Flamingo Parade Jacket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með flamingo fuglum úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-10 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til þess að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (í L og XL er prjónamerkið sett á milli 2 miðju lykkja í umferð). Byrjið frá réttu með ljós grágrænn og prjónið 15-15-16-16-18-18 lykkjur fram hjá lykkju með prjónamerki í/prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 31-31-32-32-37-37 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið 46-46-48-48-55-55 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 61-61-64-64-73-73 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 76-76-80-80-91-91 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferð (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjóni síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 23) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1) A.1 er prjónað í sléttprjóni. Þar sem það eru löng hopp á milli litaskipta, verður að vefja þráðunum um hvern annan á eftir ca 7. hverja lykkju, svo að það verði ekki langir lausir þræðir á bakhlið. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum á berustykki, prjónið grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 5-5-6-6-7-7 fyrir næstu hnappagötum með ca 8½-9-8-8½-7½-7½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-132-136-140 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum ljós gráblár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff með litnum ljós grágrænn í ca 2½-3 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýring að ofan. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4 þegar stroffið hefur verið prjónað til loka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 23-19-26-22-29-25 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 143-143-154-154-165-165 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn). Síðan er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Sjá LEIÐBEININGAR- og LEIÐBEININGAR-2! Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni með litnum ljós grágrænn, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar með 11 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni með litnum ljós grágrænn. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A er aukið út þannig – sjá ÚTAUKNING: ÖR-1: Aukið út 33-44-44-44-44-44 lykkjur jafnt yfir = 176-187-198-198-209-209 lykkjur (nú er pláss fyrir 15-16-17-17-18-18 mynstureiningar A.1A með 11 lykkjum). ÖR-2: Aukið út 33-33-44-44-44-44 lykkjur jafnt yfir = 209-220-242-242-253-253 lykkjur (nú er pláss fyrir 18-19-21-21-22-22 mynstureiningar A.1A með 11 lykkjum). ÖR-3: Aukið út 22-22-22-33-44-44 lykkjur jafnt yfir = 231-242-264-275-297-297 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-21-23-24-26-26 mynstureiningar A.1A með 11 lykkjum). ÖR-4: Aukið út 22-33-33-33-33-44 lykkjur jafnt yfir = 253-275-297-308-330-341 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26-27-29-30 mynstureiningar A.1A með 11 lykkjum). ÖR-5: Aukið út 11-11-11-22-33-33 lykkjur jafnt yfir = 264-286-308-330-363-374 lykkjur (nú er pláss fyrir 23-25-27-29-32-33 mynstureiningar A.1A með 11 lykkjum). ÖR-6: Aukið út 11-21-23-25-24-29 lykkjur jafnt yfir = 275-307-331-355-387-403 lykkjur (nú er pláss fyrir 33-37-40-43-47-49 mynstureiningar A.1A með 8 lykkjum). ÖR-7: Aukið út 12-16-19-22-20-25 lykkjur jafnt yfir = 287-326-350-380-410-428 lykkjur (nú er pláss fyrir 92-104-113-122-132-139 mynstureiningar A.1A með 3 lykkjum). Í síðustu umferð í A.1, aukið út 1-0-2-0-0-2 lykkjur jafnt yfir (aukið út í grunnlit) = 288-326-352-380-410-430 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 23-23-23-27-27-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Afgangur af stykkinu er prjónaður með litnum ljós gráblár. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 23-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan (þ.e.a.s. ca 0-0-2-0-2-4 cm áfram eftir A.1). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 47-52-56-61-67-71 lykkjur í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 82-94-100-110-124-132 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-52-56-61-67-71 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-214-232-252-282-302 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og fækkið JAFNFRAMT um 0-2-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 192-212-232-252-282-302 lykkjur. Þegar prjónaðir hafa verið alls 3-3-3-4-4-5 cm með litnum ljós gráblár eftir A.1 á berustykki (þ.e.a.s. á eftir grindverki), byrjar gatamynstur á fram- og bakstykki. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 18-20-22-24-27-29 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2B (= 2 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. A.2 er prjónað alls 3 sinnum á hæðina í öllum stærðum, en síðasta endurtekningin endar eftir umferð merktri með stjörnu í A.2A. Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós gráblár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 23-25-25-25-25-25 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, þar til ca 4 cm að loka máli). Í næstu umferð er aukið út um 36-40-44-48-54-58 lykkjur jafnt yfir = 228-252-276-300-336-360 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 56-64-70-74-76-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. Lesið afgang af kafla um ermi áður en prjónað er áfram! Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn (með litnum ljós gráblár). Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-13-16-17-18-19 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið alls 3-3-3-4-4-5 cm með llitnum ljós gráblár eftir A.1 á berustykki (þ.e.a.s. á eftir grindverki), byrjar gatamynstur á ermi. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig (reiknað er með að fyrsta úrtaka undir ermi er gerð í S, M og XL og að það séu 62-70-80-82-88-92 lykkjur í umferð þegar gatamynstrið byrjar): Prjónið 0-4-4-0-3-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2A yfir næstu 60-60-70-80-80-90 lykkjur (= 6-6-7-8-8-9 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2B (= 2 lykkjur) og endið með 0-4-4-0-3-0 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur, en passið uppá að götin í A.2 séu staðsett beint yfir hvert annað þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. A.2 er prjónað alls 2 sinnum á hæðina í öllum stærðum, en síðasta endurtekningin endar eftir umferð merktri með stjörnu í A.2A. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 39-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir 4 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 43-43-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Sandra Hammerstein wrote:
The pattern calls for 4cm of rib on bottom but the pictures look bigger than that This seems small for rib Am I reading it wrong?? Is there a reason it is small and why it looks bigger in picture??? I love Garnstudio!!
25.05.2022 - 23:34DROPS Design answered:
Dear Ms. Hammerstein, the rib may appear longer in the picture - photos can be a bit confusing in this respect. However, it's absolutely up to you how long you make the rib! Feel free to adapt the instructions to suit you and you will be satisfied with the final product. Happy knitting!
26.05.2022 - 09:08Peggie wrote:
Hallo, Bij het oog van de flamingo moet je een toer met 3 kleuren breien. Hoe doe je dat? overal staat alleen met 2 kleuren uitgelegd.
02.05.2021 - 17:04DROPS Design answered:
Dag Peggie,
Met 3 kleuren werkt het eigenlijk hetzelfde als met 2 kleuren, alleen heb je dan 2 draden waar je niet mee breit in plaats van 1 draad. Om lange lussen aan de verkeerde kant van het werk te voorkomen moet je dus nu af en toe 2 draden om de werkdraad slaan, in plaats van 1 draad.
05.05.2021 - 14:18Dea wrote:
Buonasera, perchè non viene mai specificato qual è il colore di base che bisogna fare per i bordi? Sarebbe utile che nel modello venisse specificato per poter avere un cambio colore perfetto, altrimenti sul bordo formato da coste a legaccio ( 2 ferri a diritto) , la costa in cui avviene il cambio non viene giusta. E' un suggerimento. Grazie
07.02.2020 - 20:39Dea wrote:
Buonasera, seguendo lo schema ad un certo punto il colore di base del disegno cambia e quindi anche il bordo a legaccio segue questo cambio...come faccio ad ottenere un cambio corretto sulle 5 maglie a legaccio se arrivo con un colore sul DL e poi il ferro successivo RL dovrei cambiarlo? Parlo del punto di cambio tra il col verde/grigio chiaro e il verde oliva ,ferro 27 (DL) e 28 (RL) del diagramma A1A. Qualcuno può spiegarmi come fare per un cambio corretto su entrambi i bordi? Grazie.
04.01.2020 - 19:15DROPS Design answered:
Buongiorno Dea. Provi ad incrociare sul rovescio del lavoro i due fili e a tirare leggermente il filo del colore non usato. Buon lavoro!
12.01.2020 - 08:33Dea wrote:
Buonasera. Quando seguo lo schema per i ferri sul DL devo farli da dxestra verso sinistra, mentre per quelli a rovescio sul RL devo farli da sinistra verso destra? Grazie.
15.12.2019 - 20:27DROPS Design answered:
Buongiorno Dea. Sì è corretto. Sui ferri sul DL legge i diagrammi da destra verso sinistra e sul RL li legge da sinistra verso destra. Buon lavoro!
16.12.2019 - 10:55Kari Noodt Poppe wrote:
Hei, Finnes denne oppskriften i barnestørrelser? Hadde vært så fin til datteren min :-) Hilsen Kari
09.09.2019 - 13:34DROPS Design answered:
Hei Kari, Denne oppskriften finnes bare til voksne, men det finnes andre jakker til barn hvor du kunne bruke samme fargene og mønsteret til flamingo jakka i barne-oppskriften (f.eks. Daisy Delight). God fornøyelse!
10.09.2019 - 07:26Eleanor wrote:
How do I print this pattern out? Is there an easy way? I tried just Ctl P but I get no photo...?
30.07.2019 - 23:06DROPS Design answered:
Dear Eleanor, you can easily print our patterns for free whenever you like - see symbol of printer (i.e. printer icon with word "Pattern") just under the header of pattern and tab with material. Happy knitting!
31.07.2019 - 00:16Katariina wrote:
Mikä on eri kokojen rinnanympärys, pituus??En löytänyt ohjeesta ja vaikea valita kokoa. Koot eivät ole standardeja mitoiltaan.
29.05.2019 - 20:05DROPS Design answered:
Hei, löydät mitat ohjeen alapuolella olevasta mittapiirroksesta.
03.06.2019 - 14:38LauraK wrote:
Hallo liebes Drops-Team, was sollen denn bei der Jacke für Randmaschen gestrickt werden? Danke und LG
07.02.2019 - 11:43DROPS Design answered:
Liebe LauraK, bei der Jacke stricken Sie keine Randmasche, Sie stricken die Blendemaschen = 5 M kraus rechts am Anfang und Ende jeder Reihe. Viel Spaß beim stricken!
07.02.2019 - 12:25Nathalie Vergobbi wrote:
Bonjour, Est-ce que sur le site de drops design,il y avait un onglet favoris?.
16.01.2019 - 21:28DROPS Design answered:
Bonjour Mme Vergobbi, tout à fait, cette fonction a été, pour des raisons techniques, momentanément désactivée, mais devrait revenir très bientôt, merci pour votre compréhension.
17.01.2019 - 09:17