Petite Fleur Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með marglitu mynstri, blómum og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður með 3/4 löngum ermum. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Cotton Merino.
DROPS 188-7 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með stuðlum byrja á 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul). Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). Þegar ermar eru heklaðar fram og til baka og heklað er saman í lok/byrjun á umferð, byrja allar umferðir með stuðlum með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul) og enda með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykki. Í 2. umferð í A.7 byrjar og endar umferðin þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja og eina af 2 fyrstu lykkjum frá fyrri umferð, 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Heklað er bæði frá réttu og frá röngu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 105 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur = 95 lykkjur) deilið þessum lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 13,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju til skiptis í 13. og 14. hverja lykkju. Ef fækka á lykkjum jafnt yfir er í þessu dæmi heklað til skiptis í 12. og 13. hverja og 13. og 14. hverja lykkju saman. LITAMYNSTUR: Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er keðjulykkjan í lok fyrri umferðar hekluð með nýja litnum. Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrri lit, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, síðan er hekluð næsta lykkja. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir með áfram. Þegar ekki eru fleiri stuðlar eftir í umferð sem á að hekla í sama lit, þarf liturinn ekki að fylgja áfram með í stykkinu, ef aftur á móti á að nota hann í næstu umferð er hann tekinn upp í næstu umferð, en passið uppá að þráðurinn komi alltaf á bakhlið á stykki. Passið uppá að fylgiþræðirnir herði ekki á stykkinu og að þráðurinn verði ekki stífur þegar hann er tekinn upp frá fyrri umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki eru heklað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka og eru heklaðar saman í lok hverrar umferðar. BERUSTYKKI: Heklið 123-128-132-138-143-149 loftlykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorir hlið á stykki og 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 4 með litnum púðurbleikur. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni (= 1 fastalykkja) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 1 fastalykkja í hverja af næstu 2-0-4-3-1-0 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af 6 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* = 105-109-113-118-122-127 fastalykkjur. Heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið út um 7-15-23-22-30-29 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA= 112-124-136-140-152-156 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig – lesið LITAMYNSTUR: Heklið A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur, A.2 yfir 16-20-24-24-24-24 lykkjur (= 4-5-6-6-6-6 mynstureiningar með 4 lykkjum) (= vinstra framstykki), heklið A.3 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar með 1 lykkju), A.2 yfir 12 lykkjur (= 3 mynstureiningar), A.3 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar) (= vinstri ermi), A.2 yfir 36-40-44-44-56-56 lykkjur (= 9-10-11-11-14-14 mynstureiningar) (= bakstykki), A.3 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar), A.2 yfir 12 lykkjur (= 3 mynstureiningar), A.3 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar) (= hægri ermi), A.2 yfir 16-20-24-24-24-24 lykkjur (= 4-5-6-6-6-6 mynstureiningar) og endið með A.1 yfir síðustu 6 lykkjur (= hægra framstykki). Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 152-164-176-200-212-236 lykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 6 cm. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 7 lykkjur, heklið A.5 þar til eftir eru 12 lykkjur (= 11-12-13-15-16-18 mynstureiningar með 12 lykkjum) JAFNFRAMT er fækkað um 1 stuðul, heklið A.6 yfir næstu 5 lykkjur og endið með A.4 yfir síðustu 7 lykkjur. Þegar A.4 og A.6 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 232-251-270-308-327-365 lykkjur í síðustu umferð (2 stuðlar heklaðir saman = 1 lykkja). Stykkið mælist ca 16 cm. Nú er stykkið heklað til loka með litnum natur þannig: Heklið svona frá röngu JAFNFRAMT þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 232-250-271-307-328-364 stuðla (þ.e.a.s. aukið er út um 0-0-1-0-1-0 stuðla og fækkað er um 0-1-0-1-0-1 stuðla): Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 5 stuðlum, A.7 yfir 33-36-42-48-51-57 stuðla (= 11-12-14-16-17-19 mynstureiningar með 3 lykkjum), A.8 yfir 3 stuðla, A.7 yfir 36-39-42-48-51-57 stuðla (= 12-13-14-16-17-19 mynstureiningar), A.8 yfir 3 stuðla, A.7 yfir 72-78-81-93-102-114 stuðlar (= 24-26-27-31-34-38 mynstureiningar), A.8 yfir 3 stuðla, A.7 yfir 36-39-42-48-51-57 stuðla (= 12-13-14-16-17-19 mynstureiningar), A.8 yfir 3 stuðla, A.7 yfir 33-36-42-48-51-57 stuðla (= 11-12-14-16-17-19 mynstureiningar) og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 5 stuðlum. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.7 og A.8 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 256-274-295-331-352-388 stuðlar í síðustu umferð. Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 5 stuðlum, endurtakið A.7 þar til eftir eru 5 stuðlar (= 82-88-95-107-114-126 mynstureiningar) og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 5 stuðlum. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá kanti í hálsmáli, stillið af að næsta umferð sé umferð einungis með stuðlum. Nú skiptist fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 5 stuðlum, A.7 eins og áður yfir næstu 33-36-39-45-51-57 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 2-1-1-1-0-0 stuðlum (= framstykki), hoppið yfir næstu 53-57-62-68-70-75 stuðla (= ermi), heklið 8 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í 1-0-1-1-1-0 stuðla, heklið A.7 eins og áður yfir næstu 69-75-78-90-99-114 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 0-1-2-2-0-0 stuðlum (= bakstykki), hoppið yfir næstu 53-57-62-68-70-75 stuðla (= ermi), heklið 8 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 2-1-1-1-0-0 stuðlum, A.7 eins og áður yfir næstu 33-36-39-45-51-57 stuðla og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 5 stuðlum (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-176-187-211-228-254 lykkjur. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern af fyrstu og síðustu 5 stuðlum og heklið mynstur A.7 yfir þær lykkjur sem eftir eru JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-0-0-1-2 stuðla jafnt yfir (A.7 er endurtekið þá 52-56-59-67-73-82 sinnum á breidd) = 166-178-187-211-229-256 stuðlar. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar skiptust er fækkað um 3 stuðla í næstu umferð (stillið af að lykkjum sé fækkað í umferð einungis með stuðlum). Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-4-3-4-2½ cm millibili alls 5-5-3-4-3-5 sinnum = 151-163-178-199-220-241 lykkjur. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað er hekluð 1 mynstureiningu minna af A.7 á breiddina. Þegar stykkið mælist 14 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar skiptust, er aukið út um 3 stuðla jafnt yfir (stillið af að aukið sé út í umferð einungis með stuðlum). Aukið svona út í hverjum cm alls 13-13-14-14-14-14 sinnum = 190-202-220-241-262-283 lykkjur. Í hvert skipti sem aukið er út er hekluð 1 mynstureining fleiri á A.7 á breiddina. Haldið áfram þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar skiptust (= 49-51-53-55-57-59 cm frá kanti í hálsi) – endið eftir eina umferð með stuðlum. Klippið frá og festið enda. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og frá röngu) og er heklað saman með 1 keðjulykkju í hverja umferð. Byrjið á að hekla í 5. loftlykkju af 8 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki með litnum natur þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, 1 stuðull í næstu 1-0-1-1-0-0 stuðla, A.7 yfir næstu 51-57-60-66-69-75 stuðla (= 17-19-20-22-23-25 sinnum á breidd), 1 stuðull í næstu 1-0-1-1-1-0 stuðla og endið með 1 stuðul í hverja af síðustu 4 loftlykkjum undir ermi = 61-65-70-76-78-83 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 4-5-4-4-3-5 stuðla jafnt yfir = 57-60-66-72-75-78 lykkjur. A.7 er nú endurtekið 19-20-22-24-25-26 sinnum hringinn í umferð. Þegar ermin mælist 4 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 3 stuðla jafnt yfir í umferð (stillið af að lykkjum sem fækkað í umferð einungis með stuðlum). Fækkið lykkjum svona með 4-4-3-2-2-1½ cm millibili alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 48-51-54-60-63-66 lykkjur. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað er A.7 endurtekið 1 sinni færri á breiddina. Haldið áfram þar til stykkið mælist 16-14-14-13-11-9 cm frá þar sem ermin skiptist á fram- og bakstykki. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið fram og til baka yfir loftlykkjuumferð í hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu með litnum natur): Byrjið yfir kant að framan, festið enda við stykki með 1 keðjulykkju í 1. kantlykkju að framan, heklið 2 loftlykkjur (= 1 hálfur stuðull), heklið 1 hálfan stuðul í hverja fastalykkju út umferðina = 105-109-113-118-122-127 hálfir stuðlar. UMFERÐ 2 (= frá röngu með litnum púðurbleikur): Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul = 105-109-113-118-122-127 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Fyrsta talan er saumuð í ca 2 niður frá hálsmáli, síðan er tölurnar saumaðar í með ca 7-8 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 2. og 3. stuðuls í hægri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (39)
Andrea wrote:
I’m working on the Petite Fleur pattern. In the first A4 -A6 section of yoke, do I reverse the order of pattern sections on the wrong side? Also do I increase on wrong side as it says decrease on right side? Thank you.
07.01.2024 - 21:06DROPS Design answered:
Dear Andrea, when working on the wrong side, work : A.4 over A.4, A.5 over A.5 and A.6 over A.6. You don't need to work increases, only work the decreases indicated in the pattern, in the rows indicated. Happy crocheting!
08.01.2024 - 00:35Claire wrote:
Bonjour, J’ai besoin de votre aide. Dans le diagramme À.8, au rang 3, il y à 3 groupes de 3 brides donc 9 brides. Est-ce que je dois être du côté endroit où du côté envers de mon travail ? Merci de votre aide.
08.08.2022 - 03:09DROPS Design answered:
Bonjour Claire, le 1er rang de A.8 se fait sur l'envers, le 3ème rang sera aussi un rang sur l'envers. Bon crochet!
08.08.2022 - 07:52Claire wrote:
Je m’excuse mais je pense que ma question n’était pas assez précise. Est-ce que A4 je le fais une fois au début et une fois à la fin du rang seulement et A6 une fois à la fin du rang seulement ?
20.06.2022 - 16:08DROPS Design answered:
Bonjour Claire, tout à fait, A.4 et A.6 sont les mailles de bordure des devants, vous allez ainsi les crocheter 1 seule fois ainsi: les 7 m de A.4, puis vous répétez 12 fois 1.5 (en diminuant 1 maille au 1er rang), il reste 12 mailles, vous crochetez les 5 mailles de A.6 et les 7 mailles de A.4. Bon crochet!
21.06.2022 - 08:28Claire wrote:
Une autre question. Section A4 à A6 est-ce que je comprends bien Rang 1: A4 (7 mailles) 1 diminution une fois seulement sur le rang - 12fois A5 - terminer par A6 (5 mailles) et A4 (7 mailles). Merci de m’aider à continuer mon travail.
19.06.2022 - 23:17DROPS Design answered:
Bonjour Claire, c'est bien cela, vous devez diminuer 1 maille en répétant le 1er rang des 12 motifs de A.5, crochetez A.4 et A.6 sans diminuer. Bon crochet!
20.06.2022 - 08:06Sara wrote:
Bonjour, Dans les diagrammes 5 et 6, si je comprends bien je ne dois pas tricoter en aller retour car le rose et jaune peuvent se retrouver à l’envers alors je tricote ces rangs de droite à gauche Merci
12.06.2022 - 06:16DROPS Design answered:
Bonjour Sara, les diagrammes se crochètent en allers et retours, alternativement sur l'endroit et sur l'envers, cette vidéo montre comment crocheter plusieurs couleurs sur un même rang, alternativement sur l'endroit et sur l'envers en faisant suivre les autres couleurs en même temps. Bon crochet!
13.06.2022 - 09:22Claire wrote:
Merci de l’info. J’aimerais savoir lorsque je tricote les 6 rangs , combien je devrais avoir de mailles après avoir crocheté le 1,e rang, le 2e rang, le 3e rang, le 4e rang, le 5e et au 6e je dois avoir 152 mailles. Merci
25.05.2022 - 22:24DROPS Design answered:
Bonjour Claire, ajoutez des marqueurs entre chaque diagramme à crocheter, vous pourrez ainsi vérifier votre nombre de mailles entre chaque marqueur, A.2 doit toujours rester à 4 mailles, mais le nombre de mailles de A.3 va changer comme le montre le diagramme, ces marqueurs vous aideront à bien vérifier à chaque fois, ainsi, vous aurez les 152 mailles à la fin des 6 rangs. Bon crochet!
27.05.2022 - 08:56Claire wrote:
Je n’ai pas 152 mailles après avoir crochèté À.1 à À.3. Dans le diagramme au dernier rang j’ai À.1 2x 6 brides = 12 brides À.2. 92 brides À.3. 4 x 6 brides = 24 brides Ce qui donne 128 brides et non 152 tel qu’indiqué dans le patron. De l’aide s’il vous plaît Merci.
24.05.2022 - 08:47DROPS Design answered:
Bonjour Claire, chaque A.3 doit être crocheté 2 fois, autrement dit, vous aurez: A.1 (= 6 m), A.2 (= 16 m) (devant), A.3 (= 12 m / raglan), A.2 (= 12 m / manche), A.3 (= 12 m/ raglan), A.2 (= 36 m/dos), A.3 (= 12 m/raglan), A.2 (= 12 m/ manche), A.3 (= 12 m/raglan), A.2 (= 16 m), A.1 (= 6 m), ainsi vous avez bien: 6+16+12+12+12+36+12+12+12+16+6=152 mailles. Bon crochet!
24.05.2022 - 13:43Yasemin wrote:
Hej! Har virkat oket i stl L och efter A.4 till A.6 och nu ska jag ha 271 stolpar. Så långt stämmer allt, men när jag virkar vidare enligt mönstret A.7 till A.8 blir det för stort. 295 stolpar i slutet blir det inte. Hamnar på över 400 stycken! Jag gör något fel men var? Allt stämmer enligt mönstret. Tacksam för svar.
12.09.2021 - 11:11DROPS Design answered:
Hej Yasemin. Ökningarna sker i diagram A.8. (I diagram A:7 har du lika många stolar, 3 st, när du börjar med diagrammet som när det är färdigvirkat). När A.8 är färdigvirkat så har du 9 stolpar och du började med 3. Du har alltså ökat 6 stolpar per diagram och du har 4 diagram A.8 per varv. 6x4= 24 stolpar. 271+24=295 stoplar. Mvh DROPS Design
22.09.2021 - 08:03Ah Vu wrote:
Thank you very much for your taking time reply, I am grateful for your help
11.04.2021 - 14:33Anh Vu wrote:
I am just finishing from A1-6 for size small (232 sts) , not even get in to A7 and A8 to get in to 252 sts . My piece already measures 19 cm from neck edge for divide body and sleeves is it correct to continue for devide body and sleeves without reaching 252 sts. My tension is correct 18 treble crochets x 9 rows = 10 cm in width and 10 cm vertically.
10.04.2021 - 21:38DROPS Design answered:
Dear AnhVu, if you divide the body and sleeve stitches before you reach the 252 stitches, the body and the sleeves will be too thight. Please check if you use the crochet tension, and started with the right amount of stitches. If everything is correct, you will have to adjust the number of stitches to the correct number, by increasing evenly (it would be best if you dont do the increases at once but divide them into two increase rows. Happy Crafting!
11.04.2021 - 02:54