Meet the Sun |
|
|
|
Prjónuð síð peysa með blöðruermum og laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með V-hálsmáli, vösum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 15,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 15. og 16. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Ef fækka á lykkjum eru prjónaðar í þessu dæmi 14. og 15. hver lykkja og 15. og 16. hver lykkja saman. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið er út um alls 8 lykkjur í hverri útaukningsumferð. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 5 kantlykkjur að framan og 1 lykkja slétt (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið út um alls 2 lykkjur í hverri útaukningsumferð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati þegar útaukning fyrir V-hálsmáli er lokið. Fellið síðan af fyrir næsta hnappagati eftir ca 9 cm í öllum stærðum. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan/kant í hálsmáli): Prjónið upp frá réttu 62-62-66-66-68-70 lykkjur meðfram öllum kanti í hálsmáli (ekki yfir kant að framan) á nýjan prjón. Þegar kantur er prjónaður að framan, prjónið 1 lykkju frá kanti að framan og 1 lykkju frá prjóni 2 slétt saman þar til helmingur af lykkjum hafa verið prjónaðar af prjóni (= miðja að aftan). Prjónið þær lykkjur sem eftir eru saman með kant að framan í gagnstæðri hlið. ------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Annar helmingurinn á báðum vösum er prjónað á undan berustykki svo að hægt sé að prjóna þá inn í stykkið. Vasarnir eru prjónaðir fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Prjónið síðan kant að framan/kant í hálsmáli fram og til baka sem síðan er saumað á í lokin. VASAR (fyrri helmingur): Fitjið upp 28-28-30-30-32-32 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á sokkaprjóna/hringprjón 4 með Sky. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm fellið af kantlykkjur = 26-26-28-28-30-30 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið annan vasa alveg eins. Leggið vasana til hliðar og prjónið berustykki. Hinn helmingurinn af báðum vösunum eru prjónaðir eftir að peysan hefur verið prjónuð til loka og þá er gengið frá þeim. BERUSTYKKI: Fitjið upp 72-74-76-76-78-80 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-4-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 76-78-80-80-86-88 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Setjið 4 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) þannig: Fyrsta prjónamerki er sett á eftir fyrstu 7 lykkjur (= framstykki), annað prjónamerki er sett á eftir næstu 16 lykkjur (= ermi), þriðja prjónamerki er sett á eftir næstu 30-32-34-34-40-42 lykkjur (= bakstykki) og fjórða prjónamerki er sett á eftir næstu 16 lykkjur (= ermi), nú eru 7 lykkjur eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 30-34-35-39-41-44 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. JAFNFRAMT í 6. umferð (þ.e.a.s. í 3. umferð frá réttu) er aukið út fyrir V-HÁLSMÁLI í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan, þannig: Aukið út í 6. hverri umferð alls 13-14-13-15-10-9 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 0-0-2-0-8-10 sinnum (= alls 13-14-15-15-18-19 lykkjur fleiri í hlið við miðju að framan). Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu mælist stykkið ca 21-24-25-28-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan áfram án laska útaukningar þar til stykkið mælist 25-27-28-30-32-34 cm, en haldið áfram með útaukningu fyrir V-hálsmáli eins og áður. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið að fyrsta prjónamerki, prjónið 5-4-5-6-7-8 lykkjur á eftir prjónamerki (= framstykki), setjið næstu 66-76-76-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-108-114-124-136-146 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 66-76-76-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið fram að fjórða prjónamerki (= 5-4-5-6-7-8 lykkjur) og prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykkið og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar aukið er út í hliðum. Haldið áfram í sléttprjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og útaukning fyrir V-hálsmáli eins og áður. Þegar útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið, eru 230-246-262-282-310-334 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 3-3-3-2-1-0 cm frá skiptingu (V-hálsmálið mælist ca 28-30-31-32-33-34 cm frá uppfitjunarkanti). Nú er fellt af fyrir fyrsta HNAPPAGAT í hægri kanti að framan, sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út með 0-20-12-7-5-4 cm millibili alls 1-2-3-5-6-7 sinnum = 234-254-274-302-334-362 lykkjur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 16-16-17-17-17-17 cm frá skiptingu er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur, setjið næstu 26-26-28-28-30-30 lykkjur á þráð (hinn helmingurinn af vasa er prjónaður aðeins síðar), prjónið 26-26-28-28-30-30 lykkjur af þræði í hinum vasanum (passið uppá að prjónað sé áfram frá réttu á vasa), prjónið þar til 43-43-47-47-51-51 lykkjur eru eftir í umferð, setjið næstu 26-26-28-28-30-30 lykkjur á þráð (hinn helmingurinn af vasanum er prjónaður aðeins síðar), prjónið 26-26-28-28-30-30 lykkjur af þræði í hinum vasanum (passið uppá að prjónað sé áfram frá réttu á vasa) og prjónið síðustu 17-17-19-19-21-21 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við prjónamerki í hlið. BAKSTYKKI: = 112-122-132-146-162-176 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 45-45-46-46-46-46 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið laust af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4. Peysan mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 61-66-71-78-86-93 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan og 4 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 45-45-46-46-46-46 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið laust af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4. Peysan mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm frá öxl. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki. ERMI: Setjið 66-76-76-82-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 76-86-88-94-98-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi, prjónamerki merkir byrjun á umferð. Byrjið hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 41-40-39-38-36-35 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 32-38-36-42-42-44 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 44-48-52-52-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með sokkaprjón 4. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR AÐ FRAMAN/KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu 1 lykkju í hverja af 5 kantlykkjum að framan á hægra framstykki á prjón 3,5. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni fram og til baka. Ef óskað er eftir, er hægt að prjóna kant að framan saman við kant í hálsmáli – sjá LEIÐBEININGAR. Þegar kantur að framan mælist ca 14-14-15-15-16-16 cm fellið af. Prjónið kant að framan á vinstra framstykki alveg eins. Saumið saman 2 kanta að framan við miðju að aftan og saumið kant að framan við kant í hálsmáli á peysu. VASAR: Prjónið fram og til baka á hringprjón. Setjið 26-26-28-28-30-30 lykkjurnar af þræði í hægra framstykki á prjón 4. Í fyrstu umferð eru fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 28-28-30-30-32-32 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist 12-12-13-13-14-14 cm, fellið laust af. Prjónið vasa á vinstra framstykki á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið vasana innan við 1 kantlykkju í kringum allan vasann. Festið síðan vasana niður á innan verðu á peysu með nokkrum fínum sporum í bæði neðstu hornin (þetta á ekki að sjást frá réttu á peysu). Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (56)
Allison wrote:
På str M får jeg ikke antall masker til og stemme npg jeg skal være ferdig med raglan. Etter og ha økt 34 ganger og jeg begynner på inndelig til erme så har jeg ikke nåkk masker på pinnen. Når jeg er ferdig med raglan skal jeg ha 210 masker men indelingen tilsvarer 268 masker.
16.02.2024 - 10:11DROPS Design answered:
Hej Allison, det kommer an på hvor langt du er kommet med udtagningerne til V-hals. Det er derfor vi ikke skriver hvor mange masker du skal bruge i selve inddelingen. Men vi skriver hvor mange masker du skal have på bagstykket og på hver ærme, resten skal gå til forstykkerne i hver side :)
23.02.2024 - 11:13Kersti wrote:
Passe osa xxxl suurusel v-kaeluse juhend arusaamatu. Kas esimene kasvatus on 6. real 9. korda? SAMAL AJAL kasvata 6. real (kolmandal töö parempoolsel real) V-KAELUSE jaoks esiosa keskel – loe ülevalt, järgmiselt: kasvata igal 6. real kokku 13-14-15-15-18-19 korda, siis igal 4. ringil kokku 0-0-2-0-8-10 korda (= kokku 13-14-15-15-18-19 korda mõlemal esiserval).
10.01.2024 - 11:56DROPS Design answered:
Tere Kersti! Just nii ongi! Viga parandatud, tänan teatamast! Head kudumist!
26.01.2024 - 18:11Angela wrote:
Ich würde gerne den Stricktipp Halsblende umsetzen, aber ich verstehe diesen anhand der textlichen Beschreibung nicht. Gibt es hierzu vielleicht irgendwo ein Video. Bei Youtube wurde ich nicht fündig. Viele Grüsse Angela
05.11.2023 - 14:26DROPS Design answered:
Liebe Angela, zuerst fassen Sie je 1 Masche aus den 5 Blenden Maschen (= in die Anschlagskante am Anfang vom jedem Vorderteil), dann stricken Sie 15, 15 oder 16 cm krausrechts, abketten. genauso beim 2. Vorderteil stricken, die abgeketteten Maschen zusammennähen dann diese Blende am Halsausschnitt annähen - vielleicht kann dann Ihnen dieses Video helfen. Viel Spaß beim stricken!
06.11.2023 - 08:36Monica wrote:
Ik ben nu voor de tweede keer deze vest aan het breien, nadat ik hem eerst uit hebt gehaald, omdat ik zag, naarmate de vest langer werd, de voorbies helemaal naar binnen ging, opnieuw geprobeerd, brei op alle kanten recht, maar nu weer hetzelfde probleem, hoe kan dit?
09.10.2023 - 18:53DROPS Design answered:
Dag Monica,
Bedoel je dat de bies omkrult? Dit kun je oplossen door, als je het werk helemaal klaar hebt , de bies voorzichtig op te persen met het strijkijzer. De hiervoor heel voorzicht met het strijkijzer op het werk met een natte katoenen (thee)doek ertussen. Let erop dat je dit heel voorzichtig doet en het strijkijzer beslist niet te lang op het werk drukt.
11.10.2023 - 18:58Angela Fischer wrote:
Ich glaube das Einstricken der Tasche bei 13 cm ab Armausschnitt kann nicht sein und passt auch nicht zu der Skizze. Ich denke die Taschen müssen wesentlich tiefer sitzen. Können Sie das bitte noch korrigieren. Viele Grüsse Angela
17.09.2023 - 21:59DROPS Design answered:
Liebe Frau Fischer, Anleitung wurde korrigiert - die Tasche wird 17 cm nach der Verteilung gearbeitet. Viel Spaß beim stricken!
29.09.2023 - 11:34Monica wrote:
Hallo ik snap niet wat er bedoeld wordt bij de achterpand, er staat brei 4 kantsteken in ribbelsteek aan elke kant, dit is niet de voorbies? Of is dit de onderkant, in ribbelsteek? Zelfde staat ook bij de rechtervoorpand . Worden deze los van elkaar gebreid? ( linker en rechter voorpand) Mvg
07.05.2023 - 16:36DROPS Design answered:
Dag Monica,
Dit zijn 4 ribbelsteken naast de split aan de onderkant aan beide kanten.
08.05.2023 - 20:42Amrane wrote:
Bonsoir J ai une question par rapport au nombre de mailles a glisser sur un fil pour la manche Le nombre de maille pour la manche est de pour la taille XL : 16(initiales) + 2*39 (augmentation donc le total est de 94 mailles Pourquoi on ne glisse que 82 mailles Merci
09.04.2023 - 00:41DROPS Design answered:
Bonjour Amrane, une partie des mailles augmentées pour les manches va être attribuée au devant/au dos, autrement dit, sur les 94 mailles des manches, vous aurez les 6 premières mailles pour le devant gauche (le dos) et les 6 dernières mailles pour le dos (le devant droit). Bon tricot!
11.04.2023 - 12:22Lisbeth wrote:
Størrelse XL: Er det riktig at det bare skal strikkes 13 cm etter deling til armer og bol når lommene strikkes?
20.03.2023 - 09:33DROPS Design answered:
Hei Lisbeth. Det stemmer, men ønsker du lommene lengre ned, kan du fint strikke noen cm til. mvh DROPS Design
20.03.2023 - 14:24Petra wrote:
Hallo, ist es richtig, dass nach13 cm ab Teilung die Taschen gearbeitet werden? Das erscheint mir sehr weit oben , ist ja kurz unterhalb Brust. Dankeschön
11.02.2023 - 19:54Denise wrote:
Ik heb net de pas voor de 2e x gebreid. Ik kreeg de verdeling van de pas niet goed, ik kwam 10st tekort in de rug. Ik moest ergens iets verkeerds gedaan of geteld hebben, dacht ik, dus uitgetrokken en opnieuw begonnen. Maar nu zit ik voor de 2e x met hetzelfde probleem, Ik kom 10st tekort in de rug (136 ipv 146). Opzet en meerderingen zijn ok, lengte is ok, behalve die 10st. Wat loopt er mis? (Ik brei de grootste maat).
24.07.2022 - 12:49DROPS Design answered:
Dag Denise,
Na het meerderen voor de raglan en het meerderen voor de v-hals heb je in totaal 478 steken op de naald. Je breit eerst tot 8 steken na de markeerdraad (als ik goed geteld heb zijn dit 78 steken. Dan zet je de 88 steken voor de mouw op een hulpdraad. (je houd dan nog 8 steken over voor de volgende markeerdraad tussen de mouw en het achterpand). Dan brei je die 8 steken plus de steken tussen de markeerdraad voor het achterpand (dit zijn er 130) plus 8 steken na de markeerdraad, dus in totaal 146 steken. Vervolgens zet je de steken voor de volgende mouw op een hulpdraad, enzovoorts.
31.08.2022 - 14:29