Sweet Betty |
|
|
|
Settið samanstendur af: Húfu fyrir börn í garðaprjóni og leikfanga grís með röndum. Stærð fyrirbura – 4 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino.
DROPS Baby 29-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (á við um grís): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. RENDUR (á við um grís): * 4 umferðir sléttprjón með litnum hvítur, 4 umferðir sléttprjón með litnum ljós bleikur *, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA-1 (á við um grís): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um grís): Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undna prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp (68) 80-92-96-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í (2) 3-3-4-4 (5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 72-84-88-96 (104-108) lykkjur. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (11) 11-12-13-14 (14-15) cm – passið uppá að næsta umferð sé 1 umferð slétt, fækkið um (6) 8-7-8-8 (8-9) lykkjur jafnt yfir. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (5) 5-5-5-5 (6-6) sinnum til viðbótar = (24) 24-42-40-48 (48-45) lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 1 umferð brugðið og endurtakið úrtöku í næstu umferð slétt í stærð 6/9, 12/18 mán og (2 - 3/4) ára (lykkjum er ekki fækkað í hinum stærðunum) = (12) 12-11-10-12 (12-12) lykkjur. Dragið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. ------------------------------------------------------- GRÍS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá trýni og aftur. Fætur, eyru og skott eru prjónuð hvert fyrir sig og saumað á búkinn í lokin. TRÝNI OG HÖFUÐ: Fitjið upp 6 lykkjur á prjón 2,5 með litnum ljós bleikur. ATH: Ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð slétt í hverri umferð til loka (= kantlykkja). UMFERÐ 1 (= ranga): LESIÐ ÚTAUKNING! Prjónið 1 lykkju slétt ,* sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 11 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 21 lykkja. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-* 18 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 41 lykkja. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: Prjónið slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 8-9: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 10: 1 lykkja slétt, * 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt = 33 lykkjur. UMFERÐ 11-13: Prjónið sléttprjón. UMFEÐR 14: 1 lykkja slétt, * 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 2 lykkjur slétt = 28 lykkjur. UMFERÐ 15-20: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 21: 1 lykkja slétt, 10 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 lykkjur brugðnar, 1 lykkja slétt = 30 lykkjur. UMFERÐ 22: Prjónið slétt. UMFERÐ 23: 1 lykkja slétt, 11 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11 lykkjur brugðnar, 1 lykkja slétt = 32 lykkjur. UMFERÐ 24: Prjónið slétt. UMFERÐ 25: 1 lykkja slétt, 12 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur brugðnar, 1 lykkja slétt = 34 lykkjur. UMFERÐ 26: Prjónið slétt. Haldið svona áfram með útaukningu þar til 40 lykkjur eru í umferð. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 32: Prjónið slétt. UMFERÐ 33: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur brugðnar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 44 lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið slétt. UMFERÐ 35: 1 lykkja slétt, 18 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 18 lykkjur brugðnar, 1 lykkja slétt = 46 lykkjur. UMFERÐ 36: Prjónið slétt. Haldið svona áfram með útaukningu, þ.e.a.s. aukið er út um 2 lykkjur mitt í stykki í annarri hverri umferð og 1 lykkja í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í 4. hverri umferð þar til 92 lykkjur eru í umferð. Setjið 1 prjónamerki. BÚKUR: Haldið áfram fram og til baka á prjóni. Prjónið 2 cm sléttprjón með litnum ljós bleikur (frá prjónamerki). Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist ca 21 cm frá prjónamerki (endið á 1 rönd með litnum ljós bleikur). Setjið 6 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig (án þess að prjóna lykkjurnar): 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 16 lykkjur í umferð, síðan eru 5 næstu prjónamerki sett með 15 lykkjur á milli hverra (á eftir síðasta prjónamerki er 1 lykkja eftir á prjóni). Stykkið er nú prjónað til loka í sléttprjóni með litnum ljós bleikur þannig: Í 1. umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á undan öllum prjónamerkjum – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 8 sinnum til viðbótar = 38 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkju slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 lykkju slétt = 20 lykkjur. Prjónið 3 umferðir sléttprjón og endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar = 11 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. FRÁGANGUR: Saumið út augu á grísinn – sjá mynd. Saumið grísinn saman alla leið frá trýni og aftur – saumið í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir smá op til að setja fyllingu inn. Fyllið grísinn með vatti og saumið saman opið. FÓTUR: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 6 lykkjur á prjón 2,5 með litnum ljós bleikur. UMFERÐ 1 (= ranga): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 11 lykkjur. UMFERÐ 2 (og í hverri umferð frá réttu): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 21 lykkja. UMFERÐ 4-6: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 7: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 8. Prjónið slétt. Endurtakið umferð 7 og 8 þar til 27 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum hvítur. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum hvítur og prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju slétt í hvorri hlið, áður en fellt er af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið alls 4 fætur. Saumið sauma á fótum í ystu lykkjubogana. Fyllið hvern fót með vatti og saumið fæturna neðan á grísinn. Framfæturnir eru staðsettir ca þar sem rendurnar byrja uppi við háls með ca 3-4 cm millibili. Afturfætur eru staðsettir ca 3-4 cm framan við úrtöku að aftan. EYRA: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna neðan frá og upp. Fitjið upp 6 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós bleikur (skiptið lykkjunum á 2 st sokkaprjóna 2,5 þannig að það verða 3 lykkjur á hvorum prjóni, prjónið með þriðja prjóninum. UMFERÐ 1. * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 10 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 14 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 18 lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð þar til 38 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til eyrað mælist 9 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (þ.e.a.s. á milli 2 lykkja slétt í hvorri hlið). Fækkið síðan um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3 sinnum til viðbótar = 22 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 10 næstu lykkjur slétt saman 2 og 2, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og fellið síðan af allar lykkjur. Notið nál og herðið uppfitjunarkantinn saman neðst niðri á eyra. Prjónið annað eyra alveg eins og saumið eyrun niður á bleiku eininguna ofan á höfði (það eiga að vera ca 7 cm á milli eyrna ofan á höfði) – sjá ljósmynd. SKOTT: Fitjið upp 20 lykkjur á prjón 2,5 með 2 þráðum í litnum ljós bleikur. Prjónið 2 lykkjur í hverja lykkju = 40 lykkjur. Fellið laust af, klippið frá og saumið skottið niður fyrir miðju aftan á grísnum. BAND Í HÁLSI: Fitjið upp 65 lykkjur á prjón 2,5 með 2 þráðum í litnum hvítur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja slétt, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff þar til bandið mælist 2 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Leggið bandið utan um hálsinn á grísnum aftan við eyrun, leggið endana yfir hvorn annan að ofan og saumið saman með nokkrum sporum. Saumið e.t.v. tölu til skrauts ofan á bandið. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Nancy Marks wrote:
Hi, I'm making the Sweet Betty hat, and I don't understand the direction near the end that says "On the next round of knit, knit all the stitches together 2 and 2." Can you please tell me what that means? Thank you!
27.05.2023 - 00:15DROPS Design answered:
Hi Nancy Marks! That means you knit 2 together all round and every second stitch is decreased away, so you'll have fewer stitches left on the round. Hope it helps!
27.05.2023 - 14:01Britta wrote:
Hallo! Ich möchte gern wissen, ob bei der Maschenabnahme nach 12cm der anfängliche Teil (3cm im Rippenmuster) mitgezählt wird, also ab Strickstück Beginn oder wird erst dem Bündchenrand angesetzt die 12cm abgemessen? Danke für die Hilfe! LG Britta
04.04.2022 - 12:48DROPS Design answered:
Liebe Britta, die 12 cm sind von der Anschlagskante gemessen. Viel Spaß beim stricken!
04.04.2022 - 15:07Ellie Moore wrote:
Thank you for your answer. One more question. What about the part where it says every 4th row to add increase after the edge stitch? What row would that be? Row 41? Then when again?? And do you also increase in the middle of the row so 4 increases? Thank you
23.07.2021 - 15:52DROPS Design answered:
Dear Mrs Moore, you increase now alternately 2 sts (on each side of the 6 middle sts) and 4 sts (= on each side of the 6 middle sts + on each side of piece, inside the edge sts). So that on row 39 you will work as on row 35 and 37 (= inc 4 sts) and on row 41 as on row 35 and 37 and so on until there are 92 sts on needle. Continue like this increasing alternately 2 sts every other row and 4 sts every 4th row. Happy knitting!
23.07.2021 - 16:12Ellie Moore wrote:
Iam working on the pig pattern. I am having a problem understanding the directions for row 37 and on. Can you explain the next 4 -6 rows in detail, please? I.e. will row 37 be k1, purl 20,etc.? Thanks for your help.
23.07.2021 - 00:24DROPS Design answered:
Hi Ellie, Yes on row 37 you have knit 1, purl 20 etc, knit a row, then knit 1, purl 22 etc and knit the next row. Happy knitting!
23.07.2021 - 08:34Britt Krogell wrote:
Hej. Undrar om man måste sy en " innerpåse" till Sweet Betty-grisen då man stickat en aning löst (enligt andra helt normalt). Jag har köpt vadd som är mening att fylla dynor med. Hur brukar det vara? Jag är novis vad gäller att sticka eller sy men har nu stickat "griseknoen" ivf till mitt första barnbarn.
19.06.2021 - 12:15DROPS Design answered:
Hej Britt. Det är lite svårt att veta hur löst du har stickat, men tanken är inte att man ska sy en innerpåse utan bara fylla vadd direkt i grisen. Mvh DROPS Design
29.06.2021 - 13:44Teresa Muto wrote:
Salve, cosa si intende con "1 maglia a ogni lato prima/dopo la maglia di vivagno ogni 4 ferri"? lavoro prima la maglia di vivagno e poi faccio l'aumento o a inizio ferro faccio l'aumento e poi la maglia di vivagno?
03.04.2020 - 18:59DROPS Design answered:
Buonasera Teresa, lavorare l'aumento dopo la maglia di vivagno all'inizio del ferro e prima della maglia di vivagno alla fine del ferro. Buon lavoro!
03.04.2020 - 19:21Suna wrote:
Mit wieviel Maschen muss ich die Mütze beginnen wenn ich es für ein Baby 2 monate stricken will L.g
17.01.2020 - 21:20DROPS Design answered:
Liebe Suna, Sie können die Größe je nach der Größe oder je nach der Kopfumgang wählen, z.B. in der Größe 1/3 Monate (3. Größe) fängt die Mütze mit 92 Maschen an. Viel Spaß beim stricken!
20.01.2020 - 08:09Rosamaria Cellerino wrote:
Desidero ringraziarvi per il vostro meraviglioso sito! Per la vostra chiarezza e numerosissimi argomenti! È la mia passione. Spero presto di acquistare Drops baby Merino!Rose.
01.12.2019 - 16:25Lizeth wrote:
Klopt de beschrijving van maat 1-3 maanden van het mutsje wel? Na de minderingen (6x 7 steken) kom je inderdaad op 42 steken, maar als ik dan 1x 2 aan 2 samenbrei, kom ik toch echt op 21 steken en niet op 11, zoals er staat. Ik heb gewoon de dubbele draad door die 21 steken gehaald, maar hij is bovenop daardoor wel wat bobbeliger dan bij de maten die ik eerst gebreid had (0-1 en 6-9 maanden). Ik aarzel of ik het uithaal en nog een ronde minderingen moet doen. Uw advies graag
08.07.2019 - 11:19DROPS Design answered:
Dag Lizeth,
Als je 42 steken hebt en alle steken 2 aan 2 samenbreit, heb je inderdaad 21 steken. Dan brei je nog 1 naald averecht en brei je opnieuw de steken 2 aan 2 samen. Je hebt dan ongeveer 11 steken. (het precieze aantal steken steekt dan niet meer zou nauw, want je rijgt een draad door de steken en trekt de draad aan om de muts dicht te maken.)
12.07.2019 - 08:45Lizeth wrote:
Dank u voor het antwoord. Ik schrijf het in mijn notitieboek erbij voor een volgend mutsje (deze is al af ;-)
22.11.2018 - 13:08