Holiday in Rome |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð vafningspeysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S-XXXL.
DROPS 199-48 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um handveg): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hálsmál að framan): Aukið út fyrir hálsmáli innan við 17 lykkjur í A.1/A.2. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VAFNINGSPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp fyrir snúru. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í garðaprjón þar til stykkið mælist ca 2 cm, í síðustu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 16-18-18-20-22-24 nýjar lykkjur á prjóninn = 38-40-40-42-44-46 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í garðaprjón þar til stykkið mælist ca 2 cm, stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Setjið nú stykkin saman og prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Setjið inn hægri öxl og vinstri öxl á sama hringprjón 5 = 60-62-62-64-66-68 lykkjur. Byrjið frá réttu og prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. Þegar stykkið mælist 17-14-8-11-9-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4.-4.-4.-2.-2.-2. hverri umferð alls 2-4-8-11-15-19 sinnum í hvorri hlið. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm. Fitjið nú upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón með 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1 (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm og 12 cm = 64-70-78-86-96-106 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá handveg, jafnframt eru lykkjurnar jafnaður út til 64-70-79-85-97-106 lykkjur í síðustu umferð frá röngu (bakstykki mælist nú ca 35-37-39-41-43-45 cm frá öxl). Skiptið yfir í hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Bakstykki mælist ca 38-40-42-44-46-48 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, 2-2-2-2-2-2 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 17 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út fyrir hálsmáli innan við A.1 við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-11-12-13 sinnum og síðan í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 17-18-17-16-16-16 sinnum. Jafnframt þegar stykkið mælist 17-14-8-11-9-7 cm aukið út um 1 lykkju í hlið fyrir handveg – haldið áfram að auka út alveg eins og á bakstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok næstu umferða frá röngu. Haldið áfram eins og áður með A.1 við miðju að framan, útaukningu fyrir hálsmáli og sléttprjón, en yfir ystu 6 lykkjurnar að hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón (þ.e.a.s. þetta er gert í 4 næstu umferðum). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og A.1 við miðju að framan (útaukning heldur áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – sjá ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm. Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 49-52-56-60-65-70 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá handveg og jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 49-52-58-61-64-70 lykkjur í síðustu umferð frá röngu (35-37-39-41-43-45 cm frá öxl). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (að miðju að framan), prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – ATH: Stroffið á að passa fallega yfir A.1. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist ca 38-40-42-44-46-48 cm frá öxl. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.2 (= 17 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út fyrir hálsmáli innan við A.2 við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-11-12-13 sinnum og síðan í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 17-18-17-16-16-16 sinnum. Jafnframt þegar stykkið mælist 17-14-8-11-9-7 cm aukið út um 1 lykkju í hlið fyrir handveg – haldið áfram að auka út alveg eins og á bakstykki og hægra framstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok næstu umferða frá réttu. Haldið áfram eins og áður með A.2 við miðju að framan, útaukningu fyrir hálsmáli og sléttprjón, en yfir ystu 6 lykkjurnar að hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón (þ.e.a.s. þetta er gert í 4 næstu umferðum). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og A.2 við miðju að framan (útaukning heldur áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – sjá ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm. Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 49-52-56-60-65-70 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá handveg og jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 49-52-58-61-64-70 lykkjur í síðustu umferð frá röngu (35-37-39-41-43-45 cm frá öxl). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjón mitt að framan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – ATH: Stroffið á að passa fallega yfir A.2. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist ca 38-40-42-44-46-48 cm frá öxl. ERMI: Fitjið upp 22-24-26-28-24-26 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk. Prjónið sléttprjón fram og til baka fyrir ermakúpu og fitjið jafnframt upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 0-1-2-3-3-5 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 58-62-66-70-74-80 lykkjur. Tengið stykkið saman og prjónið síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Setjið 1 prjónamerki þegar sem stykkið var sett saman = mitt undir ermi. Prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem stykkið var sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 3-4-5-6-7-9 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-18-18-17-16-14 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm, jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 54-54-57-57-60-63 í fyrstu umferð. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 29-29-30-30-31-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, en skiljið eftir smá op í hvorri hlið til að þræða snúruna í gegn – opin eru einnig staðsett yfir stroff í hvorri hlið og 2½–3 cm upp að handveg. Leggið ermarnar inn undir kant með garðaprjóni meðfram handveg og saumið fallega niður frá réttu (kanturinn á ekki að vera laus þegar saumað er og saumað er í ystu lykkju í garðaprjóni frá réttu, þannig að kantur í garðaprjóni liggi fallega ofan á ermi). SNÚRA: Prjónið upp á prjón 4 með 1 þræði af hvorri tegund: ca 6-7 lykkjur meðfram kanti með stroffi að framan. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 75-100 cm, fellið af. Prjónið alveg eins snúru á hinu framstykkinu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (28)
Riviere wrote:
Merci je viens de comprendre. J ai utilisé la laine air et ça donne un résultat très joli !
13.11.2023 - 16:18Riviere wrote:
Ma question est : doit on relever les 7 mailles des liens dans l emplacement des 3 cm non cousu des côtés soit au dessus des côtes Merci
13.11.2023 - 16:13DROPS Design answered:
Bonjour Mme Riviere, non, cet espace est prévu pour pouvoir y passer les liens, vous relevez les mailles des lien le long du bas des côtes, en bas des devants, autrement dit à droite du devant droit, vu sur l'endroit et à gauche du devant gauche, vu sur l'endroit, cf schéma où ces liens (au moins celui du devant droit) a été dessiné. Bon tricot!
14.11.2023 - 10:08Riviere wrote:
Bonjour, j en suis aux liens. Dans l assemblage on laisse une ouverture de 3cm au dessus des cotes. Et au liteau des explications des lien, on relève 7 mailles le long des côtes. L espace dans les côtés ne doivent ils pas êtres au niveau des liens ? Merci
13.11.2023 - 13:00DROPS Design answered:
Bonjour Mme Riviere, on relève les mailles des liens le long des rangs des côtes, le long de chacun des devants pour tricoter les liens, et, lors de l'assemblage des côtés, laissez une ouverture d'environ 2,5 à 3 cm pour y passer les liens, vous pouvez attendre d'avoir terminé les liens pour faire les coutures, ce sera plus facile de visualiser où prévoir cette ouverture. Bon tricot!
13.11.2023 - 16:12Alyssa wrote:
Is the indicated knitting gauge (of 17 stitches in width and 22 rows vertically) the knitting gauge for the 4 mm or 5 mm needles, as both are used in the pattern? Thank you!
17.09.2023 - 12:37DROPS Design answered:
Dear Alyssa, you use the 5mm for the stocking stitch in the pattern. Since the gauge is worked in stocking stitch then you should use the 5mm needles. Happy knitting!
17.09.2023 - 21:29Micaela wrote:
Hei, en ymmärrä mitä tämä tarkoittaa: "Samanaikaisesti kun työn pituus on 17-14-8-11-9-7 cm, lisää sivuun kädentietä varten 1 silmukka. Toista kädentien lisäykset kuten takana. " Eli mitä toistetaan ja miten? Missä takana? Kiitos!
18.05.2023 - 13:31DROPS Design answered:
Hei, kädentien lisäykset toistetaan kuten takakappaleessa. Eli lisää kädentien reunaan 1 silmukka ja toista lisäys joka 4.-4.-4.-2.-2.-2. kerros yhteensä 2-4-8-11-15-19 kertaa.
18.05.2023 - 16:21Kat wrote:
Hallo! Ich stricke gerade das Modell und bin ganz begeistert. Auf den Bildern der anderen Strickerinnen hat die Jacke lange Ärmel. Wie geht das? Gibt es vielleicht Tipps dazu/eine Vorlage oder ein anderes Modell, von dem ich die Ärmel übernehmen könnte? Vielen Dank!
12.09.2022 - 11:12DROPS Design answered:
Liebe Kat, Sie können sich von ähnlichn Modellen mit langen Ärmeln und die gleiche Maschenprobe inspirieren. Viel Spaß beim stricken!
12.09.2022 - 12:10Laplus wrote:
Bonjour, pourquoi vos modèles sont-ils tjrs aussi compliqués à comprendre même pour une tricoteuse avertie? ! C'est décourageant malgré les beaux modèles proposés....je vais tenter à ma mode et si pas j'abandonnerai , le tricot doit resté un plaisir et pas une casse-tête... Dommage Belle journée!
04.06.2022 - 09:22DROPS Design answered:
Bonjour Mme Laplus, les modèles sont écrits par des stylistes scandinaves qui ont probablement une façon différente d'écrire que celle à laquelle vous êtes habituée, mais si vous suivez bien les indications pas à pas, vous y arriverez, et au pire, posez votre question ici ou bien demandez conseil à votre magasin, on vous aidera, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
07.06.2022 - 10:37Freya wrote:
Hi! I want to ask about the ribbon tie. Is it right that the ribbon in on the each side of the front piece?
07.04.2022 - 06:37DROPS Design answered:
Hi Freya, Yes, the ribbon tie comes from the sides of the front pieces and around the waist to the front. Happy knitting!
07.04.2022 - 06:55Anna wrote:
"Increase inside 3 edge stitches in garter stitch. Increase 1 stitch by making 1 yarn over. On next row (wrong side) purl yarn over twisted to avoid holes. Then work the increased stitches in stocking stitch." Can you help me explain this part?
06.04.2022 - 13:44DROPS Design answered:
Dear Anna, when working the increases for the armholes, increase at the beginning of the row from RS as follows: work 3 sts in garter stitch, make 1 yarn over / increase at the end of the row from WS as follows: work until 3 sts remain, make 1 yarn over, work 3 sts in garter stitch. On the next row from wrong side, purl the yarn over twisted (the new stitches are worked in stocking stitch, not in garter stitch). Happy knitting!
06.04.2022 - 16:31Chris wrote:
Jeg behøver lidt hjælp med farvevalg, da det er svært at vurdere farverne på skærmen (og jeg har ikke mulighed for at besøge en fysisk butik). Hvilken farve Kid-Silk vil I anbefale til Alpaca - Skovgrøn mix 7815? Og hvilken farve Kid-Silk vil gå godt med Alpaca - Havbrise mix 7323?
06.06.2021 - 10:02DROPS Design answered:
Hei Chris. Fargevalg er ganske personlig og vanskelig å gi en 100% perfekt anbefaling. Ønsker du en mix som gir et lysere resultat eller mørk? Til f.eks DROPS Alpaca skog grønn, passer både DROPS Kid-Silk nordsjø nr. 37, mørkgrønn nr. 19 og for et lysere forslag salvie grønn nr. 34. Til DROPS Alpaca Havbrise, som både har litt grønt og blått i seg, kommer det an på om du ønsker en blåtone eller grønn tone. Sjekk ut da f.eks DROPS Kid-Silk salvie nr. 34, eplegrønn nr. 18, lys jeansblå nr. 08 eller blå tåke nr. 06. mvh DROPS design
07.06.2021 - 10:18