Inner Circle |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður með norrænu mynstri úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónuð húfa með norrænu mynstri úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine.
DROPS 196-23 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Veldu mynstur fyrir þína stærð. Allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um marglitt mynstur): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. UPPHÆKKUN: Setjið einn merkiþráð í fyrstu lykkjuna í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka að byrjun á umferð. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 6,8. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna ca 6. og 7. hverja lykkju saman. Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 7. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-116-120-124-128-132 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós grágrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn beige. Prjónið nú stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkar um 16-19-19-20-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 92-97-101-104-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-32-36-39-42 lykkjur jafnt yfir = 112-119-133-140-147-154 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Til að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN. BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur A.1 (= 7 lykkjur) 16-17-19-20-21-22 mynstureiningar hringinn í umferð (byrjaðu í þinni stærð í mynsturteikningu) – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur í hring. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 288-306-342-360-378-396 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú 23-24-24-24-24-24 cm. Stærð S er nú lokið – haldið áfram með næsta kafla að neðan. Í stærð M, L, XL, XXL og XXXL er prjónað þannig: Stærð M, L og XL: Prjónið með sléttprjóni með beige þar til stykkið mælist 25-27-28 cm frá uppfitjunarkanti, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24-24 cm er aukið út um 14-6-20 lykkjur jafnt yfir = 320-348-380 lykkjur. Haldið síðan áfram með næsta kafla að neðan. Stærð XXL og XXXL: Prjónið með sléttprjóni með beige þar til stykkið mælist 30-32 cm frá uppfitjunarkanti, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24 cm er aukið út um 11-14 lykkjur jafnt yfir og þegar stykkið mælist 27-29 cm er aukið út um 11-14 lykkjur jafnt yfir = 400-424 lykkjur. Haldið síðan áfram með næsta kafla. ALLAR STÆRÐIR: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 42-46-50-56-60-65 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-100-112-120-130 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-46-50-56-60-65 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-220-244-264-288 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 92-100-110-122-132-144 lykkjur á milli prjónamerkja bæði á bakstykki og á framstykki. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist við ermar er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð (ca öðrum hverjum cm) alls 10 sinnum í hvorri hlið = 224-240-260-284-304-328 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-24-25-25-25 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 60-64-68-72-76-84 lykkjur jafnt yfir = 284-304-328-356-380-412 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4/sokkaprjóna og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist við ermar er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca 8.-6.-5.-4.-4.-4. hverri umferð alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-36-35-34-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 54-60-64-68-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-40-39-38-37-35 cm frá þar sem stykkið skiptist við ermar og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Það eru 2 mismunandi mynsturteikningar fyrir húfu. Ef þú vilt hafa mynstur með stóru tré er prjónað eftir mynsturteikningu A.2, ef þú vilt mynstur með litlu tré er prjónað eftir mynsturteikningu A.3. HÚFA: Fitjið upp 124 lykkjur á hringprjón 3 með litnum beige. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 108 lykkjur. Nú er prjónað mynstur A.2 eða a.3 – veldu mynsturteikningu fyrir stórt eða lítið tré (= 18 lykkjur) alls 6 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.2/A.3 hefur verið prjónað til loka eru 12 lykkjur á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjur á prjóni, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24 cm. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (62)
Christine wrote:
Bonjour. Je réalise le pull Drops 196-23, et je me demande pourquoi après les côtes 2/2 du col il faut faire des diminutions puis le rang juste après des augmentations ? Merci de votre réponse
21.03.2024 - 09:02DROPS Design answered:
Bonjour Christine, on procède ainsi pour mieux marquer le col qui sera ainsi plus joli. Bon tricot!
21.03.2024 - 16:08Barbora Masaříková wrote:
Dobrý den, mohu tento svetr plést z příze Drops Big Merino, pokud chci svetr teplejší? Pokud ano, navýší se spotřeba (gramáž?) vlny? Případně o kolik prosím? Moc děkuji za odpověď.
11.12.2023 - 22:18Yvette wrote:
Waarom wordt er in de 1 ste nld na het halsboord 20 st verdeeld geminderd en in de nld daarna 36 gemeerderd? Is alleen 16 st meerderen niet hetzelfde?
02.12.2023 - 10:11DROPS Design answered:
Dag Yvette,
Dit wordt gedaan om de halsboord elastischer te maken.
02.12.2023 - 17:41Gita Poulsen wrote:
Der er en fejl i opskriften, på den omgang hvor man sætter masker af til ærmer. De sidste 50 m bliver kaldt “venstre forstykke”, men det må jo være bagstykket indtil maskemarkør for arbejdets start. Ellers rigtig god og letlæselig opskrift. Mvh
25.11.2023 - 08:55Kerstin Andersson wrote:
Hur byter jag färg när det är mönster utan att det blir trassel mellan garnnystanen
31.08.2023 - 17:01DROPS Design answered:
Hej Kerstin, det löser du efter ett par varv :)
08.09.2023 - 15:23Stina Mikkelsen wrote:
Hvilken sværdhedsgrad har denne bluse ? Jeg har strikke et års tid - ialt 2 veste og to sweatere. Men endnu ikke med mønster....
27.07.2023 - 14:48DROPS Design answered:
Hei Stina. Da kan du fint prøve deg på denne :) Det vil du greie. Et tips: Bruk maskemarkører/ merketråd mellom hver rapport av diagrammet, så får du en bedre oversikt etter hver omgang og kan kontrollsjekke maskeantallet med de økningene du gjør i diagrammet. mvh DROPS Design
27.07.2023 - 14:52Nadia wrote:
Bonjour, je voudrais savoir si je peu détricoter mon col pour refaire sans la rehausse , car mon tricot est de travers . Merci
28.04.2023 - 20:14DROPS Design answered:
Bonjour Nadia, si vous préférez ne pas tricoter la rehausse, détricotez jusqu'au tour d'augmentations et passez à l'empiècement directement. Bon tricot!
02.05.2023 - 07:51Manon wrote:
196-23 COL (XL) - monter 124m \r\nBonjour - Quel est le but de diminuer 20 m ( = 104) , tricoter 1 tour pour ensuite immediatement aug de 36m au rang suivant (=140). ?\r\nEtape semble superflue sur 2 rangs consecutifs , pourquoi ne pas simplement passer de 124 a 140?\r\nMerci de clarifier svp.
19.03.2023 - 02:25DROPS Design answered:
Bonjour Manon, c'est un choix de la styliste pour que le col rende mieux. Bon tricot!
20.03.2023 - 09:38Bjørg-Ida Alexandersen wrote:
Strikker «Inner circle»i str. M. I oppskriften er det lagt inn en økning først på 40m på bolen fra ermhull og før vrangbord ytterligere 64m. Dette ble altfor mange masker, og genseren skrådde bare utover i en merkelig fasong. Resulterte i at alt måtte rekkes opp. Strikket på nytt uten økning. Nederst på ermet før vrangbord er det også lagt inn ei økning på 14 masker noe som gjør denne altfor vid! Har strikket flere av deres gensere, men ikke opplevd en så «rar» oppskrift.
18.03.2023 - 08:55Päivi wrote:
Ohjeen puserossa lisätään runsaasti silmukoita kainaloiden ja helman väliin, miksi? Onko puseron mallin tarkoitus olla vartalonmyötäinen? Suurimman koon mittakuvassa on 9 cm ero puolessa paidassa eli ympärysmitassa 18 cm ero.
16.03.2023 - 10:01DROPS Design answered:
Hei, silmukoita lisätään, jotta puserosta tulisi A-muotoinen. Eli puseron alaosa on yläosaa leveämpi.
20.03.2023 - 17:05