Belladonna Skirt |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað pils með áferðamynstri úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 190-26 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. A.2 sýnir hvernig umferð byrjar/endar þegar heklað er í hring. HEKLLEIÐBEININGAR: Á við þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjum, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul). Í hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). ÚRTAKA: STUÐULL: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þræðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju/um loftlykkju, þegar þræðurinn er dreginn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). FASTALYKKJA: Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri). ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 156 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 26. Í þessu dæmi þá er hekluð 25. og 26. hver lykkja saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það er 10 cm klauf á hvorri hlið neðst niðri á pilsi, stykkið er fyrst heklað fram og til baka í 2 stykkjum þar til klaufin hefur verið hekluð, síðan er stykkið heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað fram og til baka í umferð til að áferðin verði alveg eins alla leið. Þegar stykkið skiptist við op fyrir kant með tölum er aftur heklað fram og til baka, en yfir bæði fram- og bakstykki (þannig að það verði bara eitt op í annarri hliðinni). FRAMSTYKKI: Heklið 90-97-104-111-125-139 loftlykkjur með Muskat með heklunál 4. Haldið áfram með 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá hekluálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina út = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur (loftlykkja sem snúið er við, er talin einnig sem 1 fastalykkja). Snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka. Heklið nú eftir mynsturteikningu A.1 (A.1 er endurtekin á hæðina til loka) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir 10 cm er stykkið lagt til hliðar og bakstykkið er heklað. BAKSTYKKI: Heklið 90-97-104-111-125-139 loftlykkjur með Muskat með heklunál 4. Haldið áfram með 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina út = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur (loftlykkjan sem snúið er við er talin einnig sem 1 fastalykkja). Snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka. Nú er heklað eftir mynsturteikningu A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist 10 cm – endur í sömu umferð eins og á framstykki. PILS eftir klauf: Haldið svona áfram með mynstur – heklið fyrstu lykkjur yfir framstykki, síðan eru lykkjur heklaðar yfir bakstykki, að lokum eru umferðirnar heklaðar saman með einni keðjulykkju í 1/3 lykkju í umferð, heklið lykkju í A.2, snúið stykkinu. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstri eftir mynsturteikningu A.1 og A.2. Í umferð með stuðlum eða fastalykkjum eru nú 156-168-180-192-216-240 lykkjur í umferð (A.2 er ekki talið með í lykkjufjölda). Þegar stykkið mælist ca 13-14-15-16-17-18 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé umferð með stuðlum eða fastalykkjum (merkt í mynsturteikningu með stjörnu), fækkið nú um 6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA og ÚTAUKNING (jafnt yfir). Endurtakið úrtöku alls 6 sinnum í þessum 6 merktu umferðum með stuðlum eða fastalykkjum = 120-132-144-156-180-204 lykkjur í umferð með stuðlum eða fastalykkjum. Haldið áfram með A.1 og A.2. Þegar stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm er heklað fram og til baka, í lokin á að hekla kant fyrir tölur yfir efstu 12 cm. Stykkið er nú ekki snúið við með A.2, heldur er heklað fram og til baka með umferð þannig að það myndist op efst í annarri hliðinni – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram fram og til baka eftir A.1 þar til stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm, endið eftir umferð merktri með stjörnu í mynsturteikningu. Klippið frá og festið enda. HNESLUR: Meðfram annarri hlið á opi sem staðsett er á framstykki eru heklaðar hneslur þannig (byrjið neðst niðri): 2 fastalykkjur eins og ein umferð með stuðlum/fastalykkjum, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, * heklið 2 fastalykkjur um næsta stuðul/fastalykkju umferðir, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar og endið með 2 fastalykkjur um síðasta stuðul/fastalykkju umferð efst, snúið og heklið til baka þannig: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga. Klippið frá og festið enda. KANTUR FYRIR TÖLUR: Meðfram annarri hlið á opi eru heklaðar 5 umferðir með fastalykkjum fram og til baka (í 1. umferð eru heklaðar 2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð og 1 fastalykkja um hverja fastalykkju umferð), klippið frá. Saumið tölur í kant. SKRAUTKANTUR: Heklið skrautkant í hring á neðri kanti á pilsi – einnig upp og niður í klauf og opi. Skrautkanturin er heklaður þannig: 1 fastalykkja, *3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunál, hoppið fram ca 1 cm og gerið 1 fastalykkju. * Endurtakið frá *-* umferðina út og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Palina Wendel wrote:
Väldigt otydligt i beskrivningen vad det gäller om man ska virka runt eller fram och tillbaka. Ordvalet är otydlig. Samt NÄR man ska minska. Och om man kan gissa sig fram till när man ska virka fram och tillbaka och när man ska virka runt, så är det väldigt svårt att gissa sig fram när det gäller minskning. När man virkar första 10cm så ska man följa A1 där det står minskning redan på 4e raden. Det står inte hur många maskor. Otydlig instruktion!
06.07.2022 - 13:23Cecilia Espinosa Rebolledo wrote:
Hola!!! Si quisiera hacer una falda larga, hasta los tobillos, que me recomienda hacer para calcular numero de cadenas para el ruedo?
27.11.2019 - 01:17DROPS Design answered:
Hola Cecilia. Esta falda se trabaja de abajo arriba. Para hacerla más larga solo tienes que trabajar según el patrón hacia arriba hasta la largura deseada, no tienes que montar más puntos.
30.11.2019 - 19:36Eija wrote:
Missä kerrotaan kavennusten määrä?
12.08.2019 - 14:32DROPS Design answered:
Hei kavennusten määrä löytyy ohjeesta: "Kun työn pituus on n. 13-14-15-16-17-18 cm ja seuraavaksi virkattava kerros on pylväs tai kiinteä silmukka -kerros (merkitty piirrokseen tähdellä), kavenna tasavälein 6 silmukkaa (lue KAVENNUSVINKKI ja KAVENNUSVINKKI (kaventaminen tasavälein)). Toista tällaiset kavennukset yhteensä 6 kertaa, piirrokseen nuolilla merkityillä pylväs- tai kiinteä silmukka -kerroksilla = 120-132-144-156-180-204 silmukkaa pylväs- tai kiinteä silmukka -kerroksella." Eli työstä kapenee yhteensä 36 silmukkaa.
15.08.2019 - 14:28Eija wrote:
Edelliseen liittyen: huomasin videon, kun olin aikani yrittänyt ohjeen mukaan. Hyvin vaikeasti oli selitetty.
10.08.2019 - 07:55Eija wrote:
Uskomattomat käännökset! Esim. tuo 2. rivi: "= jätä 1 silmukka väliin, 1 pylväs seuraavaan kiinteään silmukkaan/seuraavan ketjusilmukan ympäri, 1 pylväs väliin jätettyyn silmukkaan/väliin jätetyn silmukan ympäri "
10.08.2019 - 07:32Ortuno Catherine wrote:
Je voudrais commander des pelotes Muskat rouge 12 avec un bain particulier 574. Comment faire? Je n'ai pas assez de laine pour finir mon ouvrage. Merci d'avance
03.08.2019 - 08:06DROPS Design answered:
Bonjour Catherine! Vous devez vous adresser à votre magasin DROPS qui saura vous aider. Bon tricot!
03.08.2019 - 19:58Elke wrote:
In anderen Anleitungen steht aber: Maschenprobe 18 Stb = 10 cm (s.o. 17 Stb = 10 cm= Druckfehler?) Und, da A.1 zuerst in Reihen gehäkelt wird, beginnt Häkelschrift dann "rechts" bzw. beginnt die R immer abwechselnd einmal rechts und einmal links? und werden dann am Ende die Wende-Luftmaschen nicht gehäkelt, d.h. ausgelassen? (s. Häkeltipp: Am Anfang jeder Reihe mit Stb 3 Lm häkeln (ersetzen nicht das erste Stäbchen) Sorry, ich versteh's nicht richtig. Danke für Info!
04.06.2019 - 12:59DROPS Design answered:
Liebe Elke, für dieses Modell muss Ihre Maschenprobe 17 M = 10 cm in der Breite sein. Häkelnadel ist nur einen Vorschlag, passen Sie die Größe an, damit die Maschenprobe richtig ist. Die Wende-Lufmaschen (= A.2) werden zusätzlich zu A.1 gehäkelt, dh sie werden nicht am Ende der Reihe gearbeitet. Viel Spaß beim häkeln!
04.06.2019 - 14:23Elke wrote:
Warum wird in vielen von euren Anleitungen die Maschenprobe NUR mit der Breite angegeben? Ist die Höhe nicht relevant? s.o. : 17 Stäbchen = 10 cm in der Breite.
03.06.2019 - 14:33DROPS Design answered:
Liebe Elke, bei solchen Anleitungen ist die Länge immer in cm gegeben - und dann wird auch dazu geschrieben z.B. daran angepasst, dass die nächste Runde eine Runde mit Stäbchen oder festen Maschen. Bei den ählinchen Modellen (= mit der selben Häkelnadeln - können Sie auch dann eine Maschenprobe in der Reihen finden - hier zum Beispiel. Viel Spaß beim häkeln!
03.06.2019 - 15:23