Alas de Libelula |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað frá ermi og að miðju að aftan í gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-25 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 4 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 5,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um í hvorri hlið á ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út í hvorri hlið á ermi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp í A.2/A.4. LEIÐBEININGAR UM STUTTAR UMFERÐIR: Þegar snúið er við mitt í stykki þegar prjónaðar eru stuttar umferðir, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, herðið á þræði og prjónið næstu lykkju slétt (og ekki of stíft). Þetta er gert til að koma í veg fyrir að það myndist stór göt í snúningunum). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í 2 hlutum frá ermi að miðju aftan á baki. Síðan er stykkið saumað saman við miðju að aftan og mitt undir ermum. ERMAR OG HÁLFT BAKSTYKKI (lesið allan kaflann áður en byrjað er að prjóna): Fitjið upp 70-74-78 lykkjur á hringprjón 3,5 með Belle. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA = 58-62-66 lykkjur. Prjónið A.1 með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umferð í A.1 er prjónuð frá röngu). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-2-4 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 16 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.3 (= 22 lykkjur), prjónið A.4 yfir næstu 16 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið 0-2-4 lykkjur sléttprjón og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½-2½-2 cm millibili alls 11-11-13 sinnum í hvorri hlið = 80-84-92 lykkjur (þegar síðasta útaukningin í hvorri hlið hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 31 cm frá uppfitjunarkanti). Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við þessa umferð, prjónamerkin merkja hvar ermasaumur endar. ATH: Athugið vel að gatamynstrið sem útskýrt er að neðan er prjónað smá stund á undan síðustu útaukningu). JAFNFRAMT þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina, prjónið mynstureiningarnar áfram einu sinni á hæðina, en nú enda mynstureiningarnar eftir 4 umferð (þ.e.a.s. á eftir umferð merktum með þríhyrningi í A.2). Stykkið mælist nú ca 25 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (þ.e.a.s. mitt í A.3). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Nú á gatamynstrið í A.3 að «teygja» sig út að hliðum, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 eins og áður þar til 23 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt í stykki, prjónið A.5 (= 46 lykkjur – prjónamerki situr nú mitt í A.5), haldið áfram með A.4 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 eins og áður þar til 31 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið A.6 (= 62 lykkjur), haldið áfram með A.4 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til lykkjur með stjörnu í A.6 eru prjónaðar yfir allar lykkjur í umferð alveg að 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7 (= 11 lykkjur), prjónið A.8 þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 12-13-15 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.9 (= 6 lykkjur), prjónið A.10 þar til 13 lykkjur eru eftir í umferð (= 12-13-15 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.11 (= 11 lykkjur) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 49-49-51 cm frá uppfitjunarkanti (vegna mynsturs þá kemur stykkið til með að mælast lengra mitt í stykki en yst í hvorri hlið – mælið meðfram hlið þar sem stykkið er styst). Prjónið síðan stuttar umferðir í garðaprjóni eins og útskýrt er að neðan. STUTTAR UMFERÐIR: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið garðaprjóni með stuttum umferðum fram og til baka yfir lykkjur fram að prjónamerki, þ.e.a.s. prjónið fyrst 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 40-42-46 lykkjur, síðan 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 38-40-44 lykkjur o.s.frv. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir 2 lykkjur færri í hvert skipti – sjá LEIÐBEININGAR UM STUTTAR UMFERÐIR. JAFNFRAMT í 4. hverri umferð er fækkað um 1 lykkju í byrjun á umferð frá réttu með því að prjóna 2 fyrstu lykkjurnar slétt saman. Þetta er gert til að koma í veg fyrir horn mitt að aftan. Haldið áfram með stuttar umferðir og úrtöku í 4. hverri umferð þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir síðustu 2 lykkjur í þessari hlið. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur. Snúið stykkinu, byrjið frá röngu og prjónið garðaprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir lykkjur fram að prjónamerki alveg eins og í hinni hliðinni á stykkinu. Þ.e.a.s. prjónið fyrst 2 umferðir garðaprjón yfir 40-42-46 lykkjur, síðan 2 umferðir garðaprjón yfir 38-40-44 lykkjur o.s.frv. JAFNFRAMT í 4. hverri umferð er fækkað um 1 lykkju í byrjun á umferð frá röngu með því að prjóna 2 fyrstu lykkjur slétt saman. Haldið áfram með stuttar umferðir og úrtöku í 4. hverri umferð þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir 2 síðustu lykkjur í þessari hlið. Prjónið nú 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Setjið lykkjur á þráð eða skiptið yfir á hringprjón 4,5 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina og hálft bakstykkið alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið bæði stykkin saman við miðju að aftan með lykkjuspori eða saumið innan við affellingarkantinn þar sem lykkjur voru felldar af. Saumið ermasauma – byrjið neðst á ermi og saumið kant í kant í ystu lykkjubogana upp að prjónamerki. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (25)
Maria Raposo Marques wrote:
Good evening, I have a question regarding the "short rows" part of the pattern. Should I decrese the number of stitches I'm knitting every 2nd row or every 4th row? (I think I'm confused by the terms "ridge" and "row") Thank you in advance.
11.03.2024 - 00:07DROPS Design answered:
Dear Maria, as indicated in the GARTER STITCH tip above: 1 ridge = 2 garter stitch rows. Since you decrease every 2 ridges then you decrease on every 4th row. Happy knitting!
11.03.2024 - 00:35Monica wrote:
Hola! En las instrucciones dice que la marca para coser las mangas es a los 31 cm, tras completar 4 veces A3 y haber aumentado 22 puntos. Entiendo que llegas a A5 con 80 puntos, pero 80 menos 46 puntos de A5 son 34, 17 puntos a cada lado para hacer A2 y A4, me falta uno para poder hacer las dos repeticiones de 8 puntos + 2 del borde. No hay que hacer dos repeticiones? \r\nCuando repites desde el triángulo 4 veces en total solo se hacen los agujeritos de la tercera línea una vez? Gracias!
28.11.2023 - 19:53DROPS Design answered:
Hola Monica, no tienes que trabajar repeticiones completas de A.2 y A.4, puedes trabajar estos diagramas sobre los puntos que tengas en ese momento entre los puntos del borde y los 46 puntos centrales. Ten en cuenta que comenzarás a trabajar A.5 cuando la labor mida 25 cm desde el borde de montaje (por lo que aún no has terminado los aumentos). Los puntos aumentados después de empezar con A.5 se trabajarán en A.2/ A.4.
11.12.2023 - 00:37Karen wrote:
Good morning. Thank you for your quick response regarding "Short Rows". I understand however I still don't get how you can decrease 1 stitch at the beginning of every forth row on the right side as the forth row will be on the wrong side (and centre of piece) given the two row "ridge". Do you mean every fifth row?
20.04.2023 - 16:49DROPS Design answered:
Hi Karen, You start the first decrease from a right side row and repeat the decrease every 4th row after that. Happy knitting!
21.04.2023 - 07:36Karen wrote:
Ok, pattern going great until short rows. If one ridge = 2 rows and you only decrease 1 stitch at the beginning of 2nd ridge (every 4 th row) * which is a wrong side row , how do you work each ridge (2 rows knit) over 2 fewer stitches each time and on the “right” side. Thanks
18.04.2023 - 23:01DROPS Design answered:
Dear Karen, starting from RS you will work 1 ridge over 40-42-46 sts, then work 1 ridge over 2 sts less = over 38-40-44 sts; then work 1 ridge over the same number as before, and work 1 ridge over 2 sts less (36-38-42) and continue like this, always starting each ridge from RS. Happy knitting!
19.04.2023 - 07:53Annemarie wrote:
Liebes Drops Team Ich beziehe mich auf den Teil der Anleitung VERKÜRZTE REIHEN. Nachdem die erste Hälfte der Arb. gearbeitet wurde soll ich eine Hin-Reihe mit 84M sticken (Gr. L-XL) Wie ist das möglich? Ich habe ja zuvor in jeder 4. R 1 M abgenommen. 🤔 Ist die Angabe von 84 M korrekt? Danke für eine Antwort. Und danke für Eure tollen Anleitungen. Liebe Grüsse Annemarie.
01.03.2021 - 11:56DROPS Design answered:
LIebe Annemarie, also ja stimmt, das muss weg von den deutschen Anleitung, Sie stricken jetzt nur noch 1 Hin-Reihe rechts über alle Maschen, und dann stricken Sie verkürzten Reihen, die mit einer Rückreihe anfangen. Viel Spaß beim stricken!
01.03.2021 - 13:31Jeannie wrote:
Still having problem with the increases. If the increases are at each side of sleeve by the garter stitches, are A2 and A4 adjusted for the increases so that when I get to A5 the extra stitches needed are there? If they are adjusted, then the knit 2 together with the yarn overs would be in different places each time the repeats are done. Or are A2 and A4 worked straight up and all increases are just in stockinette next to the edge stitches? If that is so, when are the increases worked into A5?
29.01.2021 - 19:37DROPS Design answered:
Dear Jeanny, I'm sorry I don't understand your question. You have to increase on each side, so that the new stitches will be worked in A.2 and in A.4 as far as there are enough stitches to be worked in pattern (you always have to have enough stitches to work 1 dec + 1 yarn over in the lace pattern row in diagram). When piece measures 25 cm then you will work A.5 over A.3 to let this pattern be worked over more stitches on each side- but the number of stitches don't increase anymore. Hope this helps. Happy knitting!
01.02.2021 - 07:59Jeannie wrote:
I still do not know where the increases are. Are they between A2 and A3?
18.01.2021 - 20:24DROPS Design answered:
Dear Jeannie, you have to increase on each side of piece, after the first 2 edge stitches in garter stitch and before the last 2 stitches in garter stitch = 2 sts increased on each row, these increased are worked in A.2 /A.4. Happy knitting!
19.01.2021 - 07:15Jeannie wrote:
Sorry, I have another question. Is A2 and A4 only worked over the first 8 stitches or over the whole 16 stitches? ( 8 x 2) . In the size that I am making, I have to knit the 2 edge stitches and then add 2 stitches before I start A2 , so where do I start the increase stitches? Before the A2 stitches or at the beginning of A3? The directions do not say where these start, it just says to increase 11 stitches.
17.01.2021 - 01:34DROPS Design answered:
Dear Jeanie, in 2nd size work: 2 sts in garter st, 2 sts in stocking st, A.2 over the next 16 sts, A.3, A.4 over the next 16 sts, 2 sts stocking st, 2 sts garter st. Diagrams are worked from bottom up, starting on the corner on the right side from RS, work diagram A.2 and A.4 a total of 2 times (= 8 sts x 2 = 16 sts). Happy knitting!
18.01.2021 - 09:20Jeannie wrote:
Thank you for your answer to my other question. I have another one. Chart A5 is supposed to have 46 stitches, I only have 40. Where are the other 6 stitches? If you take the 22 stitches from A3 and add the other 8 stitches from half of the 16 stitches from the deciding at the beginning of the pattern, there are only 40 stitches. Also, when the 11 stitches are added every 4th row, where are they added, at the side next to the 2 edge stitches or somewhere else. These charts are confusing.
09.01.2021 - 05:33DROPS Design answered:
Dear Jeannie, A.5 is worked over the middle 46 stitches (= the 22 sts from A.3 worked before + 12 stitches on each side of A.3) , on either side of A.5 you work A.2 as before (= at the beginning of the row after the 2 sts in garter stithc) before A.5 and A.4 as before after A.5 (before the last 2 sts in garter stitch). Happy knitting!
11.01.2021 - 07:59Jeannie wrote:
When does A5 start? At the triangle on A2 or when the 4th time in height is done? The directions are very confusing and there are too many charts to keep tract of.
05.01.2021 - 01:48DROPS Design answered:
Dear Jeannie, after you have worked A.2 and A.4 a total of 3 times in height + one more time to row 4 including = approx. 25 cm in height, now work as explained with A.5 in the middle and A.2/A.4 on each side as before. Happy knitting!
05.01.2021 - 11:29