Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= litur ópalgrænn | |
= litur pistasía | |
= litur ljós þveginn | |
= sjá litaröð í uppskrift - hver mynstureining er með mismunandi liti | |
= litur sinnep | |
= litur fjólublár | |
= litur skær bleikur |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Tulip Garden |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Hekluð taska með litamynstri og blómum. Stykkið er heklað úr 2 þráðum DROPS Paris.
DROPS 188-2 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir liti í mynstri. 1 rúða = 1 stuðull. TVEIR ÞRÆÐIR: Notið þráðinn innan úr og utan með dokkunni. Gott er að skipta ekki um báða þræðina í einu, annars verða samskeytin of þykk. LITAMYNSTUR: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrsta lit, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin. Skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin og heklið næsta stuðul. Þegar heklað er með tveimur litum eru þræðirnir sem ekki er heklað með látnir liggja yfir lykkjum frá fyrri umferð, heklað er utan um þessa þræði þannig að þeir sjáist ekki og fylgja með hringinn. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 lykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Eftir hverja umferð er stykkinu snúið við og heklað er áfram frá hinni hliðinni. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla næstu 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni). Heklið næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. KRABBAHEKL: Heklið eins og fastalykkjur, en í gagnstæða átt. Þ.e.a.s. heklið fastalykkjur frá vinstri til hægri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Taskan er hekluð með 2 þráðum af hvorum lit – lesið TVEIR ÞRÆÐIR. Stykkið er heklað í hring, en í hverri umferð er stykkinu snúið þannig að í annarri hverri umferð er heklað frá réttu og frá röngu. TASKA: Heklið 5 loftlykkjur með 2 þráðum í litnum ópalgrænn með heklunál 5,5. Tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1 (þar til heklaðar hafa verið 12 mynstureiningar af A.1 á breiddina) – lesið LITAMYNSTUR. Heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5-9: Haldið áfram með útaukningu og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. í hverri umferð er heklaður 1 stuðull fleiri á milli útaukninga = 108 stuðlar. UMFERÐ 10: Í þessari umferð er síðasta útaukningin gerð (= 120 stuðlar) og blóm eru hekluð. Blómin eiga að hafa mismunandi liti, þess vegna verður að nota 2 dokkur af hverjum lit til þess að sleppa við að klippa þræðina frá á meðan heklað er. Litasamsetning á blómunum er þannig: 1. litur 06, skær bleikur 2. litur 07, fjólublár 3. litur 41, sinnep 4. litur 01, apríkósa 5. litur 12, rauður 6. litur 14, skær gulur 7. litur 06, skær bleikur 8. litur 07, fjólublár 9. litur 41, sinnep 10. litur 01, apríkósa 11. litur 12, rauður 12. litur 14, skær gulur UMFERÐ 11: Klippið frá og festið grunnlit (100, ljós þveginn). Þetta er gert þar sem umferðin á að byrja 3 stuðlum fyrr en fyrri umferð og nýja byrjunin á umferð á að vera mitt á milli 2 blóma. Heklið stuðla og mynstur eftir mynsturteikningu A.2 umferðina hringinn. UMFERÐ 12-18: Haldið áfram með stuðla og mynsturteikningu A.2. UMFERÐ 19: Haldið áfram með stuðla og mynsturteikningu A.2, en í þessari umferð eru heklaðir fyrstu stuðlarnir í hverri mynstureiningu saman – þ.e.a.s. fækkað er um 12 stuðla í þessari umferð – lesið ÚRTAKA = 108 stuðlar. UMFERÐ 20-27: Heklið stuðla og mynstur eftir mynsturteikningu A.3 (nú er eftir 1 umferð af A.3). UMFERÐ 28: Heklið síðustu umferð í A.3 með fastalykkjum, klippið frá og festið enda. KANTUR: Heklið kant efst á töskunni með 2 þráðum í litnum sinnep þannig: Festið þræðina með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, heklið 1 loftlykkju, heklið síðan KRABBAHEKL – sjá útskýringu að ofan, umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Klippið frá og festið enda. AXLARÓL: Klippið 4 þræði af hverjum lit ca 120 cm = 36 þræðir. Leggið þræðina saman og hnýtið lausan hnút, það eiga að vera eftir ca 12 cm á eftir hnút. Skiptið þráðum í 3 einingar með 12 þráðum í hverri einingu. Fléttið einingarnar þrjár saman þar til fléttan mælist ca 68 cm (fléttið ekki of fast). Skiptið þráðunum í 2 einingar. Þræðið 2 hluta í gegnum töskuna með 1 stuðla millibili, á hinni umferðinni frá affellingarkanti. Hnýtið þræðina saman á framhlið á töskunni. Takið upp hnútinn í byrjun á fléttu og festið endann við töskuna alveg eins nema í gagnstæðri hlið (sjá mynd). Gerið aðra fléttu alveg eins og festið hana í hinni hliðinni á töskunni eins og útskýrt er að ofan. Ef óskað er eftir því er hægt að gera litlar fléttur á endunum á axlarólinni utan á töskunni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (15)
Gallienne wrote:
Bonjour, je ne comprends pas comment le diagramme peut faire correspondre des mailles en augmentation, je n’arrive pas à faire coïncider celui-ci, c’est à dire le dessin du diagramme avec les mailles en rond et en augmentation. Cela ne correspond pas pour former le dessin des fleurs… Merci pour votre réponse attendue..,
24.08.2022 - 21:41DROPS Design answered:
Bonjour Galienne, vous devez répéter 12 fois A.1 en largeur, autrement dit: au 1er rang: 12 x 1 bride dans la bride suivante (= 12 b.); au 2ème rang 12 x (2 brides dans chaque b ) = on a bien 2 mailles dans A.1; au 3ème rang 12 x (1 b dans la b suivante, 2 b dans la suivante = 3 brides dans A.1); et ainsi de suite. Vous crochetez les mailles de A.1 dans la couleur indiquée par le diagramme tout en suivant les indications écrites pour les augmentations. Les fleurs ne seront formées que dans A.2, dans A.1 vous faites le fond puis les tiges et les feuilles. Bon crochet!
25.08.2022 - 09:17Andrea Tummarello wrote:
Ich habe anstatt der 200gr. Light wash die Farbe Spray Blue genommen - leider haben bei mir die 200 gr auch nicht ausgereicht. Bestellt am besten gleich 300 gr damit euch der Garn während dem Häkeln nicht ausgeht :-)
08.03.2021 - 12:06Dea wrote:
Buongiorno, 200 gr di colore 100 light wash non bastan nemmeno per finire la borsa. Almeno a me non sono bastati.
26.07.2019 - 14:33DROPS Design answered:
Buongiorno Dea. Trasmetteremo la sua segnalazione alla casa madre. Buon lavoro!
26.07.2019 - 16:53Dea wrote:
Vi chiedo comunque di inoltrare a Drops la richiesta di un video per il diagramma A1. Seguendo le indicazioni fedelmente non si può ottenere il disegno come nelle foto sopra. Grazie.
25.07.2019 - 08:16DROPS Design answered:
Buongiorno Dea, inoltriamo la sua segnalazione alla casa madre. Buon lavoro!
25.07.2019 - 15:18Dea wrote:
Una domanda: visto che il diagramma A1 bisogna lavorarlo avanti e indietro, se si lavora dal DL da che parte bisogna leggerlo? Da dx verso sx? Quindi il primo in basso (giro 1 = 12 maglie alte) si legge da dx verso sx? Questo è importante per capire come prosegue il lavoro, comunque ho tentato più volte, ma non mi viene come il lavoro nella foto.
23.07.2019 - 20:56DROPS Design answered:
Buongiorno Dea. Il diagramma A1 viene letto da destra verso sinistra sul diritto del lavoro e da sinistra verso destra sul rovescio del lavoro. Viene letto dal basso verso l’alto. Quindi sulla prima riga avrà 12 ripetizioni di 1 maglia alta l’una; alla seconda riga avrà 2 maglie alte in ogni ripetizione e così via. Buon lavoro!
24.07.2019 - 06:36Dea wrote:
Non è possibile avere un video che spiega come realizzare il diagramma A1? Putroppo non è semplice capire gli aumenti e come comportarsi con la direzione del lavoro sullo schema. Grazie.
23.07.2019 - 20:15Elena wrote:
Avevo già provato a chiedere senza risposta. Qual è il senso del lavoro avanti e indietro visto che è in tondo? Grazie.
15.05.2019 - 15:08DROPS Design answered:
Buongiorno Elena. Viene fatto per avere il risultato che si può vedere nell'ultima fotografia, quella che inquadra meglio i fiori. Se però preferisce e si trova meglio, può lavorare in tondo. Buon lavoro!
15.05.2019 - 15:27Sylvie wrote:
Bonjour, Merci pour votre aide. J'ai une autre question : je suis arrivée au rang 2 du schéma A2 et je trouve que l'ouvrage fait beaucoup de "vagues", j'ai peur qu'il ne soit pas correct au niveau de la forme ? Est-ce que cette impression s'estompe au fur et à mesure des rangs qui suivent ? Merci par avance et bonne journée. Sylvie
01.04.2019 - 13:12DROPS Design answered:
Bonjour Sylvie, quand on crochète A.1, on forme le fond du sac = une sorte de disque plat (= jusqu'au tour 10 inclus) puis on va crocheter A.2 sans augmenter pour former les côtés montants du sac. Pensez à bien conserver la bonne et surtout la même tension pour que l'ouvrage conserve la bonne forme. Bon crochet!
01.04.2019 - 15:32Sylvie Nigro wrote:
Bonjour, existe-t-il un schéma complet du sac ? Si on tourne l'ouvrage à chaque changement de rang, ne risque-t-on pas de voir les fils que l'on fait suivre pour faire les dessins au jaquard ? Merci
15.03.2019 - 10:59DROPS Design answered:
Bonjour Mme Nigro, il n'y a pas besoin de diagramme complet, suivez les diagrammes et répétez-les comme indiqué - plus d'infos sur les diagrammes ici, en bas de page pour le jacquard. Veillez bien à ce que les fils soient côté envers pour qu'ils ne se voient pas, que vous travailliez sur l'endroit ou sur l'envers. Bon crochet!
15.03.2019 - 12:45Carolyn wrote:
Sorry..regarding the previous question, once we turn the work for the second (or even numbered) round, do we then read the chart from left to right?
22.08.2018 - 02:05