Catch a Wink |
|
|
|
Prjónaður poki fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og framhliðarnar skarast yfir hvor aðra, hekluðum kanti og snúru. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 33-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um hliðar á framstykki og meðfram hálsmáli): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Fitjaðar eru upp 10 auka lykkjur neðst niðri á hvorri ermi fyrir uppábrot. Ef þú vilt ekki hafa uppábrot eru einungis fitjaðar upp (9) 9-12-12-10 (13) lykkjur neðst niðri á hvorri ermi, í stað (19) 19-22-22-20 (23) lykkjur. Munið eftir að það verða þá 10 lykkjum færri í hvorri hlið á fjölda lykkja. HNAPPAGAT (á við um uppábrot neðst niðri á poka): 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur, í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Ysta hnappagatið er staðsett ca 2 cm inn frá hvorri hlið. Fellið síðan af fyrir næstu hnappagötum með ca (7) 6-5½-6-7 (8) cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- POKI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Byrjið á öðru framstykkinu, fitjið upp lykkjur fyrir ermi og prjónið síðan upp að öxl. Prjónið hitt framstykkið alveg eins, nema spegilmynd. Setjið síðan bæði framstykkin saman og prjónið niður yfir bakstykki að loka máli. Bakstykkið er prjónað lengra en framstykkin og er brotið að framstykki. Ef þú vilt ekki hafa uppábrotið er hægt að draga þessar lykkjur frá lykkjufjölda sem er fitjaður upp fyrir ermum – sjá LEIÐBEININGAR! HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp (44) 49-52-60-67 (71) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 3 með ljós grár. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (fyrsta umferð = rétta og prjónið frá miðju að framan). Þegar stykkið mælist (6) 6-6-8-8 (8) cm fækkið um 1 lykkju í hlið (þ.e.a.s. í lok umferðar frá réttu) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (5) 5½-7-7-5½ (5½) cm millibili alls (5) 6-6-7-10 (12) sinnum = (39) 43-46-53-57-59 lykkjur. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist (29) 36-43-52-61 (70) cm fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls (20) 20-22-26-28 (29) sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 2 sinnum í öllum stærðum. ERMI: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (32) 39-47-56-65 (74) cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp (4) 6-7-8-7 (8) lykkjur alls (4) 4-4-4-6 (6) sinnum og síðan (19) 19-22-22-20 (23) lykkjur 1 sinni. Eftir alla úrtöku og útaukningu eru (52) 64-72-79-89 (99) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist (40) 48-56-66-76 (86) cm. Setið 1 prjónamerki í byrjun á umferð frá réttu (þ.e.a.s. inn að hálsi). Prjónamerki merkir mitt á öxl og brjóta á stykkið síðar upp við þetta prjónamerki. Prjónamerkið á einnig að nota síðar við mælingu á lengd. Haldið áfram í garðaprjóni og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða frá röngu (þ.e.a.s. að hálsi) = (56) 68-76-83-93 (103) lykkjur á prjóni og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Setjið allar lykkjur á þráð eða látið þær hvíla á prjóni. Prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp (44) 49-52-60-67 (71) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 3 með ljós grár. Prjónið garðaprjón (fyrsta umferð = rétta og prjónuð frá hlið). Þegar stykkið mælist (6) 6-6-8-8 (8) cm fækkið um 1 lykkju í hlið (þ.e.a.s. í byrjun á umferð frá réttu) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (5) 5½-7-7-5½ (5½) cm millibili alls (5) 6-6-7-10 (12) sinnum = (39) 43-46-53-57-59 lykkjur. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist (29) 36-43-52-61 (70) cm fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls (20) 20-22-26-28 (29) sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 2 sinnum í öllum stærðum. ERMI: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (32) 39-47-56-65 (74) cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp (4) 6-7-8-7 (8) lykkjur alls (4) 4-4-4-6 (6) sinnum og síðan (19) 19-22-22-20 (23) lykkjur 1 sinni. Eftir alla úrtöku og útaukningu eru (52) 64-72-79-89 (99) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist (40) 48-56-66-76 (86) cm. Setjið 1 prjónamerki í lok umferðar frá röngu (þ.e.a.s. inn að hálsi). Prjónamerkið merkir mitt á öxl og stykkið er síðar brotið upp við þetta merki. Prjónamerkið á síðar að nota til að mæla lengd. Haldið áfram í garðaprjóni og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða frá réttu (þ.e.a.s. að hálsi) = (56) 68-76-83-93 (103) lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið nú bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir allar þær (56) 68-76-83-93 (103) lykkjur á vinstra framstykki, fitjið upp (8) 8-12-12-12 (14) nýjar lykkjur á prjóni fyrir hálsmáli aftan í hnakka og prjónið síðan sléttar lykkjur frá réttu yfir allar (56) 68-76-83-93 (103) lykkjur frá hægra framstykki = (120) 144-164-178-198 (220) lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM! Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist (6) 7-7-8-8 (9) cm frá prjónamerki eru ermalykkjur felldar af. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af (19) 19-22-22-20 (23) lykkjur 1 sinni og síðan (4) 6-7-8-7 (8) lykkjur alls (4) 4-4-4-6 (6) sinnum í hvorri hlið = (50) 58-64-70-74 (78) lykkjur eftir í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (14) 14-15-16-18 (17) cm frá prjónamerki. Aukið nú út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með (5) 5½-7-7-5½ (5½) cm millibili alls (5) 6-6-7-10 (12) sinnum í hvorri hlið = (60) 70-76-84-94 (102) lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (40) 48-56-66-76 (86) cm frá prjónamerki. Setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið á bakstykki. Þessi prjónamerki merkja uppábrot neðst niðri á poka og stykkið er nú mælt frá nýju prjónamerkjunum. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (4) 4-4-6-6 (6) cm frá nýju prjónamerkjunum. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir (4) 5-6-6-6 (6) HNAPPAGAT jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þar til stykkið mælist (6) 6-6-8-8 (8) cm frá nýju prjónamerkjum (allur pokinn mælist ca (46) 54-62-74-84 (94) cm frá prjónamerkjum á öxlum). Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerkjum á öxlum. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. HEKLAÐUR KANTUR MEÐFRAM OPI Á POKA: Byrjið frá röngu í horni neðst niðri á vinstra framstykki og heklið með heklunál 2,5 með litnum natur meðfram opi á poka þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1-2 lykkjur (prufaðu þig aðeins áfram, kanturinn á að liggja alveg flatur), heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* upp meðfram vinstra framstykki, en við hornið þar sem affellingin fyrir hálmáli byrjaði er hekluð snúra þannig: Heklið 1 fastalykkju í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki. Haldið áfram með heklaða kantinn í kringum hálsmál fram að horni eftir affellingu í hálsi á hinu framstykkinu, heklið snúru alveg eins og á vinstra framstykki og heklið síðan stykkið áfram meðfram hægra framstykki, endið með 1 keðjulykkju í hornið, snúið stykki. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* út umferðina (passið uppá að heklað sé yfir snúru þannig að snúran liggi neðst), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á fyrri umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins kant neðst niðri á framstykki þannig: Leggið hægra framstykki yfir vinstra framstykki. Byrjið frá röngu og heklið meðfram kanti neðst niðri á framstykki, þar sem framstykkin koma yfir hvort annað er heklað í gegnum bæði lögin. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR MEÐFRAM UPPÁBROTI NEÐST Á POKA: Byrjið frá röngu og heklið alveg eins kant meðfram kanti á uppábroti alveg eins og útskýrt er að ofan. Brjótið upp kantinn með prjónamerkjum. Saumið tölur í framstykki. HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM ERMAR: Byrjið frá röngu og heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 umferðir garðaprjón, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* í kringum alla ermina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins kant neðst niðri í kringum hina ermina. Brjótið upp ermar. SNÚRA: Heklið 1 snúru í hvora hlið á poka eins og í hvoru horni á framstykki. Snúran á hægri hlið er hekluð innan við saum (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) og snúran á vinstri hlið er hekluð utan við saum (þ.e.a.s. frá réttu á stykki) – passið uppá að þessar snúrur verði í sömu hæð og hinar tvær. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (40)
Anastasia wrote:
Wird der Rücken dann sozusagen einzeln gestrickt? Und die drei Teile dann zusammengenäht, verstehe ich das richtig?
10.04.2024 - 16:56DROPS Design answered:
Liebe Anastasia, beide Vorderteile sind von unten nach oben separat gestrickt, dann wird das Rückenteil von oben nach unten (beide Vorderteile + neue Maschen dazwischen) gestrickt, die Maschen für die Ärmel werden dann abgekettet und bis die untere Rand stricken. Die Seiten werden dann zusammengenäht. Viel Spaß beim Stricken!
11.04.2024 - 07:02Anastasia wrote:
Hallo liebes Drops-Team. Ich verstehe nicht so ganz, wie ich die Rechte und die Linke Seiten verbinden soll. Zuerst wird ja die linke gestrickt und dann zur Seite gelegt, behält aber den Faden, daher verstehe ich nicht, wie es mit der rechten dann zusammengestrikt wird, denn die rechte hat ja auch noch ihren Faden mit Wolle dran. Können Sue mir da bitte helfen.
10.04.2024 - 13:31DROPS Design answered:
Liebe Anastasia, zuerst stricken Sie das rechte Vorderteil von unten nach oben (bis die 2 x 2 neue Maschen für den Halsausschnitt angeschlagen sind - letzte Reihe ist eine Rückreihe (Maschen stilllegen, Faden abschneiden); dann stricken Sie das linke Vorderteil spiegelverkehrt - die letzte Reihe ist eine Rückreihe; dann stricken Sie das Rückenteil: stricken Sie zuerst alle Maschen vom linken Vorderteil, dann schlagen Sie neue Maschen für den Halsausschnitt und stricken Sie alle Maschen vom rechten Vorderteil. Nun wird das Rückenteil von oben nach unten gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
10.04.2024 - 14:02Sigrid wrote:
Guten Tag, irgendwie, kann ich mir das Anbringen von 4 Bindebändern nicht vorstellen. Ein Band wird an dem aufliegenden Vorderteil angebracht, eins in entsprechender Höhe an der Seite? Diese sind auf dem Foto gebunden. Eines soll auf dem innenliegenden Vorderteil angebracht werden. Wo wird dieses lang geführt, gibt es eine Öffnung in der Seite zum Durchführen? Bitte um Hilfe Viele Grüße Sigrid
02.01.2024 - 14:45DROPS Design answered:
Liebe Sigrid, das eine Band ist an der "Spitze" vom rechten Vorderteil und wird zusammen mit einem Band an der Aussenseite an der linken Seite zusammen zugebunden; und das andere Band an der Spitze vom linken Vorderteil wird mit einem Band an der Innenseite an der rechten Seite zusammen zugebunden. Viel Spaß beim stricken!
03.01.2024 - 08:09Carla wrote:
Cosa si intende con la descrizione : Lavorare 1 ferro diritto dal rovescio del lavoro. ? Grazie
20.07.2023 - 19:53DROPS Design answered:
Buonasera Carla, deve seguire le indicazioni: il lavoro in piano ha un diritto e un rovescio del lavoro. In questo caso deve lavorare un ferro con tutte le maglie a diritto sul rovescio del lavoro. Buon lavoro!
20.07.2023 - 20:55Daisy wrote:
Klopt het dat de voorpanden aan de onderrand (deels) aan elkaar worden gehaakt? Dus dat de trappelzak niet in zijn geheel opengeklapt kan worden?
30.06.2023 - 17:13DROPS Design answered:
Dag Daisy,
Nee de voorpanden worden niet aan elkaar gehaakt, je haakt vanaf één onderkant van een voorpand, dan naar boven, via de hals weer naar beneden over het andere voorpand. Los daarvan wordt langs de onderste flap ook een rand gehaakt. Deze onderste flap vouw je naar boven om vast te knopen.
03.07.2023 - 21:10Michaela wrote:
Guten Tag, ich würde sehr gern diesen Strampelsack stricken, habe auch schon die Anleitung und alle Kommentare überflogen, aber wollte nochmal ganz sicher gehen: der Sack ist unten geschlossen und die Überschlagkante und die Knöpfe sind lediglich Deko, (oder kann man den Sack hinterher komplett, also auch unten öffnen)? Vielen Dank für ihre Antwort und die vielen schönen Anleitungen!
18.01.2023 - 12:37DROPS Design answered:
Liebe Michaela, also nicht genau, es sind doch Knopflöcher am Ende Rückenteil, dann wird dieses Teil über die Vorderteil gefaltet und die Knöpfe nähen Sie auf beiden Vorderteilen (siehe letztes Foto). Viel Spaß beim stricken!
18.01.2023 - 17:02Zuzana wrote:
Ďakujem za pekný návod. Ak to niekomu pomôže, pri veľkosti 6/9 som spotrebovala o dve klbká viac ako je uvedené.
16.12.2022 - 19:42Cecilia wrote:
No he tenido suficiente lana, 300, para la talla 6/9. Me faltan hacer 15 cm y voy a tener que hacerlo con la lana blanca del reborde, ya que en los sitios donde compro la lana, está agotada 😱😱😱😱
14.02.2022 - 22:50Joon wrote:
Hallo , ich frage mich - wie schaut der Schlafsack unter dem Umschlag aus ? Werden die beiden Vorderteile mit dem Rückenteil zusammengenäht am unteren Ende und der Umschlag kaschiert nur die Naht oder ist das untere Ende offen und wird nur mit dem Umschlag verschlossen ? Liebe Grüße Joon
18.09.2021 - 14:40DROPS Design answered:
Liebe Joon, die beiden Vorteile werden zusammen durch die Kante gehäkelt, dh: ... den Rand unten an den Vorderteilen häkeln, dabei dort, wo sich die beiden Vorderteile überlappen, durch beide Schichten häkeln. Viel Spaß beim stricken!
24.11.2021 - 12:14Hana wrote:
Liebes Drops Team, danke für Ihre Antwort von heute. Sie stimmt rein rechnerisch. Die Bemaßung auf Ihrer Zeichnung gibt bei Größe 68/74 für die Mittellinie 28 cm an, untere Linie 34 cm. Die Proportionen sehen anders aus. Die Maße für das rechte Vorderteil Mitte 22cm, unten 25 cm scheinen zu schmal zu sein oder täuscht die Zeichnung? Danke nochmals und viele Grüße
09.09.2021 - 15:43DROPS Design answered:
Liebe Hana, die Maßen in der Skizze sind für das Rückenteil - hier lesen Sie, wie die Arbeit gemessen wird. Größe 68/74 ist die 4. Größe - am Ende (unten) vom Rückenteil haben Sie 84 M (-2 Randmaschen für die Naht) sind ca 34 cm = wie unter in der Sizze. Viel Spaß beim stricken!
09.09.2021 - 17:22