Celestina |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð samfella fyrir börn með gatamynstri og köðlum. Stærð fyrirburar – 4 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino.
DROPS Baby 31-6 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.16. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þegar ekki nægilega margar lykkjur eru á prjóni fyrir kaðal, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það á ekki að myndast gat. LASKALÍNA: Lykkjum er fækkað mismunandi á framstykki/bakstykki og á ermum – lesið ÚRTAKA! FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Lykkjum er fækkað í hverri umferð frá réttu (= önnur hver umferð) þannig: Fækkið um 1 lykkju alls (7) 6-4-8-6 (3-0) sinnum, síðan 2 lykkjur alls (1) 4-6-5-7 (10-13) sinnum. ERMI: Fækkið alls um 2 lykkjur á hvorri ermi í hverri umferð frá réttu (= önnur hver umferð) alls (6) 7-5-9-8 (6-3) sinnum, síðan í hverri umferð (4) 6-10-8-10 (14-20) sinnum. ÚRTAKA (á við um laskalínu): BAKSTYKKI: Öll úrtaka er gerð frá réttu. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu á vinstra bakstykki þannig: Prjónið fyrstu 2 lykkjur á eftir 5 kantlykkjum að framan snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið fyrir laskalínu á hægra bakstykki þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 5 kantlykkjum að framan slétt saman (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu á vinstra bakstykki þannig: Prjónið fyrstu 3 lykkjur á eftir 5 kantlykkjum að framan snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið fyrir laskalínu á hægra bakstykki þannig: Prjónið 3 síðustu lykkjur á undan 5 kantlykkjum að framan slétt saman (= 2 lykkjur færri). FRAMSTYKKI: FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU HVORU MEGIN VIÐ MIÐJULYKKJU: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki mitt að framan, lyftið 2 lykkjum saman eins og prjóna eigi þær slétt, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR HVORU MEGIN VIÐ MIÐJULYKKJU: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki mitt að framan, lyftið 3 lykkjum saman eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið 3 lyftu lykkjunum yfir 2 lykkjur sem prjónaðar voru saman (= 4 lykkjur færri). ERMI: Prjónið að prjónamerki í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar á ermi snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma, prjónið síðustu 2 lykkjur á ermi slétt saman (= 1 lykkja færri = alls 2 lykkjur færri á hvorri ermi). HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum á hægra framstykki. 1 HNAPPAGAT = Prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: <0: 1 og 3 cm. 0/1 mán + 1/3 mán: 1 og 4 cm. 6/9 mán + 12/18 mán: 1 og 4½ cm. 2 ára + 3/4 ára: 1 og 5 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Fyrst í 2 litlum stykkjum bæði á fram- og bakstykki sem síðar er prjónað saman, fram og til baka upp þar sem fram- og bakstykki er prjónað saman og síðan er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Stykkin eru sett saman og berustykkið er prjónað fram og til baka, þ.e.a.s. það verður op við miðju að aftan. Stykkið kemur til með að togna aðeins á breiddina ca 3-5 cm þegar það er mátað. FRAMSTYKKI: Prjónið fyrst 2 lítil stykki (kantur í skrefbót) sem sett eru saman og prjónið áfram fram og til baka. Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 3 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 (= 5 lykkjur). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 9 lykkjur á prjóni. Geymið stykkið og prjónið 1 stykki til viðbótar alveg eins. Setjið stykkin saman og prjónið A.2 yfir lykkjurnar (fyrsta umferð = frá röngu) = 21 lykkjur. Klippið þráðinn frá. Geymið stykkið og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og framstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið nú stykkin saman og stykkið er prjónað áfram í hring þannig: * Fitjið upp (16) 22-24-28-30 (34-38) nýjar lykkjur, prjónið síðan frá réttu yfir bakstykki/framstykki þannig: Prjónið A.3 yfir fyrstu 9 lykkjur, A.4 yfir næstu 3 lykkjur (setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í A.4 = miðja að framan/miðja að aftan = miðjulykkja), A.3 yfir síðustu 9 lykkjur, fitjið upp (16) 22-24-28-30 (34-38) nýjar lykkjur, setjið 1 merkiþráð (= í hlið) * , prjónið frá *-* alls 2 sinnum = (106) 130-138-154-162 (178-194) lykkjur (= (53) 65-69-77-81-(89-97) lykkjur á milli merkiþráða). Merkiþræðir eru staðsettir í hlið og prjónamerki er staðsett við miðju að framan/miðju að aftan. Prjónið síðan þannig: * Prjónið A.5a yfir fyrstu 12 lykkjur, A.6 yfir næstu (4) 6-6-6-6 (6-6) lykkjur, endurtakið A.7 yfir næstu (0) 4-6-10-12 (16-20) lykkjur, prjónið mynstur eins og áður (þ.e.a.s. A.3) þar til eftir er 1 lykkja á undan lykkju með prjónamerki (= miðja að framan/miðja að aftan), prjónið A.4 yfir næstu 3 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru (16) 22-24-28-30 (34-38) lykkjur á unda merkiþræði í hlið, endurtakið A.8 yfir næstu (0) 4-6-10-12 (16-20) lykkjur, A.9 yfir næstu (4) 6-6-6-6 (6-6) lykkjur, A.10a yfir síðustu 12 lykkjur á undan merkiþræði í hlið * (þ.e.a.s. mynstur speglast hvoru megin við lykkju með prjónamerki við miðju að framan/miðju að aftan), prjónið frá *-* alls 2 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur. Þ.e.a.s. í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur við miðju að framan/miðju að aftan og aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn í hvorri hlið, þannig að lykkjufjöldinn verður áfram sá sami. Mynstrið heldur áfram eins og áður til loka máls, þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkju og kaðla yfir kaðla (mynstur hverfur við miðju að framan/aftan og aukið er út fyrir nýtt mynstur í hvorri hlið á stykki). STÆRÐ 0: Þegar A.5a og A.10a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, * prjónið A.13 yfir fyrstu lykkju í A.5a, A.5b yfir næstu 18 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 19 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði í hlið, A.10b yfir næstu 18 lykkjur, A.14 yfir síðustu lykkju á undan merkiþræði í hlið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. STÆRÐ 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ÁRA: Þegar A.5a og A.10a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, * prjónið A.11a yfir fyrstu lykkju í A.5a, A.5b yfir næstu 18 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 19 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði í hlið, A.10b yfir næstu 18 lykkjur, A.12a yfir síðustu lykkju á undan merkiþræði í hlið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Þegar A.11a og A.12a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina * prjónið A.13 yfir fyrstu lykkju í A.11a, A.11b yfir næstu 8 lykkjur, mynstur eins og áður þar til eftir eru 9 lykkjur á undan merkiþræði í hlið, A.12b yfir næstu 8 lykkjur, A.14 yfir síðustu lykkju á undan merkiþræði í hlið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Endurtakið A.13 og A.14 og mynstur eins og áður á hæðina þar til stykkið mælist (7) 9-13-13-14 (14-17) cm mælt meðfram merkiþræði í hlið, stillið af að síðasta lykkjan sem aukin er út í hlið sé prjónuð slétt. Prjónið síðan * A.15a yfir fyrstu lykkju í A.13, haldið áfram með mynstur eins og áður þar til eftir er 1 lykkja á undan merkiþræði í hlið, A.16a yfir síðustu lykkju á undan merkiþræði *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Þegar A.15a og A.16a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina * prjónið A.13 yfir fyrstu lykkju í A.15a, A.15b yfir næstu 11 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 12 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði í hlið, A.16b yfir næstu 11 lykkjur, A.14 yfir síðustu lykkju á undan merkiþræði *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist alls (14) 16-20-20-21 (24-27) cm, stillið af að síðasta umferð sé 1 útauknings-/úrtökuumferð. Prjónið síðan næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 4 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru efir á undan merkiþræði í hlið, fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, fellið af síðustu 4 lykkjur = 8 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið á stykki = (90) 114-122-138-146 (162-178) lykkjur = (45) 57-61-69-73 (81-89) lykkjur bæði á framstykki og bakstykki. Klippið þráðinn frá og festið. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp (36) 40-40-40-44 (44-48) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið síðan stykkið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með (0) 4-3-2-2 (2- 2½) cm millibili alls (1) 2-4-6-7 (9-10) sinnum = (38) 44-48-52-58 (62-68) lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist (12) 16-20-20-24 (29-35 cm). Þetta mál gefur erminni ca 3-5 cm uppábrot neðst á ermi. Fellið af 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 8 lykkjur alls) = (30) 36-40-44-50 (54-60) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = (150) 186-202-226-246 (270-298) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Stykkið er nú prjónað áfram fram og til baka frá 2 lykkjum á undan miðju að aftan (þ.e.a.s. 2 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki) frá réttu og lykkjum er fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (= kantur að framan) – sjá HNAPPAGAT, prjónið mynstur eins og áður og fækkið lykkjum fyrir laskalínu, fitjið upp 5 nýjar lykkjur í lokin á prjóninn (= kantur að framan). Haldið svona áfram. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. Þegar úrtöku fyrir laskalínu er lokið eru (79) 83-83-91-99 (103-107) lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um (19) 19-19-23-23 (25-25) lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) = (60) 64-64-68-76 (78-82) lykkjur. Fellið af. KANTUR AÐ NEÐAN: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Prjónið upp ca 14-16 lykkjur meðfram neðri kanti á bakstykki (skrefbót) á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. FRAMSTYKKI: Prjónið upp og prjónið eins og bakstykki, en fellið af fyrir 3 hnappagötum jafnt yfir í 3. umferð, með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman og slá einu sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð svo að það myndist gat. Fellið af. KANTUR Í KRINGUM SKÁLMAR: Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp ca (42) 54-58-66-68 (76-84 lykkjur) á hringprjón 2,5, passið uppá að kanturinn verði ekki stífur, prjónið e.t.v. upp fleiri lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið laust af. Prjónið kant í kringum hina skálmina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið vinstri kant að framan undir hægri kant að framan. Saumið 2 tölur í vinstri kant að framan í hálsmáli og 3 tölur í kant neðst á samfellu á bakstykki (skrefbót). ---------------------------------------------------------- Fyrir húfu sjá DROPS Baby 31-7. Fyrir sokka sjá DROPS Baby 31-8. ---------------------------------------------------------- |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
Hà Vân wrote:
I have to admit I am confused. In the instructions for the body, when A.15 a and A.16 a have been worked 1 tỉme in height, how many times A3, A4, A6, A7, A8 have been worked in height? And how many stitches are there when body pattern finished. In the instructions for the size >0,, when A.11 a and A.12 a have been worked 1 tỉme in height, how many times A13, A14 have been worked in height? Thank you!
17.07.2022 - 11:39DROPS Design answered:
Dear Hà Vân, the number of times you will repeat in height will depends on your tension, repeat each diagram from row 1 as soon as it has been finished (the decreases in A.4 are worked on every other round; the cables in A.5b/A.10b are worked on every 4th round, etc) - when all increases are done you should have 106 sts (45 sts for front and back piece + 8 sts cast off on each side for armholes). Happy knitting!
01.08.2022 - 10:33Sara Holst wrote:
Noget giver ikke mening. Jeg skal slå 22 masker op 4 gange hvilket bliver 88 masker plus front og ryg stykkerne hvilket er 21 masker gange 2 så 42 =130. MEn så skal jeg gøre A.4 Hvilket opgiver 4 masker så kommer vi ned på 126 . Men der står at jeg skal have 130 ( total of 2 times = (106) 130). Så i den runde, skal jeg lave A4 og så total masker er 126 eller bare strik den "slå masker op" runde så jeg har 130 masker?
29.05.2022 - 11:57DROPS Design answered:
Hei Sara. Du legger opp 22 masker, strikker A.3 over de første 9 maskene, A.4 over de neste 3 maskene , A.3 over de siste 9 maskene (du har nå strikket over 21 masker / den ene delen av de 2 delene som var satt samen), legg opp 22 nye masker. Du har nå strikket over 22+21+22 = 65 masker. Så gjør du dette 1 gang til, du har da strikket over 65+65 masker = 130 masker. mvh DROPS Design
30.05.2022 - 10:00Barbara Handke wrote:
Hallo liebes Drops Team, ich habe eine Frage zu der Abnahme bei den Raglanärmeln. Ist es denn korrekt, dass bei den Ärmeln auf beiden Seiten des Markierungsfaden immer nur die Maschen rechts zusammengestrickt werden. Muss nicht auf der einen Seite eine Masche rechts abgehoben werden, die nächste rechts gestrickt und dann die abgehobene drüber gezogen werden? Bin mir gerade unsicher, ob man mit nur rechts zusammenstricken eine schöne Schräge bekommt? oder? Vielen Dank für eine Antwort.
21.02.2022 - 15:42DROPS Design answered:
Liebe Frau Handke, ja stimmt, vor der Markierung muss man 2 Maschen rechts verschränkt stricken - eine Korrektur erfolgt. Danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!
21.02.2022 - 16:12Mini wrote:
I am slightly confused. I have now connected front and back, while knitting A.4 on the same round as I cast on new masks. Should I on the next round do A.5? That would result in increasing extra masks on the round where I do not decrease, is this correct? As I can read later in the instructions, I have to close off for the sleeves on the round where I do not increase/decrease. What have I misunderstood? Thanks for an otherwise nice knitting pattern.
30.12.2021 - 22:53DROPS Design answered:
Dear Mini, after you have cast on the new stitches and work the first row in A.3/A.4, work one more round knitting the new stitches and working the 2nd row in A.3/A.4, then start with A.5, A.6, A.7. Rounds starts in one side of the piece - A.4 is on mid back and mid front, just as before. Happy knitting!
03.01.2022 - 10:18Maiju wrote:
Kysymykseni koskee raglankavennuksia, kun etukappaleessa kavennetaan kaksi silmukkaa keskisilmukan molemmin puolin = työstä kaventui 4 silmukkaa. Jos työssä nostetaan neulomatta 3 silmukkaa yhden neulotun silmukan yli, eikö silloin myös kavennu 3 silmukkaa? Selventäisittekö, miten kavennus kuuluisi tehdä niin, että saisin neljän silmukan kavennuksen täsmäämään symmetrisesti?
12.09.2021 - 20:45Vera Kjærstad wrote:
Når jeg prøver og skrive ut denne oppskriften fra mobilen blir diagramforklaring og alle diagrammer borte. Håper dette er noe dere kan rette på.
20.03.2021 - 11:43DROPS Design answered:
Hei Vera. Husk å trykke på "Skriv ut" knappen og velg oppskrift, så skal det fungere. Om ikke, må du sjekke dine innstillinger. mvh DROPS design
22.03.2021 - 15:46Sarah wrote:
I am already confused at diagram A.1.. when the pattern says to start with 5 stitches, and A.1 shows you to yarn over twice in the first row, I get 7 stitches in total and not 9 as stated in the pattern - what am I doing wrong?
05.09.2020 - 10:33DROPS Design answered:
Dear Sarah, you are right that after first row you will get 7 sts, but after WHOLE A.1 (in height, = 3 rows) you will get 9 sts as stated in pattern. Happy knitting!
05.09.2020 - 19:56Sigrun Joensen wrote:
Det kan betale sig at sove på problemet. Nu har jeg fundet ud af opskriften og er godt i gang nu.
13.04.2020 - 21:15Sigrun Joensen wrote:
Når jeg har strikket forstykke og bagside, A1 en gang i højden og sat disse to sammen og strikket A2 en gang i højden, er der 21 masker på pinden, men jeg har kun strikket ialt 6 pinde i højden, her mangler et eller andet, der skal da være plads til benene inden ryg og forstykke strikkes sammen?
12.04.2020 - 21:15DROPS Design answered:
Hei Sigrun. Så bra at du fant ut av det. Vi skal prøve å lage en video på begynnelsen av denne body`n. Kan være flere som stusser litt og da er det fint med en video. mvh DROPS design
27.04.2020 - 13:29Marie wrote:
Made the socks love the design. Do you have this romper pattern as well as the hat pattern for this set in written instruction rather than by diagram? Thanks.
16.03.2020 - 15:14DROPS Design answered:
Dear Marie, there are only diagrams to this pattern, but this could help you to understand how to work diagrams. Happy knitting!
16.03.2020 - 15:53