
Ud fra målskitsen kan jeg ikke se brystmål på størrelserne. Venligst oplys mig om dem, hvis muligt, da det er væsentligt for mig. Mvh Ingrid
04.03.2024 - 18:45DROPS Design answered:
Hej Ingrid, Brystvidden bliver ca 91-98-105-115-125-138 cm
07.03.2024 - 15:16Karen wrote:
I may have posted this question in the wrong spot. I’m making a small, cast on the 50 stitches and see that there is no way that will fit over my head. Am I starting in the wrong place? Suggestions appreciated!!
08.02.2023 - 01:29Karen wrote:
I may have posted this question in the wrong spot. I’m making a small, cast on the 50 stitches and see that there is no way that will fit over my head. Am I starting in the wrong place? Suggestions appreciated!!
08.02.2023 - 01:29DROPS Design answered:
Dear Karen, you can cast on the stitches with the larger needle, with 2 strands (then continue with just one), and make sure your cast on edge is really elastic enough, avoiding a tight edge (and remember to check and keep the tension). Happy knitting!
08.02.2023 - 09:15Karen wrote:
I’m making a size small and casting on with the 50 stitches. No way will that ever fit over my head. Am I starting at the wrong spot? Any help is appreciated.
08.02.2023 - 01:25Maria Åhlvik wrote:
50 maskor ger en alldeles för litet hål för huvudet, kan inte stämma?
31.05.2022 - 21:43DROPS Design answered:
Hej Maria, der er mange som strikker denne opskrift og antal masker stemmer. Hvis du synes det bliver for stramt kan du med fordel slå lidt løsere op med dobbelt tråd og så fortsætte med en tråd. God fornøjelse!
02.06.2022 - 10:50Francesca wrote:
Bonjour, je souhaite tricoter la taille XL, et comme le modèle commence par le haut il est indispensable de connaitre le tour de poitrine, mais si je fais la somme encolure+épaules tel que c'est indiqué, çà ne fonctionne pas, le tour de poitrine obtenu est plus + que le tour de base, et la laine Melody est une laine qui ne se détricote que très mal, je ne voudrais donc pas avoir à refaire si jamais en suivant les explications çà ne va pas...
26.11.2021 - 10:10DROPS Design answered:
Bonjour Francesca, après la division des manches, vous aurez pour le devant et le dos: 110-118-126-138-150-166 mailles autrement dit environ 92-98-105-115-125-128 cm de circonférence. Bon tricot!
26.11.2021 - 16:03Francesca wrote:
Bonjour, dans les indications de correction, il est écrit "Correction en ligne le: 03.09.2021 Correction de différentes mesures." et il n'est rien dit au sujet de ces corrections de mesures, et effectivement sur le schéma tel qu'il apparait en bas des explcations, les mesures indiquées pour les longueurs de manches/épaules/encolure ne peuvent pas être les bonnes, on obtient un tour de poitrine supérieur au tour de la base....Pouvez-vous me dire comment voir les mesures corrigées?
25.11.2021 - 17:31DROPS Design answered:
Bonjour Francesca, les corrections ont déjà été faites et concernaient principalement les hauteurs, la note est juste à titre indicatif si vous avez imprimé les explications avant cette date. Indiquez-nous quelle taille vous voulez réaliser ainsi que nous puissions vérifier ensemble.
26.11.2021 - 07:15Joan wrote:
I am using a 7mm, 60cm round needle and casting on 52 stitches to knit a jumper from top but my needle seems too big.... should I be using dpns ? Really confused......using drops melody wool......52 stitches does seem I could get my head through that!
24.02.2021 - 16:12DROPS Design answered:
Dear Joan, you might have to start neck with dpn and then change to 60 cm needle when enough sts will have been increased - remember to check also your tension, you should have 12 sts x 14 rows stocking stitch = 10 x 10 cm. and make sure your cast on edge is not too tight. Happy knitting!
25.02.2021 - 07:00Limagne Valerie wrote:
Bonjour, Pour tricoter les manches, il faut une aiguille circulaire ou des aiguilles double pointe ou les deux ? Merci
30.12.2020 - 10:25DROPS Design answered:
Bonjour Mme Limagne, les manches se tricotent sur aiguille circulaire (40 cm) puis sur les aiguilles doubles pointes quand suffisamment de mailles ont été diminuées - vous pouvez également tricoter avec une aiguille circulaire de 80 cm en magic loop. Bon tricot!
04.01.2021 - 12:58Karen Ruthenstorfer wrote:
Hello, I often look at your pattern website, but the majority of your Patterns are using Circular Needles which I do not like to use.....do you have any suggestions of patterns which use Straight Needles please?
27.09.2020 - 14:50DROPS Design answered:
Dear Mrs Ruthenstorfer, you will find how to adapt a pattern into straight needles here. Happy knitting!
28.09.2020 - 10:11