Red Nose Jumper |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og hreindýri. Stærð S - XXXL. Þema: jól.
DROPS 194-38 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning A.3 sýnir hnút (= augu og snjókorn). Mynsturteikning A.1 og A.2 (hreindýr): Öll mynsturteikning er prjónuð í sléttprjóni. Prjónið með 3/5 dokkur í umferð, þannig að þú þurfir ekki að hafa löng hopp á röngu. Þ.e.a.s. prjónað er með 1 dokku í litnum rauður/natur í hvorri hlið á peysunni og 1 dokku með mynsturlit mitt í peysu. ATH: Til að koma í veg fyrir göt í litaskiptum verður að vefja þræðina utan um hvorn annan þegar skipt er um lit. ÚTAUKNING (á við um laskalínu): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Framstykki, bakstykki (með eða án hreindýrs á bakstykki) og ermar er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Þetta er gert til auðveldara sé að prjóna mynstur. Síðan eru stykkin prjónuð saman lykkju fyrir lykkju meðfram útaukningu fyrir laskalínu í hliðum. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring og peysan er skreytt með snoppu, augum, hári, snjókornum og ól í hálsi á hreindýri. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með litnum rauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útaukning að ofan, í hvorri hlið. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir laskalínu – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 20-21-23-25-27-29 sinum = 68-72-78-84-90-96 lykkjur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!Þegar aukið hefur verið út 7-7-8-9-10-10 sinnum í hvorri hlið og það eru 42-44-48-52-56-58 lykkjur í umferð er mynstur prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 0-1-3-5-7-8 lykkjur slétt, A.1A (= 38 lykkjur) – sjá MYNSTUR að ofan, prjónið 0-1-3-5-7-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 44-46-50-54-58-60 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir laskalínu mælist stykkið 20-21-23-25-27-29 cm. Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 4-5-5-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið á stykki = 76-82-88-94-104-114 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.1A hefur verið prjónað til loka prjónið A.1B yfir A.1A. Í umferð með ör í A.1B er skipt um grunnlit til litinn natur í stað rauður og mynstrið nær nú yfir 42 lykkjur. Þegar A.1B er lokið á hæðina er haldið áfram með litnum natur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-25-25-25-25-25 cm. Aukið nú um 16-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 92-100-108-116-128-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist 51-52-54-56-58-60 cm frá kanti í hálsi og niður. Klippið frá og festið enda. BAKSTYKKI – MEÐ HREINDÝRI: Fitjið upp og prjónið alveg eins og á framstykki nema prjónið mynstur A.2A í stað A.1A og mynstur A.2B í stað A.1B. Þegar A.2B hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram með litnum natur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-25-25-25-25-25 cm – stillið af eftir framstykki. Aukið nú út um 16-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 92-100-108-116-128-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni, 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Bakstykkið mælist 51-52-54-56-58-60 cm frá kanti í hálsmáli og niður. Klippið frá og festið enda. BAKSTYKKI – ÁN HREINDÝRS: Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með litnum rauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Jafnframt í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir laskalínu – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 20-21-23-25-27-29 sinnum = 68-72-78-84-90-96 lykkjur.Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir laskalínu mælist stykkið 20-21-23-25-27-29 cm. Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 4-5-5-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið á stykki = 76-82-88-94-104-114 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 18-17-16-15-14-12 cm – stillið af eftir skipti á grunnlit á framstykki, prjónið áfram með litinn natur til loka. Þegar stykkið mælist 25-25-25-25-25-25 cm – stillið af eftir framstykki, aukið nú um 16-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 92-100-108-116-128-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist 51-52-54-56-58-60 cm frá kanti í hálsi og niður. Klippið frá og festið enda. ERMI: Fitjið upp 14 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með litnum rauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 19-21-23-24-24-25 sinnum = 52-56-60-62-62-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 20-21-23-25-27-29 cm. Fitjið nú upp 4-5-5-5-7-9 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = 60-66-70-72-76-82 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2-2-2-1-1-1 cm millibili 4-13-15-7-12-14 sinnum og síðan með 3-3-3-2-2-2 cm millibili 9-2-1-10-6-6 sinnum = 34-36-38-38-40-42 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 40-39-38-36-34-33 cm. Aukið nú út um 4-6-4-4-6-8 lykkjur jafnt yfir = 38-42-42-42-46-50 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í við fram- og bakstykki – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATH! Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! Saumið sauminn undir ermum og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermi. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu 1 lykkju í hverja lykkju (en ekki í kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykkjum) á stuttan hringprjón 4,5 með litnum rauður = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir = 80-84-88-92-96-100 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. NEF: Gerið einn dúsk með litnum rauður ca 7 cm að þvermáli. Klippið dúskinn þannig að hann fái sporöskjulaga form, þannig að það verða ca 7 cm í aðra áttina og ca 5 cm í hina áttina, en munið að skilja eftir 2 þræði til að festa dúskinn með. Festið dúskinn framan á höfuðið á hreindýri ca mitt í eininguna með litnum ljós beige – sjá mynd. Þræðið í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið endana saman á röngunni. AUGU: Gerið 2 augu með litnum millibrúnn þannig: 1 auga. Klippið 3 þræði ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 5 – sjá mynsturteikningu A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 auga til viðbótar. Staðsetjið augun framan á höfuðið á hreindýri, nákvæmlega yfir einingu í litnum ljós beige – sjá mynd. Þræðið í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið þræðina á röngu. HÁR: Festið 4 kögur fyrir hár framan á höfuðið og 4 kögur aftan á höfði. 1 kögur = klippið 2 þræði í litnum millibrúnn ca 8-9 cm. Leggið 2 þræðina saman, þræðið utan um lykkju efst á höfði á hreindýri á milli einingu með litnum beige á höfði og litnum millibrúnn í horni – mitt á sjálfu höfðinu. Hnýtið tvöfaldan hnút. Festið alveg eins kögur hvoru megin við miðju kögrið – sjá mynd. HÁLSÓL AÐ FRAMAN: Heklið loftlykkjuröð ca 16-18 cm með heklunál 4 með litnum gulur. Þræðið rautt hjarta eða svipað sem skraut á loftlykkjuröðina og hnýtið hnút þannig að hjartað haldist mitt í loftlykkjuröðinni. Staðsetjið hálsólina þvert yfir hálsinn á hreindýri á framstykki. Festið enda á röngu á stykki. HÁLSÓL AÐ AFTAN: Heklið loftlykkjuröð ca 18-19 cm með heklunál 4 með litnum gulur. Staðsetjið hálsólina þvert yfir hálsinn á hreindýrinu á bakstykki. Festið enda á röngu á stykki. SNJÓKORN: Gerið ca 16 hnúta með litnum natur fyrir snjókorn: Klippið 1 þráð ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 5,5 – sjá A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 hnút til viðbótar og herðið á þræði á þessum hnút = 1 hnútur). Staðsetjið snjókorn á efri hluta á berustykki, t.d. 4 snjókorn á framstykki, 5 snjókorn á bakstykki, 4 snjókorn á vinstri ermi og 3 snjókorn á hægri ermi. Þræðið þráðar enda í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju í peysu og hnýtið þráðar endana saman á röngu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Orlidolette wrote:
Bonjour, Pourquoi ne pas pouvoir le faire en circulaire ? J’ai peut être raté un épisode qui explique pourquoi le faire en aller-retours obligatoirement ? Merci d’avance !
07.08.2022 - 18:12DROPS Design answered:
Bonjour Orlidolette, on tricote le devant et le dos séparément en allers et retours parce que le jacquard est de type "intarsia" et que ce type de jacquard se tricote est plus facilement en rangs qu'en rond (on peut ainsi tricoter plusieurs couleurs en même temps avec plusieurs pelotes, sans avoir à faire suivre le fil - cf vidéo). Bon tricot!
08.08.2022 - 07:43Nora wrote:
Hola como tejo este sueter con agujas del No. 4 talla chica? Con 22 puntos me dan 10 cm
10.10.2021 - 18:25DROPS Design answered:
Hola Nora, no hacemos patrones personalizados. En el caso de tener 22 puntos en 10 cm, se puede usar una aguja más grande, para tener menos puntos en 10 cm. En otro caso, tienes que hacer tú los cálculos de los puntos necesarios en cada paso, teniendo en cuenta el patrón y la tensión indicada ( 16 puntos en 10 cm).
10.10.2021 - 23:35FLORINE BIHLER wrote:
Avec le modèle de motif une rangée de petits carreaux est-elle considérée comme endroit et envers ? Merci de votre réponse.
06.02.2021 - 10:12DROPS Design answered:
Bonjour Florine, ces symboles montrent les couleurs du jacquard. Le pull est tricote en jersey endroit (a l’endroit sur l’endroit et a l’envers sur l’envers de l’ouvrage) avec 1 maille lisière au point mousse. Bon tricot!
06.02.2021 - 19:25Sima wrote:
Bonsoir quand vous dites mesurer l’ouvrage désormais à partir d’ici après les augmentations des emmanchures et que vous dites continuez en jersey les A.1a et À.1b et continuez jusqu’à ce que l’ouvrage mesure 25 cm. Pour faire les augmentations est ce que les 25 cm à partir des augmentations des emmanchures ou bien à partir du début 2) qcq Vs voulez dire faire des augmentations à intervalles réguliers merci beaucoup pour votre aide
29.12.2020 - 19:33DROPS Design answered:
Bonjour Sima, vous mesurez pour le devant à partir des mailles montées pour les emmanchures de chaque côté - cf schéma: le bas du pull mesure 25 cm dans toutes les tailles à partir des emmanchures + les côtes du bas. Après ces 25 cm, vous tricotez 1 rang en augmentant à intervalles réguliers puis continuez en côtes pendant 6 cm. Bon tricot!
04.01.2021 - 11:57Sara wrote:
Buonasera, X la misura xxl a che ferro comincia il disegno marrone. .. (le corna? )grazie Sara
24.11.2020 - 17:34DROPS Design answered:
Buonasera Sara, il motivo sono A.1A e A.1B sul davanti e A.2A e A.2B sul dietro per tutte le taglie. Le corna iniziano sul 1° ferro. Buon lavoro!
24.11.2020 - 21:31Lafarida wrote:
Wieso weicht die Anzahl der Zunahmen bei den Ärmeln von der an Vorder- und Rückseite ab? Bei S z.B. geht die Raglanschrägung auf der Vorderseite über 40 Maschen (20 Zunahmen), bei den Ärmeln aber nur über 38 (19 Zunahmen). Dadurch kann man hier doch überhaupt nicht mehr Masche mit Masche vernähen. Oder habe ich hier etwas falsch verstanden?
18.11.2020 - 21:30DROPS Design answered:
Liebe Lafarida, es wird unterschiedlich für Vorder- /Rückenseite und Ärmel zugenommen damit die Ärmel nicht so breit sind, aber Länge wird schon stimmen, so können Sie die Ärmel zusammennähen. Viel Spaß beim stricken!
19.11.2020 - 10:05Lis Snedevig Steenberg wrote:
Hvorfor fremstår munden på drops 194-38 på modellen som hvid mens opskriften siger lys beige
16.10.2020 - 17:22DROPS Design answered:
Hei Lis. På bildet av reinsdyret ser partiet under snuten som lys beige. Snøen er laget i natur og den nederste delen er strikket i natur og man ser forskjell på fargene. Men ta en titt på fargeinstillingene dine, kanskje de trengs å justeres. mvh DROPS design
19.10.2020 - 12:48Tora Christophersen wrote:
Jeg strikker 16 masker på 10 cm, men det bliver til 24 pinde i stedet for 20 pinde i højden, før jeg har strikket 10 cm. Kan I give mig vejledning til, hvordan/hvad jeg skal ændre, for at få opskriften til at passe?
26.11.2019 - 22:00DROPS Design answered:
Hej Tora, Strikker du i DROPS Nepal? Du kan evt prøve at strikke med en pind som er et halvt nummer tykkere. Hvis det bliver et problem til den anden side, så prøve at strikke vrangpinden (eller den side du normalt strikker lidt strammere) med en tykkere pind. God fornøjelse!
03.12.2019 - 14:04Corinne wrote:
Merci de m'avoir rendu réponse ça va beaucoup m'aider. Cordialement Corinne
26.11.2019 - 11:10Corinne wrote:
Pour ce modèle est-ce que les aiguilles circulaires sont obligatoires Merci
25.11.2019 - 21:16DROPS Design answered:
Bonjour Corinne, seul le col se tricotera en rond dans ce modèle; vous pouvez voir les différentes étapes de ce modèles sous le DROPS-Along Christmas 2018. Bon tricot!
26.11.2019 - 09:38