Run Run Rudolph |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónaður galli fyrir börn með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 12 mán – 6 ára.
DROPS Children 32-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað með sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan): Allur kanturinn að framan er prjónaður með litnum ljós brúnum. Þ.e.a.s. notið 1 dokku af ljós brúnum í hvorn kant að framan þegar þess er þörf (þ.e.a.s. í umferð þar sem ljós brúnn er ekki hluti af mynstri). Skipt er um þráð á milli kants að framan og berustykkis (þetta er gert svona til þess að forðast að festa þræði út á kanti að framan). Þegar skipt er um þræði eru þræðirnir tvinnaðir saman með hverjum öðrum svo að lykkjurnar hangi saman. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (= 74 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 10,6. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert til skiptis á eftir ca 10. og 11. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat – ATH: Ekki er lykkjum fækkað/aukið út yfir kanta að framan). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi og innan á skálm): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu eftir 1½-2 cm í kanti á hálsmáli, síðan er fellt af fyrir næstu 4-5-6-6 hnappagötum með ca 8-8-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Einfaldara er að stilla lengd á ermum og skálmum ef stykkið er prjónað ofan frá og niður og því er gallinn prjónaður ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum ljós brúnn. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 7-5-4-1 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-83-88-95 lykkjur. Prjónið síðan upphækkun aftan í hnakka í sléttprjóni þannig (þetta er gert til að flíkin passi betur): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur í umferð, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur í annarri hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur í annarri hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur í umferð, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni – ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11-12-11-12 mynstureiningar með 6-6-7-7 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 187-203-220-239 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið með litnum ljós brúnn. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 7-7-10-7 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 194-210-230-246 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 13-14-15-16 cm mælt fyrir miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli). Nú skiptist stykkið þannig: Prjónið 29-31-34-36 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 52-56-62-66 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið þær 29-31-34-36 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki) = 122-130-142-150 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í 32-34-37-39 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 58-62-68-72 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 10-10-12-12 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-20-24-24 cm frá skiptingu = 130-138-150-158 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38 cm frá skiptingu, endið kant að framan við miðju að framan. Fellið af fyrstu 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 124-132-144-152 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur í 3 cm – stykkið mælist nú 32-34-38-41 cm frá handveg og 45-48-53-57 cm frá miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli). Nú skiptist stykkið fyrir skálmar. SKÁLM: Byrjið við miðju að framan, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn yfir fyrstu 62-66-72-76 lykkjur (þær 62-66-72-76 sem eftir eru hvíla nú á prjóninum). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= innanverðu á skálm). Þegar skálmin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur að innanverðu á skálm – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-4.-6.-7. hverri umferð alls 10-10-11-11 sinnum = 42-46-50-54 lykkjur. Þegar skálmin mælist 13-18-25-31 cm frá skiptingu, aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm eða að óskaðri lengd. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðnar auknar út til 3 lykkjur brugðnar = 65-70-75-80 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið lykkjur af hringprjóni á sokkaprjón 4 og prjónið hina skálmina á sama hátt. Allur gallinn mælist ca 71-79-93-103 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið lykkjur af öðrum þræðinum á sokkaprjón 4 og prjónið að takið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur (= mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn. Þegar ermin mælist 2-2-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-4.-4. hverri umferð alls 7-9-10-12 sinnum = 34-34-36-36 lykkjur. Þegar ermin mælist 10-12-15-18 cm frá skiptingu, aukið út um 6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm eða að óskaðri lengd. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 50-50-55-55 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. SNOPPA: Heklið með litnum rauður með heklunál 3 þannig: Heklið 4 loftlykkjur og 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, klippið frá og festið enda. Heklið 1 snoppu á hvert hreindýr (= 11-12-11-12 snoppur). Hnýtið snoppurnar á hvert hreindýr og festið enda. FRÁGANGUR: Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kant að framan og saumið niður með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Caroline wrote:
Hei. Lurte på om dere kunne kommen med Run Run Rudolph heldress i mindre størrelser? Feks 1-3 mnd og 3-6 mnd?
21.05.2024 - 15:17DROPS Design answered:
Hej Caroline, vi sætter det på ønskelisten og så kan det være du kan bruge maskeantallet fra DROPS Baby 20-23 så længe :)
23.05.2024 - 11:23Brigitte Keslich wrote:
Hallo, kann es sein, dass ein Fehler im Diagramm A1 12/18+2 in der zweiten Reihe ist. In der Reihe 1 wird 1 Masche pro Diagramm zugenommen. In Reihe sind es auf einmal 2 Maschen mehr. Gibt es hierzu eine Korrektur?
12.07.2022 - 21:54DROPS Design answered:
Liebe Brigitte, In der ersten Reihe sind 2 Zunahmen: eine nach der ersten Masche von A.1 und die andere am Ende des Rapports, nach der 6. Masche.
24.07.2022 - 20:10Anne wrote:
Hallo, ich will jetzt die Passe stricken. Muss ich mit A2 anfangen und danach A1 und A2 im Wechsel ?
12.10.2021 - 23:25DROPS Design answered:
Liebe Anne, die Passe stricken Sie so: 5 Blenden-Maschen krausrechts, wiederholen Sie jetzt Diagram A.1 bis 6 Maschen übrig sind (= je nach der Größe 11 oder 12 Rapporte à 6-7 Maschen), dann stricken Sie A.2 (= 1 Masche) und 5 BlendenMaschen kraus rechts. Bei den Rückreihen stricken Sie: A.2, dann A.1 wiederholen aber jetzt von links nach rechts lesen. Viel Spaß beim stricken!
13.10.2021 - 08:09Margaretha Olsson wrote:
Såg just var jag gjort fel!
26.02.2021 - 15:56Margaretha Olsson wrote:
Fastnar på mönstret A1 3/4 år. 4e varvet ser ut att vara en maska mer i rapporten än vad det blir med bara en ökning i rapporten på varv 3. Jag får inte ihop det.
26.02.2021 - 15:52DROPS Design answered:
Hej Margaretha. Du har 2 ökningar på varv 3 i diagram A.1. Du har ett omslag mellan maska nr 1 och 2 och ett omslag efter sista maskan i diagrammet. Mvh DROPS Design
01.03.2021 - 09:52Ginet DuPerron wrote:
Vraiment original et très chaud.
17.08.2020 - 20:07