Perles du Nord Jacket |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.
DROPS 180-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur) mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 6,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan. Ef auka eigi út þá er það gert til skiptis eftir ca 6. og 7. hverja lykkju (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið inn í mynstur svo að ekki myndist gat). UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 10-10-11-12-12-13 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 20-20-22-24-24-26 lykkjur brugðið. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 30-30-33-36-36-39 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið 40-40-44-48-48-52 lykkjur brugðið. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 50-50-55-60-60-65 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið 60-60-66-72-72-78 lykkjur brugðið. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 70-70-77-84-84-91 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Þegar mynsturbekkurinn er prjónaður með tveimur litum í berustykki, prjónið með grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2: Til þess að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar þá er mikilvægt þegar mynstrið er prjónað að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 7 næstu hnappagöt með ca 7½-8-8-8½-8½-9 cm á milli hverra. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÁLSMÁL: Fitjið upp 132-136-140-144-152-160 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 19-17-15-13-15-17 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 113-119-125-131-137-143 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 sléttum kantlykkjum að framan í hvorri hlið. Til að flíkin passi betur er nú prjónuð smá UPPHÆKKUN í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkuninn hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar 6 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR-1 OG LEIÐBEININGAR-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með stjörnu í A.1 (þ.e.a.s. síðasta umferð frá réttu í A.1) eru 232-245-258-271-326-341 lykkjur í umferð, aukið jafnframt út 11-22-33-36-21-22 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 243-267-291-307-347-363 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð frá réttu prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 29-32-35-37-42-44 mynstureiningar 8 lykkjur), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur, en í umferð merktri með stjörnu í A.2 (þ.e.a.s. síðasta umferð frá réttu í A.2) er aukið út um 8-16-24-24-16-16 lykkjur jafnt yfir = 251-283-315-331-363-379 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð frá réttu prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15-17-19-20-22-23 mynstureiningar 16 lykkjur), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri. Þegar næst síðasta umferð í A.3 er eftir (merkt með ör í hverri stærð) eru 326-368-410-431-473-494 lykkjur í umferð, aukið jafnframt út 11-11-1-11-0-5 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu = 337-379-411-442-473-499 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 24-26-28-30-32-34 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. ATH: Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað áfram í sléttprjóni með litnum grænn og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið að réttu máli. Næsta umferð er prjónuð frá réttu með grænn þannig: Prjónið 55-60-64-70-76-81 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 99-109-117-130-141-151 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 55-60-64-70-76-81 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 229-249-269-294-321-345 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 60-65-70-76-83-89 lykkjur inn frá hvorri hlið = 109-119-129-142-155-167 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Haldið áfram með litinn grænn og prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum við miðju að framan í hvorri hlið í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 10. hverri umferð (ca í 3. hverjum cm) til loka (ef prjónfestan passar á hæðina þá jafngildir þetta ca 9 útaukningar í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 30 cm frá skiptingu í öllum stærðum eru ca 265-285-305-330-357-381 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 83-87-95-106-115-123 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 348-372-400-436-472-504 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *,endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið síðan af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 64-75-83-86-90-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-85-95-98-104-109 lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn með grænn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 11-15-19-19-21-22 sinnum í S: Í 9. hverri umferð, í M: Í 6. hverri umferð, í L og XL: Í 4. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 3. hverri umferð og 4. hverri umferð og í XXXL: Í 3. hverri umferð = 52-55-57-60-62-65 lykkjur. Þegar ermin mælist 31-29-28-26-25-23 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 16-17-19-20-18-19 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 10 cm (eða að óskaðri lengd) er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 41-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (32)
Birgitta Mörnefält wrote:
Jag vill sticka den här koftan nerifrån och upp. Hur gör jag?
03.11.2023 - 13:05DROPS Design answered:
Hei Birgitta. Les oppskriften godt, husk f.eks gjør økninger istedenfor minskninger, les diagrammene oppned osv. mvh DROPS Design
06.11.2023 - 14:05Gravina wrote:
C'est bon j'ai trouvé, tout va bien 👌👌
28.01.2023 - 22:57Gravina wrote:
Bonjour Il y a un problème sur le graphique A.3A Si l'on fait un les jetés des lignes 11 15 et peut être aussi 25 cela ne cadre plus avec le graphisme du pull !!
28.01.2023 - 16:42DROPS Design answered:
Bonjour Mme Gravina, lorsque vous faites 1 jeté dans le diagramme, cela augmente le nombre de mailles du motif à tricoter, au rang suivant, tricotez la nouvelle maille comme indiqué dans le diagramme, le motif va s'élargir et s'aligner tout comme dans le diagramme. (même si vous n'avez par ex que 3 m de la couleur du fond à la fin du rang 11 (et 4 m au début du diagramme), continuez bien ainsi, tel que le diagramme est représenté). Bon tricot!
30.01.2023 - 08:55Renate Nijk wrote:
The sleeve for M must be 29 cm+ 10. If I do that it is a short sleeve until :between elbow and wrist. Is this correct? Renate
14.09.2022 - 22:17DROPS Design answered:
Dear Mrs Nijk, that's correct, check measurements on a similar garment you have and like the size, don't forget to measure from neck too (including yoke)- and adjust to your own size if needed. Happy knitting!
15.09.2022 - 09:53Ana wrote:
Los aumentos marcados en el gráfico A.3A, los 3 últimos, no se pueden realizar en los sitios donde se marcan por que desvirtúan el dibujo..., yo estoy realizando una talla XXXL y tuve que cambiar de sitio y deshacer un buen trozo.
18.01.2022 - 13:05Kirsten Mogensen wrote:
Ifølge opskriften 180-4, skal der strikkes udtagningspinde efter diagrammet, hvor der er markeret med stjerne. Jeg kan se det drejer sig om ret mange masker, men kan ikke gennemskue hvor mange og hvordan. Håber du kan hjælpe mig. Venlig hilsen Kirsten
01.06.2021 - 10:11DROPS Design answered:
Hej Kirsten, Det er lidt forskelligt, det kommer an på hvilken størrelse du strikker. I A.1 tages der 11-22-33-36-21-22 masker ud jævnt fordelt (vælg det antal som står i din størrelse). Næste gang tager du ud i A.2, her skriver vi også hvor mange masker du skal tage ud.
02.06.2021 - 12:10Astrid Flage Larsen wrote:
Har dere ikke Drops Flora farge grønn nr 15?
19.03.2021 - 18:28DROPS Design answered:
Hei Astrid. Jo, DROPS Flora farge 15 grønn er fremdeles i vårt sortiment. mvh DROPS design
22.03.2021 - 12:11Marlene wrote:
Bonjour j aimerais savoir si il est possible d agrandir la largeur de la manche Nous a.vous des mailles sur notre aiguille et on en rajoute pour le dessous du bras Carmela serre au début et c est très fatiguant Si on rajoute des mailles est ce que cela l’agrandirait et ne déformerait pas la manche ?
01.03.2021 - 15:57DROPS Design answered:
Bonjour Marlene, si vous ajoutez des mailles, vous allez modifier la largeur/circonférence de la manche qui ne passera plus avec les explications du modèle. Vous pouvez ajuster sur la base d'un modèle présentant les mêmes manches que celles que vous souhaitez (cherchez bien un modèle de même tension). Pour toute assistance complémentaire, n'hésitez pas à contacter votre magasin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
01.03.2021 - 16:12Lubica wrote:
I am working on pattern A.3A, in row 11 I add a loop at the beginning and then each time after 18 loops. This means that then the diamonds are moved and their points are not centered above the crosses below them-this happens if I follow the pattern of 1 green loop, 4 white, 1 green... How to proceed? Should I follow pattern 1-4-1 or should I create a green loop always according to the bottom tip of the cross in order to keep it centered? In the second case, there would be 5 loops instead of 4
27.02.2021 - 13:42DROPS Design answered:
Dear Lubica, work diagram as shown - the diamonds have to be worked like that, you will increase 1 stitch at the end of each repeat some rows later, so that the diamond will match perfectly. Happy knitting!
01.03.2021 - 10:38Ľubica wrote:
V 11 rade vzoru A.3A pridávame očko na začiatku a vždy po 18 očkách. To znamená, že potom sa nám kosoštvorce posúvajú a nie sú vycentrované ich hroty nad krížikmi pod nimi, ak dodržíme vzor 1 zelené očko, 4 biele, 1 zelené,... Ako teda pokračovať, dodržať vzor 1-4-1 alebo aby to nebolo posunuté, dať zelené očko vždy podľa spodného hrotu krížika? Vtedy by tam, kde bol nákyd, neboli 4 ale 5 očiek. Nejako to nevychádza. Prosím o radu. Ďakujem.
20.02.2021 - 23:23DROPS Design answered:
Dobrý den, Lubico, myslím, že máte chybě zorientované schéma: vzorek čteme zprava doleva (a zdola nahoru). V 11. řadě nahazujeme 1 oko vždy na konci sekvence, tj. vždy za 17. okem vzoru. Pak by mělo být vše v pořádku a kosočtverce by měly ležet nad sebou. Hodně zdaru! Hana
28.02.2021 - 00:30