Daisy Delight Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-3 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) mínus kanta að framan (= 5 lykkjur á hvorri hlið á stykki = 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 21,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 21. hverja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með plóma og prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 8-8-8-9-9-10 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-16-18-18-20 lykkjur sléttprjón. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-27-27-30 lykkjur sléttprjón, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hin prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 HNAPPAGAT = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 7-7-7-8-8-8 næstu hnappagötum með ca 7 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 116-120-125-135-140-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum plóma. Prjónið 10 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, JAFNFRAMT er aukið út um 5-11-16-16-21-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 121-131-141-151-161-171 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka og þá verður berustykki aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN. Setjið 9-10-10-10-11-11 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 12-11-12-12-10-10 lykkjur, setjið hvert og eitt af næstu 8-9-9-9-10-10 prjónamerkjum eftir 12-12-13-14-14-15 lykkjur, nú eru 13-12-12-13-11-11 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað mynstur A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) – sjá LEIÐBEININGAR, með 5 kantlykkjum að framan með garðaprjóni á hvorri hlið, JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út hvoru megin við prjónamerkin þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÖR-1: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 139-151-161-171-183-193 lykkjur. ÖR-2: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 157-171-181-191-205-215 lykkjur. ÖR-3: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 175-191-201-211-227-237 lykkjur. ÖR-4: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 193-211-221-231-249-259 lykkjur. ÖR-5: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 211-231-241-251-271-281 lykkjur. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 11-12-13-14-15-16 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan. Takið prjónamerkin úr stykkinu. Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 (= 1 lykkja), A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 20-22-23-24-26-27 mynstureiningar með 10 lykkjum), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í næst síðustu umferð í A.2 og A.3 er aukið út um 10-11-12-14-11-11 lykkjur jafnt yfir = 301-330-345-361-386-400 lykkjur. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir fyrstu 50-54-56-60-65-69 lykkjur (= vinstra framstykki), 2. prjónamerki eftir næstu 55-62-66-66-68-67 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 91-98-101-109-120-128 lykkjur (= bakstykki), 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 55-62-66-66-68-67 lykkjur (= ermi). Nú eru 50-54-56-60-65-69 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (= hægra framstykki). Prjónið nú mynstur A.4 með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona í annarri hverri umferð alls 5-6-8-10-11-13 sinnum = 341-378-409-441-474-504 lykkjur. ATH: Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina 1 sinni er haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til allar útaukningar fyrir laskalínu hafa verið gerðar og stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 50-55-59-65-71-77 lykkjur í sléttprjóni (= hægra framstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 101-110-117-129-142-154 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 50-55-59-65-71-77 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= vinstra framstykki), 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 231-250-269-293-322-350 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 60-65-70-76-83-90 lykkjur inn frá hvorri hlið (nú eru 111-120-129-141-156-170 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið áfram með plóma, sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í ca öðrum hverjum cm alls 12 sinnum = 279-298-317-341-370-398 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 28 cm frá skiptingu er aukið út um 8-10-12-12-16-18 lykkjur = 287-308-329-353-386-416 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 2,5. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* fram og til baka í 2 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 65-74-82-86-90-93 lykkjur af öðrum þræðinum í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-84-94-98-104-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi og byrjið á umferð hér. Haldið áfram með plóma og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-6.-5.-4.-4.-3. hverri umferð alls 13-17-21-22-23-24 sinnum = 49-50-52-54-58-61 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-38-37-35-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-5-6-5-5 lykkjur jafnt yfir = 51-54-57-60-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið nú stroff * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn í 2 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Carina wrote:
Har trivts så bra i denna snygga stickade tröja, och när det blev dax för tvätt, så följde jag tvättråd till punkt och pricka. Men till min stora förvåning hade tröjan töjt sig något enormt under tvätten. Den blev så stor att den ej går att använda. Vågar inte sticka i detta garn igen om jag inte kan få hjälp, eller en vettig förklaring.
08.04.2024 - 15:11Helle Knudsen wrote:
Tusind tak for en skøn opskrift. Jeg er meget glad for det færdige resultat i variationen med grøn bund og rosa blomster. Og det er min voksne datter også, så jeg må i pindene igen 😊
24.05.2023 - 23:38Julie Hindle wrote:
Please can someone explain why this pattern is written in detail and the childs pattern is very vague? I have shared it with multiple knitting groups and no one appears to understand it. I would appreciate some help or guidance on doing the childs pattern please. I really don't want to disappoint my grandaughter. Thank you. Julie
14.03.2023 - 17:02DROPS Design answered:
Dear Mrs Hindle, sorry to hear you have troubles with the pattern for child, you are welcome to ask your question giving more info about the sections you don't understand, the size you are working etc... using the question form at the bottom of the pattern you are working on. Thanks for your comprehension.
15.03.2023 - 09:37MONBLANC wrote:
Bonjour J’ai une question : après la flèche 5 j’ai 231 mailles et a l’avant dernier rang de A2 et A3 je dois augmenter de 11 mailles = 242 et non 330. Ai-je oublié des augmentations ? Merci de votre réponse Cordialement Anne Marie
11.09.2022 - 15:08DROPS Design answered:
Cf réponse ci-dessous :)
12.09.2022 - 11:11MONBLANC wrote:
Bonjour J’ai un souci puisqu’a la flèche 5 en taille M j’ai 231 mailles et à l’avant dernier rang de A2 et A3 je dois faire 11 augmentations = 242. Or vous dites 330 mailles ! Ai-je oublié des augmentations ? Merci de votre aide Cordialement Anne Marie
11.09.2022 - 15:04DROPS Design answered:
Bonjour Mme Monblanc, après la flèche 5 vous avez 231 mailles, mais en tricotant A.3 vous devez augmenter (on passe de 10 à 14 m dans chaque A.3), autrement dit vous aurez: 5 m + 1 m de A.2 + 22 x 14 m de A.3 (= 308) + 5 m = 319 m + 11 augmentations à l'avant-dernier rang = 330 m. Bon tricot!
12.09.2022 - 11:11Hanne wrote:
Strikker str. s Har strikket A1 ( 211 m ) nu strikkes A2 og A3 - A2 er 1 maske og A3 er over 10 m, der er 2 omslag på 1. pind, det er 12 m 20 gange. Det kan ikke give 301 m. Hvad menes med næst sidste pind, hvor der tages 10 m ud, jeg er jo lige startet? Jeg forstår det ikke, håber du kan hjælpe ( kan ikke regne ud hvordan I kommer frem til disse 301 m ) ellers en fin trøje. Vh Hanne Strunge
24.04.2022 - 22:04DROPS Design answered:
Hei Hanne. Du har 211 masker og skal nå strikke A.2 + A.3. Det strikkes slik: 5 stoplemasker + A.2 (1 maske) + A.3 (10 masker x 20 ganger = 200 m) + 5 stolpemasker = 211 masker. Når du strikker 1. rad av A.3 øker du med 2 masker hver gang A.3 strikkes, så på 2.rad av A.3 har du: 5 stoplemasker + A.2 + A.3 (12 masker x 20 ganger = 240) + 5 stolpemasker = 251 masker. På 21. rad øker du også med 2 masker hver gang A.3 strikkes. Da vil du ha: 5 stoplemasker + A.2 + A.3 (14 masker x 20 ganger = 280) + 5 stolpemasker = 291 masker. MEN husk på nest siste pinne i A.2 og A.3 økes det 10 masker jevnt fordelt = 291 + 10= 301 masker på pinnen. mvh DROPS Design
25.04.2022 - 14:14Heléne Ahnell wrote:
Hej! Förstår inte beskrivningen för resåren nertill på tröjan. 1 rät och 2 m i rätstickning, alltså hela varvet rätstickning? och på nästa varv? Tacksam för närmare förklaring. Tack!
04.02.2022 - 00:09DROPS Design answered:
Hej Heléne. Ja första varvet blir då bara med räta maskor. Från avigsidan stickar du sen den ensamma rätmaskan avig och de 2 maskorna i rätstickning stickas räta. (Framkantsmaskorna stickas räta på alla varv). Mvh DROPS Design
04.02.2022 - 12:27Sharlene wrote:
I am doing the elevation and wonder if instead of 24 (for the L size) i should turn and work 32 stitches.
02.02.2022 - 19:26DROPS Design answered:
Dear Sharlene, the elevation should be enough as written in the pattern (24), so that it matches the photo. First, to get to 32, you may need to work more rows, to get from 16 to 32 stitches by working 8 stitches more each time (so you would need to work 2 extra rows, at least). Also, the back will be even higher than the original pattern, so it may cause a deformation in the shape of the jacket. Happy knitting!
05.02.2022 - 19:15Robinet wrote:
Bonjour Je fais une taille S , jusqu'au dernier étape pour les manches. Après avoir monté 10mailles sous la manche, elle devient 75 mailles. Quand l ouvrage est à 4cm, diminue 2 mailles, =73. Puis diminuer 13 mailles =60mailles. Question: pourquoi il vous reste 49 mailles à la fin, et non 60 mailles? Merci pour votre explication
25.10.2021 - 03:30DROPS Design answered:
Bonjour Mme Robinet. Quand l'ouvrage mesure 4 cm, diminuer 2 mailles au milieu sous la manche - voir DIMINUTIONS. Diminuer ainsi au total (la premiere diminution inclus) 13 fois tous les 8 tours. Cela veut dire que vous diminuez 2 mailes 13 fois (=26 mailles diminuees). 75-26=49. Bon tricot!
25.10.2021 - 09:40Sheela Wadalkar wrote:
I am knitting the medium sized cardigan. In the first row of the A 3 pattern, how do we increase 4 stitches in each of the 10 stitches? I see only 2 yarn overs in the first row of A3. Also, the 21st row shows two yarn overs. Have I understood the pattern correctly? Very confused. Please help,
23.09.2021 - 07:28DROPS Design answered:
Dear Mrs Wadalkar, yes correct, you first increase 2 sts on first row (with 2 yarn overs) and then increase one more time on the 21st row = each A.3 will be then 14 sts - on the next to last row in A.2/A.3 increase 11 sts evenly and you will get -330 sts. Happy knitting!
23.09.2021 - 08:53