Alpine Sunset |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar tátiljur úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með röndum og grafísku mynstri með skúfum í hliðum. Stærð 35 – 43.
DROPS 193-5 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð. Umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju. ÚRTAKA: Fækkið um 2 stuðla með því að hekla 4 stuðla saman 2 og 2 þannig: * Heklið 1 stuðul í næstu fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu fastalykkju alveg eins, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar = 2 stuðlar færri. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LITAMYNSTUR (á við um A.2 og A.4): Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er keðjulykkjan í lok fyrri umferðar hekluð með nýja litnum. Þegar heklað er í hring með fleiri litum í umferð er heklað eins og útskýrt er að neðan: Í hvert sinn sem skipt er um lit er síðasta fastalykkjan hekluð með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum, heklið síðan næstu fastalykkju með nýja litnum. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að það sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir með í stykkinu. Passið uppá að fylgiþræðirnir herði ekki á stykkinu og að þráðurinn verði ekki of stífur þegar hann er tekinn upp frá fyrri umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tátiljan er hekluð í hring frá tá að ökkla, síðan er heklað fram og til baka að miðju aftan á hæl. Stykkið er heklað saman við miðju að aftan áður en kantur er heklaður í kringum op á tátiljunni. Að lokum er gerður einn skúfur sem festur er á tátiljuna. TÁTILJA: Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum ljós grár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið A.1 hringinn, byrjun á umferð er mitt undir fæti. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 30 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn rúbínrauður. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.2A (= 4 lykkjur), síðan er heklað A.2B yfir þær lykkjur sem eftir eru JAFNFRAMT er aukið út um 2-6-10 fastalykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 32-36-40 fastalykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 svona (það er nú pláss fyrir 7-8-9 mynstureiningar með A.2B í viðbót við A.2A sem heklað er yfir 4 fyrstu lykkjur). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið heklað til loka eru heklaðar fastalykkjur í hring með sinnep þar til stykkið mælist 12-13-15 cm (í minnstu stærðinni þá kemur rétt mál líklegast að nást eftir A.2), klippið frá. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 miðju lykkja í umferð, þ.e.a.s. á eftir fyrstu 16-18-20 lykkja í umferð. Haltu stykkinu með tánna að þér og teldu 4 lykkjur til vinstri á undan prjónamerki, byrjaðu með 1 keðjulykkju með litnum sinnep í fjórðu lykkju frá prjónamerki og heklaðu fyrstu umferð frá réttu þannig: Heklið A.3A (= 1 lykkja), heklið A.3B þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð (þ.e.a.s. þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki og endið með A.3C (= 1 lykkja), snúið stykki. Haldið áfram með A.3, en nú er fækkað um 1 lykkju á hvorri hlið með því að hekla næstu umferð þannig: Hekli 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul, heklið fastalykkjur þar til 1 stuðull er eftir í umferð, snúið stykki. Heklið síðan A.3 fram og til baka yfir þær 24-28-32 lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist alls ca 21-23-26 cm frá tá – stillið af að næsta umferð sem er hekluð sé umferð með stuðlum, en til að fá rétt mál er hægt að hekla eina auka umferð með fastalykkjum á undan stuðlaumferð. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 10-12-14 fastalykkjum. Fækkið nú um 2 stuðla með því að hekla 4 næstu stuðla saman 2 og 2 – lesið ÚRTAKA, að lokum er heklaður 1 stuðull í hverja af síðustu 10-12-14 fastalykkjum = 22-26-30 stuðlar í umferð. Brjótið tátiljuna saman tvöfalda við miðju að aftan með réttu inn og heklið tátiljuna saman við miðju að aftan ofan frá og niður, með 1 fastalykkju í hvern stuðul (hekli í gegnum bæði lögin). Klippið frá og festið enda, snúið tátiljunni við þannig að réttan snúi út. STROFF: Byrjið við miðju að aftan og heklið 40-44-48 fastalykkjur með litnum sinnep jafnt yfir í kringum op efst á tátiljunni. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.4A (= 4 lykkjur), síðan er heklað A.4B yfir næstu 36-40-44 lykkjur (= 9-10-11 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Klippið frá og festið enda þegar A.4 hefur verið heklað til loka. Stroffið mælist ca 3 cm á hæðina. SKÚFUR: 1 skúfur = klippið 20 þræði með litnum ljós grár, 5 þræði með litnum rúbínrauður og 5 þræði með litnum sinnep (= alls 30 þræðir) ca 18 cm. Klippið 1 þráð með litnum ljós grár ca 20 cm til að sauma skúfinn með og leggið þennan þráð mitt í 30 þræðina. Leggið 30 þræðina saman tvöfalda og hnýtið nýjan þráð með litnum ljós grár utan um skúfinn (ca 1 cm frá toppi). Festið enda vel og saumið síðan skúfinn á aðra hliðina á tátiljunni í skiptinguna á milli stroffs og tátilju. Heklið aðra tátilju á sama hátt og festið skúf í gagnstæða hlið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |