Selvik Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-19 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR -1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2: Mikilvægt er að prjónfestan haldist einnig á hæðina, annars kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of þröngur! ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Öll útaukning/úrtaka er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 27) = 3,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum eru prjónaðar ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan. Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið ca 7-8-8-8-9-9 cm frá hnappagati í kanti í hálsi. Stillið staðsetninguna af þannig að fellt er af í brugðnum einingunum (séð frá réttu). 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju framan, ofan frá og niður. Þegar kantur í hálsi hefur verið prjónaður til loka eru kantlykkjur að framan felldar af og prjónað er síðan með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur meðfram miðju að framan fyrir kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-120-124-132-136-144 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum bleikur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kanturinn í hálsmáli mælist ca 1½ cm fellið af fyrir 1 hnappagati í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Haldið áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur (= kantur að framan), prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjur (= kantur að framan) og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina = 104-108-112-120-124-132 lykkjur í umferð meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1a þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út 27-31-35-35-39-47 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 131-139-147-155-163-179 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – nú er pláss fyrir 32-34-36-38-40-44 mynstureiningar með A.1A með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA (það hefur nú þegar verið aukið út við ör-1). Í umferð með ör-2 aukið út um 32-32-32-32-40-40 lykkjur jafnt yfir = 163-171-179-187-203-219 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-21-22-23-25-27 mynstureiningar með A.1A með 8 lykkjum). Í umferð með ör-3 er aukið út um 32-40-40-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 195-211-219-227-243-267 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-27-28-30-33 mynstureiningar með A.1A með 8 lykkjum). Í umferð með ör-4 er aukið út um 32-32-40-48-48-40 lykkjur jafnt yfir = 227-243-259-275-291-307 lykkjur (nú er pláss fyrir 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með A.1A með 16 lykkjum). Í umferð með ör-5 er aukið út um 32-32-32-32-40-48 lykkjur jafnt yfir (nú er pláss fyrir 32-34-36-38-41-44 mynstureiningar með A.1A með 8 lykkjum) = 259-275-291-307-331-355 lykkjur. Í umferð með ör-6 er aukið út um 32-32-32-24-32-32 lykkjur jafnt yfir (nú er pláss fyrir 36-38-40-41-45-48 mynstureiningar með A.1A með 8 lykkjum) = 291-307-323-331-363-387 lykkjur. Útaukningar hafa nú verið gerðar til loka í stærð S, M og L. Í umferð með ör-7 (á einungis við um stærð XL, XXL og XXXL) er aukið út um 24-24-32 lykkjur jafnt yfir = 291-307-323-355-387-419 lykkjur í umferð. Útaukningar hafa nú verið gerðar til loka í stærð XL, XXL og XXXL. Prjónið síðan áfram þar til síðasta umferð í A.1 er eftir. Stykkið mælist nú ca 22-24-26-28-30-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 40-44-46-50-56-64 lykkjur brugðið eins og síðasta umferð í mynsturteikningu sýnir (= framstykki), setjið næstu 64-64-68-76-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 81-89-93-101-113-129 lykkjur brugðið eins og síðasta umferð í mynsturteikningu sýnir (= bakstykki), setjið næstu 64-64-68-76-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-44-46-50-56-64 lykkjur brugðið eins og síðasta umferð í mynsturteikningu sýnir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 179-195-211-227-259-291 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: STÆRÐ S, M, XL og XXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 22-24-28-32 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (= 11-12-14-16 mynstureiningar með 16 lykkjum), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ L og XXXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (= 13-18 mynstureiningar með 16 lykkjum), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram með A.3 eins og útskýrt er að ofan. A.3 er endurtekið á hæðina eins langt og hægt er áður en stroffið byrjar. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.3A er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 195-211-227-243-275-307 lykkjur (þessi útaukning er einungis gerð í fyrsta skipti sem A.3 er prjónað á hæðina). Haldið áfram með mynstur (nú er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri á breiddina með A.3A). Prjónið þar til stykkið mælist ca 29-29-29-29-29-30 cm frá skiptingu fyrir ermar – endið fallega eftir heilan mynsturbekk. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með bleikur þar sem aukið er út um 41-41-45-49-57-61 lykkjur jafnt yfir = 236-252-272-292-332-368 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 8. hverja lykkju jafnframt því að fella af – uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið de 64-64-68-76-80-80 lykkjurnar af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-72-80-88-96-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur undir ermi, þ.e.a.s. setjið prjónamerki í fyrstu lykkju eftir miðju, teljið 35-35-39-43-47-47 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= miðju lykkja). Nú eru 35-35-39-43-47-47 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkin undir ermi eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum og prjónamerki mitt ofan á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið byrjar. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið síðustu umferð í A.1A þannig að A.1 endar alveg eins og á fram- og bakstykki. MYNSTUR: Í stærð S, M, XL, XXL prjónið nú A.2A hringinn (= 9-9-11-12 mynstureiningar með 8 lykkjum), teljið nú út frá miðju – miðjulykkjan í A.2A á að passa við lykkju með prjónamerki í mitt ofan á ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3A alveg eins. Í stærð L og XXXL er prjónað A.3A strax eftir að síðasta umferð í A.1A hefur verið prjónuð og er talin út frá miðjulykkju alveg eins og í öðrum stærðum. A.3 er endurtekið á hæðina þar til stykkið mælist ca 29-28-26-23-22-21 cm frá skiptingu – endið fallega eftir heilan mynsturbekk. Prjónið síðan A.4A hringinn alveg eins. ÚRTAKA: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 14-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-56-56 lykkjur. Þegar ermin mælist ca 39-38-36-34-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt með bleikur þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 48-52-52-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af – uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-42-40-38-37-36 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 3 með litnum bleikur, þ.e.a.s. byrjið beint undir kanti í hálsmáli og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið upp ca 120-124-128-136-140-144 lykkjur (þetta jafngildir ca 25 lykkjum á hverja 10 cm meðfram kanti – lykkjufjöldi á að vera deilanlegur með 4). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2½-3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið kant að framan alveg eins meðfram hægra framstykki, en byrjið neðst niðri á framstykki og haldið áfram upp að kanti í hálsmáli. Þegar kantur að framan mælist ca 1-1½ cm fellið af fyrir 7 HNAPPAGAT jafnt yfir – lesið útskýring að ofan. Haldið síðan áfram með kant að framan þar til hann mælist í sömu lengd og vinstri kantur að framan. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið kanta að framan við kant í hálsmáli efst með sauminn inn að röngu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Uta wrote:
Hallo, sind in dem Diagramm A.1A die Hin- und Rückrunden enthalten oder nur die Hinrunde? Ich hoffe, ich habe mich halbwegs verständlich ausgedrückt. Vielen Dank im Voraus. Lieben Gruß Uta
28.12.2023 - 22:51DROPS Design answered:
Liebe Uta, alle Reihen sind im Diagram gezeichnet, die Hinreihen lesen Sie rechts nach links und die Rückreihen links nach rechts. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2024 - 09:49Marian B wrote:
Hallo bezig met patroon DROPS 196-19. Maat L. Begonnen bij de PAS.De eerste regel, Brei 1 kantsteek in ribbelsteek, na de meerdering heb ik 147 steken brei A.1B (= 1 steek) aan beide kanten 1 kantsteek. Daarna komt A1B niet meer voor in de beschrijving. Moet ik A1B alleen deze ene naald breien? op diagram wordt deze steek gewoon getoond. Het oneven aantal steken kan niet gedeeld worden door A1A en A1B samen. Ook niet zonder A1B.
27.10.2023 - 20:18DROPS Design answered:
Dag Marian,
Nee, A.1B moet je wel steeds breien als je verder gaat met A.1 en 1 kantsteek. (Staat inderdaad niet goed aangegeven.)
28.10.2023 - 10:14Emilie Toure wrote:
Hoe blijft merino extra fine in de was als ik de kleuren zwart/wit naast elkaar gebruik. Ik wil de Selvit Jacket breien.
26.10.2022 - 18:27DROPS Design answered:
Dag Emilie,
Als je je aan de wasvoorschriften houd kun je deze combinatie gewoon wassen zonder dat de kleuren in elkaar over lopen.
26.10.2022 - 19:40Alyce Estrem wrote:
I am working on the Selvik Jacket, DROPS/196/19. I am directed to work pattern A.1A but cannot find the chart in the instructions. I am making a L size and have reached the beginning of the sleeve. "Work the last row of A.1A so that A1 finishes in the same way as the body." I love your patterns and appreciate the fine work that goes into them. Thank you. Alyce Estrem (Yes, my last name is Norwegian.)
01.05.2022 - 22:43DROPS Design answered:
Hi Alyce, The diagrams and size chart are at the bottom of the pattern. Happy knitting!
02.05.2022 - 08:28Valerie wrote:
Bonjour, c est la 1ère fois que je tricote en circulaire et j’aurais besoin d un petit renseignement svp concernant la manche, est ce que le début du rang correspond au milieu des mailles relevées sous là manche ? Merci par avance pour votre aide. Cordialement
22.11.2021 - 08:13DROPS Design answered:
Bonjour Valérie, tout à fait, le début des tours quand on tricote les manches en rond se trouve au milieu des nouvelles mailles relevées dans les 8-12 ou 16 mailles sous la manche. Bon tricot!
22.11.2021 - 08:48Carina wrote:
Hola. Cuando una vuelta, por ejemplo la del derecho es con rosa, y la siguiente del revés blanco, se corta el hilo o cómo lo hacéis? Porque pasar todo el hilo por detrás, no lo veo Gracias
16.10.2021 - 18:25DROPS Design answered:
Hola Carina, al combinar los colores en la misma fila, se recomienda pasar el hilo por detrás. En el caso de trabajar filas con un solo color y cambiar de color en la siguiente fila, se recomienda trabajar con un ovillo de cada color a cada lado, para no tener que cortar.
17.10.2021 - 19:27Carina wrote:
Gracias por contestar, pero no decís en las instrucciones que si salen más puntos hay que usar un número de agujas mayor? Me dices que use un número menor, así es que no lo entiendo 🤔
09.09.2021 - 01:23DROPS Design answered:
Hola Carina. Según tu muestra, tienes pocos puntos en 10 cm, tienes menos de 21 (porque si tienes 21 puntos en 14 cm entonces tienes menos de los necesarios en 10 cm). Por lo tanto, tienes que usar agujas más pequeñas, tal y como se indica en la parte superior del patrón, para tener más puntos en los 10 cm.
10.09.2021 - 10:14Carina wrote:
Hola. Mi muestra de 21 puntos de ancho y 28 hileras de altura mide 14x14 cm, yo uso la talla XL, entonces en base a mi muestra qué hago, cojo la talla M o cómo tendría que hacerlo? Gracias por contestar y también por todos los patrones que ponéis a nuestra disposición. Un saludo
07.09.2021 - 21:03DROPS Design answered:
Hola Carina. Hay que calcular según 10 cm. Viendo tu muestra, los 10 cm contiene 15 puntos. Para trabajar el punto nórdico con este hilo es demasiado flojo. El dibujo va a quedar muy abierto. Te recomiendo cambiar de número a agujas más pequeñas e intentar acercarse lo máximo posible a la tensión del patrón.
08.09.2021 - 20:20Thyra Storm wrote:
Ik ben met dit patroon bezig, en ben nu bij het punt dat ik moet beginnen met A.2.A maar ik ben bezig met een maat L. Welk patroon moet ik dan aan houden? Ik zie voor maat M staan en voor XL. Maar geen L. Hopelijk kan iemand mij helpen
16.08.2021 - 22:02DROPS Design answered:
Dag Thyra,
A.2A wordt alleen gebreid voor maat S, M, XL, XXL en niet voor maat maat L en XXXL. Hiervoor brei je maat A.3A. Als je de hele paragraaf doorleest wordt het wel duidelijk.
17.08.2021 - 11:30DENISE MANNING wrote:
Hi I just started pattern number 196/9 and am stuck after the rib is there a video for this pattern please because am so confused I have just done the added stitches do I do a purl row or knit row thanks Denise manning
14.08.2021 - 16:24DROPS Design answered:
Dear Denise, you can find all the relevant videos linked at the bottom of the pattern. Happy stitching!
15.08.2021 - 23:35