Let's Walk |
|
|
|
Heklaðar tátiljur úr DROPS Nepal. Stærð 35-43.
DROPS Extra 0-1378 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR-1 (á við þegar heklað er í hring): Hver umferð byrjar með 1 loftlykkju sem kemur í stað 1. fastalykkju og her umferð endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar. HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við þegar heklað er fram og til baka): Hver umferð byrjar með 1 loftlykkju, loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. LITASKIPTI: Til að fá fallega skiptingu þegar skipt er um lit er síðasta fastalykkjan hekluð áður en skipt er um lit þannig: Stingið heklunálinni í síðustu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. Haldið áfram með nýja litnum. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er að hekla stykkið í hring frá sóla, neðan frá og upp. Síðan er heklað fram og til baka. SÓLI: UMFERÐ 1: Heklið loftlykkjuumferð með 21-25-29 loftlykkjum (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 4 með litnum sæblár í DROPS Nepal. Heklið 4 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni, setjið fyrra prjónamerki mitt á milli þessa 4 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 18-22-26 loftlykkjum, heklið 4 fastalykkjur í síðustu loftlykkju, setjið seinna prjónamerki mitt á milli þessa 4 fastalykkja, heklið síðan í hring á gagnstæðri hlið við loftlykkjuumferðina, heklið 1 fastalykkju í hverja af 18-22-26 lykkjunum, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju = 44-52-60 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið * 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, heklið 2 fastalykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum (prjónamerki á nú að sitja mitt á milli þessa lykkja) *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju út umferðina = 4 fastalykkjur fleiri. UMFERÐ 3: Heklið eins og umferð 2 = 52-60-68 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið * 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 lykkjum, 2 fastalykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju út umferðina = 8 fastalykkjur fleiri. UMFERÐ 5 OG ÁFRAM: Heklið eins og umferð 4 2-2-1 sinnum, síðan er heklað eins og umferð 2 1-1-3 sinnum = 80-88-96 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. Héðan er fyrra prjónamerkið einungis notað. ATH: Ef prjónamerkið hefur færst aðeins til, verður að færa þetta prjónamerki þannig að það sitji mitt framan á tá. KANTUR Á SÓLA: Byrjið næstu umferð mitt á annarri hliðinni, þ.e.a.s. byrjið í 21.-23.-25. fastalykkju á undan prjónamerki. Heklað er að tá með litnum natur þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju. UMFERÐ 2-3: Heklið nú venjulega fastalykkju í gegnum báða lykkjubogana – heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: Heklið nú hálfa rönd í lok umferðar á hæl þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 40-44-48 fastalykkjunum, skiptið yfir í sæbláan – LESIÐ LITASKIPTI og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 40-44-48 fastalykkjum. UMFERÐ 5-6: Skiptið yfir í litinn natur. Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 80-88-96 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið. OFAN Á TÁ – HÁLFHRINGUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan fram og til baka – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR -2! UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12-12-12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 lykkjunum, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 lykkjum *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkju = 16-16-16 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, * 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum = 20-20-20 fastalykkjur. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hvora af síðustu 2 fastalykkjum = 24-24-24 fastalykkjur – klippið ekki frá! Stærð 35/37 og 38/40 heklið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ 41/43: UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hvora af síðustu 2 lykkjum = 28 fastalykkjur – klippið ekki frá! ALLAR STÆRÐIR: Heklið síðan eina umferð þversum með byrjun frá réttu, þ.e.a.s. um hverja umferð (= 6-6-7 umferð hvoru megin við loftlykkjuhringinn). Heklið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1: Hoppið yfir fyrstu umferð, heklið 1 fastalykkju um hverja af næstu 5-5-6 umferðum, heklið 1 hálfan stuðul um loftlykkjuhringinn, heklið 1 fastalykkju um hverja af næstu 5-5-6 umferðum, hoppið yfir síðustu umferð, endið með 1 keðjulykkju í byrjun fyrri umferðar = 11-11-13 lykkjur. UMFERÐ 2-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Skiptið yfir í sæbláan – næsta umferð í frágang byrjar hér – frá réttu! FRÁGANGUR (kantur á sóla og hálfhring): Leggið hálfhringinn ofan á kant á sóla, miðja á hálfhring (= 12-12-14-fastalykkjur í hvorri hlið) á að mæta prjónamerki við miðju framan á kanti. Heklið 1 umferð hringinn með litnum sæblár þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1! Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju/um hverja umferð í gegnum bæði lögin = 80-88-96 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið. BAND: Heklið lítið band sem síðar er heklað saman með síðustu umferð á hliðarstykki. Heklið fram og til baka með litnum natur þannig: UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur, snúið við og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 loftlykkjum = 4 fastalykkjur. UMFERÐ 2-11: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Geymið bandið. HLIÐAR-/BAKSTYKKI: Heklið hliðarstykki fram og til baka frá síðustu umferð frá kanti. Nú er ekki lengur heklað yfir 24-24-28 fastalykkjur við miðju að framan. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið með litnum vatnsblár. Heklið 1 fastalykkju í hverja af þeim 56-64-68 fastalykkjum sem eftir eru. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 2 FASTALYKKJUR SAMAN – sjá útskýringu að ofan, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 fastalykkjur færri). UMFERÐ 3: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 21-25-27 fastalykkjur, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 21-25-27 fastalykkjur, endið með 2 fastalykkjur saman (= 4 fastalykkjur færri) = 50-58-62 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Endurtakið umferð 2 = 48-56-60 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 18-22-24 fastalykkjur, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 18-22-24 fastalykkjur, endið með 2 fastalykkjur saman (= 4 fastalykkjur færri) = 44-52-56 fastalykkjur. Endurtakið umferð 2 7-9-9 sinnum til viðbótar = 30-34-38 fastalykkjur í síðustu umferð. Heklið síðan 6-6-6 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = alls 18-20-20 umferðir. Síðasta umferð er hekluð saman við band frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 13-15-17 fastalykkjur, brjótið bandið í tvennt og heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum í gegnum öll 3 lögin, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af síðustu 13-15-17 fastalykkjur. Klippið ekki frá! KANTUR AÐ FRAMAN FYRIR SKÓREIM: Heklið 1 kant áfram niður yfir umferð þar sem lykkjum fækkaði, þannig: Heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 umferð, heklið 1 fastalykkju um næstu umferð *, endurtakið frá *-* meðfram öllum skásniðna kantinum, endið með 1 keðjulykkju í síðustu umferð = 9-10-10 loftlykkjubogar. Klippið frá og festið enda. Heklið 1 kant í hinn skásniðna kantinn á sama hátt, nema gagnstætt, þ.e.a.s. byrjað er neðst niðri með 1 keðjulykkju í fyrstu umferð, endið með 1 keðjulykkju efst uppi. SPÆLL: Heklið nú spæl fram og til baka í 11-11-13 fastalykkjum sem heklaðar voru þversum ofan á hálfhring. Heklið með litnum vatnsblár. UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 9-9-11 lykkjum, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 13-13-15 fastalykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Endurtakið umferð 2 17-19-19 sinnum til viðbótar, heklið síðan þannig: * Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, snúið við og heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 fastalykkjur færri) *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4 sinnum = 7-7-7 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. SKRAUT: Heklið 3 loftlykkjur með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 11 stuðla um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju, skiptið yfir í litinn sæblár. UMFERÐ 2: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 2 fastalykkjur í hvern stuðul = 24 fastalykkjur. Saumið skrautið niður með smáu, fínu spori ca mitt á annarri hlið á hliðarstykki. SNÚRA: Gerið tvinnaða snúru þannig: Klippið 2 þræði í litnum natur ca 4 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum loftlykkjuumferðina (annar hver loftlykkjubogi) alveg eins og þegar strigaskór eru þræddir. Heklið aðra tátilju á sama hátt, nema saumið skrautið í gagnstæða hlið á hliðarstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (55)
Renate wrote:
On the sole, Where it says round five and onwards if I go onto round eight, it will have 88 stitches instead of 80, am I doing this right?
26.04.2024 - 18:57DROPS Design answered:
Dear Renate, which size are you working? For the two smallest sizes you only work up to round 7. Round 5 and 6 are worked as round 4 and round 7 is worked as round 2. For size 35/37 you will have 80 stitches here; for size 38/40 you will have 88 stitches. If you work one more round of increases, extra to the pattern as a modification, you will have 4 more stitches if you repeat round 2 or 8 more stitches if you repeat round 4. Happy knitting!
28.04.2024 - 22:58Ronja Kaul wrote:
Bei der 3. Runde vom Seitenteil sind bei mir am Ende 4 Maschen zuviel übrig geblieben nachdem ich das letzte Mal 25 feste Maschen und 2 Maschen zusammen gehäkelt habe. Was war da mein Fehler ? LG Ronja
24.03.2024 - 22:25DROPS Design answered:
Liebe Frau Kaul, bei der 2. Reihe haben Sie schon 2 Maschen abgenommen, so wird die 3. Reihe über 62 Maschen gehäkelt: 2 M zs, 25 M, 2 M zs, 4 M, 2 M zs, 25 M, 2 M zs (2+25+2+4+2+25+2= 62 M) = 58 M übrig. Viel Spaß beim häkeln!
02.04.2024 - 09:24Ilka Lüdke wrote:
Hallo, besteht die Möglichkeit ein Zeichnung der Sohle zubekommen. Ich habe ein Problem die Maschen so zu erreichen wie sie drin stehen. Der Runde Drei habe ich 55 Maschen statt 52 . Aber in der 2. Runde stimmt die Anzahl. Eine Zeichnung würde mir da gut helfen. Vielen Dank LG Ilka
29.02.2024 - 11:36DROPS Design answered:
Liebe Frau Lüdke, so häkeln Sie die 25 Luftmaschen: 4 fM in die 2. Lm (4 fm / 2 Lm), 1 fM in je die nächsten 22 Lm (= 22 fM/22 Lm), 4 fM in die nächste = die letzte Lm (= 4 fm / 1 Lm) - (2+22+1=25 Lm), dann 1 fM in je die nächsten 22 Lm (= 22 fM/22 Lm), 1 KM in die 1. Luftmasche = 4+22+4+22=52 fM, dh 4 fM in je die 1. und die letzte Luftmasche und 1 fM in die 22 Luftmaschen beidseitig (und auf beiden Seite von der Luftmaschenkette). Viel Spaß beim häkeln!
29.02.2024 - 16:15Marian Stomphorst wrote:
Zou u mijn vraag van 2 augustus Willen beantwoorden
25.08.2023 - 12:03Marian Stomphorst wrote:
Ik kan niet verder bij de halve cirkel. Ben maat 38/40 aan haken dus moet niet toer 7 haken maar door naar alle maten...nou dan snap ik het echt niet,haak aan de andere kant, "hoeveel steken "Sla eerste toer over? Zou u mij duidelijk uitleg willen geven
02.08.2023 - 22:00Marian Stomphorst wrote:
Ik snap toer 5 niet, haak zoals voor toer 4, 2-2-1 keer, ......enzo hoe moet ik die toer nu gaan haken,en ik denk dat het meer toeren worden als toer 5. Hoop dat u mij begrijpt
01.08.2023 - 18:52DROPS Design answered:
Dag Marian,
Je haakt de 5e toer zoals toer 4 en omdat er staat 'toer 5 en verder' wordt er met 2-2-1 keer bedoelt dat je voor de kleinste en middelste maat 2 keer toer 4 haakt, en voor de grootste maat 1 keer toer 4. Daarna haak je 1-1-3 toeren als toer 2.
08.08.2023 - 11:50Farha wrote:
This is a lovely pattern. I really enjoyed making these. Just a tip though: I personally needed two skeins of the white, and only 2 skeins of the aqua blue, instead of one white, and three aqua blue. The sea blue was about right, but I had to buy another white as I ran out while working these. (I was making the largest size). Other than this, it was another gorgeous Drops pattern and was a lot of fun to make.
20.05.2022 - 21:55Begoña wrote:
Hola, habría un esquema para hacer la suela de la zapatilla ya que no se saben las vueltas que lleva y como hacer los aumentos, gracias
17.01.2022 - 19:18DROPS Design answered:
Hola Begoña, este patrón no tiene diagrama. La suela se explica al inicio del patrón. Se recomienda usar marcapuntos o hilos marcadores para marcar las vueltas y los aumentos.
17.01.2022 - 20:04Ferial wrote:
Thank you so much i learn knitting because of your help.....thank you so muchhhhh
06.01.2022 - 22:26Titine wrote:
Bonjour, je n'ai pas compris comment faire les allers retours sur le dessus du pied en demi cercle.
03.05.2021 - 11:37DROPS Design answered:
Bonjour Titine, parlez-vous de la partie DESSUS DU PIED - DEMI-CERCLE; crochetez en rangs (pas en rond), les rangs 1 à 6 en tournant bien à la fin de chaque rang, vous allez ainsi réaliser une sorte de demi-cercle en partant du bord côté lacets sur la 1ère photo pour terminer par l'arrondi qui sera crocheté avec le bout du pied côté pointe en bleu. Quand ce demi-cercle est terminé, vous crochetez le long des rangs + au milieu du rond + le long des rangs pour remonter et faire la languette. Bon crochet!
03.05.2021 - 13:37