Color Clash |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með röndum í 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-2 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: Stroffið er prjónað í rúbínrauðum og afgangur af stykki er prjónað í röndum og sléttprjóni (með kantlykkjum og kantlykkjum að framan í garðaprjóni). Rendurnar eru teiknaðar inn í mynsturteikningu A.1. Skiljið eftir þráð ca 15-20 cm við litaskipti, notið þráðinn til að sauma hliðarsauma og sauma neðan í hliðum á ermum. ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 71 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 10,1. Í þessu dæmi þá er ca 9. og 10. hver lykkja prjónuð saman. ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 4 lykkjur garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 4 lykkjur garðaprjón þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 4 lykkjur garðaprjón þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 26 lykkjur), mínus allar kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötu þegar stykkið mælist: S: 35-44-53 cm M: 36-45-54 cm L: 37-46-55 cm XL: 38-47-56 cm XXL: 39-48-57 cm XXXL: 40-49-58 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í 2 þráðum, fram og til baka á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 71-71-77-83-89-95 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 9. Héðan eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í fyrstu umferð þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og fækkið um 9-5-7-9-11-13 lykkjur jafnt yfir næstu 63-63-69-75-81-87 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1 og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni. Nú eru 62-66-70-74-78-82 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram með rendur, sléttprjón (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) þar til stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm frá uppfitjunarkanti. Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg = 56-60-64-68-72-76 lykkjur. Haldið síðan áfram með sléttprjón með 1 kantlykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjurnar (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður), síðan eru felldar af miðju 8-8-10-10-12-12 fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 4 lykkjur garðaprjón í næstu umferð frá hálsi = 23-25-26-28-29-31 lykkjur eftir fyrir öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm frá uppfitjunarkanti. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 41-41-47-47-53-53 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 4 lykkjur í garðaprjóni (= að hlið), prjónið * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 lykkjur slétt og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= mitt að framan). Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 9. Héðan eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og fækkið um 6-4-8-6-10-8 lykkjur jafnt yfir næstu 33-33-39-39-45-45 lykkjurnar – sjá ÚRTAKA-1 og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni. Nú eru 35-37-39-41-43-45 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með rendur, sléttprjón (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) þar til stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm. Nú byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð frá réttu alls 9-9-10-10-11-11 sinnum – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm fellið af 3 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umferð frá réttu. Prjónið nú sléttprjón með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni við hlið til loka. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 23-25-26-28-29-31 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm – passið uppá að endað sé með sömu litarrönd og á bakstykki. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 41-41-47-47-53-53 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= mitt að framan), prjónið * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur í garðaprjóni (= að hlið). Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Til þess að litaskiptin verði í hlið á stykki en ekki mitt að framan verður nú að prjóna 1 umferð aukalega með stroffi á þessu framstykki en sem er á bakstykki og vinstra framstykki, þannig að litaskiptin komi sjálfkrafa í hlið. Skiptið yfir á hringprjón 9. Héðan eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT eins og í fyrstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og fækkið um 6-4-8-6-10-8 lykkjur jafnt yfir næstu 33-33-39-39-45-45 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1 og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni. Nú eru 35-37-39-41-43-45 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með rendur, sléttprjón (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) – munið eftir HNAPPAGAT þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm. Þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, fækkið um 1 lykkju innan við 4 lykkjur garðaprjón – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð frá réttu alls 9-9-10-10-11-11 sinnum – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm fellið af 3 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umferð frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón að hlið til loka. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 23-25-26-28-29-31 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm – passið uppá að endað sé með sömu litarönd og á bakstykki og vinstra framstykki. Fellið af. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 26-26-26-32-32-32 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9. Héðan eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um lykkjur þannig – sjá ÚTAUKNING: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og aukið út 4-6-8-4-6-8 lykkjur jafnt yfir næstu 24-24-24-30-30-30 lykkjurnar og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Nú eru 30-32-34-36-38-40 lykkjur í umferð. Haldið áfram með rendur þar til stykkið mælist 44-43-42-41-40-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Frágangurinn er gerðu með 1 þræði svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Notið lit sem er líkur röndinni sem sauma á í. Saumið axlasaumana með lykkjuspori innan við affellingarkantinn, passið uppá að saumurinn verði jafn og flatur. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið sauminn meðfram neðri hlið á ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið hliðarsaum í ystu lykkjubogana niður meðfram hlið á fram- og bakstykki, byrjið við handveg og saumið þar til ca 17 cm eru eftir neðst niðri á peysu (= klauf). Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Paulissen Martine wrote:
Pour le modèle 202-2, vous ne précisez pas dans les explications qu il faut tricoter les fentes de côté au point mousse (4 mailles) jusqu'à 17 cm.
30.12.2022 - 16:12DROPS Design answered:
Bonjour Mme Paulissen, en fait, vous tricotez 4 mailles point mousse sur le côté (de chaque côté pour le dos) jusqu'à ce que vous rabattiez les mailles des emmanchures, autrement dit, pas seulement le long des fentes - sur la 1ère photo, on voit légèrement le côté et les mailles point mousse qui continuent après la fente. Bon tricot!
02.01.2023 - 13:21Janna Vittrup Olsen wrote:
Angående ærmevidje.Der skal tages ud efter ribben og ikke mere opad.Det vil sige at der kun kan blive et halv ærme.Jeg mener at der skal tages ud,for at det kan blive et ærme,som passer til trøjen.
27.11.2021 - 18:10Birgitte wrote:
Udtagning til hals: Der står at der skal tages ud på hver 2. Pind fra retsiden. Er det så hver 4. Pind eller er det blot på hver retpind, altså på hver 2. Pind?.Jeg har forsøgt at kigge på billedet, men det er svært at se. På tegningen ser det ud som om det er hver 4. Pind. Hvis det er på hver 2. Pind, så bliver indtagningen færdig meget hurtigere og der er et langt stykke, der er lige op langs med halsen.
12.11.2020 - 00:19DROPS Design answered:
Hej Birgitte, du tager ud på hver 2.pind. God fornøjelse!
18.11.2020 - 13:36Weronika wrote:
Hi, can you please tell me, how much this jacket weight in total? I would like to knit it, but in one color :)
03.09.2020 - 13:05DROPS Design answered:
Dear Weronika, we unfortunately cannot adapt every pattern to every single request and we do not have the jacket anymore - you can get help from another pattern in Air in your size - check measurement charts and/or calculate all colours together to compare with. Your DROPS store might be able to help you, even per mail or telephone. Happy knitting!
03.09.2020 - 13:58Anna Maria Vitulano wrote:
Buongiorno, nel modello 202/2 lateralmente, risulterà una striscia di 8 maglie legaccio? Così si evince dalle spiegazioni, ma non si vede dalla foto
22.02.2020 - 06:34DROPS Design answered:
Buongiorno Anna Maria. Sì, una volta cuciti il davanti e il dietro, avrà una striscia di 8 maglie legaccio. Buon lavoro!
23.02.2020 - 08:24Femke wrote:
Ik snap het eigenlijk helemaal niet,is er geen video waar je dit kledingstuk in maakt met uitleg en traag voorgedaan? Dit zou erg handig zijn
14.07.2019 - 23:23DROPS Design answered:
Dag Femke,
Er zijn niet per kledingstuk video's, maar wel voor heel veel technieken die in de verschillende kledingstukken gebruikt worden. Aan de linkerkant van het patroon vind je een link naar video's die van toepassing zijn op dit patroon.
15.07.2019 - 13:54Gro Bjeren wrote:
Hei! Ang. overvidde. f.eks 124 cm. er det på kropp eller jakken ferdig strikket? Er man 124 cm så er det vanligvis for lite å strikke S. Tenker heller XL, men det er kanskje annerledes i denne oppskriften?
07.06.2019 - 14:39DROPS Design answered:
Hei Gro. Målene på målskissen referer til det ferdigstrikkede plagget. God fornøyelse
07.06.2019 - 14:56Helene wrote:
I opskriften er der ingen udtagninger på ærmet udover de masker der tages ud efter ribkanten - er det en fejl i opskriften?
24.04.2019 - 07:57DROPS Design answered:
Hei Helene. Denne genseren har posete ermer, så det stemmer at de er like vide hele veien. Dette kan du også se ermene og ermhullsåpningen på målskissen. God fornøyelse
26.04.2019 - 14:13Victoria wrote:
Jag är ingen van stickare. Betyder "2 trådar" helt enkelt att jag stickar två garntrådar parallellt, som att de vore en garntråd?
04.03.2019 - 06:43DROPS Design answered:
Hej. Ja precis, det är så vi menar (så garnet blir då alltså dubbelt så tjockt jämfört med om du hade stickat med en tråd). Mvh DROPS Design
04.03.2019 - 11:19May Britt Olsen wrote:
Kunne tenkt meg å strikke den i en farve, hvor mange nøster trenger jeg til str S
07.02.2019 - 09:09DROPS Design answered:
Hei May Britt. Vi har dessevrre ikke oversikt over garnmengden i ensfarget. Vi runder alltid opp til nærmeste hele nøste når vi oppgit garnmengde. Du kan se om du finner en lignende oppskrift i samme garn og bruke garnmengden der som utgangspunkt. Det er mulig å filtrere søk etter garntype, eller eventuelt etter garngruppe E. God fornøyelse
11.02.2019 - 11:02