Daisy Delight |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-2 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 106 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 26,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 26. og 27. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Setjið 1 merkiþráð við miðju að aftan (= byrjun á umferð). Byrjið frá réttu með litnum plóma og prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 8-8-8-9-9-10 lykkjur framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-16-18-18-20 lykkjur sléttprjón. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-27-27-30 lykkjur sléttprjón, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-32-36-36-40 lykkjur sléttprjón, snúið og prjónið til baka að miðju að aftan. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hin prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-110-115-125-130-134 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum plóma. Prjónið 10 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-10-15-15-20-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 110-120-130-140-150-160 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (allur uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka og þá verður berustykki aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN. Setjið 9-10-10-10-11-11 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 7-6-7-7-5-5 lykkjur, setjið hvert og eitt af næstu 8-9-9-9-10-10 prjónamerkjum eftir 12-12-13-14-14-15 lykkjur, nú eru 7-6-6-7-5-5 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað mynstur A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) – sjá LEIÐBEININGAR, JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út hvoru megin við prjónamerkin þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÖR-1: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 128-140-150-160-172-182 lykkjur. ÖR-2: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 146-160-170-180-194-204 lykkjur. ÖR-3: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 164-180-190-200-216-226 lykkjur. ÖR-4: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 182-200-210-220-238-248 lykkjur. ÖR-5: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 200-220-230-240-260-270 lykkjur. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 11-12-13-14-15-16 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan. Takið prjónamerkin úr stykkinu. Prjónið nú mynstur A.2 (= 20-22-23-24-26-27 mynstureiningar með 10 lykkjum) umferðina hringinn. Í næst síðustu umferð í A.2 er aukið út um 10-11-12-14-11-11 lykkjur jafnt yfir = 290-320-336-352-376-390 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir fyrstu 45-49-51-55-60-64 lykkjum (= hálft bakstykki), 2. prjónamerki eftir næstu 55-62-66-66-68-67 lykkjum (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 90-98-102-110-120-128 lykkjur (= framstykki), 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 55-62-66-66-68-67 lykkjur (= ermi). Nú eru 45-49-51-55-60-64 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki). Prjónið nú mynstur A.3 hringinn, jafnframt í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona í annarri hverri umferð alls 5-6-8-10-11-13 sinnum = 330-368-400-432-464-494 lykkjur. ATH: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina 1 sinni er haldið áfram í sléttprjóni þar til allar útaukningar fyrir laskalínu hafa verið gerðar og stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 50-55-59-65-71-77 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-110-118-130-142-154 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 50-55-59-65-71-77 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 220-240-260-284-312-340 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar 10-10-12-12-14-16 sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi (= 110-120-130-142-156-170 lykkjur á milli prjónamerkja). Haldið áfram með plóma og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í ca öðrum hverjum cm alls 12 sinnum = 268-288-308-332-360-388 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 28 cm frá skiptingu er aukið út um 8-12-13-13-15-17 lykkjur = 276-300-321-345-375-405 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 2,5. Prjónið stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn í 2 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 65-74-82-86-90-93 lykkjur af öðrum þræðinum í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-84-94-98-104-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi og byrjið á umferð hér. Haldið áfram með plóma og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-6.-5.-4.-4.-3. hverri umferð alls 13-17-21-22-23-24 sinnum = 49-50-52-54-58-61 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-38-37-35-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-5-6-5-5 lykkjur jafnt yfir = 51-54-57-60-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið nú stroff * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn í 2 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (56)
Susanne Hansen wrote:
Hvor kan man finde målene på de forskellige størrelser?
04.06.2024 - 21:07Anna Suihko wrote:
En oikein saa tolkkua ohjeeseen jossa kehoitetaan lisämään kuvion A2 toiseksi viimeisellä kerroksella 12 silmää ja tuloksena on 320 s koossa M kun silmukoita ennen lisäystä on 220. Mikähän multa on mennyt ohi?
21.04.2024 - 16:39DROPS Design answered:
Hei, myös piirroksen A.2 mallineuleen aikana tehdään lisäyksiä. Jokaiseen mallikertaan lisätään 4 silmukkaa, eli mallineuleen aikana lisätään yhteensä 88 silmukkaa + 12 silmukkaa.
22.04.2024 - 18:40Helena Saarinen wrote:
It's very difficult to understand how I will make those loops after A2!!!! Never before get this kind of pattern in DROPS!!!
12.04.2024 - 15:52Linda Lavoie wrote:
Dans le modèle 196-2 (Daisy delight), vous dites que quand A-1 a été tricoté 1fois en hauteur, l’ouvrage mesure 13 cm depuis le rang de montage au milieu du devant(dans le large). Est-ce depuis le tout début incluant le col ou depuis le début de A-1 ?
29.02.2024 - 13:04DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lavoie, on doit bien mesurer depuis le rang de montage, autrement dit avec le col et A.1, depuis le tout début de l'ouvrage. Bon tricot!
29.02.2024 - 16:16Georgia Wilhelmsson wrote:
Hej! Jag ska börja sticka mönster A2 i storlek S, tröjan Daisy Delight men förstår inte symbolerna på första raden. Hur ska jag gå tillväga? Hur många maskor blir det totalt i första raden i A2?
28.10.2023 - 17:12DROPS Design answered:
Hei Georgia 1.rad i A.2 går over 10 masker (den sorte firkanten er ingen maske). Når du har strikket 1.rad øker du med 2 kast pr gang A.2 strikkes = 12 masker når du skal strikke 2. rad. I str. S skal du ha 200 masker når du har strikket A.1 ferdig, og når du starter på A.2 strikker du A.2 20 ganger (= 10 masker i A.2 x 20 ganger = 200 masker). Sett maskemarkører mellom hver gang du strikker A.2 så har du en bedre oversikt. Bare husk å flytte maskemarkørene når det økes (så på 2. omgang er det 12 maske mellom maskemarkørene, mens når 22. omgang strikkes er det 14 masker mellom hver maskemarkør). mvh DROPS Design
30.10.2023 - 09:18Sandra wrote:
Im Diagramm A1 bei den Reihen mit den Pfeilen soll zugenommen werden, immer beidseits der Markierungsfäden. Soll das mit Umschlägen gemacht werden, die dann in der nächsten Runde links verschränkt abgestrickt werden?
26.08.2023 - 09:59DROPS Design answered:
Liebe Sandra, ja gerne können Sie mit Umschläge zunehmen, dann stricken Sie 1 Masche zwischen jedem Umschlag, so gibt es nicht 2 Umschläge nebeneinander. Viel Spaß beim stricken!
28.08.2023 - 13:18Daska wrote:
Hallo, voor maat M staat bij de mouwen: 74 steken op een hulpdraad, dan 10 nieuwe. Dan voorpand en weer 74 op draad en 10 nieuwe. Maar eerst 10 nieuwe en dan 74 op draad is toch logischer qua symmetrie?
17.03.2023 - 20:32DROPS Design answered:
Dag Daska,
De 74 steken die je op de hulpdraad zet brei je niet, maar laat je eerst links liggen en de 10 steken die je opzet komen onder de oksel, dus aansluitend op het achterpand, daarna brei je de steken van het voorpand, zet je weer 74 steken op een hulpdraad en zet je 10 nieuwe steken op. De 10 nieuwe steken komen dus aan beide kanten onder de oksel en verbinden de voor- en achterpanden met elkaar.
19.03.2023 - 16:39Miriam S wrote:
Danke für die tolle Anleitung. Muster sehr schön. Leider sind die Zunahmen am Rumpf komplett überflüssig. Hatte nachher eher eine Triangel Form. Beim 2. Versuch gerade runtergestrickt und ist immer noch eher weit. Dafür sind 60cm Gesamtlänge (Gr. L) viel zu kurz.. Zunahmen mit Umschlag machen leider auch Löcher wenn man sie verschränkt abstrickt.
18.10.2022 - 09:05Yvonne wrote:
Hej. I Ryg & Forstykke næst sidste linje: Skift til rundpind 2,5 strik rib * 1 ret, 2 masker retstrik * strik *-* rundt på omgangen 2 cm?? Er det 1 vr og 2 ret eller er det noget med at strikke 2 masker sammen ?? Mvh Yvonne
29.09.2022 - 10:42DROPS Design answered:
Hej Yvonne, ret strikkes ret fra retsiden på hver pind. Retstrik strikkes rundt ved at omgangene strikkes skiftevis ret og vrang. Det vil sige at første omgang strikkes: 1ret, 2vrang, 1ret, 2vrang osv. Næste omgang strikkes: 1 ret, 2ret, 1ret, 2 ret (altså ret hele vejen rundt) :)
29.09.2022 - 15:17Annette Nielsen wrote:
Jeg mangler et brystmål på opskriften
14.01.2022 - 21:17DROPS Design answered:
Hej Annette, du finder målene i måleskitsen nederst i opskriften, hver finder du også information om hvordan man læser måleskitsen. God fornøjelse!
17.01.2022 - 10:10