Orange Dream Top |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Toppur prjónaður ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri á berustykki og A-formi úr DROPS Safran. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-45 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. UPPHÆKKUN: Prjónið frá byrjun umferðar (= miðja að aftan), prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 7-7-7-8-8-8 lykkjurnar, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14-14-14-16-16-16 sléttar lykkjur, snúið við, herðið á þræði og prjónið 21-21-21-24-24-24 sléttar lykkjur, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28-28-28-32-32-32 sléttar lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 7-7-7-8-8-8 lykkjur fleiri í hvert skipti þar til miðju 70-70-70-80-80-80 lykkjur hafa verið prjónaðar, snúið við og prjónið til baka að byrjun á umferð áður en prjónað er áfram. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 5,2. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 5. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjur á undan A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1 (prjónamerki er staðsett mitt í A.1), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar slétt þar til þær ganga upp í mynstur. ÞEGAR AUKIÐ ER ÚT UM 2 LYKKJUR HVORU MEGIN VIÐ LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI Í ÞÁ ER ÞAÐ GERT ÞANNIG: Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, takið upp liðinn á undan lykkju og prjónið hann snúinn slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið upp liðinn á undan næstu lykkju og prjónið hann snúinn slétt (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ÞEGAR AUKIÐ ER ÚT UM 1 LYKKJU HVORU MEGIN VIÐ LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI Í ÞANNIG: Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. LEIÐBEININGAR: Þegar aukið er út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð koma götin í laskalínu til með að fá lengri fjarlægð á hverra annarra en þegar aukið er út í annarri hverri umferð. Til að koma í veg fyrir þetta er prjónuð göt í umferðinni (í annarri hverri umferð) án útaukninga þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna. Byrjun umferðar = miðja að aftan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 104-104-104-124-124-124 lykkjur á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 124-124-124-144-144-144 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Til að fá betra form er prjónuð smá UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið 2 umferðir slétt. Setjið 4 prjónamerki í stykkið með byrjun frá byrjun umferðar (það er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerki er sett í 21.-21.-21.-26.-26.-26. lykkju í umferð, annað prjónamerki er sett í 42.-42.-42.-47.-47.-47. lykkju í umferð, þriðja merkið er sett í 83.-83.-83.-98.-98.-98. lykkju í umferð og fjórða merkið er sett í 104.-104.-104.-119.-119.-119. lykkju í umferð. Á milli lykkja með prjónamerki í eru nú 40-40-40-50-50-50 lykkjur á framstykki og á bakstykki og 20 lykkjur í öllum stærðum fyrir hvora ermi Næsta umferð er prjónuð þannig: A.1 (= 5 lykkjur) yfir næstu 20-20-20-25-25-25 lykkjur á hálfu bakstykki (= 4-4-4-5-5-5 mynstureiningar með 5 lykkjum), aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir 20 lykkjur á ermi (= 4 mynstureiningar með 5 lykkjum), aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið A.1 yfir 40-40-40-50-50-50 lykkjur á framstykki (= 8-8-8-10-10-10 mynstureiningar með 5 lykkjum), aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið A.1 yfir 20 lykkjur á ermi, aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið A.1 yfir næstu 20-20-20-25-25-25 lykkjur á hálfu bakstykki Haldið áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð alls 6-6-6-8-8-10 sinnum (fyrsta útaukning hefur nú þegar verið prjónuð), aukið síðan um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð alls 8-8-8-9-9-10 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar aukið hefur verið alls út 14-14-14-17-17-20 sinnum eru 284-284-284-344-344-384 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-10-10-12-12-14 cm frá uppfitjunarkanti (mælt við miðju að framan). Prjónið síðan sléttar lykkjur. JAFNFRAMT heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu og aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð alls 0-7-12-4-13-12 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-4-3-7-4-5 sinnum – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 332-372-404-432-480-520 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-19-21-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti (mælt við miðju að framan). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 47-52-56-62-68-73 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 72-82-90-92-104-114 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-13-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 94-104-112-124-136-146 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 72-82-90-92-104-114 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-13-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= á hlið undir ermi) og prjónið þær 47-52-56-62-68-73 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar eru síðan prjónað hvort fyrir sig. Takið prjónamerkin úr stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-222-242-266-298-322 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 7-7-9-9-13-15 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni, að auki er A.1 prjónað yfir miðju 5 lykkjurnar í hvorri hlið (lykkja með prjónamerki í er miðju lykkjan í A.1). Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6-6-6-5-5-4 cm millibili alls 5-5-5-6-6-7 sinnum = 222-242-262-290-322-350 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32 cm er skipt yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3 og fellið af með sléttum lykkjum. Toppurinn mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. KANTUR Á ERMUM: Setjið 72-82-90-92-104-114 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjóna 2,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 7-7-9-9-13-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 79-89-99-101-117-129 lykkjur í umferð. Prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Skiptið aftur yfir á sokkaprjóna 3 og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Claudia wrote:
Beim Stricken der Erhöhung ergeben sich bei mir unschöne Löcher - warum ist das so? Habe recherchiert und bin auf das Stricken von Doppelmaschen gekommen, die hier aber gar nicht erwähnt werden. Wird das einfach vorausgesetzt, dass man das weiß oder wurde darauf vergessen es zu erwähnen? Schade drum, jetzt muss ich nochmal neu beginnen!
25.08.2023 - 18:05DROPS Design answered:
Liebe Claudia, für die Erhöhung wird die Technick von Doppelmaschen nicht benutzt - die verkürzten Reihen werden mit dieser Technick gestrickt, dh wenden, Faden ziehen um ein Loch zu vermeiden und weiter stricken - aber gerne können Sie damit stricken. Viel Spaß beim stricken!
28.08.2023 - 13:12Sheila wrote:
If I have 144 stitches when I switch to 3mm needles and place markers at the26th, 98th, 119th stitch I have 21 and 51 stitches between not the 20 and 50 mentioned in the pattern..I am new to circular knitting can you help me please, I am obviously misinterpreting the pattern. With thanks
18.06.2023 - 17:23DROPS Design answered:
Dear Sheila, you should have: 25 stitches, marker in next stitch, 20 stitches, marker in next stitch, 50 stitches, marker in next stitch, 20 stitches, marker in next stitch. There should be 25 stitches left after the last marker. In total : 140 stitches + 4 stitches with markers= 144 stitches. Happy knitting!
18.06.2023 - 19:53Betty Coussens wrote:
Hierbij mijn antwoord op jullie respons (in het Engels) op mijn vraag gesteld op 3 mei. Deze vraag is gesteld in het Nederlands. Ik woon echter in Portugal. Vandaar dat ik als land Portugal had opgegeven.
04.05.2023 - 23:56DROPS Design answered:
Dag Betty,
Je vraag was inderdaad over het hoofd gezien, omdat het land als Portugal stond ingesteld. Hierbij het antwoord: je neemt de lus op tussen 2 steken, deze zet je op de linker naald en dan brei je deze lus gedraaid. Vlak daarna maak je ook nog een omslag. Door de lus gedraaid te breien is er 1 steek gemeerderd en door de omslag te maken is er nog een steek gemeerderd. (De omslag brei je op de volgende naald normaal)
< 08.05.2023 - 20:59Betty Coussens wrote:
Ik begrijp niet hoe ik aan beide kanten van de markeerdraad 2 steken moet meerderen voor de raglan. Ik heb al allerhande varianten geprobeerd (lus tussen de 2 steken, onder de steek, manier van insteken) maar ik slaag er niet om het juiste resultaat te bekomen. Ik vind ook geen passend videofilmpje als hulpmiddel. Is het mogelijk om alsnog een videofilmpje te maken zodat het duidelijk wordt.
03.05.2023 - 18:49DROPS Design answered:
Can you be so kind as to choose the flag of your language in order to get a prompt reply from our team? Thank you in advance.
04.05.2023 - 13:41Aggy wrote:
Skal forhøyningen strikkes i riller siden det strikkes rett hele tiden?
05.04.2023 - 05:00Leanyjack wrote:
If I wanted to knit the lace yoke in a different colour (in the medium size) approximately how much yarn would I need, for the yoke?
27.03.2023 - 21:25DROPS Design answered:
Dear Mrs Leanyjack, as we worked this top with only one colour, we cannot say how much yarn you would need - please contact your DROPS store - even per mail or telephone, they will be able to assist you there. Happy knitting!
28.03.2023 - 10:02Maryse wrote:
Besoin d’aide car je n’arrive pas droit dans mes ajourés. Lorsque je tricote les augmentations double de chaque côté de mes marqueurs, au rang suivant aucune augmentation. J’ai donc avant mon marqueur deux mailles de plus, à combien de mailles dois continuer à me rendre pour faire le motif A1? est-ce lorsque j’ai 5 mailles avant la maille du marqueur ou ? Gros gros merci!!!
13.02.2023 - 04:29DROPS Design answered:
Bonjour Maryse, lorsque vous augmentez pour le raglan, ne tricotez en point fantaisie que si vous avez suffisamment de mailles pour agrandir le point ajouré, autrement dit, pour mieux vous situer, mettez un marqueur avant le 1er A.1, et tricotez les mailles augmentées avant ce A.1 en jersey jusqu'à ce que vous puissiez tricoter le motif ajouré, continuez A.1 comme avant jusqu'aux augmentations que vous tricotez soit en jersey soit dans un nouveau motif ajouré. Continuez ainsi tout le tour, pour chaque pièce (dos, devant et manches). Bon tricot!
13.02.2023 - 11:24Anja wrote:
Hallo, was genau ist mit MASCHENPROBE BEACHTEN gemeint? Worauf soll geachtet werden? Danke und viele Grüße
28.09.2022 - 19:14DROPS Design answered:
Liebe Anja, Ihre Maschenprobe soll 24 Maschen x 32 Reihen glatt rechts = 10 x 10 cm sein; wenn Sie dann das Top stricken, müssen Sie immer noch 24 Maschen x 32 Reihen = 10 x 10 cm haben, und nicht locker oder enger stricken, sonnst werden die Maßen nicht mehr stimmen. Viel Spaß beim stricken!
29.09.2022 - 08:28Nina Fabricius wrote:
Jeg har i forsommeren 2022 strikket denne top. Pasformen er perfekt. Det, som har irriteret og skuffet mig, er, at jeg valgte at strikke i marine (9) Safran, og at garnet er falmet på forstykket i vandrette striber, typisk der hvor toppen folder, når man sidder. Ligeledes er det falmet, hvor brysterne er højest! Dette er en kommentar, men alligevel vil jeg spørge, om jeg en anden gang tør bruge marineblåt Safran?
25.09.2022 - 13:56Anneke Seigers wrote:
Excuses, de vorige vraag niet goed opgesteld. Ik heb een proeflapje gemaakt, omdat ik andere wol gebruik en kom uit op naald 4 mm. Moet ik dan voor het begin naald 3,5 gebruiken I.p.v. 2,5?
22.03.2022 - 10:33DROPS Design answered:
Dag Anneke,
Ja, je kan inderdaad dan naald 3,5 gebruiken (een halve maat kleiner)
24.03.2022 - 11:55