Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= grár | |
= natur | |
= rauður | |
= prjónstefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Shinny Upatree |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónaðar buxur fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 6 mán – 6 ára.
DROPS Children 32-16 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 4,15. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um innan á skálm): Byrjið 2 lykkjur á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 lykkjur slétt saman, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er prjónað belti með líningu og mynstri. Stykkinu er síðan deilt við hvora skálm sem er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Prjónað er stroff með mynstri og líningu neðst niðri á hvorri skálm. Axlaböndin eru prjónuð fram og til baka (frá hlið) og saumuð á í lokin. LÍNING (á belti): Fitjið upp 108-120 (132-144-156) lykkjur á hringprjón 3 með grár. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjurnar (uppábrot). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BELTI: Prjónið síðan A.1 (= 12 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 9-10 (11-12-13) sinnum á breidd). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist beltið ca 11 cm og stykkið mælist ca 22 cm (meðtalin líning). BUXUR: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Stykkið er prjónað áfram í sléttprjóni með grár. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 26-24 (22-20-16) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 134-144 (154-164-172) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Nú er prjónuð upphækkun aftan á buxum til að þær passi betur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þannig: Byrjið við miðju að aftan og prjónið 6-7 (7-8-8) lykkjur slétt, snúið stykkinu (til að koma í veg fyrir göt takið 1. lykkju af prjóni óprjónaða þegar prjónað er til baka og herðið aðeins á þræði). Prjónið 12-14 (14-16-16) lykkjur brugðið, snúið stykkinu. Prjónið 18-21 (21-24-24) lykkjur slétt, snúið stykkinu. Prjónið 24-28 (28-32-32) lykkjur brugðið, snúið stykkinu. Haldið svona áfram með því að prjóna 6-7 (7-8-8) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við 6 sinnum til viðbótar (= alls 10 stuttar umferðir). Haldið síðan áfram í sléttprjóni hringinn yfir allar lykkjur. ÚTAUKNINGAR: Þegar stykkið mælist 10-13 (18-20-22) cm frá belti (mælt við miðju að framan, eru nú ca 5 cm þar til buxurnar skiptast fyrir skálmar), setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 67-72 (77-82-86) lykkjur (merkir miðju að framan og miðju aftan á buxum). Aukið síðan út um 1 lykkju hvoru megin við þessi prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8 sinnum = 166-176 (186-196-204) lykkjur. Á eftir síðustu útaukning mælist stykkið ca 15-18 (23-25-27) cm frá belti (mælt við miðju að framan). Stykkið mælist alls 37-40 (45-47-49) cm (meðtalin líning). Nú eru felldar af 6 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Hvor skálm er nú prjónuð til loka fyrir sig. SKÁLM: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið við miðju að aftan, prjónið slétt yfir fyrstu 77-82 (87-92-96) lykkjur og setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið sléttprjón hringinn. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= innan á skálm). Þegar skálmin mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í 4 minnstu stærðunum (þ.e.a.s. ekki er lykkjum fækkað í stærð 5/6 ára) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-1 (3-2-0) sinnum = 73-80 (81-88-96) lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1-0 (1-0-0) lykkjur = 72-80 (80-88-96) lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-6 (9-10-14) cm frá skiptingu, fækkið lykkjum í næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 54-60 (60-66-72) lykkjur. Prjónið síðan A.2 (= 6 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 9-10 (10-11-12) sinnum á breidd). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist skálmin ca 10-12 (15-16-20) cm frá skiptingu. LÍNING (neðri kantur): Prjónið síðan líningu með grár (líningin er síðar brotin upp og saumuð að skálm) þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur (= uppábrot). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan líningu þannig: Prjónið sléttprjón hringinn (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn). Fellið af þegar líningin mælist 6 cm frá uppábroti. Prjónið hina skálmina alveg eins. FRÁGANGUR: Brjótið uppá kant fyrir saum efst á buxum niður að röngu að belti og saumið við buxurnar með grár, það á að sauma að umferð prjónuð með grár á belti. Ef þetta verður of stíft eða of laust er hægt að jafna þetta til (saumið með saman lit og í umferð með líningu sem er saumuð að belti). Gerið saman á neðri kanti á báðum skálmun. AXLABÖND: Axlaböndin mælast ca 27-28 (30-32-35) cm á lengdina þegar þau hafa verið prjónuð til loka, það eru reiknaðir auka ca 5 cm í hvorri hlið, þannig að hægt er að jafna axlaböndin til eftir því sem barnið vex. Fitjaðu e.t.v. upp fleiri/færri lykkjur ef þú vilt hafa böndin lengri eða styttri (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 2). Fitjið upp 66-70 (74-78-86) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með grár. Axlaböndin eru prjónuð fram og til baka í sléttprjóni. Prjónið 6 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu er prjónuð 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið (kantlykkjur eru prjónaðar í sama lit og fyrsta/síðasta lykkja í A.3, fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið uppábrot frá réttu með grár þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið ca 7 umferðir með grár (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn), brjótið niður kantinn og passið uppá að líningin herði ekki á axlaböndum, prjónið e.t.v. fleiri umferðir. Fellið af. Saumið uppfitjunarkantinn saman við affellingarkantinn í ystu lykkjubogana. Prjónið annað axlaband til viðbótar. FRÁGANGUR: Saumið axlaböndin í líninguna efst (þ.e.a.s. frá röngu við belti) með fínu spori ca 5 cm niður á hvorri hlið, með ca 8-8 (9-10-10) cm bil á milli banda við miðju að framan og við miðju að aftan. Saumið 6 lykkjurnar sem felldar voru af á milli skálma, að hverri annarri. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (5)
Marianne Lindahl wrote:
Når det skal felles til ben, skal det felles 3 masker på hver side av midt foran og bak (totalt 12m) på en omgang? Eller skal det felles over tre omganger?
10.05.2022 - 21:46DROPS Design answered:
Hej Marianne, maskerne skal felles på en gang og så fortsætter du med benene :)
11.05.2022 - 08:05Salet Claire Marie wrote:
Bonjour, une fois que les augmentations du pantalon sont faites, comment doit on faire les diminutions? 6 mailles devant et 6 dos? Sur un seul tour? Merci de votre retour Claire marie
02.02.2021 - 19:09DROPS Design answered:
Bonjour Mme Salet, il faut en fait non pas diminue mais rabattre ces 6 mailles , ce sont les mailles de l'entrejambe qui seront ensuite assemblées entre elles (rabattez les 3 mailles avant le marqueur et les 3 mailles après le marqueur au milieu devant et au milieu dos). Bon tricot!
03.02.2021 - 08:32Barbara wrote:
Hallo, danke für die Strickanleitung. Leider sind die Angaben für den Wollverbrauch nicht exakt. Bei Größe 80/86 habe ich lediglich 20g der weißen Wolle gebraucht, es sind aber 100g angegeben. Liebe Grüße
18.12.2020 - 11:47Monica wrote:
Hvorfor er belegget til beltet 1 cm kortere enn beltet? Monteringen blir jo da så klumpete...
18.04.2019 - 16:58DROPS Design answered:
Hei Monica. Ja belegget strikkes i 10 cm, og er derfor ikke like langt som beltet. Det er selvfølgelig ikke noe i veien for at du strikker belegget lenger om du syntes dette blir penere. God fornøyelse
06.05.2019 - 10:17Dorothee wrote:
Die Anleitung ist ungenau. Erst hat die Hose ab Beleg eine Länge von 18cm, und dann sibd es insgesamt plötzlich 40cm. Aber zwischen 18 und 40 wird nicht angegeben, dass weiter gestrickt werden soll. Das sollte geändert werden!!!!! Es gibt auch etwas ungeübte Strickerinnen, die nicht so fit sind. Ich gehöre auch dazu und mur fehlt jetzt ein Stück! Schade!!!
15.10.2018 - 09:29DROPS Design answered:
Liebe Dorothee, die Maßen stimmen: in der 2. Größe stricken Sie 10 cm Belegg + die Bruchkante + 11 cm A.1 (= 22 cm), dann stricken Sie die Hose = 13 cm + 5 cm (Zunahmen) (= 18 cm). Die gesamte Arbeit misst dann 22+18 cm = 40 cm von der Anschlagskante). Viel Spaß beim stricken!
15.10.2018 - 11:10