Christmas Brew |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð umgjörð fyrir pressukönnu og bolla með köðlum. Stykkið er prjónað úr DROPS Lima. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1402 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- VAL Á STÆRÐ (á við um pressukönnu): Mældu könnuna og athugaðu hvort hún hafi sömu mál og stór eða lítil kanna. Ef ummálið passar ekki við hvoruga stærðina þá getur þú valið um þá stærð sem passar best og jafnvel lagt til 1 mynstureiningu (eða fleiri) A.Xa (= 4 lykkjur = 2 cm) eftir fyrsta kanti að framan (= A.1) frá réttu og e.t.v. 1 mynstureiningu (eða fleiri) A.Xb (= 4 lykkjur = 2 cm) á undan síðasta kanti að framan (= A.5) – þannig að ummálið verði meira. Þ.e.a.s. þegar lykkjur eru fitjaðar upp í byrjun á stykki verður að bæta við 4 lykkjum til viðbótar við það sem gefið er upp í uppskrift fyrir hverja mynstureiningu A.Xa/A.Xb sem aukalega er bætt við. VAL Á STÆRÐ (á við um bolla): Mældu bollann og athugaðu hvort hann hafi sömu mál og stór eða lítill bolli. Ef ummálið passar ekki við hvoruga stærðina þá getur þú valið um þá stærð sem passar best og jafnvel lagt til 1 mynstureiningu (eða fleiri) A.8 (= 4 lykkjur = 2 cm) á undan síðasta kanti að framan (= A.9) frá réttu fyrir hverja auka 2 cm sem þarf í ummáli. Þ.e.a.s. þegar lykkjur eru fitjaðar upp í byrjun á stykki verður að bæta við 4 lykkjum til viðbótar en það sem gefið er upp í uppskrift fyrir hverja mynstureiningu A.8 sem aukalega er bætt við. MYNSTUR: Umgjörð fyrir pressukönnu: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. A.Xa/A.Xb er bætt við til að fá meira ummál á umgjörðina. Umgjörð fyrir bolla: Sjá mynsturteikningu A.6, A.7a (stór bolli), A.7b lítill bolli) A.8 og A.9. A.8 er e.t.v. bætt við til að fá meira ummál á umgjörðina. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PRESSUKANNA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Til að velja rétt mál á stærð á pressukönnu – lesið VAL Á STÆRÐ (á við um pressukönnu). STÓR PRESSUKANNA: Fitjið upp 115 lykkjur (e.t.v. + 4 lykkjur fyrir hvert A.Xa eða A.Xb sem aukalega er bætt við) á hringprjón 2,5 með Lima. Prjónið mynstur þannig: A.1 (= 4 lykkjur kantur að framan), (bætið jafnvel við A.Xa hér fyrir stærra ummáli), A.2 (= 8 lykkjur), A.3 (= 23 lykkjur) 4 sinnum, A.4 (= 7 lykkjur), (bætið jafnvel við A.Xb hér fyrir stærra ummáli), A.5 (= 4 lykkjur kantur að framan). Haldið áfram fram og til baka. Þegar fyrstu 6 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar er skipt yfir á hringprjón 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram. Þegar 3 umferðir eru eftir í mynsturteikningu, skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið þannig: Í umferð merktri með svartri stjörnu í A.3 er fækkað um 1 lykkju í umferð þannig að stroffið verði samhverft á hvorri hlið. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið tölur án gata í kant að framan – stillið af eftir handfangi á pressukönnunni. Tölunum er hneppt í gegnum göt í kanti að framan. Stykkið mælist ca 15 cm á hæð og 36 cm að ummáli þegar tölm hefur verið hneppt. LÍTIL PRESSUKANNA: Fitjið upp 92 lykkjur (e.t.v. + 4 lykkjur fyrir hvert A.Xa eða A.Xb sem aukalega er bætt við) á hringprjón 2,5 með Lima. Prjónið mynstur þannig: A.1 (= 4 lykkjur kantur að framan), (bætið jafnvel við A.Xa hér fyrir stærra ummáli), A.2 (= 8 lykkjur), A.3 (= 23 lykkjur) 3 sinnum, A.4 (= 7 lykkjur), (bætið jafnvel við A.Xb hér fyrir stærra ummál), A.5 (= 4 lykkjur kantur að framan). Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar fyrstu 6 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar er skipt yfir á hringprjón 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram. Þegar 3 umferðir eru eftir í mynsturteikningu, skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið þannig: Í umferð merktri með svartri stjörnu í A.3 er fækkað um 1 lykkju í umferð þannig að stroffið verði samhverft á hvorri hlið. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið tölur án gata í kant að framan – stillið af eftir handfangi á pressukönnunni. Tölunum er hneppt í gegnum göt í kanti að framan. Stykkið mælist ca 15 cm á hæð og 29 cm að ummáli þegar tölm hefur verið hneppt. ------------------------------------------------------- BOLLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Til að velja rétta stærð á umgjörð – lesið VAL Á STÆRÐ (á við um bolla). STÓR BOLLI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 58 lykkjur (e.t.v. + 4 lykkjur fyrir hverja mynstureiningu A.8 sem bætt er aukalega við) á hringprjón 2,5 með Lima. Prjónið mynstur þannig: A.6 (= 6 lykkjur), A.7a (= 19 lykkjur), A.8 (= 4 lykkjur) 7 sinnum á breidd, (bætið e.t.v. við fleiri mynstureiningum A.8 fyrir stærra ummáli), A.9 (= 5 lykkjur). Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar fyrstu 4 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar er skipt yfir á hringprjón 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram. Þegar eftir eru 3 umferðir í mynsturteikningu, skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið þær umferðir sem eftir eru í mynsturteikningu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið tölur án gata í kant að framan – stillið af eftir eyra á bolla. Tölunum er hneppt í gegnum göt í kanti að framan. Stykkið mælist ca 11 cm á hæð og 20 cm að ummáli þegar tölm hefur verið heppt. LÍTILL BOLLI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 54 lykkjur (e.t.v. + 4 lykkjur fyrir hverja mynstureiningu A.8 sem bætt er aukalega við) á hringprjón 2,5 með Lima. Prjónið mynstur þannig: A.6 (= 6 kantlykkjur að framan), A.7b (= 19 lykkjur),. A.8 (= 4 lykkjur) 6 sinnum á breidd, (bætið e.t.v. við fleiri mynstureiningum A.8 hér fyrir stærra ummáli), A.9 (= 5 kantlykkjur að framan). Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar fyrstu 4 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar er skipt yfir á hringprjón 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram. Þegar eftir eru 3 umferðir í mynsturteikningu A.7b, skiptið yfir á hringprjón 2,5. Þegar A.7b er hefur verið prjónað til loka á hæðina er stykkið tilbúið. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið tölur án gata í kant að framan – stillið af eftir eyra á bolla. Tölunum er hneppt í gegnum göt í kanti að framan. Stykkið mælist ca 9 cm á hæð og 18 cm að ummáli þegar tölum hefur verið heppt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Martine Peeters wrote:
Ik vind dit patroon heel mooi qua design en leuk te combineren als geschenk.
16.11.2022 - 13:45Wendy Skeens wrote:
AWEOME \r\nTHANKS FOR SHARING
20.09.2022 - 10:30