Dear to my Heart |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-6 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykki er prjónað í hring, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð mitt í umferð (í S, XL, XXL og XXXL er merkiþráðurinn settur í miðjulykkju í umferð). Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði / lykkju með merkiþræði í, snúið, herðið á þræði og prjónið 29-30-32-33-35-37 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 43-45-48-49-52-55 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 57-60-64-65-69-73 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 71-75-80-81-86-91 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 6,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 6. og 7. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út alveg eins við hitt prjónamerkið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermar): Byrjið 3 lykkjum fyrir prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Þegar mynsturborði er prjónaður með tveimur litum í berustykki, prjónið grunnlit í mynsturborða einnig yfir 5 kantlykkju að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkju slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-7½-7½-8-8½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-132-136-140 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum sinnep. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Skiptið yfir í natur og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff með litnum natur í ca 3 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-20-30-17-25-27 lykkjur jafnt yfir – ÚTAUKNING-1 = 137-144-158-149-161-167 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI: BERUSTYKKI: Sjá LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni með litnum natur, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 18-19-21-23-25-26 mynstureiningar með 7-7-7-6-6-6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni með litnum natur. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýring að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 299-315-347-379-411-427 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með gráblár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 48-51-55-60-66-69 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 59-61-69-75-79-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 85-91-99-109-121-127 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 59-61-69-75-79-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 48-51-55-60-66-69 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 197-213-229-249-277-297 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 52-56-60-65-72-77 lykkjum inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 93-101-109-119-133-143 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á í hliðum. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum gráblár og 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 209-225-241-261-289-309 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 22 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm til loka). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni) þar sem aukið er út um 39-39-47-47-55-63 lykkjur jafnt yfir = 248-264-288-308-344-372 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 59-61-69-75-79-81 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-12-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-85-91-97 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-10-10-10-12-16 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gráblár. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkju mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 9-11-14-14-17-20 sinnum = 49-49-51-57-57-57 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-39-37-36-34-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm til loka, úrtöku mitt undir ermi er lokið og það eru styttri mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt með litnum gráblár og fækkið um 1-1-3-1-1-1 lykkjur í umferð = 48-48-48-56-56-56 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn (= 6-6-6-7-7-7 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð með litnum natur þar sem fækkað er um 0-0-0-4-4-0 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-52-52-56 lykkjur. Nú eru eftir ca 3 cm til loka. Ef óskað er eftir að hafa ermina lengri er hægt að prjóna áfram með litnum natur að óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir í sinnep og prjónið 1 umferð stroff. Fellið síðan laust af með litnum sinnep og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 46-45-43-42-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Suzanne Crosier wrote:
I'm going to make Dear To My Heart Cardigan. I want to knit in the round so I'm going to add a steek this is first time for me steeking. Would I eliminate garter stitches and add stitches for steek then add button placket afterwards? Can I start steek at neck and end at ribbing? Is there anything else I need to remember or do to adjust pattern? It would have been helpful to include instructions on how to steek this pattern since most people prefer knitting in the round
07.02.2022 - 20:36DROPS Design answered:
Dear Mrs Crosier, this video might be the one that could help you to adapt the jacket as you liked it to be. Happy knitting!
08.02.2022 - 08:52Hatice wrote:
Hi, I can not progress because of increasing rows, I don't know why but I try over and over again,count every row and stitches several times but could'nt find my mistake. I don't remember how many times raveled it. and please explain what is the A.B1 one-stitched column and how am I supposed to use it. many thanks, love your everything:)
15.10.2021 - 00:04DROPS Design answered:
Dear Hatice, A.1B allows the pattern to be symmetrical on each side, in other words, A.1B is the same as the first stitch in A.1A so that pattern starts and ends the same way; you repeat A.1A the number of times stated for your size and end the row from RS with A.1B before the front band sts. From WS work A.1B and repeat then A.1B reading from left towards the right. Hope this will help, happy knitting!
15.10.2021 - 07:55Vaidehi wrote:
What does stockinette st in nordic pattern mean?
28.08.2021 - 13:38DROPS Design answered:
Dear Vaidehi, stotckinett stitch knitted on the round is knitted stitches in each row. When knitted back and forth it is knit stitches from the right side and purl stitches on teh wrong side. Happy Knitting!
28.08.2021 - 18:31Christel wrote:
Hej Nu har jag kommit till den första ökningen på fram- och bakstycket. Det står ”Öka så med 8 cm mellanrum totalt 3 ggr i varje sida”. Undrar hur denna mätning ska ske? Jag är helt med på den första efter 4 cm men om den andra ökningen ska ske efter 8 cm från delningen då är det bara 4 cm mellan 1:a och 2:a ökningen. Hur ska jag mäta? Med vänlig hälsning Christel
29.01.2020 - 19:34DROPS Design answered:
Hej Du gör den första ökningen när arbetet mäter 4 cm, nästa gör du 8 cm efter den första ökningen och den sista ökningen gör du 8 cm efter den andra ökningen. Lycka till!
30.01.2020 - 13:27Maiken wrote:
Hei. Målene på genseren, der det står 45-48-52-57-64-68, er det midje eller bryst?
24.12.2019 - 15:19DROPS Design answered:
Hej Maiken, det er brystvidden, du tager målet og ganger med 2. 45x2 = 90 cm i small. God fornøjelse!
15.01.2020 - 14:39Christel wrote:
Hej 1 Kan jag välja en annan typ av ökning på oket om jag tycker att den blir snyggare/bättre och vilken rekommenderar ni i så fall? 2 Jag tycker att det blir snyggare att ha resårstickning i början på kanterna, kan jag ändå ha 5 maskor eller ska jag öka?
15.12.2019 - 07:19DROPS Design answered:
Hej Christel, Ja det är bara att välja vilken ökning du tycker bäst om. Och vilken kant du vill ha. Nej du behöver inte ändra på antal maskor om du vill ha resår. Lycka till :)
17.12.2019 - 13:56Erica Branchi wrote:
Molto bello ed originale il ricamo a cuore!!!
15.01.2019 - 09:55Lisbeth G Tørvi wrote:
Denne jakka var veldig fin🤗 Kan godt tenke meg å strikke denne👍
12.01.2019 - 15:05Ann M. wrote:
This is a lovely sweater. Thank you.
11.01.2019 - 20:08Barrussaud Catherine wrote:
Amour tout simplement
11.01.2019 - 15:26