Catch Me If You Can |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðu eyrnabandi, hálsskjóli og handstúkum með hálfu klukkuprjóns - afbrigði og köðlum úr DROPS Karisma.
DROPS 182-19 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.4 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 21 lykkja), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 3,5. Í þessu dæmi er aukið út til skiptis á eftir 3. og 4. hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er prjónað til skiptis 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja saman. ÚTAUKNING (á við op fyrir þumal): Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Í næsta skipti sem aukið er út er prjónað þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu í 6. hverri umferð þannig, þ.e.a.s. aukið út allan tímann að utan verðu við útauknu lykkjurnar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman við miðju að aftan. EYRNABAND: Fitjið upp 21 lykkjur á prjón 4 með Karisma. Prjónið 1 umferð slétt (= ranga). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 27 lykkjur. Prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu með 2 lykkjur slétt í hvorri hlið. Prjónið síðan A.1 fram og til baka þar til stykkið mælist ca 49-51 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Mátið e.t.v. eyrnabandið og endið þegar prjónaðar hafa verið 1 eða 3 umferðir eftir umferð með köðlum. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 21 lykkja. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið saman uppfitjunarkant við affellingarkant með lykkjuspori. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 135 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2 (= 3 mynstureiningar með 45 lykkjum). Þegar A.2 er hefur verið prjónað til loka eru 147 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið A.3 (= 3 mynstureiningar með 49 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist ca 33 cm – endið þegar prjónaðar hafa verið ca 2 umferðir eftir umferð með köðlum. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð eins og áður, en á eftir hverjum kaðli er fækkað um 2 lykkjur með því að prjóna tvær fyrstu og tvær síðustu lykkjurnar í hverjum kaðli slétt saman (= 12 lykkjur færri) = 135 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn (= 3 mynstureiningar með 45 lykkjum). Þegar A.2B hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Hálsskjólið mælist ca 35 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 51-54 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 4 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 2-1 lykkju jafnt yfir þessar 4 lykkjur, prjónið A.4 (= 17 lykkjur sem fækkaðar eru til 16 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir þær 30-33 lykkjur sem eftir eru og fækkið jafnframt um 8-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 40-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: 2-3 lykkjur sléttprjón, A.5 (= 16 lykkjur), 22-25 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12 cm er sett 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út fyrir op fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 4 sinnum (allan tímann er aukið út utan verðu við útauknar lykkjur þannig að það verður op fyrir þumal) = 48-52 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-19 cm. Haldið áfram með mynstur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir síðustu útaukningu eru 9 þumallykkjur settar á þráð, að auki eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 41-45 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.5 þar til stykkið mælist ca 18-20 cm (nú eru eftir 3 cm til loka – mátið e.t.v. handstúkuna, prjónið að óskuðu máli og endið þegar prjónaðar hafa verið ca 2 umferðir á eftir umferð með köðlum). Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 2-3 fyrstu lykkjur og aukið jafnframt út 2-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 16 lykkjur í A.5 og aukið jafnframt út um 1 lykkju yfir A.5, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 22-25 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 51-54 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll handstúkan mælist ca 21-23 cm. ÞUMALL: Setjið til baka 9 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 6 nýjar lykkjur á bakhlið á þumli (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp + 2 lykkjur hvoru megin við þessar 2 lykkjur) = 15 lykkjur. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (passið uppá að þumallinn verði ekki prjónaður of fast). Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 51-54 lykkjur á sokkaprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 30-33 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.6 (= 17 lykkjur sem fækkaðar eru til 16 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 4 lykkjur og fækkið jafnframt um 2-1 lykkjur jafnt yfir þessar 4 lykkjur = 40-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: 2-3 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12 cm er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út fyrir op fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 4 sinnum (allan tímann er aukið út utan verðu við útauknar lykkjur þannig að það verður op fyrir þumal) = 48-52 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-19 cm. Haldið áfram með mynstur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir síðustu útaukningu eru 9 þumallykkjur settar á þráð, að auki eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 41-45 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.7 þar til stykkið mælist ca 18-20 cm (stillið af eftir vinstri handstúku). Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 22-25 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 16 lykkjur í A.7 og aukið jafnframt út um 1 lykkju yfir A.7 og prjónið sléttar lykkjur yfir 2-3 síðustu lykkjur og aukið jafnframt út um 2-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 51-54 lykkjur í umferð. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) í 3 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll handstúkan mælist ca 21-23 cm. Prjónið þumal á sama hátt og á vinstri handstúku. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Svenja wrote:
Hallo, ich habe eine Frage zum Diagramm A1 Wenn in diesem Diagramm Hin- und Rückreihen dargestellt sind und linke Maschen in Rückreihen rechts gestrickt werden sollen, warum sind dann z.B. die 4. und 5. Maschen immer links eingezeichnet? Müßten diese in Rückreihen nicht rechts gestrickt werden?
16.11.2023 - 19:28DROPS Design answered:
Liebe Svenja, die leere Kästchen werden rechts bei den Hinreihen gestrickt, aber die 2 ersten und letzten Maschen in A.1 werden Krausrechts gestrickt: rechts bei den Hinreihen und rechts bei den Rückreihen (2. Symbol). So beginnt A.1 mit 2 Krausrechte Maschen, 1 tiefgestochene Masche, 2 Maschen links und endet mit 2 Maschen links, k 1 tiefgestochene Masche und 2 Krausrechte Maschen. Viel Spaß beim stricken!
17.11.2023 - 08:27Jane wrote:
Ni kan ta bort min tidigare fråga. Jag hittade en viseo hur man gör en dubbelmaska. Om ni skriver i diagrammet att det gäller en dubbelmaska (vid den fyllda rutan) så hade det varit en självklarhet att koppla det till rätt video. Jag menar att ni skriver ju ut rät maska och avig maska så det vore en hjälp att också skriva ut dubbelmaska. Jag trodde att en dubbelmaska var när man stickar ihop två maskor till en.
21.11.2022 - 09:41Jane wrote:
HJÄLP! Jag förstår inte hur man gör den maska som är markerad med helsvart ruta i diagrammet. Jag har gjort det förut men när jag ska fortsätta på en gammal stickning så har jag GLÖMT hur man gör och jag hittar ingen info någonstans i form av tex en video. Snälla svara snabbt!
21.11.2022 - 09:29DROPS Design answered:
Hei Jane. Så bra at du fant ut av det selv. Hjelpevideoene er som regel generelle videoer og skal være til mange forskjellige oppskrifter. Noen med og noen uten diagram, noen har med selve ordet dobbeltmaske, mens andre ikke bruker ordet. God fornøyelse videre med strikkingen. mvh DROPS Design
21.11.2022 - 13:12Irena wrote:
Witam. Robię mitenki i nie pasuje mi oczko nr 3 i nr 14 schematu A5. Jest przerabiane jako oczko lewe, a w kolejnym rzędzie jako oczko prawe z wbiciem drutu w poprzednie. Czy schemat jest poprawny? Czy oczko poprzedniego rzędu, w które wbijamy drut nie powinno być oczkiem prawym?
29.09.2022 - 21:44DROPS Design answered:
Witaj Ireno, wszystko jest w porządku, przerabiaj zgodnie ze schematem. Na prawej robótki wbijasz drut pod oczkiem lewym - czyli de facto wbijasz drut, ale w oczko prawe (1 rząd poniżej). Pozdrawiamy!
30.09.2022 - 09:50Judith wrote:
I am knitting the left wrist warmer but I do not understand the instructions “Knit the first 4 stitches and decrease, at the same time, 2-1 stitches evenly over these 4 stitches”
11.02.2021 - 22:07DROPS Design answered:
Hi Judith, This means that if you are working the smaller size, you decrease the 4 stitches to 2, if you are working the larger size you decrease the 4 stitches to 3. Hope this helps and happy knitting!
12.02.2021 - 07:49Birgitta wrote:
Enligt diagrammet ska man sticka maskan ovanför den svarta rät från avigsidan.... men det blir galet när man sen ska sticka dubbelmaskan. Bättre att göra den ovanför avig från avigsidan (eller rät från rätsidan)
31.01.2021 - 09:23Karen Harvey wrote:
Hi, would you please consider writing the stitch names in the key please? For example, the black square in the key is a "double stitch", people seem to have trouble figuring this out from the explanation. If you called it "double stitch" before the explanation they would know to look for the video.
04.12.2020 - 01:07Celine C wrote:
Bonjour,\r\nConcernant les mitaines comment savoir si on doit faire la taille S/M ou M/L ?\r\nAvez vous des tailles en rapport et qu\'elle partie de la main à mesurer?\r\nCordialement
25.09.2020 - 15:05Anna wrote:
Det var väldigt svårt att förstå utifrån beskrivningen hur man skulle sticka den helsvarta rutan. Hade det inte funnits en fråga (med en film som svar och som sa vad denna maska kallades) så hade jag inte kunnat förstå. Annars ett fint mönster!
27.11.2019 - 16:22Dagmar wrote:
Ich möchte das Stirnband stricken und finde die Anleitung zweideutig.Wenn ich die Anleitung von rechts nach links und in der nächsten Reihe von links nach rechts lesen soll, weshalb muss ich dann auch noch die Maschen umdenken?Habe ich nun am Rand auf der Außenseite später lauter rechte oder lauter linke Maschen oder kraus rechts, also abwechselnd eine Reihe rechts und eine Reihe links? Ich weiß nicht warum hier die Anweisung so kompliziert ist und auf dem Foto kann ich es nicht sehen.
01.10.2019 - 12:17DROPS Design answered:
Liebe Dagmar, die Diagramme zeigen alle Reihen, dh Hin- sowie Rückreihen, wie sie von der Vorderseite aussehen. Wenn Sie dan A.1 stricken, werden alle leere Kästchen rechts bei den Hinreihen (in jeder 1., 3., 5., usw Reihe) und dann aber links bei den Rückreihen (selben Reihen), das - wird links bei den Hinreihen gestrickt und dann rechts bein den Rückreihen. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!
01.10.2019 - 13:26