Bohème Beach |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Heklaður toppur með ömmuferningum og hekluðum köntum. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Paris.
DROPS 190-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLAÐUR FERNINGUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsti stuðull í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Fyrsta fastalykkja í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. LITASAMSETNING: FERNINGUR-1: LOFTLYKKJUUMFERÐ + UMFERÐ 1 og 2: natur UMFERÐ 3: kórall UMFERÐ 4: natur FERNINGUR-2: LOFTLYKKJUUMFERÐ + UMFERÐ 1 og 2: kórall UMFERÐ 3: natur UMFERÐ 4: kórall ÚRTAKA: Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið samanstendur af ferningum sem heklaðir eru saman í eina langa lengju. Afgangur af toppnum er heklaður fram og til baka í efri kant á ömmuferningunum. Að lokum eru kantarnir heklaðir og kantur fyrir tölur við miðju að aftan. HEKLAÐIR FERNINGAR: Heklið 4-4-5-5-6-6 ferninga af FERNINGUR-1 og 4-5-5-6-6-7 ferninga af FERNINGUR-2 (alls 8-9-10-11-12-13 ferningar) eftir A.1 þannig – lesið LITASAMSETNING: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 5 með litnum natur eða litnum kórall og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Haldið áfram að hekla eftir mynsturteikning A.1. Leggið 2 og 2 ferninga (einn ferningur-1 og einn ferningur-2) saman með réttu að hverjum öðrum og heklið þá saman þannig – frá röngu: 1 fastalykkja um báða loftlykkjuboga í horni, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga (heklið í gegnum bæði lögin) *, heklið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 3 loftlykkjum og 1 fastalykkju í kringum báða loftlykkjubogana í horni. Klippið frá og festið enda. Haldið svona áfram þar til allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman í eina langa lengju. TOPPUR: Heklið 102-114-126-138-150-162 stuðla um loftlykkjubogana frá annarri langhliðinni á lengjunni með ferningum (það eru heklaðir 2 stuðlar um hvern og einn af loftlykkjubogum í horni frá ferningum og ca 3 stuðlar um hvern og einn af miðju 3 loftlykkjubogum á hverjum ferning). Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan 1 fastalykkju í hvern stuðul. Haldið áfram með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, stykkið er heklað fram og til baka. Haldið áfram þar til stykkið mælist 24-26-27-29-30-31 cm, meðtaldir ömmuferningar neðst niðri. Klippið frá. HÆGRA FRAMSTYKKI: Hoppið yfir fyrstu 30-33-36-41-44-47 fastalykkjurnar í umferð, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 20-23-26-27-30-33 fastalykkjum, snúið stykkinu og heklið til baka = 20-23-26-27-30-33 fastalykkjur. Heklið 2 umferðir yfir allar fastalykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1 fastalykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA = 18-21-24-25-28-31 fastalykkjur. Haldið áfram með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og fækkið um 1 fastalykkju í hverri umferð þar til 2-3-2-3-2-3 fastalykkjur eru eftir. Klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Hoppið yfir 2 fastalykkjur eftir hægra framstykki, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 20-23-26-27-30-33 fastalykkjur, snúið stykkinu og heklið til baka með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Heklið síðan vinstra framstykki eins og hægra framstykki. HEKLAÐUR KANTUR EFST: Byrjið við miðju að aftan og heklið með heklunál 5 þannig: UMFERÐ 1 (heklið með litnum kórall): 3 loftlykkjur í fyrstu fastalykkju, 2 stuðlar í sömu fastalykkju , * hoppið yfir 2 fastalykkjur, 3 stuðlar í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* fram að hægra framstykki. Haldið áfram með heklaða kantinn upp yfir hægra framstykki þannig: * hoppið yfir ca 2 umferðir með fastalykkjum, 3 stuðlar um ystu loftlykkju/fastalykkja í næstu umferð *, endurtakið frá *-* upp að topp á hægra framstykki, í miðju fastalykkju/á milli 2 mðjju fastalykkja eru heklaðir 3 stuðlar + 3 loftlykkjur + 3 stuðlar, hoppið yfir ca 2 umferðir með fastalykkjum, 3 stuðlar um ystu loftlykkju/fastalykkja í næstu umferð *, endurtakið frá *-* niður hægra framstykki, heklið í kringum vinstra framstykki alveg eins og hægra framstykki. Haldið síðan áfram með heklaða kantinn yfir bakstykki þannig: * hoppið yfir 2 fastalykkjur, 3 stuðlar í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-*. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (heklið með litnum natur): Heklið 1 loftlykkju + 1 fastalykkjur í síðasta stuðul frá fyrri umferð, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja á milli 2 stuðlahópa *, endurtakið frá *-* upp að toppi á vinstra framstykki, heklið 1 fastalykkju + 3 loftlykkjur + 1 fastalykkja um loftlykkjuboga, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja á milli 2 stuðlahópa *, endurtakið frá *-* fram að toppi á hægra framstykki, heklið 1 fastalykkju + 3 loftlykkju + 1 fastalykkja um loftlykkjuboga, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja á milli 2 stuðlahópa *, endurtakið frá *-* fram að miðju að aftan. BAND Á ÖXL: UMFERÐ 1 (heklið með litnum kórall): Heklið loftlykkjuumferð ca 40-60 cm – mátið toppinn til að stilla af lengdina á loftlykkjuumferð. Heklið 1 fastalykkju um loftlykkjuboga á topp á öðru framstykkinu (loftlykkjuumferðin er nú fest við toppinn á framstykki), snúið og heklið 3 loftlykkjur + 2 stuðlar í fyrstu loftlykkju, * hoppið yfir 3 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í næstu loftlykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2 (heklið með natur): Heklið 1 loftlykkju í síðasta stuðul, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja á milli 2 stuðlahópa *, endurtakið frá *-* meðfram öllu bandinu á öxl. Heklið annað band fyrir öxl alveg eins á hinu framstykkinu. Bæði böndin eru hnýtt við bakstykki – mátið toppinn. HEKLAÐUR KANTUR NEÐST: UMFERÐ 1 (heklið með litnum natur): Heklið 2 stuðla um hvorn af loftlykkjubogum í horni frá ferningum og 3 stuðlar um hvern af miðju 3 loftlykkjubogum á hverjum ferningi. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (heklið með litnum kórall): 3 stuðlar í fyrsta stuðul, * hoppið yfir 2 stuðla, 3 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* meðfram öllum neðri kanti. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (heklið með litnum natur): Heklið 1 loftlykkju + 1 fastalykkju í síðasta stuðul frá fyrri umferð, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja á milli 2 stuðlahópa *, endurtakið frá *-* meðfram öllum neðri kanti. KANTUR FYRIR HNAPPAGÖT: Byrjið í neðri kanti við miðju að aftan og heklið ca 40 til 50 fastalykkjur upp meðfram opið við miðju að aftan (heklið einnig í heklaða kantinn neðst og efst). Heklið 5 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Heklið annan kant alveg eins í hinni hlið á opi við miðju að aftan. FRÁGANGUR: Deilið 6 tölum niður á vinstri kant fyrir tölur við miðju að aftan og saumið þær niður. Tölum er hneppt á milli fastalykkja í hægri kanti. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Patrizia wrote:
Buonasera Volevo ordinare il filato per fare questo top. Ma il numero 38 di Drops Paris non corrisponde al color corallo ma lampone. Vorrei sapere se si tratta dello stesso colore o se c'è stata una variazione? Grazie per la risposta e per i tantissimi bei modelli che ci mettete a disposizione.
06.02.2021 - 18:53DROPS Design answered:
Buonasera Patrizia, a volte vengono cambiati i nomi dei colori dei filati, e i modelli vecchi mantengono il colore precedente. Buon lavoro!
06.02.2021 - 21:18Eivor Alvim wrote:
Da jeg Hekla denne toppen i L, viste den seg å være alt for kort bak! Jeg så til diagrammet nederst, men jeg kan ikke forstå at den bare er 47cm rund, for NPR jeg måler den er den rundt 73cm bred. Hva er det som jeg har misforstått?
17.07.2020 - 20:09DROPS Design answered:
Hej Eivor, hækler du toppen i DROPS Paris, og har du 14 fm på 10 cm. Størrelse L skal du have 94 cm i omkreds, hvis du overholder hæklefastheden. God fornøjelse!
30.07.2020 - 15:16Ronja wrote:
Hallo, Ich habe gerade die 8 Quadrate fertig gehäkelt und würde gerne wissen ob man die Knöpfe wirklich braucht oder sie nur dekorativ sein sollen bzw. eine Öffnung irgendeiner Art am Rücken nötig ist, denn mir wäre es ohne lieber; sodass Ich in Runden häkeln könnte LG Ronja
27.12.2019 - 18:04DROPS Design answered:
Liebe Ronja, die Knöpfe sind nicht nur dekorativ, wenn Sie keine haben, dann haben Sie vielleicht Schwierigkeiten um das Top anzuziehen. Viel Spaß beim häkeln!
02.01.2020 - 11:42Henriette wrote:
S'agissant de la vidéo pour assembler les carrés, il semblerait que ce ne soit pas la bonne ....? En effet d'après les explications: 3ml, 1ms (avec les 2 arceaux ensemble) , 3 ml, etc. On progresse d'arceau en arceau en joignant les arceaux.
19.08.2018 - 21:09DROPS Design answered:
Bonjour Henriette, effectivement, dans ce modèle, on va crocheter les carrés ensemble, en piquant dans les 2 carrés et non l'un après l'autre alternativement. Suivez bien les indications du modèle. Bon crochet!
03.09.2018 - 14:51Josée wrote:
Bonjour j'ai fait mes carrer granny Soit six de la couleur 1 et sept de la couleur 2 ... Lors de l'assemblage sa dit 2 par 2... mais il va m'en rester un seul de la couleur numéro deux ? Alors fait t'il j'en fasse un autre de la couleur numéro 1? Merci ... PS mon autre commentaire est plein d'erreur je c est pas pourquoi ...
27.06.2018 - 16:48DROPS Design answered:
Bonjour Josée, après avoir assemblé un carré-1 et un carré-2 ensemble, crochetez un carré-1 le long du côté du carré-2 puis un autre carré 2 le long du côté du 2ème carré-1 et ainsi de suite. Bon crochet!
28.06.2018 - 08:27Josée wrote:
Bonjour j'ai fait mes carrer granny sont 6 de la couleur 1 et 8 de la couleur 2... Mais pour l'assemblage c'est indiquer 2 par 2... sa ne marchera pas il va me rester 1 granny seul ? Merci de m'éclairer a se sujet
27.06.2018 - 16:46DROPS Design answered:
Bonjour Josée, vous crochetez d'abord les 2 premiers carrés ensemble, puis un 3ème le long d'un des 2 premiers (= on assemble les carrés 2 par 2), puis un 4ème le long du côté du 3ème et ainsi de suite jusqu'à ce que tous les carrés soient reliés, mais ils sont assemblés 2 par 2 pour former une longue bande. Bon crochet!
28.06.2018 - 08:25