Winter Berries Jacket |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-15 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki við miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-12-13-14-15-16 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-24-26-28-30-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-36-39-42-45-48 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-48-52-56-60-64 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-60-65-70-75-80 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt). ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur), mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 4,7. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Í þeim umferðum sem annað hvort eru rendur eða mynsturborðar er prjónað með liti í rönd eða grunnlit í mynsturborða einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2 (á við um marglitt mynstur): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Þ.e.a.s. prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kant í hálsi í garðaprjóni, síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-9-8-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-108-112-116-120 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með litnum ljós grár. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 19-21-23-31-33-35 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 og fellið af fyrir HNAPPAGAT í lok þessarar umferðar – sjá útskýringu að ofan = 119-125-131-143-149-155 lykkjur í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR-1 og 2! Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjum slétt í hvorri hlið fyrir kant að framan. Til að flíkin passi betur er nú prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 36-38-40-44-46-48 mynstureiningar 3 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1A eins og útskýrt er að neðan – lesið ÚTAUKNING-1 (alltaf er aukið út í umferð frá réttu) og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð með ör-1 er aukið út um 30-30-36-42-42-42 lykkjur jafnt yfir = 149-155-167-185-191-197 lykkjur. Í umferð með ör-2 er aukið út um 24-27-30-33-36-36 lykkjur jafnt yfir = 173-182-197-218-227-233 lykkjur. Í umferð með ör-3 er aukið út um 24-27-30-33-36-36 lykkjur jafnt yfir = 197-209-227-251-263-269 lykkjur. Í umferð með ör-4 er aukið út um 20-26-28-28-30-36 lykkjur jafnt yfir = 217-235-255-279-293-305 lykkjur. Í umferð með ör-5 er aukið út um 18-24-28-28-30-34 lykkjur jafnt yfir = 235-259-283-307-323-339 lykkjur. Í umferð með ör-6 er aukið út um 16-16-16-16-16-24 lykkjur jafnt yfir = 251-275-299-323-339-363 lykkjur. Í umferð með ör-7 er aukið út um 8-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 259-287-311-335-355-379 lykkjur. Í umferð með ör-8 er aukið út um 8-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 267-299-323-347-371-395 lykkjur. Í umferð með ör-9 er aukið út um 6-10-14-14-14-10 lykkjur jafnt yfir = 273-309-337-361-385-405 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 23-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað með litnum ljós grár frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 40-43-48-51-57-61 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 52-64-68-74-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 79-85-95-101-113-121 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 52-64-68-74-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-43-48-51-57-61 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 185-197-221-233-257-281 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 49-52-58-61-67-73 lykkjur inn frá hvorri hlið = 87-93-105-111-123-135 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 12 lykkjur eru eftir á prjóni (= 14-15-17-18-20-22 mynstureiningar 12 lykkjur), prjónið A.2B (= 7 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með ljós grár og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 8 sinnum í hvorri hlið = 217-229-253-265-289-313 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32-33-34-34-34-34 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af með hringprjónum 4,5. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 52-64-68-74-74-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-10-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum ljós grár = 60-72-78-84-84-90 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2A hringinn (= 5-6-6½-7-7-7½ mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir A.2A er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 9-14-16-18-18-20 sinnum í S: Í 11. hverri umferð, í M: Til skiptis í 6. og 7. hverri umferð, í L: Til skiptis í 5. og 6. hverri umferð, í XL og XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 42-44-46-48-48-50 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-37-37-35-34-32 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá skiptingu að ofan, í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af með sokkaprjónum 4,5. Ermin mælist ca 42-41-41-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
BELONY wrote:
SUPER. TOUT TOMBE TOUT PILE. Je me suis affolée pour RIEN. J'ai compris maintenant. C'est très bien expliqué. Merci.
13.03.2024 - 16:36BELONY wrote:
Bonjour \r\nJe viens de me lancer dans le gilet femme malgré vos explications , je n\'arrive pas à comprendre à quel moment je dois m\'occuper de la partie dos et devant. J\'en suis au rangs 41 pour la diminution 6.,si je ne me suis pas trompée.\r\nA QUEL MOMENT JE COMMENCE LA SEPARATION POUR LES MANCHES SVP. MERCI DE ME REPONDRE Véro
12.03.2024 - 17:51DROPS Design answered:
Bonjour Véro, vous devez augmenter pour l'empiècement jusqu'à la flèche-9 du diagramme A.1A; quand ces augmentations sont faites, tricotez encore jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 23-25-26-28-30-32 cm de hauteur totale depuis le rang de montage le long du bord de l'un des devants - continuez en gris si besoin après le diagramme;. Vous allez maintenant diviser l'ouvrage et mettre les mailles des manches en attente pour tricoter le bas du gilet et les manches séparément. Bon tricot!
13.03.2024 - 07:47BELONY wrote:
BonjourJe viens de me lancer dans le gilet femme avec le même motif, malgré vos explications et les explications , je n\'arrive pas à comprendre à quel moment je dois m\'occuper de la partie dos et devant , aussi pour séparer les manches. J\'en suisau rangs 41 pour la diminution 6. si je ne me suis pas trompée. Pouvez-vous me dire où je place les manches et ou je commence le dos devant.A QUEL MOMENT JE COMMENCE LA SEPARATION POUR LES MANCHES SVP. MERCI DE ME REPONDRE
12.03.2024 - 17:47Sheila Wilkinson wrote:
Drops design 181/15 There is a correction on this pattern which states that "When A1 has been worked 1 time vertically work the next row as follows from the wrong side with light gray" There is nothing else to tell me what to do next. Please help
25.03.2020 - 08:37DROPS Design answered:
Dear Mrs Wilkinson, if you printed the pattern after the date of the correction,then the online pattern is right and already includes that correction. Happy knitting!
25.03.2020 - 10:10Annika Hudak wrote:
Hej! Jag har stickat denna kofta till mig själv och älskar den! Det var roligt att sticka uppifrån och ner och göra framkant etc direkt. Nu skulle jag vilja göra motsvarande i herrmodell. Dvs en kofta uppifrån och ner, runt ok samt något nordiskt mönster i garn motsvarande karisma. Går det att få tag på ett sådant mönster? Mvh Annika
07.02.2020 - 14:57DROPS Design answered:
Hej Annika, så här söker du :) nordisk - herr - uppifrån och ner
11.02.2020 - 11:51Haagen wrote:
Bonjour, Je voudrais réaliser ce joli modèle. La couleur rose qui parait sur la photo ne me semble pas être la même que celle présentée qui est plus fuchsia. Que me conseillez-vous?
31.01.2020 - 18:40DROPS Design answered:
Bonjour Mme Haagen, en fonction de l'éclairage et de l'environnement, la même couleur peut apparaître différemment. N'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS (même par mail ou téléphone) pour toute aide au choix des couleurs. Bon tricot!
03.02.2020 - 09:12Desgranges Liliane wrote:
Comment faire pour que la base du gilet ne roulotte pas ? Merci
05.03.2018 - 09:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Desgranges, vous pouvez bloquer votre gilet à la fin (humidifiez-le et faites le sécher à plat, avec des épingles si besoin). Bon tricot!
05.03.2018 - 09:55Jasmin Gold wrote:
Sehr geehrtes Drops Team, laut Anleitung muss nach der 9 . Zunahme eine Rück-Reihe mit den stillgelegten Maschen gestrickt werden und danach die Ärmel und der Rumpfteil extra (Muster A.2a folgt), jedoch fehlen vom Muster A.1 noch drei Reihe vom Muster . Soll ich nun erst A.1 fertig Stricken ( wie auf dem Dazugehörigen Bild dargestellt) oder sofort A.2a stricken ? Wenn ja dann fehlen diese drei Reihen im Muster ! Mit freundlichen Grüßen
18.02.2018 - 11:06DROPS Design answered:
Liebe Frau Gold, ja A.1 müssen Sie bis zur Ende stricken, dann A.2 anfangen. Viel Spaß beim stricken!
19.02.2018 - 09:53Linda Kozakewich wrote:
I am unable to find out exactly how much yarn is needed for any of the sizes you've stated as well as exactly the measurement of the stated sizes. Am new knitted and really like this pattern. Can you help me please.
04.12.2017 - 07:32DROPS Design answered:
Dear Linda, for example, in size S you will need: 350 g colour 44 light grey, 50 g colour 01 off white, 50 g colour 13 cerise, 50 g colour 16 dark grey, 50 g colour 48 wine red and 50 g colour 72 light pearl grey. As for measurement, please see our lesson How to read a schematic drawing. Happy knitting!
04.12.2017 - 08:36Anna Lindborg wrote:
När jag har stickat förhöjningen till oket är det dags att börja sticka mönster enligt A1.1. När jag tittar i mönstret använder jag först ljust pärlgrå och sedan wienröd. Men när jag tittar på bilden av koftan ser jag tydligt att mönstret börjar med ljusgrå och natur. Har jag missförstått instruktionen, eller saknas den första ljusgrå/natur-delen av mönstret? Tack på förhand! Mvh Anna
16.11.2017 - 17:56DROPS Design answered:
Hej, delen med ljusgrå och natur finns med nederst i diagram A.1.
17.11.2017 - 17:24