Hint of Heather |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa og húfa úr DROPS Nord. Peysa prjónuð ofan frá og niður með hringlaga berustykki, garðaprjóni og mosaik mynstri. Stærð S - XXXL. Húfa prjónuð neðan frá og upp í garðaprjóni, mosaik mynstri og opi fyrir tagl.
DROPS 197-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MÆLING: Vegna garðaprjóns er stykkinu haldið uppi þegar öll mál eru tekin til að koma í veg fyrir að stykkið verði of langt þegar það er mátað. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Öll útaukning er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 113 lykkjur), mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermum): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-8-8-8½ cm millibili. MOSAIK MYNSTUR PEYSA: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 og sjá útskýringu á aðferð að neðan. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Hver umferð í mynsturteikningu jafngildir 2 umferð. Þ.e.a.s. frá réttu er mynsturteikning prjónuð frá hægri til vinstri og frá röngu er sama umferð prjónuð frá vinstri til hægri. Í öllum umferðum frá réttu er þræðinum haldið aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Í öllum umferðum frá röngu er þræðinum haldið framan við stykkið (þ.e.a.s. að þér og ennþá frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Passið uppá að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Til þess að fá betri yfirsýn yfir mynstur er hægt að setja prjónamerki á milli hverra mynstureininga með A.1A/A.2A. A.X/A.Y = hjálpar rúða – þessi rúða er ekki prjónuð, en sýnir hvernig á að prjóna mynsturrönd (sjá útskýringu aðeins neðar). A.1A/A.2A = 1 mynstureining A.1B/A.2B = síðasta lykkja á undan kanti að framan, þessi lykkja gerir það að mynstrið byrjar og endar alveg eins innan við kant að framan í hvorri hlið (það á að prjóna lykkjuna) Í þeim umferðum sem eru alveg einlitar í mynsturteikningu eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að lyfta lykkjum af. Í mynsturrönd í A.1 sem er með auða rúðu í A.X (litur A), eiga allar lykkjur með lit í A í A.1/A.1B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit C er lyft af prjóni. Í hinum mynsturröðum sem hafa auða rúðu eða rúðu með stjörnu í A.3Y (litur A eða C), eiga allar lykkjur með lit A eða C í A.2A/A.2B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit B er lyft af prjóni. Í hverri mynsturrönd sem hafa svarta rúðu í A.Y (litur B), eiga allar lykkjur með lit B í A.2A/A.2B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit A eða C er lyft af prjóni. MOSAIK MYNSTUR HÚFA: Sjá mynsturteikningu A.3 og sjá útskýringu á aðferð að neðan. Hver umferð í mynsturteikningu jafngildir 2 umferð. Þ.e.a.s. frá réttu er mynsturteikning prjónuð frá hægri til vinstri og frá röngu er sama umferð prjónuð frá vinstri til hægri. Í öllum umferðum frá réttu er þræðinum haldið aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Í öllum umferðum frá röngu er þræðinum haldið framan við stykkið (þ.e.a.s. að þér og ennþá frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Passið uppá að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Til þess að fá betri yfirsýn yfir mynstur er hægt að setja prjónamerki á milli hverra mynstureininga með A.3B. A.3A = byrjunar lykkja frá réttu og enda lykkja frá röngu (það á að prjóna lykkjuna) A.3B = 1 mynstureining A.3C = enda lykkja frá réttu og byrjunar lykkja frá röngu (það á að prjóna lykkjuna) Í þeim umferðum sem eru alveg einlitar í mynsturteikningu eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að lyfta lykkjum af. Í fyrstu mynsturrönd í A.3 sem er með auða rúðu í A.3A og A.3C (litur A- umferð er merkt með stjörnu í A.3A), eiga allar lykkjur með lit A að prjónast slétt og allar lykkjur með lit C er lyft af prjóni. Í hinum mynsturröðum sem hafa auða rúðu eða rúðu með stjörnu í A.3A og A.3C (litur A eða C), eiga allar lykkjur með lit A eða C að prjónast slétt og allar lykkjur með lit B er lyft af prjóni. Í hverri mynsturrönd sem hafa svarta rúðu í A.3A og A.3C (litur B), eiga allar lykkjur með lit B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit A eða C er lyft af prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Í berustykki er prjónað mosaik mynstur. Það er mikilvægt að fylgja mynsturteikningu vandlega. Allt litamynstrið er prjónað í garðaprjóni, en ekki er prjónað mynstur í venjulegum lykkjum í garðaprjóni. Litamynstur næst með því að lyfta lykkjum af prjóni. Lesið alla útskýringuna með mosaik mynstri áður en byrjað er að prjóna! Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður og saumaðar saman í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 113-116-122-128-131-137 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 3 cm frá uppfitjunarkanti – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 143-149-155-161-167-173 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið MOSAIK MYNSTUR PEYSA – sjá útskýringu að ofan, þ.e.a.s. sjá rúðu í A.X (rúðan er einungis til útskýringar á umferð og er ekki prjónuð), prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 22-23-24-25-26-27 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir að 1 röð í mynsturteikningu = 2 umferðir og að kantur að framan er prjónaður með grunnlit í mynsturröð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri röð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1. Í röð merktri með ör-1 er aukið út um 48-48-48-54-54-60 lykkjur jafnt yfir = 191-197-203-215-221-233 lykkjur (nú er pláss fyrir 30-31-32-34-35-37 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum). Í röð merktri með ör-2 er aukið út um 36-42-48-54-60-60 lykkjur jafnt yfir = 227-239-251-269-281-293 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-38-40-43-45-47 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum). Þegar A.1A hefur verið prjónað til loka er prjónað A.2 alveg eins, þ.e.a.s. fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sjá rúðu í A.Y (rúðan er einungis til útskýringar á umferð og er ekki prjónuð), prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 36-38-40-43-45-47 mynstureiningar A.2A með 6 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. JAFNFRAMT í hverri röð merktri með ör í A.2A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Í röð merktri með ör-3 er aukið út um 42-42-48-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 269-281-299-317-329-341 lykkjur (nú er pláss fyrir 43-45-48-51-53-55 mynstureiningar A.2A með 6 lykkjum). Í röð merktri með ör-4 er aukið út um 30-42-48-42-42-48 lykkjur jafnt yfir = 299-323-347-359-371-389 lykkjur (nú er pláss fyrir 48-52-56-58-60-63 mynstureiningar A.2A með 6 lykkjum). Í röð merktri með ör-5 er aukið út um 24-32-40-42-42-48 lykkjur jafnt yfir = 323-355-387-401-413-437 lykkjur (nú er pláss fyrir 78-86-94-65-67-71 mynstureiningar A.2A með 4-4-4-6-6-6 lykkjum). Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L. Í röð merktri með ör-6 (á einungis við um stærð XL, XXL og XXXL) aukið út um 18-34-38 lykkjur jafnt yfir (nú er pláss fyrir 102-109-116 mynstureiningar A.2A með 4 lykkjum) = 419-447-475 lykkjur í umferð í stærð XL, XXL og XXXL. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með perlugrár þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan – sjá MÆLING, en stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 52-57-61-66-72-78 lykkjur slétt (= framstyki), setjið næstu 63-69-77-83-85-87 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 93-103-111-121-133-145 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 63-69-77-83-85-87 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 52-57-61-66-72-78 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 213-233-253-273-301-329 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 56-61-66-71-78-85 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 101-111-121-131-145-159 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu). Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu – munið eftir MÆLING, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 225-245-265-285-313-341 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Prjónið 2 umferðir garðaprjón þar sem aukið er út um 11-12-13-14-16-18 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 236-257-278-299-329-359 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan kant þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt * , prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til sjálfur kanturinn mælist 3 cm (peysan mælist ca 36 cm frá skiptingu í öllum stærðum). Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu (skiptið e.t.v. yfir í hálfu númeri grófari prjóna þegar fellt er af til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur). Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Byrjið frá réttu með hringprjón 3,5 með litnum perlugrár, mitt á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki undir ermi, prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-4-5-5-6-7 lykkjum, prjónið slétt yfir 63-69-77-83-85-87 lykkjur af þræði og prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja og eina af þeim 4-4-5-5-6-7 lykkjum sem eftir eru undir ermi = 71-77-87-93-97-101 lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka frá miðju undir ermi. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu – munið eftir MÆLING, fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 0-0-3-7-9-13 sinnum og síðan með 2 cm millibili alls 3-2-15-12-11-7 sinnum. Fækkið síðan alls 8-12-0-0-0-0 sinnum með 4-2½-0-0-0-0 cm millibili = 49-49-51-55-57-61 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 39-38-36-34-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 2 umferðir garðaprjón þar sem fækkað er 1-1-0-1-0-1 lykkja í fyrstu umferð = 48-48-51-54-57-60 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFEÐR 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðna og endið með 1 lykkju slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kanturinn sjálfur mælist 3 cm (ermin mælist ca 42-41-39-37-36-34 cm frá skiptingu). Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum (skiptið e.t.v. yfir í hálfu númeri grófari prjóna þegar fellt er af til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur). Ermin mælist ca 43-42-40-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma frá skiptingu undir ermi og út – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Saumið tölur í vinstri kant að framan. ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Fyrst er prjónaður kantur neðst. Síðan er prjónað mosaik mynstur. Mikilvægt er að fylgja mynsturteikningu vel. Allt litamynstrið er prjónað í garðaprjóni, en ekki er prjónað mynstur í venjulegum lykkjum í garðaprjóni. Litamynstur næst með því að lyfta lykkjum af prjóni eins og útskýrt er að ofan. Lesið alla útskýringuna með mosaik mynstri áður en byrjað er að prjóna! Að lokum er prjónaður kantur efst á húfunni áður en stykkið er saumað saman við miðju að aftan. Húfan er opin efst fyrir tagl. HÚFA: Fitjið upp 110-116-122 lykkjur á hringprjón 3 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 lykkju slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 2-2-3 cm frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið MOSAIK MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. A.3A er prjónað yfir fyrstu lykkju, A.3B er endurtekið þar til 1 lykkja er eftir á prjóni (= 18-19-20 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.3C yfir síðustu lykkju. Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir 1 umferð í mynsturteikningu = 2 umferðir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.3B er fækkað jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA. Í umferð merktri með ör-1 er fækkað um 12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 98-106-110 lykkjur í umferð (nú er pláss fyrir 24-26-27 mynstureiningar með 4 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2 er fækkað um 24-26-24 lykkjur jafnt yfir = 74-80-86 lykkjur í umferð. A.3 hefur nú verið prjónað til loka. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur með perlugrár þar til stykkið mælist 15-16-17 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðin og endið með 1 lykkju slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til prjónaðar hafa verið jafn margar umferðir í kanti neðan á húfu, þ.e.a.s. ca 2-2-3 cm. Prjónið síðan 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar JAFNFRAMT er fækkað um 24-26-28 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 50-54-58 lykkjur. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 18-19-21 cm ofan frá og niður. FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Anjo wrote:
Looking at the photo, the number of ridges in the button band next to the mosaic pattern is less than expected. This evens out the tighter row tension of the slipped stitch rows and is correct. To do this, you slip the button band stitches on the rows where the colour to be slipped is the same as the colour of the button band, and knit the button band stitches on rows where the other colour is slipped. The slipped colour is always left behind with no need to carry the 2nd colour. It works!
17.11.2022 - 10:30Anjo wrote:
I understand how to knit the mosaic pattern for the Hint of Heather jacket, but cannot work out how to get the right colour for the button bands without joining on an extra ball of yarn. Because one colour is always left behind at the beginning of each pair of rows, this results in stripes at each end rather than the block of colour as in the photo. How can this be achieved?
02.11.2022 - 17:53DROPS Design answered:
Hi Anjo, You carry the second strand with you, back and forth on each set of 2 rows (see Mosaic Pattern in Explanations at the top of the pattern). You then use the background colour for the bands. Happy knitting!
03.11.2022 - 07:00Camilla Aarseth wrote:
Jeg forstår ikke hva jeg gjør med den tråden som jeg ikke strikker med. På filmen ligger den igjen på egne siden, men jeg må jo ha den til stolpen på motsatt side. ? Jeg forstår ikke mosaikk mønster kanskje,? Har sett på filmen flere ganger.
14.10.2020 - 21:41DROPS Design answered:
Hei Camilla. Prøv å se videoen til luen til denne jakken, kanskje det vil være lettere å forstå. "Hvordan strikke mosaikkmønster til luen i DROPS 197-19" mvh DROPS design
19.10.2020 - 10:56Cathy wrote:
Bonjour, Peut on tricoter le tricot mosaïque sur des aiguilles droite ? Bien à vous
02.01.2020 - 14:47DROPS Design answered:
Bonjour Cathy, tout à fait, il sera toutefois plus facile d'utiliser une aiguille circulaire car les mailles seront moins serrées. Bon tricot!
02.01.2020 - 16:15Hourdebaigt wrote:
Bonjour. Peut on tricoter des poches invisibles sur un top down? Quelle serait la technique? Merci
11.08.2019 - 17:54DROPS Design answered:
Bonjour Mme Houdebaigt, cette vidéo montre comment faire une poche dans un modèle top down, sur la base d'un modèle différent. Il vous faudra probablement faire quelques ajustements en fonction du modèle tricoté. Bon tricot!
12.08.2019 - 08:31Lucie Hardy wrote:
Comment faire suivre la 2e laine sur le rang envers du motif jaquard au point mousse ?
05.12.2018 - 15:44DROPS Design answered:
Bonjour Mme Hardy, on tricote toujours 1 couleur par rang, et donc la même couleur au rang sur l'envers qu'au rang sur l'endroit (pas comme du jacquard) - les autres mailles sont seulement glissées. Vous pouvez trouver ici la vidéo de cette technique. Bon tricot!
05.12.2018 - 15:54